Morgunblaðið - 27.06.1995, Qupperneq 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Golli
Sunna skaut Guðrúnu og
Geirlaugu ref fyrir rass
Morgunblaðið/Golli
VALA Flosadóttlr, hln efnilega frjðlsíþróttakona, sem er
búsett í Svíþjóð, í keppnl í kúluvarpi.
Jón Arnar
sterkur
JÓN ARNAR Magnússon,
tugþrautarkappi úr UMSS,
sýndi mikinn styrk á Meist-
aramótinu, varð öruggur
sigurvegari í 100 m hlaupi
og langstökki. Hér á mynd-
inni til hliðar kemur hann í
mark í 100 m hlaupinu á
undan Jóhannesi Má Mar-
teinssyni, ÍR, og Friðriki
Arnarsyni, Ármanni. Þó að
mótvindur hafi verið 1,77
metrar á sekúndu náði Jón
Arnar að hlaupa á 10,92
sek.
Þrír bræður í
úrslitahlaupi
BRÆÐURNIR Ólafur Sveinn,
Bjarni Þór og Björn Trausta-
synir tóku þátt í úrslitahlaup-
inu í 100 m. Þetta var í fyrsta
skipti í sögu Meistaramótsins,
að þrír bræður hlaupi úrslita-
hlaup. Þeir eru synir Trausta
Sveinbjömssonar, fyirum
spretthlaupara úr Breiða-
bliki, sem var tímavörður í
hlaupinu.
EinarVil-
hjálmsson
aftur með
EINAR Vilhjálmsson tók þátt
í spjótkastkeppninni og var
þetta fyrsta mót hans í tíu
mánuði, en hann hefur átt við
meiðsli að stríða. „Ég er allur
að koma til,“ sagði Einar sem
kastaði 69,16 m. Þráinn Haf-
steinsson, landsliðsþjálfari,
var ánægður með endurkomu
Einars. „Aðstæðumar vora
ekki góðar, en Einar sýndi
það að hann er á réttri leið.
Ég hef trú á því að hann eigi
eftir að kasta yfir áttatíu
metra í sumar.“
Jóhann Jó-
hannesson á
67 Meistara-
mótum
JÓHANN Jóhannesson var
mættur á sitt 67. Meistaramót
í fijálsíþróttum. Þessi fyrrum
íþróttakappi úr Ármanni, sem
var besti grindahlaupari
landsins á fjórða áratugnum,
tók þátt í Meistaramótinu
1928 á Melavellinum og síðan
hefur hann keppt eða mætt
sem áhorfendi á öll Meistara-
mót. Þess má geta að Jóhann
fagnaði sigri i 110 m grinda-
hlaupi á fjórtán Meistara-
mótum.
Engar veiting-
ar á Laugar-
dalsvelli
ÁHORFENDUR sem mættu á
Meistaramótið á laugardag-
inn vora ekki ánægðir með
að veitingasalan var ekki opin
á Laugardalsveliinum. Eftir
að búið var að kvarta við
Valsmenn, sem sjá um söluna,
voru veitingar seldar á sunnu-
daginn.
FH-ingar
meistarar
FH-ingar fengu flest stíg á
Meistaramótinu, 187, og er
FH því Islandsmeistari eins
og 1994. ÍR-ingar fengu 135
stig, HSK 115, Ármann kom
í fjórða sæti með 98 stig.
GUÐRÚN Sunna Gestsdóttir
frá Blönduósi skaut hlaupa-
drottingunum úr Ármanni,
Guðrúnu Arnardóttir og Geir-
laugu Geirlaugsdóttur ref fyrir
rass í 200 m hiaupi á Meistara-
móti ísland, þegar hún fagnaði
sigri — kom fyrst í mark á 24,78
sek. íslandsmethafinn Guðrún
Arnardóttir, sem á metið 24,18
sek. — sett á Meistaramótinu
í fyrra, kom í mark á 24,93 sek.
og Geirlaug á 25,19 sek. Guð-
rún Sunnar var nálægt hví að
fagna einnig sigri í 100 m
hlaupi, en Geirlaug var sterkari
á endasprettinum.
Leiðinda veður á laugardag setti
svip sinn á mótið, sem var
nokkuð bragðdauft. Keppt var í
tveimur nýjum greinum í kvenna-
flokki — sleggjukasti og stangar-
stökki og að sjálfsögðu voru sett
Meistaramótsmet í greinunum.
Guðbjörg Viðarsdóttir, HSK, kast-
aði 29,72 m í sleggjukasti, Kristín
Markúsdóttir varð sigurvegari í
stangarstökki, stökk 2,10 m. Vala
Flosadóttir, sem hefur stokkið 3,51
m, keppti ekki.
Guðrún Arnardóttir setti Meist-
aramótsmet í 400 m grindahlaupi
kvenna, kom í mark á 58,62 sek.
Helga Halldórsdóttir átti gamla
metið, 59,56 — sett 1987.
Eins og fyrr segir var mótið
nokkuð bragðdauft og þegar Þráinn
Hafsteinsson, landsliðsþjálfari, var
spurður um ástæðuna fyrir því,
sagði hann: „Við vorum búnir að
sigta inn á að spretthlaupin yrðu
aðal greinarnar á mótinu. Þegar
þau eru hlaupin í mótvindi verða
tímarnir ekki eins skemmtilegir og
til var ætlast. Þegar aðal númerin
eru höggvin út, vegna aðstæðna,
varð mótið ekki eins spennandi og
skemmtilegt og til stóð.
Fijálsíþróttamenn hafa sýnt það
á undanförnum vikum að það er
mikill uppgangur hjá þeim og ár-
angurinn hefur verið góður, en það
verður að segjast eins og er að það
kom bakslag í þessu móti og ekki
síst hjá þeim sem lögðu sig alla í
Evrópuþikarkeppnina í Tallin og
Smáþjóðaleikana í Lúxemborg. Það
er erfitt að halda sig á toppnum í
margar vikur, án þess að fá ein-
hvern tíma bakslag. Þegar aðstæð-
urnar hér eru ekki upp á það besta,
eins og nú var, lítur þannig út, að
mótið hafi kannski ekki verið nógu
gott.“
Hvað varst þú ánægður með á
mótinu? ...........
„Það sem hefur komið best út,
eru stelpurnar í spretthlaupunum —
Geirlaug Geirlaugsdóttir, Guðrún
Arnardóttir og Sunna Gestsdóttir,
sem eru í mjög góðri æfingu. Þá
hljóp Jóhannes Már Marteinsson vel
í tvöhundruð metra hlaupi og Jón
Arnar Magnússon i hundrað metra
hlaupinu, þar sem hann sýndi styrk,
en því miður er ekki hægt að skoða
tímana, þar sem vindur var of mik-
ill. Friðrik Arnarsson bætti sig vel
í fjögur hundruð metra hlaupi. Vé-
steinn kastaði yfir sextíu metra í
kringlukasti, sem er heimsklassa
árangur. Aðstæðumar í spjótkasti
voru mjög erfiðar, sleggjukastið var
mjög spennandi og kom Bjarki Við-
arsson þar mjög á óvart, komst upp
á milli landsliðsmannanna okkar
Guðmundar Karlssonar og Jóns A.
Siguijónssonar, með því að kasta
yfir sextíu metra — hann er í mik-
illi framför. Langstökkið hjá Jóni
Arnari var þokkalega gott og þar
var Jón Oddsson einnig sterkur.
Langstökkskeppnin hjá konunum
var besta langstökkskeppni sem
hefur farið fram á Meistaramóti,
þar sem Sigríður Anna Guðjóns-
dóttir stökk fimm sjötíu og sex
metra og Sunna fimm sjötíu og
þijá metra. Einnig var boðið upp á
bestu þrístökkskeppni, sem farið
hefur fram hjá konum hér á landi,
þar sem tvær stúlkur stukku yfir
tólf metra.
Þá bætti Hanna Kristín Ólafs-
dóttir árangur sinn í kringlukasti,
þar sem hún náði lengsta kasti ís-
lendings frá upphafi [44,24 m] fyr-
ir utan Guðrúnu Ingólfsdóttur
[53,86 m]. Þetta er það helsta á
mótinu," sagði Þráinn Hafsteins-
son.
■ Úrslit / B13