Morgunblaðið - 27.06.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995 B 7
KNATTSPYRNA
Lazorik med þrennu
Morgunblaðið/Golli
RASTISLAW Lazorlk skoraði þrennu gegn FH-lngum í Kaplakrlka á sunnudagskvöldið. Hér er hann komlnn framhjá Jónl Sveins-
synl og gerlr slg Ifklegan til að taka knöttlnn nlður á brjðstlð og bruna í átt að markl FH.
Meðalmennskan í há-
vegum hölð í Krikanum
EFTIR góða byrjun á íslandsmótinu og sigur ítveimur fyrstu
leikjunum virðist allur botn vera dottinn úr FH—liðinu. Liðið tap
aði sínum fjórða leik í röð þegar þeir tóku á móti Breiðabliki í
Kaplakrika á sunnudagskvöldið. Lokatölur urðu 2:4, Blikum f vil
og hafa FH—ingar nú fengið á sig sextán mörk i síðustu fjórum
leikjum eftir að hafa haldið hreinu í fyrstu tveimur leikjunum.
Fyrri hálfleikurinn var ekki
merkilegur í Kaplakrika á
sunnudaginn og leikurinn fór
meira og minna fram á miðjum
leikvellinum og þar
í grend. Fátt var
Ivar um líflegt samspil
Benediktsson Qg marktæki-
* færi. FH-ingar'
voru meira með boltann en náðu
vart að skapa sér færi sem orð er
á gerandi. Þrumuskot Hallsteins
Anrarsonar á 40. mínútu frá víta-
teigslinu fór rétt framhjá og þar
með er upptalin helsta hættan sem
skapaðist við mark Breiðabliks í
fyrri hálfleik. Þrátt fyrri að vera
minna með boltann voru Blikar
þó heldur skarpari í þeim fáum
sóknarfærum sem þeir fengu.
Anthony Karl Gregory var nærri
búinn að skapa stórhættu í tvígang
inn í teig FH, en mistókst að leggja
knöttinn fyrir sig í bæði skiptin.
En í heildina var hálfleikurinn
daufur og ekki ætlaður syíjuðum
einstaklingum.
Síðari hálfleikur var heldur líf-
legri þó fátt hafi verið um mark-
tækifæri framan af. En eftir að
FH—ingar náðu að jafna á 65.
mín., var sem á þá rynni eldmóður
Shearer semur við
Blackburn til 1999
ALAN Shearer, markakóngurinn mikli hjá Englandsmeisturum
Blackburn Rovers í knattspyrnu, hefur ákveðið að skrifa undir
nýjan samning til fjögurra ára við félagið; samning sem gildir
fram í júní 1999.
„Menn hafa sagt mig á leiðinni hingað og þangað en enginn
virðist hafa gert ráð fyrir að ég yrði hugsanlega hér áfram,“
sagði Shearer í gær, þegar tilkynnt var um ákvörðun hans.
„Ákvörðunin um að koma til Blackburn á sínum tíma var sú besta
sem ég hef tekið á knattspyrnuferlinum," sagði þessi marksækni
miðheiji Blackburn og enska landsliðsins.
og þeir léku oft prýðisvel eftir það
og leit út fyrir að þeir væru að
snúa leiknum sér í hag, en víta-
spyrnudómur Kristins Jakobsson-
ar á 82. mínútu var umdeildur og
sló heimamenn út af laginu. Kjart-
an Antonsson var þá kominn inn
fyrir vítateig Breiðabliks og Ólafur
Stephensen gerði sig líklegan til
að stoppa hann en Kjartan féll við
og Kristinn dæmdi vítaspyrnu á
vafasömum forsendum. Úr spyrn-
unni skoruðu Blikar og bættu síð-
an við tveimur mörkum til viðbót-
ar áður en Hörður Magnússon
minnkaði muninn fyrir FH úr ann-
arri vafasamri vítaspyrnu á loka-
mínútum leiksins. Leit út fyrir að
sú vítaspyrna væri dæmd í sára-
bætur fyrir hina fyrri.
Leikurinn var slakur og leiðin-
legur mest allan tímann. Leikmenn
virkuðu áhugalausir og fátt gekk
upp hjá þeim og þau sex mörk sem
skoruðu voru segja ekkert til um
skemmtanagildi leiksins, það var
nærri því ekkert. Ef leikmenn eru
í þessu meira af skyldurækni en
til að hafa gaman að því sem þeir
eru að gera þá er þeim hollast að
finna sér annað áhugamál. Svona
leikur hvetur fólk ekki á völlinn.
Oa 4[ Auðun Helgason, varnarmaður FH, glopraði frá sér knettin-
■ I um rétt utan við vítateiginn til Ratislaws Lazoriks og hann
var ekki lengi að færa sér það í nyt, því hann var á auðum sjó. Lazo-
rik lék inní teiginn og skaut framhjá Stefáni ( marki FH og í netið á
23. mín.
1a Hallsteinn Arnarson tók hornspyrnu frá vinstri á 65. mín
■ I og sendi inn á markteigslínu á á Auðun Helgason sem skall-
aði aftur fyrir sig á Hörð Magnússon sem framlengdi knöttinn i netið.
1a4%Ratíslaw Lazorik skoraði á 82. mfn., úr vítaspymu sem
■ fcdæmd var eftir brot á Jóni Þ. Stefánssyni.
1a Arnar Grétarsson sendi fallega stungusendingu inn fyrir
a*#vöm FH á 84. mín., á Rastislaw Lazorik sem átti ekki í
nokkrum vandræðum með að skora með föstu skoti, rétt innan við
vítateigslínu, hægra megin.
1wJ% Amar Grétarsson sendi fallega sendingu á Rastislaw Lazo-
■"#rik sem staddur var á miðjum vallarhelmingi FH, vinstra
megin. Rastislaw lék upp að endalínu vinstra megin og sendi þaðan
fyrir markið á Anthony Karl Gregory sem skallaði í markið af stuttu
færi. Þetta gerðist á 87. mín.
2m^§ Knötturin barst fyrir mark Breiðabliks frá hægra horni á
■ *W89. mín., og skyndilega flautaði dómari leiksins, Kristinn
Jakobsson, og benti á vftapunktinn, flestum að óvörum. Hörður Magn-
ússon, tók vítaspymuna og skoraði af öryggi.
■ KRISTÓFER Sigurgeirsson,
sem hefur dvalist í herbúðum Frö-
lunda í Svíþjóð, er á heimleið og
gengið frá félagaskiptum á ný til
Breiðabliks. Kristófer hefur átt
við meiðsli að stríða og lítið getað
leikið með Frölunda.
■ HÁKON Sverrisson, mið-
vallarleikmaður Breiðabliks, sem
ristarbrotnaði í fyrsta leik sínum
í 1. deild, er að ná sér — hann
getur farið að æfa á ný nú í vik-
unni.
■ CHELSEA var sýknað af
ákærum um að hafa ekki haft
hemil á stúðningsmönnum sínum
í ólátum sem urðu að loknum leik
við Millwall í febrúar. Enska
knattspyrnusambandið tók sér-
staklega á málinu vegna þess að
ráðist var á tvo lögreglumenn, sem
ekki hafa jafnað sig. Sjónarvottar
segja að starfsmenn félagsins hafi
reynt allt hvað þeir gátu til að
koma í veg fyrir ólætin og lög-
regluyfirvöld tóku undir það.
■ NAPOLI, fyrrum stórveldi á
Ítalíu á í miklum fjárhagsvanda
og nú hefur nefnd, sem rannsakar
fjárhag ítalskra knattspymuliða,
lagt til að gerðar verði ráðstafanir
til að gera félagið upp. Ákvörðun
verður þó ekki tekin fyrr en leik-
mannamarkaðnum verður lokað
12. júlí.
■ AJAX er um það bil að ljúka
við að setja saman leikhópinn fyrir
næsta ár. Fyrirliðinn Danny Blind
verður áfram og Brasilíumaðurinn
Marcio Santos kemur frá Fior-
entina til að taka við af Frank
Rijkaard, sem hætti. Amsterdaml-
iðið hefur ekki selt neina leikmenn
ennþá en Peter van Vossen, Ta-
rik Oulida og Clarence Seedorf
hafa gefið í skyn að þeir vilji fara.
■ BEBETO og Romario sluppu
ekki í lið Brasilíu fyrir Ameríku-
keppnina (Copa America) keppnina
í næsta mánuði. Þjálfarinn Mario
Zagalo neitaði á blaðamannafundi
að ræða framtíð einstakra leik-
manna, sérstaklega þeirra sem
ekki voru valdir í liðið en sagðist
verða að fá möguleika til að prófa
nýja leikmenn.
■ BEBETO datt út úr brasilíska
landsliðshópnum á fjögurra landa
mótinu í Englandi á dögunum
eftir að FIFA, Knattspyrnusam-
band Evrópu, úrskurðaði að lið
hans, Deportívo La Coruna, hefði
meiri rétt á honum en landsliðið.
■ TAFFAREL, markvörðurinn
snjalli sem var ekki valinn á mótið
í Englandi, komst þó aftur hópinn.
■ SERBINN Radomi Antic hef-
ur verið ráðinn þjálfari Atletíco
Madrid. Hann er tuttugasti
þjálfarinn sem hefur verið ráðinn
til félagsins á síðustu átta árum.
Antíc var þjálfari Real Oviedo í
þrjú ár, en þar áður eitt ár hjá
Real Madrid.
■ KNA TTSPYRNURÁÐ lýð-
veldisins Georgíu dæmdi tvo leiki
ómerka vegna sérkennilegra úr-
slita í síðustu umferð deildarinnar
og sektaði bæði lið og markaskor-
ara. Um er að ræða 10:5 sigur
Kolkheti-1913, þar sem Georgy
Daraselia gerði 9 mörk og 11:4
sigur Torpedo Kutaisi þar sem
Mamuka Khundadze var einnig
með 9 mörk en þessir tveir leik-
menn börðust um markakóngstitil
í deildinni. Daraselia hreppti titil-
inn með 26 mörkum, einu meira
en keppinautur hans.
■ HOLLENDINGAR og Belgar
hafa sótt um að halda sameigin-
lega úrslitakeppni Evrópukeppn-
innar í knattspyrnu árið 2000 og
eru allar líkur á að það verði ofan
á því aðrir hafa ekki sótt um. Þetta
er í fyrsta sinn sem tvær þjóðir
taka sameiginlega að sér að sækja
um slíkt verkefni.