Morgunblaðið - 27.06.1995, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Keflvíkingar til
Skotlands
KEFLVÍKINGAR mæta
Partick Thistle í Evópu-
keppni félagsliða, Intertoto
næsta laugardag. Þeir fara
með áætlunarflugi til London
á föstudagsmorguninn. í
London stoppa þeir stutt við
þvi þeir fljúga þaðan til
Glasgow í Skotlandi þar sem
þeir munu taka æfingu um
kvöldið á heimavelli Partick
og leika svo gegn þeim um
miðjan dag á laugardeginum.
Keflvíkingar fara síðan sömu
leið til baka og koma heim
aftur seint á laugardags-
kvöldið.
Þrír f rá Ka-
merún
í LIÐI Metz eru tveir lands-
liðsmenn Kamerún sem voru
landsliðshópnum í HM í
Bandaríkjunum í fyrra. Það
eru markvörðurinn Jacques
Songo’o og miðjumaðurinn
Rigobert Songbahanag.
Þriðji Kamerún maðurinn
Patrich Mboma er nýlega
gengið til liðs við félagið.
Einn Brassi
Tvenn vamarmistök
þegar Keflvíkingartöpuðu gegn Metz í Evrópukeppni félagsliða, Intertoto
MEÐ sunnan strekking íbakið áttu Keflvíkingar ífullu tré við
franska liðið Metz í fyrri hálfleik í viðureign liðanna í Keflavík á
sunnudaginn og náðu á þeim tíma að skora eina mark sitt í leikn-
um. En í síðari hálfleik þegar liprir franskir leikmenn höfðu vind-
inn í bakið léku þeir eins og sá sem valdið hefur. Þeir sköpuðu
sér fá færi en voru mikið meira með knöttinn og léku oft vel
saman út á vellinum og loks þegar varnarmenn Keflavíkur misstu
einbeitinguna nýttu þeir sér það til hins ftrasta og skoruðu tvö
mörk sem dugði þeim til sigurs í leiknum, 1:2
spymu af löngu færi á 35. mín.
Þannig að Keflvíkingar áttu færi
til að bæta við en allt kom fyrir
ekki. Á sama tíma fengu Frakkam-
ir engin færi sem ógnuðu marki
Keflavíkur.
En barátta Keflavíkur í fyrri
hálfleik kostaði þá þrek og í síðari
hálfleik tóku leikmenn Metz öll völd
1«^\Kjartan Einarsson fékk fallega stungusendingu inn fyrir
■ ^Jvöm Metz á 8. mín. og skaut frá vítateigshorni vinstra
megin föstu skoti yfir markvörðinn Songo’o og í netið.
1a «8 Á 55. mín., var vöm Keflavikur illa á verði þegar Jocelyn
■ | Blanchard og Cyrille Pougat léku þríhymigsspil i gegnum
miðja vörnina og Jocelyn Blanchard varð skyndilega einn og skaut
af stuttu færi i netið, óveijandi fyrir Ólaf í marki Keflavíkur.
1m ^Annað mark Metz var keimiíkt því fyrra, Jocelyn Bainchard
■ mmog Samba N’diaie léku þríhyrningsspil og komust i gengum
vöm Keflavíkur og Balnchard skoraði aftur af stuttu færi.
Keflvíkingar báru enga virðingu
fyrir gestum sínum þegar
flautað var til leiks og gáfu þeim
engin grið og náðu
■■■■■■ að byggja upp góðar
ívar sóknir en herslu-
Benediktsson muninn vantaði oft.
Að þeir urðu fyrri til
að skora á 8 mín., kom því fáum á
óvart. Miðjumenn heimamanna
voru sterkir og héldu vel við og
aftasta vömin með Helga Björg-
vinsson fremstan í flokki stöðvaði
flestar sóknartilraunir frönsku leik-
mannanna.
Ragnar Margeirsson fékk upp-
lagt tækifæri á 18. mín., þegar
hann var á auðum sjó en hitti knött-
inn illa og sóknin rann út í sandinn.
Skömmu síðar voru Ragnar og Óli
Þór hindraði í vítateig franska liðs-
ins eftir aukaspyrnu Kjartans fyrir
utan teig, en ekkert var dæmt.
Esyteinn Hauksson fékk dauðafæri.
eftir homspyrnu á 28. mín., en einn
Frakkinn náði að bjarga í horn á
elleftu stundu og Marko Tanasic
skaut þrumskoti rétt yfir úr auka-
á vellinum og sóttu ákaft og lengi
vel náðu leikmenn Keflavíkur ekki
að komast fram yfir miðju. En þrátt
fyrir ákafa sókn Frakka gekk þeim
oft illa að reka endahnútinn á sókn-
ir sínar, en það tókst þeim í tvígang
mjög vel og það nægði þeim. Kefl-
víkingar fengu aðeins eitt hættu-
legt færi í síðari hálfleik og það
var þegar Sverrir Sverrisson, nýko-
inn inn á, sendi fyrir markið frá
mörkum endalínu og vítateigs og
fast skot Róberts Sigurðssonar fór
rétt framhjá stönginni vinstra meg-
in.
Engar stórstjörnur eru í franska
liðinu sem ekki virtist vera sérlega
sterkt. Þó er kannski ekki að marka
því að aðstæður til knattspyrnuið-
kunnar í Keflavík eru ekki eins og
þeir eiga að venjast, talsverður
vindur og völlurinn erfiður.
Leikmenn Metz hafa líka verið
í sumarfríi sl. vikur og komu sam-
an nokkurm dögum fyrir leikinn
til að hefja sinn undirbúning fyrir
næsta keppnistímabil. Bestur
þeirra var markaskorarinn Jocelyn
Blanchard.
Sama vandamálið var upp á ten-
ingnum hjá Keflvíkingum í þessum
leik og í Islandsmótinu, leikmönn-
um gekk illa að nýta marktæki-
færi sín og það er hlutur sem þeir
verða að finna lausn á. Helgi Björg-
vinsson, Karl Finnbogason, Kjart-
an Einarsson og Eysteinn Hauks-
son voru þeirra bestu menn.
Morgunblaðið/RAX
Hafði varað við þrí-
hymingspili þeirra
- sagði ÞórirSigfússon, þjálfari Keflavíkurliðsins
ÞÁ leika með félaginu Brasi-
liumaðurinn Isais og einn
leikmaður frá Lúxemborg
Jeff Strasser. Isais, sem heitir
fullu nafni Magalhaes Da
Silva, lék með allt þar til ein
minúta var eftir af leiknum
og sýndi frekar slakan leik.
Strasser leysti hann þá af
hólmi en hafði engan tíma til
að gera einhveijar rósir.
Sjö nýir leik-
menn
FORRÁÐAMENN Metz eru
að byggja upp nýtt lið og
hafa að undanförnu keypt sjö
unga leikmenn til liðsins.
Fimm þeirra komu komu með
hópnum til íslands. Meðal
þeirra má nefna Jocelyn
Blanchard sem skoraði bæði
mörkin gegn Keflavík og
Brasilíumaðurinn Isais, en
hann lék síðast með belgíska
liðinu Seraing.
Metz hefur
selt fjóra
Nýlega seldi félagið sinn
þekktasta leikmann Philippe
Vercruysse til Sion í Sviss.
Auk hans hafa þrír aðrir leik-
menn verið seldir frá félaginu
og einum leikmanni skilað,
Mickael Hoy, sem var í láni
frá Mulhouse.
Metz fór héð-
an til Ítalíu
LIÐIÐ er nú að undirbúa sig
fyrir næsta keppnistíambil í
Frakkalandi og hafði æft í
fjóra daga áður en það kom
hingað til lands. Héðan fara
leikmenn Metz til norður ítal-
íu í átta daga æfingabúðir.
Fyrri hálfleikurinn var okkur erf-
iður vegna þess að við lékum
gegn nokkuð sterkum vindi og þeir
fengu nokkur færi. I síðari hálfleik
náðum við öllum völdum á vellinum
og skoruðum tvö mörk,“ sagði Joel
Muller, þjálfari Metz eftir að lið
hans hafði sigrað Keflavík á sunnu-
daginn. „Þetta var annars erfiður
leikur fyrir mína menn því við þeir
Eysteinn
Hauksson
lék vel
gegn Metz
EYSTEINN Hauksson,
miðjuleikmaður Keflavík-
ur, var elnn af bestu
mönnum llðslns í lelknum
gegn franska IIAInu Metz
á sunnudaginn. Hér hefur
hann unnlð boltann af
frönskum leikmann! en
annar fylglst grannt með
tilbúinn að reyna að
stöðva Eysteln.
eru ekki vanir þessum aðst.æðum
sem boðið var upp á. Völlurinn
slæmur og strekkingsvindur. Eins
erum við nýbyijaðir að æfa fyrir
næsta keppnistímabil eftir mánað-
arfrí frá knattspyrnu, en keppnis-
tímabilinu lauk 21. maí í Frakk-
landi. Keflavíkurliði var svipað og
ég taldi það vera. I liðinu eru nokkr-
ir góðir leikmenn og mér fannst
Við renndum nokkuð blint í sjó-
inn um andstæðinga okkar
fyrir leikinn og vorum því ákveðnir
í að leika okkar bolta til að byija
með og sjá til. Fyrri hálfleikurinn
heppnaðist nokkuð vel hjá okkur,
númer átta [Marko Tanasic), tíu
[Kjartan Einarsson] og númer tvö
[Helgi Björgvinsson] vera bestu
menn þeirra í leiknum. Eins og ég
sagði er við að hefja okkar undir-
búningstímabil fyrir frönsku deild-
arkeppnina og það er ágæt stemmn-
ign í herbúðum Metz og mér þykir
ágætt að fá þess leiki í keppninni
til að nota með í undirbúningnum
en við bökkuðum kannski of mikið
í þeim síðari," sagði Þórir Sigfús-
son, þjálfari Keflavíkur, eftir tapið
gegn Metz. „Það var óheppni að
skora ekki fleiri mörk í fyrri hálf-
leik þegar við náðum að hafa í
fullu tré við þá, það vantaði oft
ekki nema herslumuninn. Fyrir
leikinn hafði ég varað mína menn
við því að þeir væru liprir,
eins og franskir knatt-
spyrnumenn eru, og því
myndu þeir reyna þríhyrn-
ingsspil í gegnum vörn
okkar og það gerðu þeir.
Þannig skoruðu þeir bæði
mörk sín. Vörnin missti
einbeitinguna um tíma og
það var dýrkeypt. Annars
var síðari hálfleikurinn
frekar slakur hjá mínum
mönnum og þegar bættist við
þreyta þá var ekkert annað að gera
en að skipta um leikmenn og það
gerði ég. Eftir fyrstu tvær skipting-
arnar færðist aukið líf í liðið að
nýju, en ekki nóg til að bæta við
mörkum. Lið Metz er skipað fljót-
um leikmönnum en ekkert hjá þeim
kom mér á óvart.“
1m ^%Daði Dervic sendi glæsilega inn
■ Wfyrir vörn Valsmanna á 57.
mínútu, Hilmar Björnsson skaust milli
varnarmanna á hárréttum tíma, þannig
að hann var ekki rangstæður og vippaði
laglega rétt utan vítateigslínu yfir Lárus
markvörð, sem þaut á móti honum út í
teíginn. Knötturinn fór í fjærhomið án
þess að aðvífandi varnarmenn fengju
nokkuð að gert.
Ekki vanir þessum aðslæðum
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ1995 B 9
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Golli
BANNAÐ að „teika"! Guðmundur Benedlktsson, framherjl í llði KR-lnga, hanglr aftan í Petr Mrazek,
tékkneska varnarmanninum hjá Val. Þetta var fyrsti leikur Guðmundar með sínu nýja félagi á heimavell-
inum vlð Frostaskjól og hann hélt upp á daginn með slgri gegn Hlíðarendaliðlnu.
Nóg af færum en
aðeins eitt mark
ÞAÐ fór ekki á milli mála að KR var
betra liðið í viðureigninni við Val á
KR-velli á sunnudag. Heimamenn
voru meira með knöttinn, fengu
mun fleiri færi og svo fór að þeir
sigruðu, 1:0. Sanngjarn sigur, en
frammistaða KR-liðsins var engu
að síður ekkert til að hrópa hátt
húrra fyrir. Þó verður að geta þess
að á köflum sýndu Vesturbæingarn-
ir ágætis kattspyrnu, en engin
spurning er um að iiðið á að geta
enn betur. Mjög jákvætt var reyndar
fyrir KR-inga hve mörg færi þeir
sköpuðu sér en að sama skapi sorg-
legt hvernig þeim tókst að klúðra
svo mörgum. Valsmenn reyndu
hvað þeir gátu á sunnudaginn en
án árangurs og mega aldeilis taka
sig saman í andlitinu, ef þeir ætla
að koma sér af hættusvæðinu.
Hér var um að ræða gríðarlega mikil-
vægan leik fyrir bæði lið. KR varð
að vinna til að lenda ekki of langt á eft-
■■■■■■ ir Skagamönnum og
Skapti Valsmenn að sama skapi
Hallgrimsson til að laga stöðu sína á
botni deildarinnar. Gest-
irnir ætluðu sér greinilega að leggja
aðaláherslu á vörnina — skiljanlega
og freista þess að halda hreinu. Litlu
munaði þó að Guðmundur Benediktsson
kæmi KR á blað strax á upphafsmínútun-
um, er hann komst einn í gegn en knött-
urinn small á þverslánni eftir fast skot
hans.
Kristinn Lárusson vippaði í þverslána
ofanverða hinum megin á vellinum
skömmu síðar og fljótlega eftir það skaut
Þormóður KR-fyrirliði framhjá af stuttu
færi eftir hornspyrnu. Eru þá færin í
hálfleiknum upp talin utan tvö sem KR
fékk undir lokin. Mihajlo Bibercic fékk
þau bæði og ekki munaði miklu að hann
skoraði. Þó því, að hann skoraði ekki og
hann átti eftir að endurtaka þann leik
nokkrum sinnum í seinni hálfleik. Var
hreinlega með ólíkindum hvernig þessi
marksækni leikmaður komst hjá því að
skora í leiknum.
KR-ingar voru mun meira með knött-
inn í fyrri hálfleiknum, léku honum ágæt-
lega á milli sín úti á vellinum og komust
reyndar ótrúlega auðveldlega upp vinstra
megin og í gegn, en náðu ekki að skapa
umtalsverða hættu þrátt fyrir það.
Bæði lið komu ákveðin til leiks eftir
hlé, Einar Þór komst fljótlega einn í
gegn en Lárus Valsari varði mjög vel
eftir úthlaup og hinum megin varði Krist-
ján af snilld strax í næstu sókn, fast
skot Stewarts Beards af stuttu færi.
Hins vegar fór ekki á milli mála að
KR-ingar voru betri og þeim tókst að
bijóta ísinn á 57. mín. er Hilmar Björns-
son skoraði.
KR-ingar réðu áfram ferðinni, lögðu
aðaláherslu á að halda fengnum hlut og
hefðu auðveldlega átt að geta bætt við
því þrisvar komst Bibercic í ákjósanlegt
tækifæri til að skora. í fyrsta skiptið var
varið frá honum, næst skaut hann að
því er virtist nokkra millimetra framhjá
fjærstönginni en þriðja sinni var skotið
lélegt; laflaust og langt framhjá. Enda
greip hann fyrir andlitið. Vonbrigðin
augljós hjá þessum markakóngi ís-
landsmótsins í fyrra, sem hefur
ekki fundið sig það sem af er sumri.
Lið KR gerði sumt ágætlega:
Vörnin var sterk og þar vakti at-
hygli Brynjar Gunnarsson; traustur
strákur sem á greinilega framtíðina
fyrir sér. Einar Þór og Sigurður
Orn léku mjög vel fyrir hlé en voru
reyndar ekki eins áberandi í séinni
hálfleik. Heimir lék vel á miðjunni
og Hilmar átti góða kafla.
Valsmenn eru í mótvindi þessa
dagana. Sjálfstraustið virðist ekki
mikið, leikmenn lögðu sig þó greini-
lega fram en það var sama hvað
þeir reyndu — hlutirnir gengu ein-
faldlega ekki upp. Vörnin er ekki
traust, þó hún hafi lengstum verið
fjölmenn, miðjumennirnir máttu sín
ekki mikils gegn Heimi og Sigurði
Erni og framlínan var lítt ógnandi.
Leiflurs-
menn betri
í rokinu
LEIFTUR siglir nú hraðbyri
upp stigatöfluna eftir 2:1 sigur
á ÍBV í Olafsfirði sl. sunnu-
dagskvöld. Nýliðarnir voru
mun sterkari í leiknum og lítið
sást til hinna sókndjörfu Eyja-
manna sem hafa yljað áhang-
endum sínum með marka-
veislum á heimavelli. Hugsan-
lega gleyma þeir að taka
skotskóna með sér í land.
Leiftursmenn léku undan nokk-
uð stífum sunnan vindi í fyrri
hálfleik og þeir náðu mun betra
en mótheijarn-
Stefán Þór ir- Þún fyrstu færin
Særnundsson voru þeirra. Ragnar
skrifar Gíslason skaut rétt
yfir mark ÍBV úr
aukaspyrnu á 6. mín., Friðrik varði
frá Gunnari Má á 11. mín. og
Páll Guðmundsson þrumaði knett-
inum naumlega fram hjá marki
ÍBV á 12. mín. Steingrímur Jó-
hannesson var hættulegastur
Eyjamanna og slapp tvisvar í
gegn, á 18. og 22. mín., en tókst
ekki að skora. Leiftursmenn áttu
fleiri færi. Sigurbjörn Jakobsson
reyndi tvisvar að beisla vindinn
með öflugum langskotum og það
var sanngjarnt þegar hann skoraði
loks eina mark hálfleiksins.
Það hvessti enn í seinni hálfleik
og þar með fór annars bærileg
knattspyrna út í veður og vind.
Margir héldu að ÍBV næði að nota
sér þennan sterka meðbyr en Ól-
afsfírðingar byijuðu betur og
bættu fljótlega öðru marki við. A
60. mín. átti Páll Guðmundsson
síðan hörkuskot í stöng eftir fal-
legt samspil með jörðinni og hæl-
sendingu Péturs B. Jónssonar.
Eftir þetta má segja að veðrið
hafi verið í aðalhlutverki. Leifturs-
menn reyndu að spyrna knettinum
langt fram en hann fauk yfirleitt
til baka og leikmenn ÍBV áttu í
basli með að hemja boltann og
langskot þeirra voru hættulítil. Þó
var Bjarnólfur skeinuhættur á 66.
mín. en skaut yfir. Nokkur spenna
skapaðist eftir mark ÍBV en í lok-
in voru það þó Leiftursmenn sem
voru nær því að bæta við marki.
„Ég bjóst við að þetta yrði enn
erfiðara í seinni hálfleik,“ sagði
Þorvaldur Jónsson, markvörður
Leifturs, veðurbarinn í leikslok.
„Markið í byijun seinni hálfleiks
kom á frábærum tíma fyrir okkur.
Við vorum mun betri í leiknum
og sigurinn var gífurlega mikil-
vægur. Vonandi verður bara fram-
hald á þessu,“ sagði Þorvaldur.
Hann var mjög öruggur í markinu
en besti maður vallarins var félagi
hans Páll Guðmundsson. Páll er
mikill vinnuhestur, á góðar send-
ingar og skapar sér líka færi.
Þýðingarmikill leikmaður þar á
2«f%Páll Guðmundsson tók hornspymu á,36. mínútu, boitinn
■ \#var skallaður út í teig þar sem Sigurhjörn Jakobsson rak
vinstri fótinn þéttingsfast í hann. Knötturinn stefndi í bláhomið og
lenti þar í varnarmanni ÍBV, sem stóð á línu, og hrökk af honum í netið.
2*^%Páll Guðmundsson tók eina af sínum hættulegu homspyrn
■ ^P' ' ""
■ Wum á 50. mínútu og eftir nokkurn barninj
Björn Jónsson hæst allra og skallaði boltann í mark
stökk
IV.
Pétur
2:1
■ v Löng sending barst með sunnan rokinu inn fyrir vöm Leift-
■ I urs. Ingi Sigurðsson var fljótastur og ætlaði að leika boltan-
um hægra megin við Þorvald Jónsson, markvörð Leifturs, en Þorvald-
ur fleygði sér og rak hendumar í fætur Inga sem datt um koll. Víta-
spyrna dæmd á 83. mín. og Sumarliði Árnason skoraði ömgglega
úr henni.
ÞORVALDUR Jónsson,
markvörður Leífturs.
ferð. Þetta var hins vegar ekki
dagur Eyjamanna og þótt gárung-
arnir væru að gaspra um að þeir
hlytu að vera vanir rokinu þá virt-
ust þeir eiga í miklum erfíðleikum
við að byggja upp sóknir við þess-
ar aðstæður.
FOLX
■ SALIH Heimir Porca. komst
ekki í lið KR gegn Val. Hann sat
á varamannabekknum.
■ FRIÐRIK Friðriksson, mark-
vörður IBV, var tíðum utan teigs
í seinni hálfleik í og nánast í stöðu
aftasta varnarmanns því Ólafsfirð-
ingum gekk illa að koma boltanum
fram fyrir miðju.
■ SKÓMMU fyrir leikslok varð
Friðrik hins vegar á í messunni.
Páll Guðmundsson var á undan
í boltann og ætlaði að skjóta yfir
Friðrik í autt markið en Friðrik
hoppaði upp og varði með höndum
langt fyrir utan teig og uppskar
rauða spjaldið fyrir vikið. Heimir
Hallgrímsson fór í markið þær
tvær mínútur sem eftir lifðu en
IBV hafði notað alla varamenn
sína.
■ EYJÓLFUR Sverrisson,
landsliðs- og atvinnumaður í knatt-
spyrnu, var meðal áhorfenda í Ól-
afsfirði á sunnudagskvöld. Hann
var að sjálfsögðu að fylgjast með
Sverri bróður sínum sem leikur
með Leiftri. Sverrir er sívinnandi
baráttujaxl, rétt eins og Eyjólfur,
og átti góðan leik.
■ SÉRA Pétur Þórarinsson \
Laufási fylgdist einnig með leik
Leifturs og ÍBV og hafði frekar
hægt um sig að þessu sinni, en
eins og flestir vita er séra Pétur
mikill knattspyrnuáhugamaður og
lætur síðustu áföll ekki aftra sér.
Hann mætti í hjólastólnum og
hvatti Ólafsfirðinga.
■ BALDUR Bragason, leikmað-
ur Leifturs er meiddur og gat
ekki leikið á móti ÍBV. Það sama
má segja um Jón Þór Andrésson,
þann knáa pilt sem sló í gegn á
móti Fram, en Leiftursmenn virð-
ast hafa úr ágætum mannskap að
moða.