Morgunblaðið - 27.06.1995, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.06.1995, Qupperneq 16
Aston Villa vann kapp- hlaupið um Milosevic TENNIS Veðjað fyrir 500 milljónir Wimbledon tennismótið hófst í gær og yoru úrslit sam- kvæmt bókinni. Öll stærstu nöfnin í tennisíþróttinni komust áfram í aðra umferð. Haft er eftir forsvarsmönnum veðbanka á Englandi að reiknað sé með því að breska þjóðin leggi um það bil 500 milljónir íslenskra króna undir á hina ýmsu keppendur. Mest- ar líkur eru þó taldar til þess að Steffi Graf frá Þýskalandi sigri í kvennaflokki en hún sat hjá í fýrstu umferð. í karlaflokki er Bandaríkja- maðurinn Pete Sampras talinn sig- urstranglegastur og ef hann ynni nú yrði það þriðji sigur hans í röð. Þar með myndi hann jafna met Svíans Bjöms Borg frá því í byijun níunda áratugarins, en hann sigraði þijú ár í röð. Sampras hóf titilvöm- ina með sigri á Karsten Braasch frá Þýskalandi en tókst ekki að vinna í þremur lotum. Sampras vann fýrst 7-6 en Þjóðveijinn vann næstu lotu 6-7. Lengra komst hann ekki því Sampras gerði út um leik- inn í næstu tveimur lotum með 6-4 og 6-1 sigri. Mikill fjöldi áhorfenda mætir ár hvert til þess að fylgjast með keppn- inni og vinsælasta snakkið á áhorf- endapöllunum eru jarðaber með ijóma og kampavín. Er reiknað með því að þær tvær vikur sem keppnin stendur yfír verði seld um 24 tonn af jarðabeijum og með þeim 5.500 lítrar af ijóma og um 12.500 kampavínsflöskur verði opnaðar. Gabriela Sabatini frá Argentínu vann ömggan 6-3 og 6-4 sigur á fýrsta mótheija sínum í keppninni, Leu Ghirardi frá Frakkalandi. Sa- batini, sem er einbeitt á svip hér á myndinni, mun eflaust innbyrða eitthvað staðbetra á meðan á keppninni stendur, en jarðaber með ijóma og kampavín. ASTON Villa tryggði sér júgó- slavneska iandsliðsmanninn Savo Milosevic, 21 árs, í gær, þegar liðið borgaði Partizan Belgrad 3,5 millj. punda fyrir hann. Aston Vilia, sem hefur keypt leikmenn fyrir samtals 11,5 millj. punda á sex mánuðum, vann kapphlaupið um Milosevic, þar sem lið eins og Juventus, Parma, AEK Aþena, Atletico Madrid, París St Germa- in og Borussia Dortmund vildu kaupa þennan mikla markaskor- arara, sem skoraði 34 deildar- og bikarmörk fyrir Partizan sl. keppnistímabil. Þetta var í annað sinn á fjórum dögum sem Aston Villa kaupir leikmann á metupphæð, því á föstudaginn keypti liðið miðvall- arspilarann Gareth Southgate frá Crystal Palace á 1,9 millj. pund. Milosevic, sem er landsliðs- maður Júgóslaviu, skrifaði undir þriggja ára samning. Hann hefur skorað 79 mörk fyrir Partizan á sl. þremur árum og tvö sl. ár hefur hann verið kjörinn knatt- spyrnumaður ársins í Júgóslavíu. Andri hættur með Fjölni ANDRI Marteinsson hefur sagt upp störfum sem þjálfari meist- araflokks Fjölnis. Andri hefur . verið spilandi þjálfari hjá Fjölni en meistaraflokksráð knatt- spyrnudeildar Fjölnis hefur ekki getað uppfyllt viss ákvæði í samningnum við Andra þrátt fyr- ir eindreginn vilja til þess. Heimir hættur með ÍR-inga HEIMIR Karlsson, sagði upp sem þjálfari 2. deildar liðs ÍR í knatt- spyrnu á sunnudaginn. Við starfi hans þjá ÍR hefur tekið Bragi Björnsson. Astæðu uppsagnar- innar sagði Heimir vera að hann væri að flytja til England þar sem sín biðu spennandi verkefni. Jafnframt þvi að hætta með ÍR er hann hættur sem íþrótta- fréttamaður hjá RÚV og lýsti hann í síðasta skipti á sunnudags- kvöldið úr Kaplakrika, leik FH og Breiðabliks. KNATTSPYRNA Hrísto Stoichkov fer frá Barcelona Loks sigur Örebro á IFK eftir 26 ár Samningaviðræður á milli Hrist- os Stoichkovs og Barcelona runnu út í sandinn í gær og er leik- maðurinn til sölu fáist rétt tilboð í hann. Johan Cruyff þjálfari Barcel- ona sagðist í gær vera feginn því að botn væri kominn í þann farsa sem samningamálin við Stoickov hefðu verið. „Þegar hann fer frá okkur verður einu vandamáli færra á Nou Camp. Vandamálin í kringum hann eru mikil og að hafa hann í liðinu er líkast því að hafa tíma- sprengju tifandi í búningsklefan- um,“ sagði Johan Cruyff í gær. Barcelona bauð honum eins árs samning, en Búlgarinn hélt fast Við sinn keip að gera þriggja ára samn- ing. Hann hefur verið hjá félaginu síðan 1988. Forseti Barcelona sagði Stoichkov vera falann og verð hans væri sem svaraði til 470 milljóna króna og það yrði ekki lækkað, þetta væri fast verð. Breskir fjöl- miðlar sögðu frá því um helgina að Manchester United hefði áhuga á því að fá Stoichkov til liðs við sig en ekkert hefur heyrst frá höfuð- stöðvum félagsins. „Ég vil vera áfram hjá Barcelona, en eins og staðan er nú er ég kominn á sölu- skrá,“ sagði Stoichkov í gær við spænska íþróttablaðið E1 Mundo Deportivo. Amór Guðjohnsen kom heldur betur við sögu þegar Örebro náði að leggja IFK Gautaborg að velli í fyrsta skipti í Fré 26 ár í sænsku úr- Sveini valsdeildinni í gær- AQnaJss/n' kvöldi, 1:0. Amór, i viþjo sem átti þrumuskot sem Thomas Ravelli rétt náði að veija í fyrri hálfleik, fískaði síðan vítaspymu sem var misnotuð — Ravelli varði. Örebro fékk aðra víta- spymu í 72. mín, eftir homspyrnu Amórs og úr þeirri vítaspyrnu skor- aði Magnus Karlsson sigurmarkið. Örebro er í fjórða sæti með sext- án stig, þremur stigum á eftir Djurgárden, sem er í efsta sæti. Hlynur Stefánsson tók út eins leiks bann í leiknum, en Hlynur Birgisson var ekki með. Rúnar Kristinsson og félagar háns hjá Örgryte máttu þola tap, 0:2, fyrir Djurgárden á heimavelli. Liðið hefur aðeins skorað átta mörk í ellefu leikjum og þar af helming- inn, fjögur mörk, í einum leik. Framlína liðsins er algjörlega bit- laus. Morgunblaðið/Golli ARNÓR Guðjohnsen. GETRAUNIR: X12 1X2 1 X X X12X LOTTO: 3 5 20 31 35/2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.