Morgunblaðið - 11.07.1995, Qupperneq 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
„Tileinka
Gullikson sig-
urinn“
EFTER slgurinn á Wimbledon
lýsti Pete Sampras því yfir
að hann tileinkaði þennan sig-
ur þjálfara sínum, Tim GuIIik-
son, en hann hefur undanfarið
ár átt í baráttu við æxli í heila.
Þeir töluðu saman í síma strax
að leik loknum. „Égtileinka
þennan Tim Gullikson, þjálf-
ara mínum, hann er sannur
meistari. Barátta hans við
sjúkdóminn hefur verið að-
dáunarverð. Hann er við
þokkalega heilsu núna og von-
ast til þess að geta ferðast
með mér fyrir árslok," sagði
Sampras við blaðamenn.
Becker sá
elsti í 11 ár
BORIS Becker er 27 ára og
er elsti keppandinn sem leik-
ur til úrslita á Wimbledon síð-
an árið 1984 að Jimmy Con-
nors var í úrslitum, þá 31 árs
að aldri. Árið eftir, 1985, sigr-
aði Becker I fyrsta skipti á
mótinu þá 17 ára. Hann sigr-
aði hins vegar síðast árið
1989.
Borg sigraði
fimm sinn-
umm í röð
AFREK Pete Sampras að
sigra nú í þriðja sinn í röð á
Wimbledon er ekki met í
kepninni. Sænski tennissnill-
ingurinn Björn Borg sigraði
fimm sinnum í röð, árin 1976
-1980. Becker sagði eftir
keppnina að Sampras ætti að
sjálfsögðu að stefna að því að
jafna met Svíans.
Becker var
vinsæll
ÁHORFENDUR á úrslita-
leiknum i karlaflokki studdu
Boris Becker á því lék enginn
vafi, enda er kappinn vinsæli
þar um slóðir eftir að hafa
sigrað í keppninni aðeins
sautján ára gamall fyrir tíu
árum. „Hann hafði stuðning
áhorfenda I dag, en eftir
nokkur ár verð ég búinn að
vinna þá á mitt band,“ sagði
hinn 23 ára Pete Sampras.
Gamla brýnið
er ekki
gamalt
BRESKIR fjölmiðlar sögðu
fyrir keppnina að Boris Bec-
ker væri orðinn of gamall til
að vera í fremstu röð í tennis-
heiminum og kölluðu hann
m.a. „gamla brýnið.“ Þessu
var Becker ekki sammála.
„Þið kallið mig gamla brýnið
og ég er ekki nema tuttugu
og sjö ára. Mér fínnst ég ekki
vera orðinn gamall og tel mig
geta verið í fremstu röð á
stórmótum I þrjú ár til viðbót-
ar,“ sagð Becker við blaða-
menn eftir mótið.
Sampras fékk
38 milljónir
PETE Sampras fékk að Iaun-
um fyrir sigurinn á Wimble-
don jafngildi 38 milljóna
króna og Becker fékk helm-
ingi lægri upphæð fyrir annað
sætið.
WIMBLEDOIMMÓTIÐ í TEIMNIS
Sjötti sig-
urGraf
—lagði Sanches Vicario
ífrábærum úrslitaleik
STEFFI GRAF sigraði í sjötta sinn á Wimble-
don á laugardaginn þegar hún lagði spænsku
stúlkuna Arantxa Sanches Vicario í úrslitum,
4-6,6-1,7-5. Þetta var í 25. sinn sem hin 26
ára gamla þýska tennisdrottning leikurtil úr-
slita á einhverjum hinna fjögurra stærstu tenn-
ismóta sem haldin eru ár hvert. ianframt var
þetta henn 32. sigur á móti á árinu.
Urslitaleikurinn í kvennaflokki var sannkallaður
stórleikur því þar áttust við tvær sterkustu tennis-
konur heimsins í dag samkvæmt heimslistanum. Graf
er í fyrsta sæti og Sanches í öðru sæti. Eftir fyrstu
lotuna blés ekki byrlega fyrir Graf því Sanches sem
lék til úrslita á Wimbledon í fyrsta skipti spilaði
mjög vel og sigraði í lotunni 6:4 í þrjátíu mínútna
leik. Þetta var í fyrsta skipti sem hún sigrar í lotu
gegn Graf á grasvelli.
En Graf lét það ekki á sig fá að tapa fyrstu lot-
unni en það hefur reyndar ekki gert í úrslitaleik á
Wimbledon síðar 1988. Hún kom grimm til leiks og
lék við hver sinn fíngur í annari lotu og Sanches sá
aldrei til sólar í góða veðrinu á meðan leikurinn fór
fram. Önnur lota endaði 6:1.
í síðustu lotunni hafði Graf frumkvæðið allan tím-
ann í lotu sem tók einungis tuttugu mínútur. Hún
sigraði 7:5 og fagnaði innilega sjötta Wimbledon titli
sínum og sigurlaununum sem námu um 33 milljónum
íslenskra króna. Sanches Vicario sem tapaði sínum
þriðja leik í röð á stórmóti sagði að leikslokum; „Sigur-
inn hefði getað lennt hvoru megin sem var og ég
held að ég hafí verið örlítið óheppinn. En þegar á
heildina er lítið get ég verið ánægð með spilamennsk-
una hjá mér í mótinu.“
„Við lékum báðar mjög vel og ég held að þessi
leikur hafí verið góð kynning á tennisleiknum. Við
lögðum okkar báðar fram og að sjálfsögðu er ég
ánægð með sigurinn," sagði Graf að leikslokum.
Reuter
STEFFI Graf hampaftl „Rósavatns-disknum" í sjötta sklpti á Wlmbledon.
Pete Sampras sigraði þriðja árið
í röð í karlaflokki á Wimble-
don mótinu í tennis á sunnudaginn
þegar hann lagði Þjóðveijann Bor-
is Becker 6-7, 6-2, 6-4, 6-2 í úr-
slitaleik. Þar með skráði Sampras
nafn sitt á spjöld sögunnar því
hann er fyrsti Bandaríkjamaðurinn
sem sigrar í mótinu þrjú ár i röð.
Eftir jafna fyrstu lotu þá héldu
Sampras engin bönd í framhaldinu
og fékk hann m.a. 23 ása í leiknum
og það var meira en Becker fékk
við ráðið.
Viðureign þeirra félaga stóð yfir
í tvær klukkustundir og tuttugu
og átta minútur. Eftir nauman sig-
ur Beckers í fyrstu lotu kom Samp-
ras ákveðinn til leiks í þeirri ann-
arri og lék mjög vel og tapaði að-
eins fimm boltum eftir að hafa
gefið upp. Sampras réði lögum og
lofum og lauk lotunni á tuttugu
og níu - mínútum með 6-2 sigri.
Eftir að Sampras hafði leikið vel
framan af þríðju lotu-kom Becker
meira við sögu þegar á hana leið
og tókst aðeins að klóra í bak'k-
ann. Lauk lotunni 6-4, Sampras í
vil í lotu sem tók fjörtíu mínútur.
í fjórðu lotunni hafði Sampras
sendiréttinn og gaf fá færi á sér,
komst í 5-2 og þrátt fyrir að Bec-
ker reyndi að beijast gegn honum
af krafti dugði það ekki til og
Sampras lauk leiknum, 6-2 og
hafði þar með tryggt sér Wimble-
don titilinn þriðja árið í röð.
Reuter
PETE Sampras handleikur blkarinn gófta og gefur
honum koss þriðja árlð f röð.
Þessi sigur hleypir eflaust auknum kjarki í Sampras á
tennisvellinum því undanfarið ár hefur hann átt i vandræðum
á stórmótum og ekki náð að sigra á neinu þeirra fyrr en
nú. Þess vegna hefur hann misst efsta sætið á heimslitanum
til félaga síns frá Bandaríkjunum, André Agassi. Jafnhliða
þessu hefur þjálfari Sampras, Tim Gullikson, átt í baráttu
við æxli í heila, sem að sjálfsögðu hefur haft mikil áhrif á
Sampras utan vallar jafnt sem innan.
I
23 ásar Sampras
yfirbugðu Becker
3ja tap Sanches í röð
TAP Sanches Vicario gegn Steffi Graf í
úrslitleiknum á Wimbledon á laugardaginn
er þriðja stórmótið í röð sem hún tapar í
úrslitaleik. Hún tapaði fyrir Mary Pierce
á Opna ástralska mótinu í janúar og fyrir
Graf á Opna franska mótinu í júní og nú
aftur fyrir Graf á Wimbledon. Síðast sigr-
aði hún á stórmóti í september í fyrra er
hún lagði Graf í úrslitum á Opna banda-
ríska meistaramótinu.
Sautjándi sigur Graf
SIGUR Graf á Wimbledon var hennar
sautjándi sigur á einu hinna fjögurra stór-
móta í tennisheiminum ár hvert — Opna
bandaríska, Opna ástralska, Opna franska
og Wimbledon. Tvær konur sigruðu á átj-
án stórmótum á sínum tíma — þær Chris
Evert og Martina Navratilova.
Martina Navratilova
sigraði níu sinnum
STEFFIGRAF hefur aðeins einu sinni
tapað í úrslitaleik á Wimbledon og það var
árið 1987 og þá fyrir Martinu Navratilovu
en hún hefur einmitt sigra oftast í kvenna-
flokki á mótinu alls níu sinnum. Helen
Wills Moody sigraði átta sinnum á sínum
tíma og nú er Graf sú þriðja sigursælasta
á Wimbledon frá upphafi með sex titla.
33 millj. íverðlaun
Fyrir sigurinn á Wimbledon fékk Graf sem
svara til 33 milljóna íslenskra króna og
Sanches sem varð önnur fékk helmingi
lægri upphæð.
Yfir 30 gráðu hiti
ÚRSLITALEIKURINN fór fram í rúmlega
þrjátíu gráðu hita og tók 122 mínútur, þar
af var önnur lotan 57 mínútur. Hann þótti
mjög vel leikinn og sögðu bæði Graf og
Sanches að leikurinn hefði verið góð kynn-
ing á kvennatennis.