Morgunblaðið - 18.07.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
: ■ íl'.
;
- 51
pi0r@w#lí»&íí>
B
1995
ÞRIÐJUDAGUR 18.JULI
BLAÐ
Vel-
komnir í
hópinn
ÓLAFUR Þórðar-
son, fyrirliði Skaga-
manna, var ánægur
þegar fréttist að
tvíburamir, Arnar
og Bjarki Gunn-
laugssynir, væru á
leið í herbúðir ís-
landsmeistaranna.
Hér á myndinni eru
bræðurnir ásamt
fyrirliðanum eftir
leikinn við Val á
Skipaskaga á
sunnudagskvöld.
Enn er þó beðið eft-
ir grænu Ijósi eða
leikheimild frá hol-
lenska knatt-
spyrnusambandinu
áður en þeir geti
byrjað að leika
með í A.
BLÍNAÐAK
bankinn
Hástökkvari
framtíðarinnar
EITT unglingamet var sett
á Unglingalandsmóti
UMFI sem fram fór á
Blönduósi um helgina.
Guðrún Svana Pétursdótt-
ir, 12 ára úr HSH, bætti
eigið met í hástökki
stelpna, stökk 1,53 metra.
Guðrún var að vonum
ánægð með árangurinn og
í samtali við Morgunblaðið
sagðist hún hafa í nógu að
snúast. „Eg var að keppa
í Svíþjóð 6. -11. júlí þar
sem ég vann gullverðlaun
í hástökkinu og það er
búið að velja mig í lið HSH
sem tekur um næstu helgi
þátt í 2. deild í bikarkeppni FRÍ. Það verður þá
fjórða helgin í röð sem ég keppi.“ Guðrún býr í
Stykkishólmi hefur æft fijálsíþróttir í þijú ár og
æfir núna þrisvar í viku undir handleiðslu Maríu
Guðnadóttur. Guðrún á hæfileikana ekki langt að
sækja því föðurbróðir hennar er Hreinn Halldórsson.
Nánar verður fjallað um mótið síðar.
Einar Jónsson, Blönduósi
Mikill áhugi fýrir
Sviss-leiknum
SVISSNESKA knattspyrnusambandið hefur þegar
staðfest pöntun á 1.200 aðgöngumiðum í stúku á
landsleik íslands og Sviss í undankeppni EM sem
fram fer á Laugardalsvelli 16. ágúst. „Það er
greinilega mikill áhugi fyrir leiknum í Sviss og ég
vona að hann verði ekki minni hér á landi," sagði
Eggert Magnússon, formaður KSI. „Við stefnum
að því að fá jafn marga áhorfendur á leikinn gegn
Sviss eins og við fengum gegn Svíum í fyrra, en
þá komu fimmtán þúsund áhorfendur á völlinn og
skemmtu sér vel. Svisslendingar eru með gott lið
og stóðu sig vel í heimsmeistarakeppninni í Banda-
ríkjunum. Þetta er mikilvægur leikur í riðlinum
og það verður grannt fylgst með honum í Svíþjóð
og Tyrklandi," sagði Eggert.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvalrtsson
Tvíburamir
lausir í dag
„Ég hef verið að skiptast á sím-
bréfum við Feyenoord í dag [í
gær] vegna þeirra bræðra og
það er von mín að botn fáist í
málið á morgun [í dag],“ sagði
Gunnar Sigurðsson, formaður
knattspyrnudeildar LA, í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi,
aðspurður um hvort tvíbura-
bræðurnir Araar og Bjarki
Gunnlaugssynir hefðu fengið
leikheimild frá félagi sinu og
þeirgætu óhindrað leikið með
IA í Islandsmótinu.
„Við munum gera leigusamn-
ing við Feyenoord um þá bræð-
ur þess efnis að þeir verði laus-
ir frá okkur hvenær sem er og
samskonar samning gerum við
við þá Arnar og Bjarka,“ bætti
Gunnar við. Helsti ásteytingar-
steinninn í viðræðum ÍA og Fey-
enoord varðar tryggingamál og
hvernig hagsmunir þeirra og
hollcnska félagsins verði best
tryggðir meiðist þeir í leik með
Akranesi. Gunnar sagðist vona
að tryggingasamningur sá sem
KSÍ myndi fullnægja öllum skil-
yrðum sem sett væru.
Arnar og Bjarki eru lausir
allra mála við Niimberg, félagið
sem þeir léku með í vetur og
þurfa forráðamenn ÍA einvörð-
ungu við forsvarsmenn Feyeno-
ord að eiga. Um leið og sam-
komulag hefur náðst gefa Hol-
lendingarnir út tilkynningu til
hollenska knattspyrnusam-
bandsins sem sendir hana áfram
til KSÍ og KSÍ sem gefur út leik-
heimild.
HESTAIÞROTTIR
Sigurbjom gefur
Odd upp á bátinn
Sigurbjörn Bárðarson landsliðs-
maður í hestaíþróttum hefur
nú ákveðið að fara ekki með Odd
mpm frá Blönduuósi á
heimsmeistaramót-
Valaimar ,_ , _
Kristinsson sem haldið verð-
skrifar ur í Sviss í ágúst.
Ekki er Sigurbjöm
þó þar með búinn að afsala sér
þátttökurétti í mótinu því hann
hefur heimild til að mæta með
■Höfða frá Húsavík og það hyggst
hann gera.
Þeir félagar Sigurbjörn og Höfði
urðu þrefaldir heimsmeistarar á
HM í Hollandi 1993 og eiga þar
með keppnisrétt. Sigurbjörn er
búinn að fá staðfestingu á því að
Höfði sé í mjög góðu formi en eig-
andinn Brigette Becker hefur verið
að keppa á honum í yngri flokkum
og gengið mjög vel. Hesturinn
hefður aldrei veikst frá því hann
kom út. Samkvæmt heimildum
Morgunbiaðsins reyndu þýskir aðil-
ar að koma í veg fyrir að Sigur-
björn fengi hestinn lánaðan og
sögðu að Höfði yrði mjög þreyttur
eftir mótið en eigandinn hyggst
keppa á honum á þýska unglinga-
meistaramótinu sem er helgina eft-
ir HM. Sagði Sigurbjöm að þeir
nafnar Walter Feldmann og
Schmitz hefði gengið í málið og
gefið hefði verið grænt ljós á
sunnudagskvöldið. Sigurbjörn vildi
taka skýrt fram að þessi breyting
hefði ekkert að gera með meinta
helti í Oddi sem hefur nú verið
grandskoðaður af dýralækni og
sagður í mjög góðu ásigkomulagi.
Þessi ákvörðun Sigurbjörns hef-
ur þær breytingar í för með sér
að eitt sæti losnar í liðinu því hverju
landi er heimilt að senda sjö kepp-
endur, en þeir sem kjósa að verja
HM-titil teljast ekki með í þeirri
tölu. Hafa því annar varamaðurinn,
Sigurður V. Matthíasson, og Hug-
inn frá Kjartansstöðum verið valdir
í liðið. Er því ljóst að níu knapar
muni keppa á mótinu fyrir íslands
hönd, því eins og áður hefur komið
fram hefur Hinrik Bragason ákveð-
ið að mæta til leiks með Eitil frá
Akureyri, en þeir unnu í 250 metra
skeiði á mótinu í Hollandi.
KNATTSPYRNA — 1. DEILD KARLA: FRAM HAFDISÆTASKIPTIVIÐ FH / B3
+■