Morgunblaðið - 25.07.1995, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Bestu vítaskytturnar!
Sigurður Grétarsson lék 1980 til
1983 með Breiðabliki í 1. deild-
inni, áður en hann hélt utan f
atvinnumennsku og nýtti allar
ellefu vítaspyrnurnar sem hann
tók í deildarleikjum á því tíma-
bili. í samtantektinni hér til hliðar
er miðað við 1. deíldina frá því
1977, þegar fjölgað var í 10 lið f
deildinni, til dagsins í dag.
Víti Mörk Varið Framhjá Nýting
Sigurður Grétarsson
Guðjón Guðmundsson .
Jónas Haligrímsson__
Steinar Adolfsson___
Óli Þór Magnússon _
Björn Rafnsson______1
Ormarr Örlygsson____
Trausti Ómarsson____
Steinar Jóhannsson
Ottó Guðmundsson
Jónas Róbertsson..
Hilmar Slghvatsson
Haraldur Ingólfsson
Pétur Ormslev ___
Pétur Pétursson _
Sævar Jónsson_
Júlíus P. Ingólfsson
Guðmundur Hilmarsson
Ingi Björn Albertsson__
Hörður Magnússon.....
Sigurður Björgvinsson
Rútur Snorrason______
. Breiðabliki
. Þór, FH____
. Völsungi _
. Val________
. Keflavik _
. KR_________
. KA______
. Víkingi
. Keflavík
.11_
_ 7.
_ 6_
_ 6_
11.
_7
_ 6
6
5 5 0 0 .
. 5 . 5 0 0 . ..
^ -5- 5 0 0........
5 5 _. 0 0
.... 5. 5 0. 0
s______ IA
13 12 1 0
il, Breiðabliki, Fylki.. 10... 9 ... 0 1
. 8.... 7 1 ... 0 'Vs
am . 14_. . 12 1 . ... 1 _. .
„ KR 14... 12 2 0
il. 6... ___ 5 . ... 1 ..... 0
. 6... 5. 1 0
I . 6. . . 5 0 1
il... 11... 9 . 2 0
. FH__________
Keflavík, KR
. ÍBV.
__21____
„10.
. 5
17
8
4.
3
1 ...
1 . .
100%
100%
100%
100%
100%
100%
100%
.100%
100%
100%
92%
90%
88%
86%
86%
83%
82%
. 81%
80%
80%
hvar sé að finna í lögum og
■ BJÖRGVIN Friðriksson hlaup-
ari úr UMSK sýndi rmkið keppnis-
skap í bikarkeppni FRÍ á föstudag-
inn. Hann sigraði óvænt en örugg-
lega í 3000 m hindrunarhlaupi.
Björgvin var ekki nema rétt kominn
í mark og búinn að kasta mæðinni
þegar hann tók á rás í 1500 m
hlaupi og náði þar fjórða sæti. Dag-
inn eftir lét hann sig svo ekkert
muna um að taka þátt í 5000 m
hlaupinu og ná fjórða sæti.
■ ÚNNAR Garðarsson gat ekki
keppt fyrir UMSK í bikarkeppn-
inni. Gert var ráð fyrir honum í
kastgreinarnar, en hann meiddist
um síðustu helgi í kraftakeppninni,
Vestfjarðavíkingurinn og varð því
að afboða þáttöku sína. „Þetta var
áfall fyrir okkur að missa Unnar
út og kostaði okkur nokkur stig,“
sagði hinn gamalreyndi keppnismað-
ur UMSK, Egill Eiðsson.
■ FINNÚR Jóhannsson hand-
boltamaður sem nú er með Selfossi
keppti í langstökki fyrir Ármann
og náði fjórða sætinu, stökk 6,76
m. „Eg var í þessu í gamla dag en
hef ekkert æft fijálsar í nokkur ár
fyrr en nú að ég mætti á tvær æfing-
ar fyrir keppnina. Ég var að gera
mér vonir um að ná sjö metrunum
en það tókst ekki, en það er gaman
faám
FOLK
að þessu og þetta er góð góð tilbreyt-
ing frá handboltanum," sagði Finn-
ur að keppni lokinni.
■ YNGSTI keppandinn í bikar-
keppni FRÍ að þessu sinni var Ey-
gerður Inga Hafþórsdóttir, fædd
1983. Eygerður hljóp fyrir UMSK
í 1500 m hlaupinu og náði fjórða
sæti af átta hiaupurum á 5:24,34
mín. Elsti keppandinn í hiaupinu var
Ragnheiður Olafsdóttir, FH og er
hún tuttugu árum eldri en Eygerð-
ur.
■ GEIRLAUG B. Geirlaugsdóttir
hin sprettharða hlaupakona úr Ár-
manni hljóp mjög vel í 100 m hlaup-
inu á föstudagskvöidið, rann sprett-
inn á 11,87 sekúndum í meðvindi
sem var innan leyfilegra marka.
Hennar besti tími er 11,81 sekúnda.
„Ég stefni að því að fara út tii
Þýskalands í lok ágúst og keppa á
þremur mótum og gera atlögu að
meti Svanhiidar Kristjónsdóttur í
hundrað metrum, en það er ellefu
komma sjötíu og níu sekúndur,"
sagði Geirlaug að loknu vel heppn-
uðum spretti.
■ GEIRLAUG sagði aðspurð
stefna ótrauð á Evrópumeistara-
mótið innanhúss næsta vetur og
keppa í 60 m hlaupi
■ EGILL Eiðsson úr UMSK sigr-
aði örugglega í 400 m grindar-
hlaupi og kom það fáum á óvart
því Egill hefur ekki tapað keppni í
þesari grein hér heima síðan 1986.
■ ÓLI Þór Magnússon kom inná
hjá Keflavík gegn Fram í 1. deild-
inni í knattspyrnu á Laugardalsvelli
á sunnudaginn og var þetta fyrsti
leikur hans eftir fimm leikja Sann
sem félagið setti hann í.
■ RAGNAR Margeirsson lék ekki
með Keflavík en hann meiddist í
síðasta leik liðsins.
■ FRAMARAR hafa verð óheppnir
í sumar með meiðsli. Á sunnudaginn
voru varnarmennirnir Kristján
Jónsson og Ágúst Ólafsson meidd-
ir og Valur Fannar Gíslason var í
banni.
■ RÍKHARÐUR Daðason lék hins
vegar sinn fyrsta leik eftir meiðsli
og átti góðan dag.
Spilandi þjálfari er settur í
leikbann sem leikmaður en
stjórnar liði í sínu í næsta leik
sem þjálfari. Er hann löglegur
sem slíkur? Já, er eindregið svar
héraðsdóms Reykjaness. Eða er
hann ólöglegur sem
slíkur? Já, er ein-
róma niðurstaða
þriggja fulltrúa í
dómstóli Knatt-
spyrnusambandsins.
Og báðir vísa úr-
skurðaraðilar til
sömu greinar í reglugerð KSÍ
máli sínu til stuðnings.
Stjömumenn kærðu Þróttara,
þar sem þeir töldu Ágúst Hauks-
son hafa verið ólöglegan í um-
ræddum leik liðanna í 2. deild
og við því er ekkert að segja.
Þróttarar tefldu honum hins
vegar fram sem þjálfara á vara-
mannabekk félagsins, þó svo
hann væri í banni sem leikmað-
ur. Töldu sig í rétti, enda höfðu
þeir leitað upplýsinga á skrif-
stofu Knattspyrnusambandsins
og fengið upplýsingar þess efnis
að Ágúst mætti stjórna liði sínu
af bekknum. Eru skiljanlega
súrir, þar sem þeir telja sig geta
treyst skrifstofu KSÍ og for-
dæmi séu fyrir að svona nokkuð
hafi viðgengist áður.
Snorri Finnlaugsson, fram-
kvæmdastjóri KSI, sendi í gær
frá sér yfirlýsingu þar sem seg;
ir meðal annars: „Skrifstofu KSÍ
berast daglega fyrirspurnir um
reglur og reglugerðir sem gilda
um knattspyrnumót. Þessum
fyrirspurnum leitast starfsmenn
KSÍ við að svara eftir bestu
getu í samræmi við gildandi lög
og reglugerðir. í sumum tilfell-
um þarf að túlka lög og reglur
þar sem ákvæði eru ekki skýr
og leiðbeina fyrirspyijendum um
reglugerðum KSI ákvæði um
þau atriði sem spurt er um. Slík:
ar túlkanir starfsmanna KSÍ
jafngilda ekki reglum eða lög-
um og ábyrgðin liggur alltaf
hjá aðildarfélögunum eins og
þeim er að jafnaði gert Jjóst.
[Leturbreyting Snorra].“
Hvað sem öðru líður er reiði
Þróttara skiljanleg, vegna þeirra
upplýsinga sem þeir fengu frá
skrifstofu KSÍ. Þeir, og ýmsir
aðrir í knattspyrnuhreyfingunni,
eru sjáifsagt oft ekki öruggir
hvað orðalag í reglugerðum
táknar í raun og veru — skiljan-
lega þar sem flokkur löglærðra
manna skilur sömu setningarnar
þveröfugt við næsta flokk
starfsbræðra þeirra.
Þegar lög og reglur eru ann-
ars vegar geta leikmenn ekki
verið vissir og verða því að fá
svör við spumingum sínum frá
forystunni. Svör sem þeir geta
treyst. Lögin og reglugerðimar
verða að vera þannig að ekki
sé hægt að túlka að vild.
Ekki efast undirritaður um
að starfsmenn KSÍ hafi ætlað
að svara Þróttumm eftir bestu
getu í umræddu máli. Það hlýtur
hins vegar að vera sérkennilegt
fyrir þá að hafa gefið upplýs-
ingar sem gera það að verkum
að þessir sömu Þróttarar verða
nú að reiða fram 178.600 krón-
ur í sekt — til KSÍ.
Skapti
Hallgrímsson
Lög og reglugerdir
verða að vera þannig
ad gagn sé að þeim
Ætlar hlaupakonan RAGIMHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR að fara á fulla ferð að nýju?
Sé eftir því
aðhafahætt
RAGNHEIÐUR Óiafsdóttir þjálfari FH—inga ífrjálsíþróttum var
fyrir um áratug besta hlaupakona íslands á vegalengdunum
frá 800 að 10.000 metrum og énn þann dag í dag á hún öll met
á þessum vegalengdum, ef undan er skildir 5.000 og 10.000
metrarnir. Á árinu 1988 urðu meiðsli m.a. þess valdandi að
hún ákvað að hætta keppni. En það er stutt í keppnismann-
eskjuna hjá Ragnheiði og í Bikarkeppni FRÍ ífyrra stóðst hún
ekki mátið að blása rykið af skónum og taka þátt. Hún gerði
sér þá lítið fyrir og sigraði í báðum greinum, 1500 og 3000
metra hlaupum. I Bikarkeppni FRÍ um helgina endurók hún
leikinn þó enn hafi hún ekki hafið skipulagðar æfingar.
Ragnheiður er 32 ára, á tvö
börn, fjögurra og þriggja ára
með manni sínum Eggerti Boga-
syni, kringlukast-
ara úr FH. Hún er
íþróttafræðingur
að mennt frá Ala-
bama og starfar
sem aðalþjáifari fijálsíþróttaliðs
Eftir
ívar
Benediktsson
FH, auk húsmóðurstarfa.
Byrjaðir þú ung að æfa hlaup?
„Ég byijaði að æfa millivega—
og langhlaup þegar ég var fimmtán
ára. Það má kannski segja að ferill-
inn hafi hafist á íslandsmeistara-
móti sem fram fór í Laugardals-
höll í þá gömlu góðp daga. Þar
vann ég minn fyrsta íslandsmeist-
aratitil í átta hundruð metra hlaupi.
Þá varð vendipunktur í lífinu. Árið
eftir komst ég í landsliðið. Átján
ára gömul fór ég til Þýskalands
og æfði þar í eitt og hálft ár hjá
sama þjálfara og var með þýsku
landsliðskonuna Birgittu Kráus.
Þar fékk ég góðan grunn sem var
annar vendipunktur."
Hvers vegna hættir þú árið 1988
þegar þú hafðir átt gott ár árið
áður og varst búin að ná lágmark-
inu fyrir Óiympíuleikana í þrjú
þúsund metra hlaupi?
„Ég meiddist þá um vorið þegar
ég var að fara út í vorið eftir að
hafa átt mitt besta innanhússtíma-
bil. Þá kom upp rnikil streyta. Ég
heyrði ekki frá Ólympíunefnd um
hvað ég mætti gera, svo ég hjakk-
aði á meiðslunum sem voru í ilinni
þangað til komið var fram í júní
og alltaf versnaði mér. Þá gaf ég
allt frá mér og það voru mikil von-
brigði því ég hafði stefnt að þátt-
töku í Iangan tíma. En eftir á að
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
RAGNHEIÐUR Ólafsdóttir glöð í bragði eftir að sigurinn í
Bikarkeppninni var í höfn hjá FH—liðinu.
hyggja sé ég eftir þessari ákvörðun
að hætta.“
Þegar þú tókst fram skóna í
fyrra hafðir þú ekkert æft og keppt
síðan 1988, var það?
„Ég hafði ekkert æft og keppt
frá 1988. Sigramir þá ýttu svolítð
við mér.“
Var það keppnin um að sækja
stig eða lönguh til að reyna sig?
„Það var hvort tveggja, ef maður
vill ekki hlaupa þá gerir maður það
ekki. Síðan var það líka metnaður-
inn sem rak mig áfram. Ég hef
ekki löngun til að láta sjá mig til
þess eins að hlaupa upp á eitt eða
tvö stig.“
Er auðvelt að koma í lítilli æf-
ingu og sigra í tveimur greinum
og sigra landsliðskonu í bæði skipt-
in?
„Þetta er auðvelt á meðan
tímamir eru ekki betri en þeir eru.
Tímarnir sem ég hljóp á um helg-
ina eru talsvert frá metum mínum
í þessum greinum."
Kitlar það ekki að hella sér út
í æfingar að nýju?
„Jú, það gerir það. Ég hef geng-
ið í gengum allt í þessu og ég veit
hvað þarf að leggja á sig til að
hlaupa til dæmis þijú þúsund metr-
ana á átta komma fimmtíu og átta
mínútum og það er mikil vinna.
Mér finnst það nánast ógjörningur
að sinna öðru en að æfa ætli mað-
ur að vera afreksmaður í íþróttum.“
Ætlar þú að koma aftur að ári
í Bikarkeppnina og ná í tvö gull?
„Ég veit ekki, það erfitt að segja.
Ég sagði nú við manninn minn í
gær að þetta gerði ég ekki aftur,
allavega ekki sem þjálfari."