Morgunblaðið - 25.07.1995, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.07.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ GOLF ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1995 B 3 Litríkur kylfingur fagnadi sigri á Opna breska BANDARÍKJAMÐURURINN John Daly vann sinn stærsta sigur á litríkum ferli þegar hann lagði ítalska kylfinginn Const- antino Rocca að velli í fjögurra holna umspili um sigur á Opna breska meistaramótinu á sunnudag. Báðir luku leik á 282 höggum á St. Andrews vellinum í Skotlandi, eða fjórum höggum undir pari vallarins. |ichael Campell, nýliði í Evr- ópumótaröð atvinnumanna stóð best að vígi eftir þriðja daginn en greinilegt var að þessi 26 ára gamli Ný-Sjálendingur hafði ekki taugar til að vera í forystu síðasta hringinn á slíku stórmóti og Camp- ell heltist fljótlega úr lestinni. Hvass vindur var lokadaginn en John Daly lét það ekki á sig fá og lék lokahring- inn á einu höggi undir pari. Hann byrjaði mjög vel og náði þremur „fuglum“ — einu undir pari —' á fyrstu átta holunum. Hann fékk skolla á 16. holunni og á þeirri 17. eftir að hafa lent í nær vonlausri aðstöðu í glompu og paraði síðan átjándu holuna sem er mjög stutt. Lánið lék við ítalann á lokaholun- um. Rocca átti erfitt innáhögg yfir hæð inn á 17. flötina, hann notaði pútterinn en boltinn flaug í loft og skoppaði í átt að holunni og stað- næmdist stutt frá henni. Heilladís- irnar voru aftur með honum á loka- holunni. Hann þurfti að leika hana á þremur höggum, einu undir pari til þess að komast í umspilið gegn Daly sem lauk leik nokkru áður. Vipp hans inn á flötina mistókst og hann átti eftir 20 metra pútt upp í móti. „Ef ég á að vera hreinskilinn þá var ég að hugsa um að reyna að tvípútta en síðan datt það og það var hreinlega ótrúlegt,“ sagði Rocca. Daly sagði að hann hefði vart trúað því þegar boltinn datt í holuna. „Ég hélt að sigurinn væri þá í höfn og var ekki langt frá því að fá hjarta- áfall þegar boltinn fór í holuna,“ sagði Daly, sem fyrir sigurinn á mótinu fékk 200 þúsund pund sem samsvarar rúmum 12 milljónum Isl. króna. Yfirburðir í umspilinu Allt fór á versta veg hjá Rocca í umspilinu, hann þrípúttaði fyrstu holuna eftir að hafa misst jafnvægið í fyrsta pútti. Daly setti niður fjórtán metra pútt á annarri holunni og innáhögg ítalans á 17. holuna hafn- aði í glompunni þar sem þurfti þijú högg til að komast upp úr henni. Rocca lék holuna á sjö höggum en Daly á fjórum og síðasta holan var formsatriði. Rocca náði fugli en Daly pari. Drap engann Rocea hefur aldrei fyrr verið ná- lægt því að sigra á stórmóti en þessi geðþekki ítali eignaðist marga aðdá- endur með skemmtilegri framkomu sinni á vellinum. Hans er jafnan minnst fyrir að hafa misst rúmlega metra langt pútt á sautjándu flötinni á Belfry Reuter JOHN Daly fær koss aö launum frá elginkonunnl Paulette eftlr að slgur á St. Andrews var í höfn. Undirbún- ingur í eld- húsinu UNDIRBÚNIN GUR Const- antino Rocca fyrir lokahring- inn fór að mestu fram í eld- húsinu. Um 20 vinir hans fylgdu honum til Skotlands til að hvetja hann til dáða og á laugardagskvöldið hélt hann þeim pastaveislu. Þrátt fyrir að hafa lengi verið óum- deilanlega besti kylfingur ft- aliu er hann lítt þekktur I heimalandi sínu þar sem golf nýtur ekki almennra vin- sælda. Webster kom á óvart FYRIRFRAM var búist við því að keppni áhugamann- anna mundi verða einvígi skoska risans, Gordon Sherry, sem er 203 senti- metrar á hæð og íslenskir iandsliðskylfingar kannast við frá Evrópumótum áhuga- manna, og bandaríska áhugameistarans Eldridge „Tiger“ Woods. Sherry náði reyndar öðru sætinu á þrem- ur höggum yfir pari en sigur- inn féll í skaut Englendings- ins Steve Webster sem lék á einu höggi yfir pari. Lystugur kylfingur EF keppt hefði verið um það hver borðaði mest mótsdag- ana þá hefði sigurvegarinn örugglega orðið John Daly en nafn hans er yfirleitt ofar- lega í allri tölfræði. Á fóstu- deginum raðaði hann í sig fjórum kleinuhringjum á átt- unda teignum og hafði ekki fengið nóg því á þeim tíunda fékk hann sér súkkulaðikök- ur (muffins) sem voru í sér- stöku uppáhaldi hjá honum mótsdagana. vellinum í leik gegn Bandaríkja- manninum Davis Love III í Ryder- bikarkeppninni, sem átti stóran þátt í ósigri Evrópu. Hann grét í búnings- herberginu eftir þá keppni en kvaðst vera kominn yfir áfallið. „Ég drap engann, mér mistókst bara pútt,“ sagði Rocca. „Núna er ég öruggur um að vera með í Ryder-keppninni á þessu ári og það hefur mikið að segja fyrir mig.“ Sá litríkasti Daly er fyrsti Bandaríkjamaðurinn til að sigra á Opna breska meistara- mótinu frá því 1989 en það ár réð- ust úrslitin einnig eftir umspil. Mark Calcaveccia bar þá sigurorð af þeim Greg Norman og Wayne Grady. Daly er án efa einn litríkasti kylf- ingur heims. Hann skaust upp á stjörnuhimininn í PGA mótinu 1991 þar sem hann sigraði eftir að hafa komist inn í mótið sem varamaður. Hann átti þá í vandræðum vegna óhóflegrar neyslu áfengis og komst í fréttirnar meðal annars fyrir að leggja hótelherbergi í rúst. Hann hætti að drekka fýrir rúmu ári en lenti tvívegis í vandræðum á banda- rísku mótaröðinni á síðasta ári og var dæmdur í keppnisbann. í fyrra skiptið fyrir að taka upp bolta sinn á einni flötinni og hætta leik og í síðara skiptið eftir slagsmál við föð- ur eins spilarans. Ymislegt þykir þó benda til þess að hann sé að þrosk- ast, ekki síst fyrir tilstilli nýrrar eig- inkonu, Paulette sem stutt hefur hann þegar á móti hefur blásið. Kylfingar! Núþegar Landsmótið nálgast er vert að huga að útbúnaðinum. Við bjóðum uppá heimsþekkt gæðamerki eins og PINB ^/xxJ2ju&£ Kveðjustund GAMLIR meistarar kvöddu Opna breska meistaramótið. Arnold Palmer sem er 65 ára lék á sínu síðasta móti og var vel fagnað á lokaholunni á föstudeginum. Pal- mer lék á sínu fyrsta breska meistaramóti á St. Andrews fyrir 35 árum og er talinn eiga stóran þátt í miklum vinsældum keppn- innar. Gullbjörninn, Jack Nick- laus, 53 ára sem fyrir nokkrum árum var útnefndir kylfingur aldarinnar, sagðist ekki gera ráð fyrir því að leika aftur á mótinu fyrr en árið 2000 þegar það verð- ur haldið aftur á St. Andrews. Einn koss! ENSKI kylfingurinn Nick Faldo fékk óvænta bón á fyrstu braut á laugardeginum. Stúlka í stuttu pilsi hljóp inná brautina, gaf honum blómvönd og bað hann um koss. Faldo varð við óskinni en sagði stúlkunni síðan að koma sér út af vellinum áður en hún kæmi sér í vandræði, og hún slapp í þetta sinn. Faldo lét sig síðan falla á jörðina með tilþrifum, eins og hann hefði fallið í yfirlið. Stúlkan sem er tvítug og er í námi við St. Andrews háskól- anum sagðist aldrei hafa fylgst með golfmóti en lengi hafa verið aðdá- andi Faldos. Margir áfram 106 kylfingar af 159, tveir þriðja hlutar keppenda, komust í gegn um niðurskurðinn eftir hringi föstudagsins og er það með því mesta í sögu mótsins. Keppend- urnir komust í áfram á þvi að vera tíu höggum eða minna frá þeim sem var efstur eftir tvo daga. Þrátt fyrir það komust sumir af þekktari kylfingunum ekki áfram og má þar nefna Colin Montgomerie, sigurvegar- ann á evrópsku mótaröðinni sl. tvö ár, Paul Azinger, Curtis Strange, Arnold Palmer og Larry Mize sem dæmi. fóotJqy Veittur er 10% Landsmóts- afsláttur af öllum golfboltum. Komið við á leiðinni til Hellu! Opnunartími: Alla virka daga kl. 10.00 - 17.30. Elnnig opið laugardaginn fyrir Landsmót þann 29. júlí, frá kl.10-16. #/#**•• íslensk ///// Ameríska Tunguhálsi 11, Reykjavík Sími 587 2700

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.