Morgunblaðið - 27.07.1995, Blaðsíða 12
12 C FIMMTUDAGUR 27. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BÓKIN Brýrnar í Madisonskíri
eftir Robert James Waller
er ein umdeildasta bók sið-
ustu áratuga og um leið ein mest
selda. Bókina skrifaði rektor við-
skiptaháskóla,- sem aldrei hafði
skrifað neitt slíkt áður. Hann fór
til Madisonskíris \ Iowa að taka
myndir af sérkennilegum yfir-
byggðum brúm og fékk þá innblást-
urinn. Hann entist í tvær vikur og
afraksturinn varð stutt skáldsaga.
Sagan, sem segir frá ástarfundum
miðaldra pars, fékk hræðilega dóma
þorra gagnrýnenda, en frábærar
viðtökur lesenda og hefur selst í
tæpum tíu milljónum eintaka um
heim allan, sem er fáheyrð sala.
Það hlaut því að fara svo að hún
yrði kvikmynduð og hörkutólið Clint
Eastwood hreppti annað aðalhlut-
verkið.
Fólk saknar munúðar
Brýrnar í Madisonskíri er ekki
löng bók og söguþráðurinn er ekki
flókinn. Bókin segir frá Robert
Kincaid, ljósmyndara fyrir National
Geographic, hálfgerðum einfara,
sem kemur til Madisonskíris til að
taka myndir af yfirbyggðum brúm
sem setja svip sinn á skírið. Þar
hittir hann Fracescu Johnson og
þau hrífast svo hvort af öðru að
upphefst fjögurra dága kynlífs og
ástarveisla. Að henni lokinni snýr
eiginmaður Francescu aftur úr við-
skiptaferð og hún þarf að velja á
milli hjónabandsins og ævintýrisins,
að fara með Kincaid eða vera heima
í hlýrri og kæfandi hjónasænginni.
Eins og góðar sagna er siður velur
hún öryggið heima fyrir og allir
lesa síðustu síðurnar með tárin í
augunum. Reyndar hefur það farið
í taugarnar á mörgum að Francesca
skuli yfirleitt halda framhjá manni
sínum; hann skaffar vel, er traustur
og áreiðanlegur, þó nokkuð þegj-
andalegur, og ekki drekkur hann
eða lemur hana og heldur alls ekki
framhjá. Þegar upp er staðið er
ekki hægt að rekja framhjáhaldið
til neins nema að henni finnst hann
^svo fjári leiðinlegur, hún fellur fyrir
spennunni og ævintýrinu, fyrir ein-
faranum Kincaid. Robert James
Waller ver þessa ákvörðun söguper-
sónu sinnar með kjafti og klóm og
segir að Bandaríkjamenn hafi týnt
ástríðunum sem geri lífið spennandi
og skemmtilegt; hafi glatað munúð-
inni og Francesca sé í leit að kryddi
í tilveruna.
Ein hinna frægu yfir-
byggðu brúa Madison-
skíris í lowa.
Eastwood, sem leikstjóra
og leikara.
vel að geta komið og farið eins og
honum sýnis og þurfa ekki að gera
neinum grein fyrir neinu.
Brýrnar í Madisonskíri skipti
Eastwood miklu máli, því segja má
að myndin sé prófsteinn á það hvort
hann losni úr hasarmyndahetjuhlut-
verkinu og geti unnið sér sess sem
skapgerðarleikari. Ekki er minna
um vert að honum takist vel upp
sem leikstjóri, því þó hann hafi
áður getið sér gott orð á því sviði
nýtur hann fráleitt almennrar viður-
kenningar á því sviði. Og hvað
Meryl Streep varðar þá er hún í
sömu stöðu og fleiri leikkonur á
hennar aldri; fimmtugir og eldri
karlmenn fá alltaf nóg að gera, en
leikkonur sjást helst ekki á tjaldinu
þegar þær eru komnar á fimmtugs-
aldurinn.
Fáar bækur hafa vakið annað eins umtal
o g bókin um brýmar í Madisonskíri. Arni
Matthíasson segir að það sé mál manna
að Clint Eastwood sé að leika sjálfan sig í
kvikmynd sem hann gerði eftir bókinni og
frumsýnd verður í sumar.
íbúar Madisonskíris hagnast
Eðlilega hefur höfundur bókar-
innar hagnast verulega á metsöl-
unni, en íbúar smábæjarins Winter-
set í Madisonskíri hafa líka hagnast
og ferðamannastraumur þangað
stóraukist, ekki síst á meðan tökur
stóðu yfir á mynd Eastwoods. Fólk
kemur úr öllum heimshornum til
að sjá með eigin augum brýrnar
yfirbyggðu og reyna að sjá Franc-
escu bregða fyrir, því þeir eru all-
margir sem telja söguna sanna.
Margir koma í pílagrímsferð til
að láta splæsa sig saman í Madison-
skíri og eftirsóttast af öllu er að
láta gifta sig í einhverri brúnni.
Bæjarbúar taka ferðamönnunum
vel og eru til í að selja þeim hvað-
eina til að hagnast eilítið á öllu
saman, þar á meðal má fá keypt
glerílát með smá sandi í til minja
um heimsóknina, en annars finnst
þeir lítið til ástarævintýrisins koma;
að kona skuli halda framhjá svo
vönduðum og traustum manni er
þeim óskiljanlegt og það líka með
manni sem á ekkert og er hálfgerð-
ur flækingur. Þrátt fyrir það eru
sumir til í að leika Kincaid; spóka
sig með myndavélar og leyfa for-
vitnum ferðalöngum að mynda sig
við þá iðju að mynda brýr, en að
sögn stjóra National Geographic
berst blaðinu ítrekað fyrirspurnir
um þennan Kincaid og hvort hægt
sé að panta gömul blöð með mynd-
um eftir hann.
Af hveiju Eastwood?
Líkt og vinsældir bókarinnar eru
mörgum ráðgáta eru vinsældir
Clints Eastwoods ráðgáta; hann
hefur iðulega fengið hörmulega
dóma fyrir kvikmyndaleik og rétt
er það að ekki hafa myndir hans
allar elst vel, eins og sjá mátti í
Sjónvarpinu fyrir skemmstu þegar
nokkrar Eastwoodmyndir voru
sýndar á skömmum tíma. Það
breytir því ekki að hann er gríðar-
lega vinsæll leikari, eins og sannast
af aðsókn á myndir hans, og síð-
ustu ár hefur hann verið að hasla
sér völl sem leikstjóri líka. Aldrei
stóð til að hann gerði annað en leika
ljósmyndarann Robert Kincaid sem
fellur fyrir Francescu Johnson, en
hann var ekki sammála upprunaleg-
um leikstjóra um hver ætti að leika
Francescu. Leikstjórinn vildi unga
leikkonu, en Eastwood hafði
ákveðna leikkonu í huga og fékk
Clint Eastwood og Meryl Streep sem Rómeó
og Júlía í Madisonskíri.
hana þegar hann hreppti leikstjóra-
stólinn líka að lokum. Hann sendi
handritið þegar til Meryl Streep sem
tók hlutverkið að sér þegar og hún
hafði lesið handritið. Hún hefur
þegar hlotið óskarsverðlaunin tví-
vegis, en ekki fengið almennilegt
hlutverk í tíu ár. Reyndar var fram-
leiðandi myndarinnar, Steven Spiel-
berg, ekki samþykkur því ráðslagi
að láta Eastwood eftir aðalhlutverk-
ið og leikstjómina líka, en eftir að
Eastwood lauk við myndina lét
Spielberg hafa það eftir sér að þetta
væri það besta sem hann hefði gert
til þess.
Sterki þögli maðurinn
Clint Eastwood hefur ævinlega
leikið einfara; sterka þögla mann-
inn, sem hverfur inn í sólarlagið
þegar komið er að því að hnýta
böndin til frambúðar. Robert Kinc-
aid er sama eðlis; hann er einfari
og flakkari, sem ekki hefur náð að
festa rætur. Sagan hermir að
Eastwood hafí sagt við Spielberg
að enginn væri færari honum að
leikstýra mynd um Kincaid; hann
þekkti þessa persónu öðrum
betur, því hann væri þannig.
Að sögn ævisöguritara
Eastwoods er það ekki fjarri
lagi, hann segir Eastwood
aldrei hafa getað bundist
konu þeim tryggðarbönd-
um að héldu, og það sé
löngu orðið um seinan
fyrir hann að fara að
festa ráð sitt, hann
kunni því of
muúH
r MMNSWSKÍU