Morgunblaðið - 10.08.1995, Blaðsíða 1
HLUTABRÉF Æ HUGBÚNAÐUR fjy *' C' TÖLVUR
Rífandi ávöxtun á ■ *| Markaðsmál * «>»•■ h ■ H Windows95 af T|if|!1'
markaöinum/4 dTTJÁ u á alnetinu /6 r~«í.. -■-1—- IKMi KSKSSMft'-r ' - • . .. ■ • ~. <flR9a< ...BkKI stokkunum /7
VEDSKIFn AIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 10. AGUST 1995
BLAÐ
B
Hlöllabátar
Skyndibitastaðurinn Hlöllabátar
hefur auglýst eftir aðila til að
taka við leigusamningi fyrirtæk-
isins í Kringlunni. Frekari sam-
dráttur er á döfinni hjá fyrirtæk-
inu, sem hefur vaxið ört undanf-
arin ár.
Flugleiðir
Stjórnarfundur verður haldinn
hjá Flugleiðum í dag. Búist er
við að á fundinum verði tekin
afstaða til upphafs áætlunar-
flugs til Halifax á sumaráætlun
næsta árs, og jafnvel frekari
breytinga á leiðakerfi félagsins.
Bjór
Bjórsala dróst saman í júlí í ár
miðað við sama mánuð í fyrra,
og er talið að ástæðan sé sú að
sala tengd verslunarmannahelgi
kemur fram í ágúst í ár, en kom
fram I júlí í fyrra. Aðra mánuði
þessa árs hefur orðið aukning á
sölu bjórs. Ölgerðin Egill Skalla-
grímsson hf. treysti stöðu sína
sem stærsti markaðsaðilinn í júlí.
SÖLUGENGIDOLLARS
Ávöxtun hlutabréfa í nokkrum
hlutafélögum frá áramótum
1 1 SBEJ 66,67% HAMPIÐJAN
1 166,35% ÞORMÓÐUR RAMMI
L H 54,00% SÍF
I « 53,33% FLUGLEIÐIR
U 52,94% HRAOFRYSTIHÚS ESKIFJ.
CZZ 1 49,09% HARALDUR BÖÐVARSSON
1 ]W1 44.78% LYFJAVERSLUNÍSLANDS
1 1 37,78% SÍLDARVINNSLAN
1 □ 27,73% TÆKNIVAL
| | 27.54% EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
1 1 25,00% HLUTABRÉFASJÓÐURINN
1 1 23.60% SKAGSTRENDINGUR
LZZ □ 21,40% ÚTGERÐARFÉLAG AKUREYRINGA
J 21,03% SÆPLAST
17,04% MAREL
C
L
J14,17% HL.BR.SJ. AUÐLIND
] 12,35% PHARMACO
9,68% ÍSL. SJÁVARAFURÐIR
I l 9,52% HL.BR.SJ. NORÐURL.
I l 9,52% TOLLVÖRUGEYMSLAN
I I 6,53% GRANDI
□ 6,15% JARÐBORANIR
□ 4,77% SJÓVÁ ALMENNAR TR.
□ 3,44% OLÍUFÉLAGIÐ
D 2,70% EHF. ALÞÝÐUBANKANS
0 1,54% ÍSLENSKIHLUTABRÉFASJ.
0,0% ÍSLENSKA ÚTVARPSFÉLAGIÐ
-0,82% | ÍSLANDSBANKI
-1,90%D VINNSLUSTÖÐIN
-2,01% D SAMEINAÐIR VERKT.
-8,98% □ SKELJUNGUR
-10.91%\ I OLÍUVERSLUN ÍSL.
-16.67%\ ISAMSKIP
Helmild: lANDSBRÉF
HÉR er sýrid ávöxtun hlutabréfa
einstakra félaga frá síðustu
áramótum til og með 8. ágúst.
Hækkun hlutabréfa endurspeglar
batnandi afkomu fyrirtækja og
væntingar fjárfesta um að hagur
og rekstur þeirra sé viðunandi og
eigi eftir að batna enn frekar. Þau
þrjú félög sem státa af hæstri
ávöxtun frá áramótum eru
Hampiðjan hf., Þormóður rammí
hf. og Sölusamband íslenskra
fiskframleiðenda hf. Miðað er við
lokagengi ársins 1994 hjá öllum
félögum. Ávöxtun hlutabréfa í
SR-Mjöli hefur einnig verið mjög
góð en hún er ekki sýnd á töflunni
vegna sérstöðu fyrirtækisins á
markaðnum en það var einkavætt
árið 1993. Lokagengi hlutabréfa
SR-Mjöls árin 1993 og 1994 er hið
sama eða 1,12 þar sem engin
viðskipti áttu sér stað með þau á
Verðbréfaþingi íslands á árinu
1994. Sé miðað við þetta gengi
nemur ávöxtun bréfanna nú
88,39% en fyrstu viðskiptin með
þau urðu 23. janúar 1995 og þá á
genginu 1,5.
Sjá grein um ávöxtun
á hlutabréfamarkaði eftir
Sigurð B. Stefánsson á B4.
Afkoma Búnaðarbanka fyrstu sex
mánuðina er svipuð og í fyrra
Hagnaðurinn
42 ínilljónir
REKSTUR Búnaðarbanka íslands
fyrstu sex mánuði þessa árs skil-
aði 42 milljóna hagnaði, miðað við
35 milljóna hagnað á sama tíma í
fyrra. Hagnaðurinn fyrir skatta
var nánast sá sami og á sama tíma-
bili 1994, eða 77 milljónir króna.
Framlag í afskriftareikning útlána
lækkaði úr 336 milljónum í 266
milljónir, en þóknun af erlendum
viðskiptum dróst saman um 35
milljónir króna.
Ásættanlegt miðað við
aðstæður
Jón Adolf Guðjónsson, banka-
stjóri Búnaðarbankans, sagði í
samtali við Morgunblaðið að
stjórnendur bankans teldu afkom-
una nokkuð viðunandi í ljósi að-
stæðna. „Avöxtun eigin fjár er alls
ekki nægjanleg, en sé tekið tillit
til aðstæðná erum við tiltölulega
sáttir,“ sagði hann. „Við vonumst
til að afkoman verði betri á seinni
hluta ársins, svo árið í heild gæti
komið svipað út og árið í fyrra.“
Aðspurður um ástæður þess, að
afkoman breytist lítið þrátt fyrir
minnkandi framlag í afskrifta-
reikning útlána sagði Jón Adolf:
„Ein helsta ástæðan er sú, að
þóknun af erlendum viðskiptum
lækkar úr 85 milljónum í tæpar
50 milljónir króna. Því er ekki að
leyna að samkeppni milli bankanna
hefur leitt til þessarar þróunar,
sem ég tel öfgakennda. Þarna er
jafnvel verið að gefa þjónustu, og
við sjáum að samkeppni á þessu
sviði er farin að hafa veruleg áhrif
á afkomu bankanna.“ Jón Adolf
telur þessa þróun ekki síst óeðli-
lega í ljósi þess, að bankarnir hafa
undanfarin misseri verið að auka
þjónustugjöld með það að markm-
iði að lækka vaxtamun. „Ég tel
þarna um viðvörun til bankana að
ræða, að þeir hafi gengið of langt
í samkeppni sín á milli.“
Minnkandi afskriftaþörf
Framlög í afskriftarreikning út-
lána minnkuðu eins og áður sagði
um 70 milljónir króna. Segir Jón
Adolf að þessi liður sé að nálgast
það sem eðlilegt mætti teljast.
„Við finnum fyrir því að afskrifta-
þörfin er einfaldlega minni en hún
hefur verið undanfarin ár,“ sagði
hann.
Fjármunatekjur að frádregnum
íjármagnsgjöldum voru 988 millj-
ónir króna á tímabilinu, sem er
svipuð útkoma og í fyrra. Jón
Adolf segir þetta afleiðing þess að
hverfandi breyting hefur orðið á
vaxtamun bankans, sem hafi verið
4,19 þá en sé 4,20 nú. Hagnaður
'af hlutdeildarfélögum dróst hins
vegar saman um tæpar fjórar millj-
ónir króna, úr 17,5 milljónum í
13,6, og sagði Jón Adolf þessa
útkomu valda vonbrigðum.
Eigið fé bankans þann 30 júní
var 3.841,5 milljónir króna, og
skuldir hans námu 43.166 milljón-
um.
U)iÍF
~y~
Nýjung:
Tryggingavernd fyrir sjóðfélaga
Nú er kominn út nýr bæklingur um ALVlB með góðum fréttum um
lífeyrismál. 1 honitm er að finna upplýsingar um nvernig tryggja má
fjárhagsíegt öryggi alla ævina með þvi að greiða i ALVÍB. Bæklingurinn liggur
frarnmi í afgreiðslum VÍB, Tryggingamiðstöðvarinnar og Sjóvá-Almennra.
FORYSTAI FJARMALUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR tSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi lslands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.