Morgunblaðið - 10.08.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUR 10. ÁGÚST 1995 B 3
Útgáfa
Windows 95
verður ekki
stöðvuð
Washing^ton. Reuter.
BANDARÍSKA dómsmála-
ráðuneytið gerir ekki ráð fyrir
að grípa til aðgerða gegn Mic-
rosoft til að koma í veg fyrir
brot á samkeppnisreglum fyrir
24. ágúst þegar sala á hugbún-
aðarkerfmu Windows 95 hefst.
Ráðuneytið heldur áfram
rannsókn sinni á tölvunetinu
Microsoft Network, sem keppi-
nautar hafa gagnrýnt. Þeir
segja að vegna yfirburða Mic-
rosofts á tölvumarkaði muni
fyrirtækið bijóta samkeppnis-
reglur þegar það bjóði notend-
um auðveldan aðgang að tölvu-
neti sínu með Windows 95.
Fjárfestar og ráðamenn í
tölvuiðnaðinum höfðu óttazt að
dómsmáiaráðuneytið reyndi að
stöðva sölu Windows 95 með
dómi, en búizt er við að mark-
aðssetningin valdi miklu sölu-
æði. Sérfræðingar höfðu varað
við banni á markaðssetningu.
Áður hafði Microsoft auglýst
hagstætt verð á aðgangi að
tölvunetinu.
Toshiba sel-
ur stafræna
myndavél
Tokyo. Reuter.
TOSHIBA-fyrirtækið ráðgerir
sölu á fyrstu myndavél heims
með innbyggðum fjarskipta-
búnaði að þess sögn.
PROSHOT kallast þessi nýj-
ung og er stafræn myndatöku-
vél með mótaldi og fjarskipta-
hugbúnaði til að senda myndir
um síma.
í vélinni er 16 megabita
geislaminni, tveggja mega-
bæta gagnageymsla og hljóð-
nemi. Hægt verður að tengja
hana prentara og sjónvarpi og
auka minni hennar.
Myndatökuvélin verður fá-
anleg í Japan í næsta mánuði
fyrir 260.000 jen eða 2.857
dollara.
Toshiba gerir ráð fyrir að
selja 12.000 slíkar vélar á ári
í Japan og mun setja svipaðar
gerðir á markað erlendis síðar
meir.
Sterktjen
dregur úr
hagnaði
Sony
Tókýó. Reutcr.
STERK staða jensins hefur lík-
lega dregið verulega úr hagnaði
Sony og það mun koma í ljós
þegar afkoma fyrirtækisins á
öðrum ársíjórðungi verður
kynnt í vikunni að sögn sér-
fræðinga.
Tölur Sony verða fyrsta vís-
bendingin um ástand og horfur
í rekstri annarra skyldra fyrir-
tækja í Japan, en mörg þeirra
skýra ekki frá afkomu sinni
nema tvisvar á ári.
Sérfræðingur Yamaichi-
rannsóknarstofnunarinnar býst
við að rekstrahagnaður Sony á
ársfjórðungnum hafi minnkað
um 69% miðað við sama tíma
í fyrra í 10 milljarða jena og
hagnaður fyrir skatta um 19%
í 19 milljarða jena.
Hinn 19 apríl fengust 75,75
jen fyrir dollarann og það var
met. Nú fást um 91 jen fyrir
dollaran. Sterk staða jensins
hefur dregið úr hagnaði Sony.
Þó mun gjaldeyrishagnaður
vega upp á móti tapinu.
Olafur Olafsson kynnir
breytingar hjá Sony
Ólafur Jóhann Ólafsson
New York.
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson, forstjóri
Sony Electronic Publishing Comp-
any, hefur skýrt frá endurskipulagn-
ingu á starfsemi Sony á sviðum
gagnvirkar tækrti í Evrópu og
Bandaríkjunum. Nafni Sony Electr-
onic Publishing verður breytt í Sony
Interactive Entertainment Inc. og
nöfnum nokkurra deilda hefur einnig
verið brejdt.
Neð nýja nafninu Sony Interactive
Entertainment vill fyrirtækið leggja
áherzlu á rækt þess við skemmtihug-
búnað og sölu á honum og búa í
haginn fyrir formlega endurskipu-
lagningu á gagnvirkri starfsemi
Sony í Bandaríkjunum og Evrópu.
Ólafur verður áfram yfirmaður allra
deildanna í Bandaríkjunum og Evr-
ópu.
„Þar sem fyrir dyrum stendur að
markaðssetja Sony PlayStation í
Bandaríkjunum og Evrópu áður en
langt um líður viljum við að mjög
greinileg mynd fáist. af skipulags-
gerð gagnvikra deilda Sony, sagði
ðlafur." „Þess vegna höfum við end-
urskipulagt margrar rekstrardeildir
fyrirtækja okkar í Bandaríkjunum
og Evrópu og gefið þeim ný nöfn
til þess að skilgreina ljóslega starfs-
svið hverrar deildar um sig.“
Undir stjórn Sony Interactive
Entertainment eru fyrirtæki, sem
einbeita sér að Sony PlayStation
vélbúnaði og hugbúnaði og margm-
iðla tölvuhugbúnaði, aðallega mið-
uðum við skemmtiefni, í Bandaríkj-
unum og Evrópu.
— Sony Computer Entertainment
(America) og Sony Computer Ent-
ertainment (Europe), sem bera
ábyrgð á markaðssetningu, sölu og
dreifingu PlayStation vélbúnaðar og
hugbúnaðar og auk þess á rannsókn
og þróun og stuðningi við hugbúnað-
arþróun þriðju aðila;
— Sony Interactive (America) og
Sony Interactive (Europe), sem bera
ábyrgð á þróun Sony PlayStation
og tölvuhugbúnaðar og auk þess
markaðssetnngu, sölu og dreifingu
tölvuhugbúnaðar;
— Media and Software Services,
sem bera ábyrgð á þjónustustarf-
semi Sony fyrir og eftir framleiðslu
og framleiðslu CD-ROM geisladiska.
í Bandaríkjunum er Marty Homl-
ish forstjóri Sony Computer Enterta-
inment (America); Kelly Flock, fv.
forstjóri Sony Imagesoft, verður for-
stjóri Sony Interactive Studios, sem
nýlega hefur verið komið á fót
og ber ábyrgð á Sony PlayStation
og þróun tölvuhugbúnaðar; ný
deild, Sony Interactive PC Softw-
are, verður undir stjórn nýskipaðs
aðalframkvæmdastjóra, Ray
Sangster, fv. forstjóra Sony
Electronic Publishing (Europe),
og mun bera ábyrgð á markaðs-
setningu, sölu og dreifingu tölvu-
hugbúnaðar.
I Evrópu er Chris Deering, for-
stjóri Sony Computer Entertain-
ment (Europe); Ian Hethereing-
ton og Jonathan Ellis, fyrrverandi
framkvæmdastjórar Psygnosis
Ltd., verða framkvæmdastjórar
Sony Interactive (Europe) og bera
ábyrgð á Sony Interactive Studios
(Europe) og Sony Interactive PC
Software (Europe).
Media and Software Services
undir forystu Bob Hurley verður
eftir sem áður deild í Sony Int-
eractive Entertainment.
Miklar breytingar hafa orðið í
grein okkar og fyrirtæki á síðustu
12 mánuðum, “ sagði Ólafur. „Þar
sem Sony leggur verulega áherzlu á
markaðssetningu PlayStation og þar
sem markaður fyrir tölvuhugbúnað
er vaxandi skýrir ný skipulagsgerð
okkar betur áherzlu okkar á
skemmtiiðnað og stuðlar að áfram-
haldandi velgengni okkar.“
Sony Interactive Entertainment
Inc. býr til og markaðssetur Sony
PlayStation vélbúnað og hugbúnað
og dreifir honum fyrir Bandaríkja-
og Evrópumarkað. Sony Interactive
Entertainment er dótturfyrirtæki
Sony Corporation of America og
aðalstöðvar þess eru í New York.
Mikilvægi upplýsinga
til stjórnunar
í rekstri eykst með
degi hverjum
Takmarkast rekstur
þinn vegna skorts á
upplýsingum?
Concorde XAL upplýsingakerfi
og bókhald.
Alhliða upplýsingakerfi
án takmarkana.
Hátækni til framfara
m Tæknival
Skeifunni 17 • Simi 568-1665
Nokia til orrustu
við risa ísím-
tækjastríði vestra
Hefur fengið pöntun
upp á 10 milljón dollara
New York. Reuter.
FINNSKA símafyrirtækið Nokia
hefur lagt til orrustu í stríði um
milljarða dollara pantanir í farsíma
fyrir ný, þráðlaus PCS-netkerfi
(Personal Communications Servic-
es).
Nokia hefur fengið pöntun upp
10 milljóna dollara í stafræn sím-
tæki frá fyrirtækinu American Per-
sonal Communications (APC),
handhafa leyfis fyrir ef til vill 8
milljónir notenda í Washington
D.C., Maryland og Virginíu.
Leyfi APC er hlekkur í PCS-
keðju Sprint-fyrirtækisins, sem á
49,5% í APC.
Viðskiptavinir á þessu svæði
verða hinir fyrstu í Bandaríkjunum
sem munu reyna PCS síma, ef fyrir-
huguð markaðssetning APC í nóv-
ember stenzt.
Gat í kerfinu
Val APC á tækni hefur hins veg-
ar í för með sér að PCS símar
Sprints munu ekki virka á svæði
því sem APC hefur leyfi
fyrir. Þar með myndast
rauf í miðju kerfi sem nær
til 178 milljóna manna á
stóru svæði.
Eins og sakir standa
verða notendur að skilja eftir heima
PCS síma sína frá Sprint þegar
þeir fara til Washington, eða fá sér
dýrari tæki. Annars yrði APC ef til
vill að veija mörgum milljónum
dollara til þess að koma sér upp
nýju netkerfi til þess að vera sam-
keppnishæft á landsvísu.
Bjóðendur eyddu 7 milljörðum
dollara í PCS leyfi á alríkisupp-
boði, sem lauk í marz. Sprint varði
mestu fé, 2.1 milljarði dollara.
Stríð við risa
I stríðinu um samninga um sím-
tæki í Bandaríkjunum á Nokia í
höggi við Motorola Inc., Telefon
AB L M Ericsson í Svíþjóð, AT&T
Corp., Northern Telecom Ltd. í
Kanada, og japönsku fyrirtækin
Toshiba Corp., Sony Corp. og
Electric Corp.
Stærstu pantanirnar verða frá
Sprint og bandamönnum þess fyrir-
tækis á sviði kaplasjónvarps, far-
símadeild AT&T - sem áður hét
McCaw Cellular - og PCS PrimeCo,
sem að standa AirTouch Com-
munications Inc. og svæðafyrirtæk-
in Bells NYNEX Corp., Bell Atl-
antic Corp. og U.S. West
Inc.
Aðeins þessi fyrirtæki
eru að koma sér upp net-
kerfum á landsvísu og
þau munu veija hundruð-
um milljónum dollara til þess að
kaupa símtæki. Von er á einhveij-
um stærstu pöntunum á næstu vik-
um.
Gat í
PCS-kerfi
Sprint
Ert þú
með lánshæfa
hugmynd til eflingar
atvinnulífi ?
Við veitum
góðri hugm^nd
brautargengi!
Við veitum fúslega nánari upplýsingar
um lán til atvinnuskapandi verkefna
í öllum greinum.
O
LANASJOÐUR
VESTUR -NORÐURLANDA
ENGJATEIG 3 - PÓSTHÓLF 5410, 125 REYKJAVÍK
SÍMI: 560 54 00 FAX: 588 29 04
BRYNJAH HÖNNUN / RÁÐGJÓF