Morgunblaðið - 19.08.1995, Side 1
LANDSMANNA
BLAÐ ALLRA
1995
■ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST
BLAD
Skeytið tekið
upp hjá FIFA
SKEYTIÐ sem svissneska landsliðinu barst
með heillaóskum og með von um velgengni
í íslandsferðinni rétt fyrir leikinn gegn Is-
lendingum í vikunni og var m.a. undirritða
af formanni alþjóða knattspyrnusambandsins
hefur vakið athygli langt út fyrir landsstein-
ana enda sérstakt mál á ferðinni. „Ef rétt
er, eru þetta stórathugaverð ummæli frá
formanni alþjóða knattspyrnusambandsins
og Ijóst að málið verður að taka upp innan
FIFA,“ sagði Lennart Johansson, formaður
knattspyrnusambands Evrópu í fyrradag
þegar hann var inntur eftir málinu, en vildi
að öðru leyti ekki tjá sig að sinni.
FRJÁLSÍÞRÓTTIR / REYKJAVÍKURLEIKARNIR
Vala Flosadóttir bætti Norðurlandametið í stangarstökki kvenna í gærkvöldi, stökk 3,81 m
r
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
„Sýnir að allt er hægt“
VALA Flosadóttir úr ÍR setti í
gærkvöldi Norðurlandamet í
stangarstökki kvenna þegar hún
fór yfir 3,81 m á Reykjavíkur-
leiknum á Laugardalsvelli. Bætti
hún þar með eldra metið um einn
sentimetra en það setti hún fyrir
skömmu í Svíþjóð þar sem hún
býr um þessar mundir. Segja má
að gærkvöldið hafi verið sannkall-
að stangarstökkskvöld því á sama
tíma setti Daniela Bartova frá
Tékklandi heimsmet í stang-
arstökki kvenna, stökk 4,20 m á
móti í Köln. A sama móti varð
Okker Brits frá Suður Afríku ann-
ar maðurinn til að fara yfir sex
metra í stangarstökki karla þegar
hann stökk 6,03 m og átti góðar
tilraunir við 6,15 m.
Norðurlandamet Völu var há-
punkturinn á Reykjavíkurleikun-
um í gærkvöldi, en Vala kom hing-
að til lands gagngert til að taka
þátt í mótinu. „Mér fannst ég eiga
þetta inni fyrir keppnina, en leist
samt ekki á blikuna þegar ég byij-
aði því að ég fékk stöng að láni
sem var mýkri en ég er vön að
nota og því átti ég í vandræðum
með tæknina. Þetta sýnir að allt
er hægt ef viljinn er fyrir hendi,“
sagði Vala i samtali við Morgun-
blaðið eftir mótið. „En það var
frábær stemmning hér í kvöld og
ég fékk góðan stuðning frá áhorf-
endum sem hvöttu mig til dáða.
Með stuðningi þeirra hefði mér
ekki tekist þetta."
Árangur Völu er mjög glæsileg-
ur, ekki síst þegar tekið er tillit
til þess að hún er aðeins sautján
ára gömul. Hún hefur búið í Sví-
þjóð sl. þijú ár þar sem foreldrar
hennar hafa verið við nám í Lundi.
Um áframhaldið sagði Vala að
hún teldi sig eiga meira inni í
greininni og hún sagðist ennfram-
ur reikna með því að einbeita sér
að stangarstökkinu í framtíðinni,
en hún hefur líka verið að keppa
í hástökki og sjöþraut. Hún sigr-
aði líka í hástökki á Reykjavíkur-
leikunum í gær stökk 1,70 m, en
best á hún 1,81 m. „Ég klára
menntaskólann í vor og reikna
með því að taka mér þá árs frí
frá námi og einbeita mér að æfing-
um. Nú æfi ég á hveijum degi og
stundum tvisvar á dag, en ég byrj-
aði í skólanum í byijun vikunnar
og nú verð ég að skipuleggja mig
vel í vetur til að samræma skólan
og æfingarnar." Vala fer aftur til
Svíþjóðar á þriðjudaginn.
„Það var mjög gaman að setja
metið í kvöld. Aðstæðurnar voru
ágætar, þó hefði mátt vera heitara
en það var frábært að fá svona
góðan stuðning frá áhorfendum,“
sagði hin unga afrekskona, Vala
Flosadóttir, eftir að hafa sett
Norðurlandameti í stangarstökki
á Laugardalsvelli í gærkvöldi.
EIMGLAND: MIKLAR VONIR BUNDNAR VIÐ DENNIS BERGKAMP / D4