Morgunblaðið - 19.08.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 19.08.1995, Qupperneq 1
LANDSMANNA BLAÐ ALLRA 1995 ■ LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST BLAD Skeytið tekið upp hjá FIFA SKEYTIÐ sem svissneska landsliðinu barst með heillaóskum og með von um velgengni í íslandsferðinni rétt fyrir leikinn gegn Is- lendingum í vikunni og var m.a. undirritða af formanni alþjóða knattspyrnusambandsins hefur vakið athygli langt út fyrir landsstein- ana enda sérstakt mál á ferðinni. „Ef rétt er, eru þetta stórathugaverð ummæli frá formanni alþjóða knattspyrnusambandsins og Ijóst að málið verður að taka upp innan FIFA,“ sagði Lennart Johansson, formaður knattspyrnusambands Evrópu í fyrradag þegar hann var inntur eftir málinu, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig að sinni. FRJÁLSÍÞRÓTTIR / REYKJAVÍKURLEIKARNIR Vala Flosadóttir bætti Norðurlandametið í stangarstökki kvenna í gærkvöldi, stökk 3,81 m r Morgunblaðið/Ámi Sæberg „Sýnir að allt er hægt“ VALA Flosadóttir úr ÍR setti í gærkvöldi Norðurlandamet í stangarstökki kvenna þegar hún fór yfir 3,81 m á Reykjavíkur- leiknum á Laugardalsvelli. Bætti hún þar með eldra metið um einn sentimetra en það setti hún fyrir skömmu í Svíþjóð þar sem hún býr um þessar mundir. Segja má að gærkvöldið hafi verið sannkall- að stangarstökkskvöld því á sama tíma setti Daniela Bartova frá Tékklandi heimsmet í stang- arstökki kvenna, stökk 4,20 m á móti í Köln. A sama móti varð Okker Brits frá Suður Afríku ann- ar maðurinn til að fara yfir sex metra í stangarstökki karla þegar hann stökk 6,03 m og átti góðar tilraunir við 6,15 m. Norðurlandamet Völu var há- punkturinn á Reykjavíkurleikun- um í gærkvöldi, en Vala kom hing- að til lands gagngert til að taka þátt í mótinu. „Mér fannst ég eiga þetta inni fyrir keppnina, en leist samt ekki á blikuna þegar ég byij- aði því að ég fékk stöng að láni sem var mýkri en ég er vön að nota og því átti ég í vandræðum með tæknina. Þetta sýnir að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi,“ sagði Vala i samtali við Morgun- blaðið eftir mótið. „En það var frábær stemmning hér í kvöld og ég fékk góðan stuðning frá áhorf- endum sem hvöttu mig til dáða. Með stuðningi þeirra hefði mér ekki tekist þetta." Árangur Völu er mjög glæsileg- ur, ekki síst þegar tekið er tillit til þess að hún er aðeins sautján ára gömul. Hún hefur búið í Sví- þjóð sl. þijú ár þar sem foreldrar hennar hafa verið við nám í Lundi. Um áframhaldið sagði Vala að hún teldi sig eiga meira inni í greininni og hún sagðist ennfram- ur reikna með því að einbeita sér að stangarstökkinu í framtíðinni, en hún hefur líka verið að keppa í hástökki og sjöþraut. Hún sigr- aði líka í hástökki á Reykjavíkur- leikunum í gær stökk 1,70 m, en best á hún 1,81 m. „Ég klára menntaskólann í vor og reikna með því að taka mér þá árs frí frá námi og einbeita mér að æfing- um. Nú æfi ég á hveijum degi og stundum tvisvar á dag, en ég byrj- aði í skólanum í byijun vikunnar og nú verð ég að skipuleggja mig vel í vetur til að samræma skólan og æfingarnar." Vala fer aftur til Svíþjóðar á þriðjudaginn. „Það var mjög gaman að setja metið í kvöld. Aðstæðurnar voru ágætar, þó hefði mátt vera heitara en það var frábært að fá svona góðan stuðning frá áhorfendum,“ sagði hin unga afrekskona, Vala Flosadóttir, eftir að hafa sett Norðurlandameti í stangarstökki á Laugardalsvelli í gærkvöldi. EIMGLAND: MIKLAR VONIR BUNDNAR VIÐ DENNIS BERGKAMP / D4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.