Morgunblaðið - 24.08.1995, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 24.08.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1995 C 7 SUNIMUDAGUR 27/8 Á Rourke sér vidreisnar von? MICKEY Rourke tókst á sérkenni- legan hátt að glutra niður leikferli sínum á fáeinum árum með léleg- um myndum og ofsafenginni fram- komu í fjölmiðlum og á opinberum vettvangi. Hann varð sjúskaðri og útlifaðri með hveiju árinu sem leið og hrósið sem hann hafði fengið fyrir hlutverk sín í myndum á borð við Diner, Rumble Fish, Angel Heart og Barfly breyttist í níð gagnrýnenda. Hann varð maðurinn sem allir elskuðu að hata. Rourke hefur leikið í á þriðja tug mynda síðan hann vakti fyrst á sér athygli í Body Heat árið 1981, og er nú 41 árs gamall. Hann segist standa á tímamótum í lífi sínu; hann hafi verið búinn að glata allri sjálfsvirðingu og þegið ömurleg hlutverk í heimskulegum kvik- myndum, en nú finnist honum hann standa á þröskuldi himnarík- is. Fyrirlítur kerfið í nýlegu viðtali í Arena segir blaðamaður hann vel útlítandi, grannan og stæltan eftir stífar æfingar undir leiðsögn einkaþjálf- ara að nafni Norma Asciano, en hún mun meðal annars hafa orðið ungfrú Venesúela sjö sinnum og sigurvegari í ýmsum vaxtaræktar- keppnum. Rourke segist vera að tukta sjálfan sig til, leikferill hans sé í húfi. Blaðamaður ber honum vel söguna, segir hann harðan í horn að taka en óvitlausan, mjúkan undir harðri skel og vopnaðan af- dráttarlausri hreinskilni. „Ég er að beijast gegn því hræðilega orðspori sem fer af mér. Framleiðandi nokkur í Hollywood þvælist um og segir hveijum sem heyra vill að Mickey Ro- urke hafi skotið sig í fót- inn svo oft að allar tíu tærnart séu a’f. Það er látið illa af mér sem er skiljanlegt en þó ekki. Ég hef aldrei verið fullur á tökustað eða lamið nokkurn. En þeir hafa lesið reiðina úr andliti mínu. Mér tókst ekki að leyna ógeði mínu á kerfinu og aftanítoss- unum sem stjórna því,“ segir hann. Hann segist enn fullur reiði út í hræsnina og vændið sem viðgang- ist í draumaverksmiðjunni, sem hann viðurkennir þó að hafa sjálf- ur tekið þátt í, en hann axli nú ábyrgð og horfist í augu,- við fortíðina. Hann sé bjartsýnn á að ferill hans gangi í end- urnýjun lífdaga með til- heyrandi launahækkun- um og lofi. „Ég skamm- ast mín ekki lengur fyrir að vera leikari. Það er nýlunda,“ segir Rourke og lofar hnefaleikaíþrótt- ina sem virðingaverða leið til að öðlast sjálfs- traust að nýju. Ástin drifkrafturinn Rourke er skreyttur húðflúrum hér og þar, m.a. er ritað „Carré Forever“ á upphandlegg hans, sem minnir óþyrmilega á frægt húðflúr Johnny Depp þegar hann ungur taldi leikkonuna Wynonu Ryd- er miðpunkt heimsins. Hann ber hring í naflan- um og segir að áðurnefnd Carré Otis, hálaunuð fyr- irsæta og fyrrverandi eiginkona Rourke, sé með eins hring á sama stað. Þau tóku saman að nýju fyrir rúmu hálfu ári og bera sig vel að sögn. Þau segja stríðsöxina gleymda og grafna. Fyrri eijur þeirra hafi aðallega verið margvíslegur mis- skilningur sem byggðist á „erfiðum breytingum sem við gengum bæði í gegnum á þeim tíma,“ segir Rourke. „Við hættum aldrei að elska hvoit annað. Ég lærði auk þess mikilvæga lexíu. Konur eru sterkari en karlar. Þegar konur . klippa á sambönd er ekk- ert hálfkák á ferð. En karlar eru reiðubúnir til að skríða í duftinu til að endurheimta konuna sína. Ég skreið og sé ekki eftir því. Carré er þess virði.“ Otis segir það áskorun fyrir önnum kafnar manneskjur undir miklu álagi að viðhalda sambandi, en munurinn á tengslum þeirra nú og fyrir skilnaðinn sé heiðarleikinn. „Við Mickey ljúgum ekki lengur. Við tölum hreint út um hlutina og gefum eins mikið og við getum. Aður stjórnuðust gerðir okkar af ótta en nú er ástin eini drifkraftur- inn.“ Lærði að kon- ur eru sterkari en karlar Kvikmyndir taka sinn toll BRAD Pitt hefur verið líkt við James Dean þótt bæði honum og hörðustu aðdáendum þess síðamefnda þyki samlíkingin hæpin. „Þessi samanburður gerir mér órótt í geði, en ég hugsa þó lítið um slíkt,“ segir Pitt, seinasta kyn- tákn draumaverk- smiðjunnar í Holly- wood. „Ég held ekki að ég líkist James Dean og ég veit fátt um hann.“ Pitt vekur mikla hrifningu ungmeyja um allan heim sökum blárra augna og ljósra lokka, en útlitið hefur líka orðið þess valdandi að menn hafa dregið hæfileika hans í efa. Pitt virðist sallarólegur yfir slíkum aðdróttunum, enda nýtur hann kvenhylli og góðra launa fyrir tilstilli eins eftirsótt- asta starfs í heimi skemmtana- iðnaðar; kvikmyndaleiks. Haim segist þó ekki líta á starfíð sem eintóma sunnudagssteik. Starfið mergsýgur Pitt „Kvikmyndir taka sinn toll. Maður sefur ekki og étur varla nokkura skapaðan hlut. Maður fórnar heilindum. Starfíð mergs- ýgur mann. Maður hirðir þau handrit sem standa til boða hveiju sinni. Gangi dæmið upp, er það gott. Gangi dæmið ekki upp, má ekki láta deigan díga. Ég lýg ekki að sjálfum mér og tel mig vera góðan leikara, en ekki frábæran." Eftir að hafa lokið námi í Kickapoo High School í krummaskuð- inu Springfield í Misso- uri-fylki Bandaríkjanna, ákvað Pitt að læra blaða- mennsku. Einkunniraar stóðu eitthvað í vegi fyrir þeim draumi og drengurinn setti niður í tösku og hélt til borgar englanna með aleiguna, rúmar 21 þúsund krón- ur. Hann á nú yfir 100 leðuijakka sem rúmast vart í einni tösku og helling af seðlum, þannig að ferð- in sú borgaði sig á fáeinum árum. Frægðin kom þó ekki alveg fyrir- hafnarlaust; hann starfaði meðal annars sem bflsljóri og ók um með fatafellur í limósínu einni, auk þess sem fyrsta hlutverkið fólst í að hoppa um í kjúklinga- búningi á veitingastað á Sunset Boulevard. Vinur Pitt bað hann síðan að fylgja sér í áheyraar- próf þjá umboðsmanni nokkrum fyrir smáhlutverk í sjónvarps- þætti og viti menn, vinurinn var kvaddur með virktum en Pitt ráðinn. Hann lék síðan örhlut- verk í Dallas þáttunum sálugu og nokkrum sápuóper- um öðrum, auk þess að vera ráðinn til að leiða eigin þáttaröð, Glory Days. Vinsældiraar létu hins vegar á sér kræla og röðin varð aldrei lengri en sex þættir. Þá bauðst honum aukahlutverk í myndinni Thelma & Louise sem hann þrautnýtti, því að auk þess að sænga hjá Geenu Davis (í myndinni), rændi hann öllu fé- mætu frá stúlkunni og uppskar athygli gagnrýnenda og kvik- myndagerðarmanna. Brautin hefur síðan legið upp á við. Telur sig ólíkan James Dean UTVARP Kl. 11.00 á Rás 1 er útvarpai messu Irá Bústaðakirkju. Prestur er séra Páimi Matthiasson. RÁS 1 FM 92,4/93,5 8.07 Morgunandakt: Séra Birgir Snæbjörnsson flytur. 8.15 Tónlist & sunnudagsmorgni. — Les Folies dEspagne eftir Marin Marais Manuela Wiesler leikur á flautu. — Introduktion und Variationen eftir Franz Schubert Áshildur Haraldsdóttir. leikur á flautu Love Derwinger leikur á píanó. 8.55 Fréttir á ensku. 9.03 Stundarkorn í dúr og moll. Þáttur Knúts R. Magnússonar (Einnig útvarpað að loknum fréttum á miðnætti). • 10.03 Veðurfregnir. 10.20 Að skapa og endurskapa. Ljóðaþýðingar eftir seinni heimsstyrjöld. Fyrsti þáttur: Jó- hannes úr Kötlum og Halldóra B. Björnsson. Umsjón: Gunnar Stefánsson. Lesari: Valgerður Benediktsdóttir. 11.00 Messa í Bústaðakirkju. Séra Pálmi Matthíasson prédikar. 12.10 Dagskrá sunnudagsins. 12.45 Veðurfregnir, auglýsingar og tónlist. 13.00 TónVakinn -1995. Tónlist- arverðlaun Ríkisútvarpsins. Þriðji keppandi af sex: Jón Ragnar Örnólfsson, sellóleikari. Steinunn Birna Ragnarsdóttir leikur með honum á pianó. Umsjón: Dr. Guðinundur Emils- son. Kynnir: Finnur Torfi Stef- ánsson. 14.00 Sódóma Reykjavfk. Borgin handan við hornip Umsjón: Jón Karl Helgason. (Áður á dagskrá í júní). 15.00 Þú, dýra list Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. (Endurflutt nk. miðvikudagskvöld kl. 20.00). 16.05 Svipmynd af Álfrúnu Gunn- laugsdóttur rithöfundi. Umsjón: Jón Hallur Stefánsson. Lesari: Gyða Ragnarsdóttir. (Áður ú dagskrá í þættinum Hjálma- kletti 29.3. 1995). 17.00 Sunnudagstónleikar í umsjá Þorkels Sigurbjörnssonar. Frá orgeltónleikum Ragnars Björns- sonar í Hallgrímskirkju í febrúar 1993. 18.00 Smásaga, Ævintýri Ander- sens, Svanhildur Óskarsdóttir les tvær sögur eftir H. C. And- ersen, „Grenitréð og snigilinn“ og „Rósaviðinn" í íslenskri þýð- ingu Steingrims Thorsteinsson- ar. (Áður á dagskrá sl. föstu- dag). 18.50 Dánarfregnir og auglýsing- ar. 19.30 Veðurfregnir. 19.40 Æskumenning. Svipmyndir af menningu og lífsháttum ungl- inga á ýmsum stöðum. 6. þátt- ur: Æskan við sjávarsíðuna. Umsjón: Gestur Guðmundsson. (Áður á dagskrá). 20.20 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 21.00 Út um græna grundu. Þátt- ur um náttúruna, umhverfið og ferðamál. Umsjón: Steinunn Harðardóttir. (Áður á dagskrá í gærmorgun). 22.10 Veðurfregnir. Orð kvölds- ins: Eirný Ásgeirsdóttir flytur. 22.15 Tónlist á síðkvöldi. Verk eft- ir Camille Saint-Saéns. — Septett í Es-dúr ópus 65 fyrir trompet, 2 fiðlu, lágfiðlu, selló, kontrabassa og píanó. — Konsert fyrir píanó og hljóm- sveit númer 4 í c-moll ópus 44. Jean-Philippe Collard leikur með Konunglegu Fílharmóníusveit- inni; André Prévin stjórnar. 23.00 Frjálsar hendur. Umsjón: Illugi Jökulsson. 0.10 Stundarkorn í dúr og moll. Þáttur Knúts R. Magnússonar. (Endurtekinn þáttur frá morgni). 1.00 Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. Veðurspá. Friltir ú RÁS I kl. 8, 9. 10, 12.20, 16, 19, 22 og 24. RÁS 2 FM 90,1/99,9 8.07 Morguntónar fyrir yngstu börnin. 9.03 Sunnudagsmorgunn með Svavari Gests. 11.00 Urval dægurmálaútvarps liðinnar viku. 13.00 Til sjávar og sveita. Fjalar Sigurðsson. 14.00 íþróttarásin 17.00 Tengja. Umsjón: Kristján Sigurjónsson. 19.32 Milli steins og sleggju. 20.30 Allt í góðu. 22.10 Meistarataktar. Umsjón: Guðni Már Henningsson. O.lOSumartón- ar. 1.00 Næturútvarp á samtengd- um rásum til morguns. Veðurspá. Næturtónar. Fréttir RÁS 2 kl. 8, 9. 10. 12.20, 16, 19, 22 og 24. NÆTURÚTVARPID 2.00 Fréttir. 2.05 Fimm fjórðu. Djass í umsjón Lönu Kolbrúnar Eddudóttur. 3.00 Næturtónar. 4.30 Veðurfregnir. 4.40 Næturtónar. 5.00 Fréttir. 5.05 Stund með Temt- ations. 6.00 Fréttir, veður, færð og flugsamgöngur. 6.05 Heimur harmónikkunnar. Umsjón: Reynir Jónasson. AÐALSTÖDIN FM 90,9 / 103,2 10.00 Rólegur sunnudagsmorgun. 12.00 Bjarni Arason. 16.00 Inga Rún. 19.00 Magnús Þórsson. 22.00 Lífslindin. 24.00 Ókynnt tónlist. BYLGJAN FM 98,9 10.00 Halldór Backmann. 12.15 Hádegistónar 13.00 Við pollinn. Bjarni Hafþór Helgason. 14.00 ís- lenski listinn. 17.15 Við heygarðs- hornið. 19.30 19:19 20.00 Sunnu- dagskvöld með Erlu Friðgeirsdótt- ur. 1.00 Næturvaktin. Fréttir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30. BROSIÐ FM 96,7 3.00 Ókynntir tónar. 10.00 Tónlist- arkrossgáta Jóns Gröndals. 12.00 Gylfi Guðmundsson. 17.00 Ókynnt- ir tónar. 20.00 Lára Yngvadóttir. 22.00Helgi Helgason. 3.00 Ókynntir tónar. LINDIN FM 102,9 8.00 Tónlist. 9.00 Kirkjudagskrá. 11.00 Tónlist. 13.00 Kirkjudag- skrá. 15.00 Tónlist. 17.00 Kirkju- dagskrá. 19.00 Tónlist. 22.00 Ró- legt og fræðandi. SÍGILT-FM FM 94,3 9.00Sunnudagstónleikar. 12.00 Sígilt í hádeginu. 13.00 Sunnu- dagskonsert. 16.00 íslenskir tónar. 18.00 Ljúfir tónar. 21.00 Tónleik- ar. 24.00 Næturtónar. FM 957 FM 95,7 10.00 Helga Sigrún Harðardóttir. 13.00 Ragnar Bjarnason. 16.00- Sunnudagssiðdegi með Jóhanni Jóhannssyni. 19.00 Ásgeir Kol- beinsson. 22.00 Þórhallur Guð- mundsson. X-ID FM 97,7 10.00 Örvar Geir og Þórður Örn. 13.00 Siggi Sveins. 17.00 Hvíta tjaldið 19.00 Rokk X. 21.00 Súr- mjólk. 1.00 Næturdagskrá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.