Morgunblaðið - 31.08.1995, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 1995 C 5
J
LAUGARDAGUR 2/9
MYIMDBÖIMD
Sæbjörn Valdimarsson
JAHÚ í
HOLLÍVÚDD
GAMANMYND
Glæfra Kelly (Reckless Kelly) k
Leikstjóri og handritshöf-
undur Yahoo Serious. Aðalleik-
endur Yahoo Serious, Melora
Hardin, Alexei Sayle, Hugo
Weaving. Áströlsk. Warner
Bros 1994. Sam myndbönd 1995.
76 mín. Öllum leyfð.
ÁSTRALINN
Yahoo Serious
kom öllum ’ á
óvart með mynd
sinni Young
Einstein, fyrir
allnokkrum
árum. Þessi
auðgleymdi
aulabrandari sló
nefnilega í gegn
víða um heim og
Warner Bros tók pilt uppá arma
sína og bauð honum að gera mynd
í höfuðstöðvunum í Hollywood.
Þar á bæ naga sjálfsagt einhveijir
á sér neglur og tær því afrakstur-
inn, sem býðst okkur beint á
myndbandinu, var sýndur í kvik-
myndahúsum vestan hafs á síðasta
ári með þeim hæpna árangri að
aðsóknin mældist varla.
Engin furða. Glæfra Kelly er
ófyndinn samsetningur sem Yahoo
hefur samið sjálfum sér til dýrðar.
Skellir sér í hlutverk Neds Kelly
(á að vera afkomandi útlagans
fræga sem Mick Jagger lék á árum
áður í litlu skárri framleiðslu),
bófa sem rænir ríka og gefur fá-
tækum. Heldur til Hollywood þar
sem hann verður kvikmynda-
stjarna. Mynd við fárra hæfi, ef
nokkurra. Hugo Weaving sem átti
stórleik einsog aðrir í Priscillu,
drottningu eyðimerkurinnar, kem-
ur lítillega við sögu.
VIÐHALD í
FELUM
DRAMA
Maðurinn á loftinu (The Man in
the Attic) Ar *
Leikstjóri Graeme Campbell.
Handritshöfundur Duane Poole
og Tom Swale. Aðalleikendur
Anne Archer, Neil Patrick
Harris, Len Cariou. Bandarísk.
Fox Video 1994. Sam myndbönd
1995. 93 mín. Aldurstakmark
12 ára.
Að lokinni fyrri heimstyijöldinni
fær ungur maður (Neil Patrick
Harris) vinnu hjá efnuðum fata-
framleiðanda og
takast góð
kynni með hon-
um og syni
vinnuveitand-
ans. Sonurinn
fellur frá og
Harris tekur
stöðu hans á
heimilinu. Og
gott betur því
von bráðar upp-
götvar hin kynsvelta „stjúpa“ hans
(Anne Archer) að piltungurinn
getur stytt henni stundir á ýmsa
lund og tekst með þeim funheitt
ástarsamband sem varir í nokkur
ár. Allan þann tíma geymir Archer
draumaprinsinn sinn á háaloftinu.
Maðurinn á loftinu er'byggð á
sönnum atburðum og kemur kunn-
uglega fyrir sjónir því önnur mynd,
byggð á sama efni, var sýnd í
Háskólabíói (að mig minnir) fyrir
allmörgum árum. Þar blómstraði
Shirley McLaine í stjúpuhlutverk-
inu, James Booth lék friðilinn en
Richard Attenborough var hinn
kokkkálaði eiginmaður. Efnið er
enn með sömu endemum en þau
Archer og Harris eru ekki trúverð-
ug í aðalhlutverkunum, það er
einna helst að Len Cariou takist
að gera eitthvað umtalsvert úr
hinum fúla heimilisföður.
UlfED CD
MORÐINGINN ?
SPENNUMYND
Skaðlegur ásetningur (Harmful
Intent) k kVi
Leikstjóri John Patterson.
Handrit Mart-
ha Weingartn-
er, byggt á
skáldsögu
Robins Cook.
Aðalleikendur
Tim Matheson,
Emma Samms,
Robert Pasto-
relli, Kurt
Fuller, Alex
Rocco. Banda-
rísk. Odyssey 1994. Myndform
1995.90 mín. Öllum leyfð.
Höfundur sögunnar sem mynd-
in er byggð á er læknirinn Robin
Cook, sem m.a. á að baki annan
læknaþriller sem var kvikmyndað-
ur. Úr varð Coma, ágætis spennu-
mynd með Michael Douglas í aðal-
hlutverki. Skaðlegur ásetningur
er sjónvarpsmynd og engan veginn
jafnbragðmikil. Tim Matheson
leikur lækni sem grunaður er um
að hafa myrt einn sjúklinga sinna.
Tim fer á stúfana, nær sambandi
við ekkju annars læknis sem lenti
í sömu hremmingum og í samein-
ingu leysa þau morðgátuna.
Tim Matheson er frambærilegur
leikari (þótt hann hafi misnotað
þau tækifæri sem honum hafa
boðist í kvikmyndum) og fer
myndarlega með hlutverk læknis-
ins í klemmunni. Fær sómasam-
lega aðstoð frá Emmu Samms og
þá bregður fyrir gamla skúrknum
honum Alex Rocco, í frísku formi
að venju. Útkoman er viðunandi,
í rösku meðallagi, talsvert spenn-
andi á kafla þó útkoman komi nú
ekki beinlínis á óvart.
BÍÓMYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
Ógnarfljótið (River Wildjkk'A
Hjónakornin Gail (Meryl Stre-
ep) og Tom (David Strathairn)
skella sér ásamt ungum syni í
sumarfrí á gúmbát niður straum-
þungt fljót. Er
Gail vön slíkum
ferðum. Allt
gengur að ósk-
um uns þau
hitta fyrir þrjá
aðra menn í
sömu erinda-
gjörðum.
Skömmu síðar
sigla þau fram á
tvo þeirra (Ke-
vin Bacon, John C. Reilly). Þeir
segjast vera í vandræðum þar sem
leiðsögumaðurinn sé stunginn af
og biðja um samflot með fjölskyld-
unni niður elfuna og gengur það
eftir. Hefðu þau betur látið það
ógert.
Minnir á Deliverance, en kemst
ekki með stefnið þar sem sú af-
bragðsmynd hafði skutinn. Ferðin
niður fljótið með öllum sínum foss-
um og flúðum er engu að síður
listilega kvikmynduð og Meryl
Streep gefur karlpeningnum ekk-
ert eftir í hlutverki sem hann hef-
ur eignað sér fram að þessu.
Streep sér að auki sjálf um
áhættuatriðin án þess að blikna.
Myndin er hörku skemmtun, eink-
um á fljótinu, og þorpararnir eru
í góðum og hæfum höndum Kevins
Bacon og Johns C. Reilly. 105
mín. Aldurstakmark 16 ára.
ÞÓRARINN Eldjám
Hraðferð
á Þjóðbraut
Á MORGUN, 1. september,
hefst formlega vetrardagskrá
Bylgjunnar. Ein nýjung sem þá
verður bryddað upp á er sið-
degisþáttur sem ber heitið
Þjóðbrautin. Umsjónarmenn
þáttarins eru þeir Skúli Helga-
son og Snorri Már Skúlason
sem starfa nú saman að nýju í
útvarpi eftir átta ára hlé, en
þeir vora í hópi fyrstu starfs-
manna Rásar 2 þegar hún hóf
göngu sína og eiga að baki víð-
tæka reynslu við þáttagerð og
fréttamennsku af ýmsum toga.
í Þjóðbrautinni verður lögð
Lögð áhersla
á að hafa náið
samband við
hlustendur
áhersla á „ögrandi þjóðmála-
umræðu og gagnrýna umræðu
um kvikmyndir, tónlist, bók-
menntir og leiklist, auk þess
sem ítarlegar fréttarskýringar
í samstarfí við fréttastofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar munu
gegna veigamiklu hlutverki,"
að sögn þeirra Skúla og Snorra.
Pistlar um
þjóðlífið
Jafnframt þvi munu pistla-
höfundar kveða sér hljóðs og
er þegar búið að ráða Hallgrím
Helgason myndlistarmann og
grínista, sem mun flytja pistla
frá New York i Bandaríkjun-
um, bersöglisskáldið Sigur-
laugu Jónsdóttur eða Diddu,
og Þórarinn Ekljára rithöfund.
Þetta þríeyki mun velta fyrir
sér lifínu og tilverunni og ís-
lensku þjóðfélagi eins og það
kemur þeim fyrir sjónir.
„Á Þjóðbrautinni verður lögð
áhersla á að hafa náið samband
við hlustendur og að þeir fái
að koma sínum sjónarmiðum
að í umræðunni,“ segja þeir
félagar og lofa jafnframt mik-
illi breidd í tónÚstarflutningi í
þætti sínum.
UTVARP
RÁS I
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir.
6.50 Bæn: Sigrún Óskarsdóttir
flytur. Snemma á laugardags-
morgni Þulur velur og kynnir
tónlist.
8.07 Snemma á laugardags-
morgni heldur áfram.
9.03 Ut um græna grundu. Þátt-
ur um náttúruna, umhverfið og
ferðamál. Umsjón: Steinunn
Harðardóttir.
10.03 Veðurfregnir.
10.15 „Já, einmitt". Óskalög og
æskuminningar. Umsjón: Anna
Pálina Árnadóttir. (Endurflutt
nk. föstudag kl. 19.40.)
11.00 í vikulokin. Umsjón: Logi
Bergmann Eiðsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og dag-
skrá laugardagsins.
12.45 Veðurfregnir og auglýsingar
14.00 Stef. Umsjón: Bergþóra
Jónsdóttir.
14.30 Innan seilingar. Útvarps-
menn skreppa í laugardagsbíltúr
í Kópavog. Umsjón: Halldóra
Friðjónsdóttir.
16.05 Sagnaskemmtan. Fjallað
um sögu og einkenni munnlegs
sagnaflutnings og fluttar sögur
með íslenskum sagnaþulum.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jóns-
dóttir.
16.36 Ný tónlistarhljóðrit Rtkisút-
varpsins. Martial Nardeau leikur
með Sinfóníuhljómsveit Islands
undir stjórn Arnar Óskarssonar
flautukonsertinn Liongate eftir
Þorkel Sigurbjörnsson. Sinfón-
íuhljómsveit íslands leikur undir
stjórn Takuo Yuasa Haflög eftir
Þorkel Sigurbjörnsson. Umsjón:
Dr. Guðmundur Emilsson.
17.10 Upphitun fyrir RúRek 1995.
í þættinum verða kynnt helstu
atriði RúRek djasshátíðarinnar
sem sett verður í fimmta skipti
sunnudaginn 3. september. Með-
al gesta eru Andrew D’Angelo,
Bent Jædig, Blackman & Alwa-
yz in Axion, Frits Landesberger,
Jan Garbarek og Hilliard söng-
hópurinn, Jesper Thilo, Philip
Catherine, Richard Boone og
Wallace Roney. Umsjón: Vern-
harður Linnet.
18.00 Heimur harmóníkunnar.
Umsjón: Reynir Jónasson.
18.48 Dánarfregnir og auglýsingar
19.30 Auglýsingar og veðurfregnir
19.40 Óperuspjall. Rætt við feðg-
ana Sigurð Orlygsson listmálara
og Arnljót Sigurðarson um óper-
una I.a Traviata eftir Giuseppe
Verdi og leikin eru atriði úr
verkinu. Umsjón: Ingveldur G.
Óiafsdóttir.
21.05 „Gatan mín“ - Stýrimanna-
stígur í Reykjavík. Jökull Jak-
obsson gengur stíginn með Hall-
dóri Dungal. (Áður á dagskrá í
maí 1971.)
22.10 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins: Hrafn Harðarson flytur.
22.30 Langt yfir skammt. Gluggað
í gamlar bækur og annað góss.
Umsjón: Jón Hallur Stefánsson.
23.00 Dustað af dansskónum.
0.10 Um lágnættið. Verk eftir
Franz Schubert.
— Kvintett í A-dúr, Silungakvint-
ettinn, fyrir píanó, fiðlu, lág-
fiðlu, selló og kontrabassa. Svit-
oslav Richter og Georg Hörtnag-
el leika með Borodin-strengja-
kvartettnum.
— Sönglög. Anthony Rolfe John-
son syngur, Graham Johnson
leikur með á píanó.
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns Veðurspá. Frétt-
ir 6 RÁS 1 og RÁS 2 kl. 7, 8, 9, 10,
12.20, 16, 19, 22 og 24.
RÁS 2 FM 90,1/99,9
8.07 Morguntónar tyrir yngstu
börnin. 9.03 Með bros á vör, i för.
Umsjón: Hrafnhildur Halldórsdótt-
ir. 13.00 Á mörkunum. Hjörtur
Howser. 14.00 íþróttarásin. 16.05
Létt músik á síðdegi. Ásgeir Tóm-
asson. 17.00 Með grátt í vöngum.
Umsjón: Gestur Einar Jónasson.
19.30 Veðurfréttir. 19.40 Vin-
sældalisti götunnar. Umsjón: Ólaf-
ur PáU Gunnarsson. 20.30 Á hljóm-
leikum. 22.10 Veðurfregnir. 22.15
Næturvakt Rásar 2. Umsjón: Guðni
Már Henningsson. 0.10 Næturút-
varp á samtengdum rásum til
morguns. Veðurspá kl. 1.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.05 Næturvakt Rásar 2. 2.00
Fréttir. 2.05 Rokk. 3.00 Næturtón-
ar. 4.30 Veðurfréttir. 4.40 Nætur-
tónar. 5.00 Fréttir. 5.05 Stund með
Jo Cocker. 6.00 Fréttir, veður færð
og flugsamgöngur. 6.03 Ég man
þá tíð. Hermann Ragnar Stefáns-
son. (Veðurfregnir kl. 6.45 og
7.30). Morguntónar.
ADALSTÖDIN 90,9 / 103,2
9.00 Sigvaldi Búi. 13.00 Halli
Gfsla. 16.00 Gylfi Þór. 19.00
Magnús Þórsson. 21.00 Næturvakt
Aðalstöðvarinnar.
BYLGJAN FM 98,9
9.00 Morgunútvarp. Eiríkur Jóns-
son. 12.10 Erla Friðgeirs og Hail-
dór Bachman. 16.00 íslenski list-
inn. 19.00 Gullmolar. 20.00 Laug-
ardagskvöld. 3.00 Næturhrafninn
flýgur.
FriHir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BYLGJAN, ÍSAFIRÐI FM97.9
9.00 Samtengt Bylgjunni FM 98,9.
20.00 Tveir tæpir. Víðir Arnarson
og Rúnar Rafnsson. 23.00 Gunnar
Atli með næturvakt. Síminn í hljóð-
stofu 93-5211. 2.00 Samtengt
Bylgjunni FM 98.9.
. BROSIÐ FM 96,7
3.00 Ókynntir tónar. 13.00-17.00
Léttur laugardagur. 20.00 Upphit-
un á laugardagskvöldi. 23.00 Næt-
urvaktin.
FM 957 FM 95,7
10.00 Sportpakkinn. Hafþór Svein-
jónsson og Jóhann Jóhannsson.
13.00 Björn Þór, Ragnar Már,
Axel og Valgeir. 16.00 Helga Sig-
rún. 19.00 Björn Markús. 21.00
Mixið. 23.00 Pétur R. Guðnason.
KLASSÍKfm 106,8
10.00 Tónlist og spjall. Hinrik Ól-
afsson. 12.00 Blönduð tónlist.
16.00 Óperukynning. Randver Þor-
láksson, Hinrik Olafsson. 18.30
Blönduð tónlist.
LINDIN FM 102,9
8.00 Morguntónar. 11.00 Á laugar-
dagsmorgni. 13.00 Ókynnt tónlist.
16.00 íslenski kristilegi listinn
(endurfluttur). 18.00 Ókynnt tón-
list. 20.00 Laugardags vaktin.
23.00 Nætun'aktin.
SÍGILT-FM FM 94,3
8.00 Ljúfir tónar. 12.00 Kvik-
myndatónlist. 13.00 Á léttum nót-
um. 17.00 Sígildir tóhar. 19.00 Við
kvöldverðarborðið. 21.00 Á danss-
kónum. 24.00 Næturtónar.
TOP-BYLGJAN FM 100,9
7.00 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM
98,9. 10.00 Svæðisútvarp TOP-
Bylgjan. 11.00 Samtengt Bylgj-
unni FM 98,9.
X-IB FM 97,7
10.00 Orvar Geir og Þórður Örn.
12.00 Með sítt að aftan. 14.00
X-Dómínóslistinn. 17.00Þossi.
19.00 Party Zone. 22.00 Nætur-
vakt.3.00 Næturda^Skrá.