Morgunblaðið - 02.09.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LAND S M A N N A
1995
■ LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER
BLAÐ
FRJALSIÞROTTIR
Ein þriggja gulldrottninga
GWEN Torrence fagnaði sfgri í 200 m hlaupi á gullmótlnu í Berlín I gær og fékk að launum 5 kíló af gulli, að
verðmæti tæpar fjórar milljónir króna. Aðalkeppnlnautur hennar Merlene Ottey heltist úr lestinn! í mlðju hlaupl.
Norðmenn
lagðir að velli
ÞORBJÖRN Jensson, landsliðsþjálfari í hand-
knattíeik, stjómaði landsliðinu til sigurs í sínum
fyrsta leik sem þjálfari — þegar liðið lagði Nor-
eg að velli, 27:23, ífjögurra landa móti í Austur-
ríki í gærkvöldi. „Ég er alltaf ánægður með sig-
ur. Það var byijunarbragur á Ieik okkar í byij-
un, enda langt síðan strákarair hafa verið sam-
an. Við náðum mest sex marka forskoti [23:17]
gegn Norðmönnum.
Áhersla lögð
á vamarleikinn
ÞORBJÖRN sagði að hann hafi lagt aðal áhersi-
una á vamarleik liðsins. „ Vörnin er lykillinn að
góðu gengi. Ég gerði breytingar á varaarleikn-
um — við lékum ekki sex-núll-vöra, heldur fórum
grimmt út og lékxun bæði finun-einn og þrír-
tveir-einn vðra.“
Júlíus komst ekki
JÚLÍUS Jónasson fékk ekki leyfi þjá Gumm-
ersbach til að leika í mótinu. „Það er slæmt að
geta ekki teflt fram Júlíusi og Geir Sveinssyni,
en ungu strákarnir fá að spreyta sig. Róbert
Sigh vatsson stóð sig vei á Ununni — fiskaði þijú
vítaköst og skoraði eitt raark. Þetta mót, sem
Norðmenn, Austurríkismenn og ítaiir taka þátt
i, er tilvalið tækifæri til að vera með landsliðs-
hópinn saman — fyrir Evrópuieikinn gegn Rúm-
eníu 27. september i Bútapest,*' sagði Þorbjörn.
Patrekur skoraði
níu mörk
PATREKUR Jóhannesson skoraði fiest mörk
gegn Norðmönnum, eða niu. Aðrir sem skoruðu
voru Ólafur Stefánsson 6, Páll Þórólfsson 3,
Valdimar Grímsson 3, Dagur Sigurðsson 2, Jason
Ólafsson 2, Jón Kristjánsson 1, Róbert Sighvats-
son 1. Leó Örn Þorleifsson og Ingi Rafn Jónsson
léku sinn fyrsta landsleik, aðrir sem léku voru
Einar Gunnar Sigurðsson, Guðmimdur Hrafn-
kelsson og Bergsveinn Bergsveinsson.
Johnson og Sulli-
van í annað sinn
í gullpottinum
MICHAEL Johnson og Sonia O’Sullivan hafa
áður krækt sér í gullpottinn. Það var árið 1993
og þá voru þau í hópi fimm iþróttamanna sem
skiptu tuttugu eins kilóa gullstöngum á milli sín
fyrir að sigra í sínum greinum á ölium fjórum
gillmótunum. Á sl. ári skiptu Mike Powell lang-
stökkvari frá Bandaríkjunum og Colin Jackson
grindahlauparí á milli sín pottinum.
i
i
Fjögur skiptu gullpottinum
Christie missti af gullstöngunum á sjónarmun í 100 hlaupi og Bubka varð annar í stangarstökki
au voru fjögur sem skiptu með
sér gullpottinum að loknu
fjórða og síðasta gullmóti Alþjóða
frjálsíþróttasambansins í Berlín í
gær. Michael Johnson sigraði ör-
ugglega í 400 m hlaupi þrátt fyrir
að vera nokkuð frá sínum besta,
hljóp á 44,56 sek. Sonia O’Sullivan
átti glæsilegan lokasprett í 5000 m
hlaupi og stakk heimsmethafann,
Fernöndu Ribeiro, af á síðustu 100
metrunum og tryggði sér hlutdeild
í pottinum góða. Þá sigraði Gwen
Torrence auðveldlega í 200 m
hlaupi kvenna og Natalya Shiko-
lenko var sú fjórða til að „falla" í
gullpottin þegar hún kastaði lengst
kvenna í spjótkasti, 67,72 m.
Fimmti íþróttamaðurinn sem átti
möguleika fyrir mótið að fá hlut-
deild í pottinum, Linford Christie,
varð að bíta í það súra epli að verða
annar í sinni grein, 100 m hlaupi,
sjónarmun á eftir Kanadamnninum
Donovan Bailey sem hirti af honum
heimsmeistaratitilinn á vegalengd-
innilyrir réttum mánuði.
„Ég er alltaf sterkur á síðustu
20 m og var það einnig að þessu
sinni, það er allt sem ég get sagt
sagði,“ sagði Christie eftir að það
varð ljóst að hann hafði lennt í
öðru sætinu og misst af gullstöng-
um að verðmæti rúmlega 3 milljón-
ir króna, miðað við að pottinum
hefði verið skipt í fimm hluta.
Þýska hlaupakonan Grit Breuer
keppti í fyrsta skipti á mótinu etir
að hafa tekið út þriggja ára keppn-
isbann vegna lyfjamisnotkunar.
Hún varð önnur á 51,68 sek. í 400
m hlaupi, en Cathy Freemans sigr-
aði á 50,98 sek. Breuer fékk mik-
irin stuðning frá áhorfendum á
Ólympíuleikvanginum í Berlin og
var glöð í bragði þegar hún kom í
markið. „Ég vildi bara komast í
gegnum þetta hlaup slysalaust og
það tókst mér. Ég á meira inni en
ég sýndi að þessu sinni,“ sagði hún.
„Það væri ekki rétt hjá mér að
segja að hlaupið hafi verið það
besta hjá mér í sumar, en vissulega
það sem hefur veitt mér mesta
ánægju," sagði Sonia O’Sullivan
hafði komið fyrst í mark í 5000 m
hlaupi og krækt sér í hlutdeild í
gullpottinum.
„Ég kom mjög einbeitt til hlaups-
ins, ekki vegna gullsins sem var í
boði heldur vegna þess að ég ætl-
aði mér að hlaupa vel og sigra
Ottey,“ sagði Gwen Torrence, að
loknum sigrinum í 200 m hlaupi
kvenna. Hún kom lang fyrst í mark
á 21,98 sek. og Irina Privalova
varð önnur á 22,59 sek. Merlene
Ottey varð hins vegar að hætta
keppni eftir tæpa hundrað metra
vegna meiðsla.
Þau stórtíðindi gerðust annars á
mótinu að Úkraínumaðurinn Segei
Bubka varð að gera sér annað
sætið að góðu í stangarstökks-
keppninni, stökk aðeins 5,90 m.
Það var S-Afríkumaðurinn Okkert
Brits sem fór með sigur úr býtum,
stökk 5,95 m og kóronaði sigurinn
með því að reyna við nýtt heims-
met, en tókst ekki. En eflaust var
þetta alveg ný reynsla fyrir Bubka
að sjá andstæðing sinn reyna að
slá heimsmet sitt, en Bubka hefur
verið einráður í þessari grein síðan
1984.
KNATTSPYRNA: VERÐA STRÁKARNIR í LACORUNA STÓRIR? / D4