Morgunblaðið - 05.09.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
HESTAR
ÞRIÐJUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995 B 7
Sigurinn flaug
með skeifunni
Dramatík í lokin á Kjóavöllum
Keppni B-flokksgæðinga á meta-
mótinu á Kjóavöllum var held-
ur dramatísk í lokin er Spuni frá
Syðra-Skörðugiii,
Valdimar hestur Guðmars Þórs
Krístinsson Péturssonar, missti
skrlfar undan sér aðra fram-
fótarskeifuna. Voru
þeir á góðri leið'mpð að tryggja sér
sigurinn þegar þetta gerðist og urðu
að hætta keppni. Kom það því í hlut
Kveiks frá Artúnum og Alexanders
Hrafnkelssonar að hampa bikarnum
en Feldur frá Laugarnesi og Erling
Sigurðsson héldu öðru sætinu frá
forkeppninni.
Það vakti reyndar nokkra undrun
hversu langt þeir Feldur og Erling
náðu með jafngallað hægatölt og
raun er á. Að vísu er klárinn með
afbragðs gott brokk og fer vel á því
auk þess sem yfirferðartöltið er
prýðilegt. Klárhestamir vora frekar
stirðir af stað í úrslitunum en liðkuð-
ust heldur þegar á leið og sýndu flest-
ir góða spretti. Athygli vakti til dæm-
is svífandi og hreyfingamikið brokkið
hjá Loga sem Snorri Dal sat og svo
að sjálfsögðu yfírferðin hjá sigurveg-
aranum Kveiki. Goði frá Voðmúla-
stöðum og Sævar Haraldsson voru
dijúgir í úrslitum og unnu sig úr
áttunda sæti í þriðja sætið en miklar
sviptingar urðu á röð þeirra er þátt
tóku í úrslitunum. A yfírferðinni
stökk hesturinn Árni frá Uppsölum,
sem Hulda Gústafsdóttir sat, inn í
hringinn en dómarar létu þau ekki
gjalda þess þar sem orsökin var ung-
ur piltur sem veifaði litskrúðugri
regnhlíf rétt utan við völlinn og brá
þeim brúna við þetta. Segja má því
að mikið hafí verið að gerast í úrslit-
um í B-flokknum.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
VERÐLAUNAHAFAR í B-flokki frá vinstri taliö Alexander og
Kveikur, Erling og Feldur, Sævar og Goöi, Hrafnkeli og Glæs-
ir, Árni og Hulda, Logi og Snorri og Súsanna og Þráður. Á
myndina vantar Guðmar Þór og Spuna sem missti skeifu í
úrslitunum og höfnuðu þeir því í áttunda sæti.
íuémR
Frjálsræði
og nýjungar
í fyrirrúmi
Fijálslega var farið með keppnis-
reglur á metamótinu á Kjóa-
völlum sem haldið var um helgina
og eitt gleggsta dæmið þar um var
að enginn keppenda
Valdimar mætti með reið-
Krístinsson hjálm á höfði eins
skrífar 0g reglur kveða á
um. Að sögn Orra
Snorrasonar, eins af aðstandend-
um, var einn tilgangurinn með
mótinu fyrir utan að reyna við
metin, eins og nafnið ber með sér,
að bregða örlítið frá þessu hefð-
bundna og reyna ýmsar nýjungar.
Hvað hjálmanotkun viðkæmi,
sagði Orri að vissulega hefði
hjálmareglan verið í fullu gildi en
hinsvegar hafi legið fyrir að ekki
yrði tekið á því þótt knapar mættu
ekki til leiks með hjálm á höfði.
Niðurstaðan varð sú, að sögn Orra,
að enginn keppenda hafi mætt með
hjálm og megi líta á þessa niður-
stöðu sem óformleg mótmæli kepp-
enda gegn hjálmaskyldu.
í forkeppni töltkeppninnar voru
tveir keppendur inni á vellinum í
senn og einn dómari dæmdi. Til-
laga um að leyf-a þetta fyrirkomu-
lag kom fram á síðasta ársþingi
H.I.S. en var felld, en að sögn
Orra virtist þetta koma vel út.
Athygli vakti að sumir knapa sem
þátt tóku í gæðingakeppninni voru
með písk en slíkt er óleyfilegt sam-
kvæmt gildandi reglum. Þá var
keppendum leyft að skrá sig inn í
nýjar greinar og var eitthvað um
að hestar tækju bæði þátt í 150
og 250 metra skeiði auk gæðinga-
skeiðs þegar upp var staðið. Sagði
Orri tilganginn með þessu hafa
verið þann að leyfa mönnum að
spila svolítið eftir því hvernig
stemmningu hrossin þeirra voru í
meðan á móti stóð. Gæðingaskeið-
ið var með sama sniði og tíðkast
á skeiðmeistaramótunum í Evrópu
þar sem tíu efstu fara í sérstaka
úrslitakeppni.
Fram kom í máli Orra að það
væri ekki Andvari sem stæði að
mótinu heldur þrír einstaklingar í
félaginu, auk sín væru það þeir
Haukur Eiríksson og Ágúst Haf-
steinsson, hinsvegar hefði Andvari
lánað svæði sitt undir mótið. Taldi
hann allar líkur á að framhald yrði
á þessu mótahaldi og þá líklegt
að það verði með svipuðu sniði og
skeiðmeistaramótin næst þegar
það verður haldið.
Engin met í hættu
ÞRÁTT fyrir fjóra spretti og góða viðleitni tókst ekki að höggva
nærri íslandsmetum f skeiðgreinum kappreiða á Metamótinu á
Kjóavöllum. Vantaði reyndar allnokkuð á að það tækist. Aðeins
vantaði herslumuninn hjá Ósk frá Litladal að henni tækist að slá
metið í 250 metrunum á Lokaspretti í Varmadal helgina áður en nú
var hún í einhverju óstuði en tryggði sér þó sigur á elleftu stundu.
Skeiðaði Ósk aðeins síðasta
sprettinn af fjórum og þá á 22,21
sek. sem er feiknagóður tími. Næst
henni kom Snarfari
Valdimar frá Kjalarlandi sem
Kristinsson Sigurður Marínusson
skrifar sat að þessu sinni í
250 metrunum á
22,92 sek. en Sigurbjörn sat hann
hinsvegar í 150 metrunum og sigr-
aði á 14,08 sek. og svo var Sigurður
á honum í gæðingaskeiði og sigraði
þar. Það hefur því verið í mörgu að
snúast hjá Snarfara þessa helgi.
Fjórir sprettir í 150 metrunum og
250 metrunum og svo þrír sprettir í
gæðingaskeiði. Samtals hefur hann
því skeiðað um tvo kílómetra um
helgina en aðeins einn sprettur fór
forgörðum hjá þessum mikla vekringi
sem er að öllum líkindum einn örugg-
asti kappreiðavekringur sem uppi
hefur verið hér landi. En það er líka
spurning hvað sé hóflegt að leggja
á einn hest á ekki lengri tíma. Snar-
fari virðist fara mjög létt í gegnum
þessa miklu raun og eitt er víst að
ekki eyðir hann mikilli orku í djöfla-
gang á ráslínu.
Mikil gróska virðist í skeiðinu um
þessar mundir og margir ungir knap-
ar sem eru að hasla sér völl eða
hafa gert á síðustu árum. Eru þessir
ungu menn líklegir til að bijóta á
bak aftur einveldi Sigurbjörns Bárð-
arsonar sem verið hefur illsigrandi
síðustu árin, í það minnsta hafa þeir
áhugann til þess arna. Nóg virðist
til af vekringunum, þannig að gera
má ráð fyrir harðnandi keppni á
næsta ári ef hlúð verður að þessari
vandasömu kappreiðagrein sem
skyldi.
sínum besta spretti á HM í Fehral-
torf i Sviss.
■ STYRMIR Snorrason eigandi
Baldurs hafði reyndar lýst því yfir
að klárinn hefði farið sinn síðasta
sprett á opinberu móti og kæmi
ekki oftar fram en greinilega hefur
orðið breyting þar á.
■ EIRÍKUR Guðmundsson
tamningamaður sem starfað hefur
á Stóðhestastöð Ríkisins í Gunn-
arsholti frá 1987 er hættur störfum
og er nú að leita sér að aðstöðu
fyrir tamningastarfsemi á Suður-
landi.
■ VIGNIR Siggeirsson fyrrum
samstarfsmaður Eiriks á stöðinni
hefur keypt 30 hesta hús á Stokks-
eyri og hyggst reka þar hestamið-
stöð.
FOLK
SIGURBJÖRN og Snarfari tryggja sér sigurinn
í 150 metrunum með dyggri aðstoð Hinriks
Bragasonar sem hleypir hesti sínum Koli frá
Stóra-Hofi undir til að tryggja þeim sem best-
an tíma.
EKKI var neinum vafa undirorpið hver var
bestur A-flokks gæðinga á metamótinu. Blær
frá Minniborg sem Páll Bragi Hólmarsson sat
var hinn öruggi sigurvegari og var sigri þeirra
aldrei ógnað.
■ RAGNAR Hinriksson hyggst
fara með Djákna frá Efri-Brú á
skeiðmeistaramótið sem haldið
verður í Vilhelmsborg í Dan-
mörku síðustu helgina í september.
■ DJÁKNI hefur verið í feikna
stuði síðustu dagana eftir frekar
slappt sumar. Sigraði í gæðinga-
skeiði á mótinu í Varmadal á dög-
unum og varð annar í 150 metrun-
um á Kjóavöllum um helgina.
■ BÚIST er við mikilli þátttöku
íslendinga í skeiðmeistaramótinu.
Reiknað er með að íslendingar bú-
settir í Þýskalandi og Svíþjóð
muni fjölmenna auk þeirra sem búa
í Danmörku.
■ RIKKE Jensen heimsmeistari í
250 metra skeiði mun einnig mæta
til leiks með hinn rúmlega tvítuga
Baldur frá Sandhólum sem náði
Skíöaþjálfari óskast
Skíðadeild Hugins á Seyðisfirði
vantar þjálfara.
Upplýsingar gefur Björg
í síma 47-21301 og 47-21260.
Skýrar línur á toppnum
Blær frá Minniborg var hinn ör-
uggi sigurvegari í A-flokki gæð-
inga. A því lék enginn vafi, hann
hafði yfirburði í fími, fegurð og krafti,
bestur í þeim þrem gangtegundum
sem sýndar eru í úrslitum. Sömuleið-
is voru Þokki frá Hreiðarsstaðakoti
og Erling Sigurðsson öruggir með
annað sætið, þannig voru línurnar
afar skýrar á toppnum.
Málið varð öllu flóknara þegar
neðar dró og voru þijú hross, Sandra
frá Stafholtsveggjum sem Auðunn
Kristjánsson sat, Eiríkur rauði sem
Sigurbjörn sat og Prins sem Sigurður
Sigurðarson sat, jöfn í þriðja til
fimmta sæti. Samkvæmt tillögu Sig-
urbjörns sem ekki er mikið fyrir að
láta hlutkesli ráða sínum stað, kepptu
þeir um sætin með einum skeið-
spretti og skyldi sá er fyrstur var
hljótá þriðja sætið. Ekki færði þessi
hugmynd Sigurbirni þriðja sætið þótt
góð væri. Alls tóku tuttugu og fimm
gæðingar þátt í A-flokkskeppninni
og mátti þar sjá margan góðan
sprettinn en gæðingakeppnin fór
fram á beinni braut, þ.e.a.s. for-
keppnin, og virtist það falla í góðan
jarðveg hjá keppendum, en áhorfend-
ur ekki alveg eins sáttir margir hveij-
ir.
Knattspyrnulijálfarar
Knattspymudeild ÍR auglýsir eftir þjálfurum
fyrir næsta keppnistímabif í 2.-7. flokki karla
og 3.-5. flokki kvenna, auk knattspyrnuskóla.
Umsóknir sendist stjórn knattspyrnudeildar ÍR, Skógarseli
12, fyrir 10. september nk. Nánari upplýsingar gefur
Kristinn H. Gunnarsson í síma 587 5452 eða Halldór
Bergmann í síma 557 5013.
Stjórn knattspyrnudeildar ÍR.