Morgunblaðið - 13.09.1995, Síða 8
SÉRBLAÐ UM SiÁVARÚTVEG
MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 1995
VEIÐA SÍLD í BEITU
Morgunblaðið/Eírgir Þðrbjarnarson
• ÞEIR félagar Hallgrimur Guð- til beitu í lsafjarðard[júpi. Síldina og vcrður alltaf meira og meira
mundsson og Stefán Ingólfsson veiða þeir í lagnet og að sögn þeirra um hana. Þeir eru með bátinn Tjald
voru á dögunum að afla sér síldar er óvenjumikið um síld í Djúpinu ÍS 6 og gera út frá Bolungarvík.
Heilnæmt hákarlakrem
^1 EMIL Guðjónsson hefur um
Fyom im liQkQflQh'rBÍ tveggja ára skeið í samstarfi við
Tvldlilil lldRdl ld.iyðl Frigg snyrtivörur framleitt krem
húðsiúkdómum úr hákarlalýsi. Hákarlakremið
“ er græðandi og mýkjandi húð-
krem og hafa rannsóknir leitt í ljós góð áhrif þess á ýmsa húðsjúkdóma.
Einnig hafa hákarlaafurðir verið notaðar í baráttunni við krabbamein.
Emil segist hafa gert tilraunir með
hákarlalýsi sjálfur fyrir um tveimur
árum og fengið til liðs við sig „tilrauna-
dýr“ með bæði þurrexem og útbrot.
Hann hafi þá orðið greinilega var við
mikinn árangur og þess vegna hafi
hann farið með lýsi í Sápugerðina
Frigg og sjái hann þeim nú fyrir hrá-
efni í framleiðsluna sem sé sífellt að
aukast.
Norskir notuðu hákarlalýsi
Emil segist hafa verið að bræða
hákarlalifur um nokkurt skeið. Hann
hafi fyrir nokkru farið að lesa sér til
um lækningamátt hákarlalýsis og kom-
ist að því að norskir hákarlasjómenn
hafi bæði notað lýsið í krem og til inn-
töku. Því hafi síðan verið hætt með
tilkomu lyfjafræðinga og tilbúinna lyfja
en nú sé áhugi á náttúrulegum lyijum
óðum að vakna á ný.
Emil fær hákarlalifur frá bátum á
suðvesturhorninu og bræðir. Hann seg-
ir að það hafi ekki verið vandamál að
verða sér úti um lifur hingað til því
togarar fái nóg af hákarli í veiðarfæri
sín.
Fjöldi dæma um árangur
Már Steinsen, lyfjafræðingur hjá
Sápugerðinni Frigg, bjó til og þróaði
hákarlakremið. Hann segist hafa feng-
ið áhuga á og farið að kynna sér há-
karlalýsi fyrir um tíu árum og því hafi
það verið auðsótt mál fyrir Emil að
ganga ti) samstarfs við hann fyrir
tveimur árum. Hann segir að kremið
hafi aldrei verið auglýst en sala gangi
samt vonum framar. „Við þekkjum
fjölda dæma um að kremið hafi heilsu-
samleg áhrif. Það hefur til dæmis gef-
ið góða raun gegn margs konar húð-
meinum og einnig hefur fólk notað það
gegn liðagigt. Lýsinu fylgja heldur
engar skaðlegar aukaverkanir.
Rannsóknlr víða um heim
Már segist vita til þess að ýmsar
rannsóknir hafi verið gerðar með há-
karlalýsi víða um heim. „Til dæmis
voru gerðar rannsóknir með hákarla-
lýsi í Svíþjóð á árunum eftir 1950. Þá
var verið að leita að einhverju sem
drægi úr geislunarskaða því menn voru
hræddiy við kjarnorkustyrjöld á þessum
árum. í tengslum við þessar rannsókn-
ir kom í ljós að efni í hákarlalýsinu
draga verulega úr tíðni ákveðinna
krabbameinstegunda, meðal annars
legkrabba, og að tíðni og alvara auka-
verkana við geislameðhöndlun á mein-
inu verður mun minni við inntöku á
þessum efnum. Japanir hafa rannsakað
hákarlalýsi með tilliti til áhrifa á
ónæmiskerfið og hafa komist að því að
í lýsinu eru ákveðin efni sem styrkja
ónæmiskerfið og hafa bólgueyðandi
áhrif,“ segir Már.
Krem besta lausnin
Már telur að krem skili þeim efnum,
sem í hákarlalýsinu eru, best inn í lík-
amann og áhrif þess séu mest. „Mark-
miðið var að fá staðbundna verkun og
losna við lykt. Það yrði hætt við að
sá sem bæri á sig hreint hákarlalýsi
yrði fljótt félagslega einangraður þó
að áhrifín yrðu góð. Þá leituðumst við
að auðvelda meðhöndlun sem mest.
Hákarlalýsið er mjög feitt og því þynn-
um við lýsið með vatni og notum í það
náttúruleg ilmefni úr jurtaríkinu. Eftir
að kremið er borið á húðina er öll fita
farin af og smoginn inn í líkamann
innan tíu mínútna og fitusmitun því
engin. Sú litla hákarlalykt sem er af
kreminu eftir áburð er alveg horfin
eftir um það bil hálftíma og eftir situr
aðeins góður ilmur.“
Einnig er í lýsinu A-, D- og E-vítam-
ín en að sögn Más í ólíkum hlutföllum
miðað við til dæmis þorskalýsi. Hann
segir A-vítamínið meðal annars hafa
þau áhrif að ef kremið er borið á húð
víkki háræðar og blóðstreymi aukist
til yfirborðs húðarinnar. Þetta valdi
roða og húðin verði frísklegri og líf-
legri auk þess sem það hafi hrukkeyð-
andi áhrif.
í lýsinu eru einnig efni sem talin
eru hafa dempandi áhrif á ýmis
sjálfsofnæmi, svo sem sóríasis og alls-
kyns exem.
Möguleikar á útflutningi
Hákarlakremið er nú fáanlegt all-
staðar á landinu og segir Már að mark-
aður sé fyrir kremið í Evrópu. Það sé
hinsvegar mikið og flókið mál að fara
í útflutning. Það vanti bæði fé og tíma
til að fá á kremið vísindastimpil. Hann
segir útflutning hinsvegar alveg vera
hugsanlegan. I kreminu séu aðeins
náttúruleg efni og stefnt sé að því að
framleiðslan verði eingöngu innlend.
„Umbúðir eru framleiddar hér heima
og prentað á þær hér. En markaðurinn
er lítill og því verður varan frekar
dýr,“ segir Már.
FÓLK
Stefán S. til
SR-Mjöls hf.
• STEFÁN S. Bjarnason hóf
störf hjá SR-Mjöli hf. í sumar
sem leið.
Hann er
kynntur með
eftirfarandi
hætti í
Fréttabréfi
SR-Mjöls hf.:
Stefán lauk
námi sem
skipatækni-
fræðingur árið 1968 frá Sund-
erland Technical College í
Englandi. Stefán hefur komið
víða við í atvinnulífinu. Hann
hefur meðal annars unnið hjá
FAO, Siglingamálastofnun
ríkisins, Skipasmíðastöð
Njarðvíkur og starfað sjálf-
stætt. Stefán verður með aðset-
ur í Siglufirði og hlutverk
hans hjá fyrirtækinu verður
meðal annars að aðstoða verk-
smiðjustjóra við skipulagningu
viðhalds, tæknilegan undirbún-
ing þess og útvegun efnis.
Einnig mun hann hafa umsjón
með útvegun tilboða og inn-
kaupum á viðhalds- og rekstr-
arvörum. SR-Mjöl er stærsti
framleiðandi fiskimjöls á land-
inu og rekur verksmiðjur í
Siglufirði, á Raufarhöfn, Seyð-
isfirði og Reyðarfirði.
Kirstín til
Fiskifélag-sins
• KIRSTÍN ITygenring,
hagfræðingur, kom í sumar
til starfa hjá
Fiskifélagi
Islands.
Kirstín mun
þar sinna al-
mennum
hagfræði-
störfum auk
umsjónar
með útgáfu
Útvegs og alþjóðlegum sam-
skiptum, svo sem við FAO
og EUROSTAT. Kirstín er
komin af útgerðarmönnum og
fiskverkendum eins og svo
margir Islendingar, en hún
ólst upp við fiskvinnslu í
Hafnarfirði. Hún er við-
skiptafræðingur frá Háskóla
Islands, en þar stundaði hún
einnig nám í hagnýtri íjöl-
miðlun. Þá lauk hún masterg-
prófi í hagfræði frá North
Western University í
Chicago í Bandaríkjunum.
Kirstín hefur meðal annars
starfað fyrir OECD, Hag-
vang, Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og að gerð
orðabókar í hagfræði við Há-
skóla íslands. „Mér lízt mjög
vel á þennan nýja starfsvett-
vang minn. Fiskifélagið er lif-
andi félag í beinum og nánum
tengslum við sjávarútveginn
og það er umhverfi sem ég
kann vel við,“ segir Kirstín.
Stefán S.
Bjarnason
Mannaskipti í
stjórn Hólmadrangs hf.
• Sigurður Gils Björgvins-
son, starfsmaður íslenskra
sjávarafurða, tók við af Þor-
valdi Einarssyni, lögfræðingi
Búnaðarbankans, í stjórn Út-
gerðarfélagsins Hólma-
drangs á Hólmavík á aðal-
fundi fyrirtækisins fyrir
skömmu. Ástæðan fyrir þessari
breytingu á stjórn fyrirtækisins
er að Búnaðarbankinn seldi í
fyrra 30 prósenta hlut sinn í
féiaginu.
Þriggja tíma sigling
gegn um hvalavöðuna
ENGIN grindhvalaveiði hefur
verið við Færeyjar í haust, en
mikillar grindar hefur hins
vegar orðið vart of langt frá
landi, til að hægt sé að reka
hana á land. Skipverjar á
danska bátnum Expo hafa
greint frá því að þeir hafi ver-
ið í þrjá klukkutíma að sigla
gegn um hvalavöðu sunnan
Borðeyjar á leið sinni til Fær-
eyja. Grindin gengur venjulega
upp að eyjunum síðla sumars
og er hún þá að elta smokk-
fisk, en hann er aðalfæða
hennar. Smokkfiskurinn geng-
ur norður eftir Atlantshafi á
þessum árstíma og hefur hans
stunduð orðið vart í miklum
mæli vestur af landinu. Meðal
annars var gerð tilraun til þess
á sínum tíma að veiða smokk-
fisk í troll og gekk það sæmi-
lega.
Sjávarréttapasta með
gráðosti og grænmeti
PASTA er hollur og góður matur. Ekki skemmir það
fyrir þegar Skagamaðurinn Guðmundur Sigurðsson,
rwananH matreiðslumaður á veitingastaðnum
UZOHkm Madonnu við Rauðarárstíg, bætir við
pastað ljúffengu sjávarfangi. Hann segir uppskriftina
fljótlega og einfalda og vænlega til átu ef ná á árangri
í boltanum!
250 g fettuccini eða tagliatelle
150 g rækjur
150 g hörpuskel
150 g skötuselur í bitum
60 g gráðostur
2 stk. grænar paprikur
2 stk. stórar gulrætur
60 g sveppir
i stk. rauðlaukur
V* lítri ijómi
V* Htri mjólk
y* lítri hvítvín
salt, pipai' og fiskikraftur
Pastað er soðið upp úr saltvatni sem er bætt með 1
dl ólífuolíu í u.þ.b. 5 min. Á meðan þetta sýður er græn-
metið sneitt niður og kraumað lítillega á pönnu. Þá er
hvitvíninu, ostinum, rjómanum og mjóikinni bætt á pönn-
una og suða látin koma upp. Fiskurinn er látinn á pönn-
una og látinn sjóða í u.þ.b. 1 min. Kryddað með salti,
pipar og fiskikrafti eftir smekk. Pastað er að lokum
sigtað vel og sett saman við sósuna. Með þessu er borið
fram hvitlauksbrauð.