Morgunblaðið - 14.09.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Alrisi skilar
París. Reuter.
hagnaði á ný
FRANSKI álrisinn Pechiney SA
skilaði aftur hagnaði á fyrri árs-
helmingi, en bendir á að skilyrði
kunni að versna síðari hluta árs.
Nettótekjur námu 658 milljónum
franskra franka fyrri hluta árs
samkvæmt bráðabirgðatölum mið-
að við 782 milljónir franka á sama
tíma í fyrra samkvæmt tölum, sem
voru endurskoðaðar vegna bandarí-
skra bókhaldsreglna.
Jean-Pierre Rodier stjórnarform-
aður sagði á blaðamannafundi að
Pechiney skuldaði enn of mikið,
þótt nokkuð hefði dregið úr skuld-
um fyrri hluta árs. Pechiney er
þriðji mesti áframleiðandi heims
og í ráði er að einkavæða fyrirtæk-
ið.
Nettóskuldir námu 24.5 milljörð-
um franka 30. júní, en eigið fé
fyrirtækisins var 14.6 milljarðar
franka, samanborið við 25.2 millj-
arða franka skuld og 14.9 milljarða
franka eigið fé I árslok 1994.
í kauphöllum hafði yfírleitt verið
búizt við að Pechiney kæmi vel út
fyrri hluta árs vegna hás verðs á
áli, minni skulda og uppsveiflu í
bjórdósaiðnaði.
FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 1995 B 9
, Yfir 70 ferðir í viku til áætlunarstaða beggja vegna Atlantshafsins
Tengiflug um allan heim.
FLUGLEIDIR
-íait
Ffugfrakt gerir heiminn ad heimamarkadi
—
sími 50 50 401
3
Volvo selur
fyrirtæki
eftir áætlun
Kaupmannahöfn.
Nýjasta fyrirtækjasala Volvo-
samsteypunnar á bjórverksmiðjunni
Falcon er í samræmi við söluáætlun
sem fyrirtækið kynnti fyrir ári. I
henni fólst að losa sig við annað
en bílaframleiðsluna og ná inn sem
samsvarar 400 milljörðum íslenskra
króna til að efla hana. Kaupendurn-
ir eru norrænir, sænska fyrirtækið
Spira, dönsku Carlsbergsverksmiðj-
urnar og finnska bjórverksmiðjan
Sinebrychoff. Volvo ber um tvo
milljarða íslenskra króna úr býtum
fyrir söluna.
Nýju norrænu eigendurnir sjá
fram á gott samstarf, sem veiti
þeim betri aðgang að mörkuðum á
Norðurlöndunum. Sænska Spira
mun eiga 40 prósent í Falcon og
hin fyrirtækin tvö hvort um sig
þrjátíu prósent. Um 800 manns
vinna hjá Falcon og veltan er um
tuttugu milljarðar íslenskra króna.
Fjárfestingarfyrirtækið Nordic
Capital átti þrjátíu prósent í Falcon
og selur einnig sinn hlut til norrænu
fyrirtækjanna þriggja. Arsfram-
leiðslan er 170 milljónir litra af bjór
og markaðshlutdeild fyrirtækisins í
Svíþjóð er tuttugu prósent. Auk
þess að framleiða bjór undir eigin
nafni hefur fyrirtækið einnig fram-
leitt undir öðrum nöfnum eins og
Carlsberg, Budweiser og Guinness.
Volvo á enn eftir óseld fyrirtæki
utan kjarnasviðs síns. Það á hlut í
lyfjafyrirtækinu Pharmacia, sem er
að sameinasta bandaríska lyfjafyr-
irtækinu Upjohn. Hlutur Volvo í
nýja fyrirtækinu verður fjórtán pró-
sent, en verður ekki seldur fyrr á
næsta ári. Hlutabréfin í Svenska
tándstickor, eldspýtnaframleiðslu-
fyrirtækinu, hyggst Volvo jafna
meðal hluthafa sinna, en ekki selja.
Rekstur Volvo-samsteypunnar er
stöðugur sem stendur og allt bend-
ir til að fyrirtækið nái þeim mark-
miðum, sem það hefur sett sér.
Hagnaður
Michelin
þrefaldast
París. Reutcr.
MICHELIN, mesti hjólbarðafram-
leiðandi heims, segir að hagnaður
á fyrri árshelmingi hafi rúmlega
þrefaldazt þrátt fyrir aukinn hrá-
efnakostnað.
Nettóhagnaður jókst í 1.434
milljarða franka úr 410 milljónum,
en velta minnkaði nokkuð í 33.11
milljarða franka. Sérfræðingar
höfðu spáð 1.1-1.5 milljarða franka
hagnaði.
Verðhækkanir, söluaukning og
niðurskurður urðu til þess að hagn-
aðurinn jókst að sögn fyrirtækisins.
Það segir að spár um að hagnaður
allt árið 1995 muni tæplega tvöfald-
ast í 2.3 milljarða franka séu nærri
lagi.
Hvað eftir annað hefur Atvinnurekstrartrygging Sjóvá-Almennra
gert fyrirtækjum kleift að hefja eðlilegan rekstur að nýju eftir að
verulegt tjón hefur lamað starfsemi þeirra.
Mörg hundruð fyrirtæki, smá sem stór, njóta nú þeirrar fjölþættu
tryggingaverndar sem felst í Atvinnurekstrartryggingunni en hana
er unnt að laga að þörfum og aðstæðum hvers atvinnurekanda.
Stóra spurningin er hvort fyrirtæki þitt er meðal þeirra.
Ráðgjafar okkar veita nánari upplýsingar um þessa
mikilvægu tryggingu og koma á staðinn sé þess óskað.
SJOVAOflHALMENNAR
Sími 569 2500 • Grænt númer 800 5692
Þú tryggir ekki eftir á!