Morgunblaðið - 22.09.1995, Qupperneq 2
2 B FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
*
SKIPTAR SKOÐANIR UM DÝRATILRAUNIR
Dýrin sem
deyja fyrir vísindin
EGGERT Gunnarsson, umsjónarmaður tilraunadýra á Keldum,
með einn skjólstæðinga sinna
► Rannsóknarstofur
víða um heim nota
fallöxi til aö aflífa til-
raunadýr. Tekið skal
fram að dýrin eru
svæfð óður en þau eru
sett í fallöxina.
Magnús Jóhannsson, prófessor í
læknadeild, hefur um árabil unnið
að skyldum rannsóknum en hann
einbeitir sér að hjartavöðvum og
notar marsvín auk rottanna. Hann
beitir einnig kolsýru við aflífun
dýranna en lætur þeim síðan
blæða út. Alls láta 50-100 rott-
ur og marsvín árlega lífið vegna
SÉRRÆKTAÐAR hárlausar mýs eru notaðar
til að kanna dreifingu lyfja um Iíkamann.
Þ-Viömiöin eru alls staðar
svipuð. Sjónarhorn lækn-
isf ræðinnar er róðandi; að
það sé réttlætanlegt að
fórna dýrum fyrir hagsmuni
mannsins.
Á HVERJU ári eru um 150 milljónir
dýra um allan heim notaðar í tilraun-
ir. Deilur um notkun tilraunadýra
hafa staðið lengi erlendis og stundum
orðið mjög heiftarlegar. í Bretlandi
eru starfandi mjög róttæk dýra-
verndunarsamtök, Animal Liberation
Front, sem lýst hafa á sig ábyrgð á
morðum á vísindamönnum sem hafa
stundað dýratilraunir auk innbrota í
rannsóknarstofur til að frelsa til-
raunadýr.
Heldur hljótt hefur verið um þessi
mál á íslandi. Þó hafa tilraunir á ^
dýrum verið stundaðar hér um all-
langt skeið og ýmsir vísindamenn
beitt þeim við rannsóknir. Stuðnings-
menn dýratilrauna segja þær nauð-
synlegar til að ná árangri í læknavís-
indum. Andstæðingar þeirra segja
að alltaf séu til aðrar leiðir.
Undlr fallöxina
í Hálsaskógi
Sigmundur Guðbjamarson, fyrrver-
andi háskólarektor, hefur notað rott-
ur við tilraunir í rúm 20 ár. Hann
hefur einkum rannsakað áhrif matar-
æðis á starfsemi hjartans. Rottunum
er gefið smjör, lýsi, kornolía og fleiri
tegundir feitmetis. Sigmundur segir
að rannsóknimar valdi dýrunum eng-
um kvölum. „Þegar rottumar eru
komnar á réttan aldur aflífum við
þær með bestu aðferðum sem þekkt-
ar eru. Fyrst eru þær látnar í lokuð
búr og hleypt inn kolsýru sem svæf-
ir þær á skömmum tíma. Síðan eru
þær settar í einfalda en sérhannaða
fallöxi. Þegar rottumar eru dauðar
tökum við úr þeim hjartað til rann-
sókna.“ Sigmundur segir að enn
hafi engin aðferð fundist til að gera
þessar tilraunir án þess að nota dýr.
Tilraunarottumar sem Sigmundur
og samstarfsmenn hans nota eru
geymdar í nýlegu húsnæði sem er
sérstaklega búið í þessum tilgangi
og nefnist það Hálsaskógur. Raka-
stigi og hita er haldið jöfnum og eins
og best hentar rottunum. Húsnæðið
er vel hljóðeinangrað þannig að utan-
aðkomandi truflanir valdi ekki dýr-
unum í Hálsaskógi streitu sem gæti
haft áhrif á tilraunir. Áður en nýja
húsnæðið varð tilbúið voru rottumar
geymdar við heldur verri aðstæður.
Þar voru til dæmis vandræði vegna
þess að ræsisrottur reyndu að koma
sér inn utan frá til að komast að
kvendýrunum í búrunum.
Engar framfarlr
án dýratilrauna
rannsókna hans. „Þetta er lejðinleg-
asti hluti rannsóknanna, að þurfa að
drepa dýr. En ef ekki væru stundað-
ar tilraunir á dýrum yrðu engar
framfarir í læknavísindum, engin ný
lyf kæmu til sögunnar. Ef við erum
ekki tilbúin að fóma dýrum til að
prófa lyf verðum við að prófa þau á
mönnum og það yrði aldrei sam-
þykkt.“
Stefán B. Sigurðsson, prófessor í
lífeðlisfræði, hefur notað líffæri úr
dýrum bæði til kennslu og rann-
sókna. Hann vinnur að rannsóknum
á astma og notar til þess lungu úr
svínum. Við kenrislu í lífeðlisfræði
eru aðallega notaðar rottur. Þær em
annaðhvort aflífaðar með málmkylfu
sem er slegið aftan á hnakkann
þannig að mænan fer í sundur, eða
svæfðar með lyfjum. Nemendum er
aldrei leyft að aflífa dýrin, það gera
aðeins menn með sérþekkingu. „Líf-
færin eru tekin úr dýrunum og nem-
endum sýnt hvemig þau störfuðu.
Einnig er sýnt hvernig lyf geta
haft áhrif á starfsemina."
Lifandi dýr eru notuð þegar
athugaður er blóðþrýstingur við
kennslu í læknadeild. Rottumar
eru svæfðar og síðan gefín lyf sem
hafa áhrif á blóðþrýstinginnn. Fín-
gerðri nál er stungið í æð til að
mæla blóðþrýstinginn, svipað og gert
er við skurðaðgerðir á mönnum.
Dýraverndunarfólk hefur mótmælt
tilraununum og bent á að hægt sé
að nota aðrar aðferðir við kennsluna.
Stefán segir að dregið hafí verið úr
notkun lifandi dýra í þessum tilgangi
og nú séu þau aðeins notuð í lækna-
deild. í hjúkrunarfræði séu til dæmis
notaðar aðrar aðferðir.
Þar sem lömbin þagna
Nær öll tilraunadýr sem notuð eru
hér á landi eru upprunin á Tilrauna-
stöðinni á Keldum. Eggert Gunnars-
son, doktor í dýralækningum, hefur
yfímmsjón með tilraunadýrunum
þar. Á Keldum eru stofnar af rottum,
músum, marsvínum, kanínum, kind-
um og hestum sem notaðir eru við
rannsóknir og til blóðtöku vegna
framleiðslu á bóluefnum og mótefn-
asermi í dýralyf.
Eggert segir að reynt sé að halda
notkun tilraunadýra sem mest í
skefjum. Til þess er beitt þremur
aðferðum, á ensku nefnd 3R; replace-
ment, refine-
ment,
redu-
TILRAUNAROTTUR eru þægileg og meðfæri-
Ieg dýr og bíta sjaldan.
kannað Iöggjöf ýmissa landa í þess-
um efnumi Hann segir að viðmiðin
séu alls staðar svipuð. Sjónarhorn
læknisfræðinnar er ráðandi; að það
sé réttlætanlegt að fórna dýrum fyr-
ir hagsmuni mannsins. Lítil takmörk
eru sett við því hversu mikinn sárs-
auka dýrin megi þola, aðeins að hann
sé hafður eins lítill og hægt er miðað
við aðstæður. Sigfús segist sjálfur
vera þeirrar skoðunar að það sé í
lagi að nota dýr í vísindalegum til-
gangi. „Samkvæmt svonefndum
Helsinkisáttmála er óleyfílegt að
nota lyf á mönnum fyrr en þau hafa
verið reynd á dýrum. Þess vegna
verður engin framþróun í þessum
efnum nema með dýratilraunum. Ég
held að dýrin þjáist ekki meir í til-
raununum en sjúkt fólk gerir.“
Réttlndl manna
og dýra
Ásgeir Brynjar Torfason heimspeki-
nemi hefur í sumar kannað mismun-
andi viðhorf til dýratilrauna. Hann
skiptir þeim í fjóra meginstrauma. I
þeim fyrsta eru þeir sem samþykkja
engar dýratilraunir. Þeir telja allar
lifandi verur jafnréttháar og að eng-
ar þeirra megi nota sem tæki. Með
dýratilraunum er brotið gegn réttind-
um dýranna.
I öðrum hópi eru þeir sem telja
dýratilraunir aðeins réttlætanlegar
ef við erum tilbúin til að gera sömu
hluti við fólk sem hefur sama vits-
munastig og þau, til dæmis á mönn-
um sem orðið hafa fyrir heilaskaða.
Fylgismenn þessarar kenningar telja
rangt að mismuna lífverum eftir teg-
undum og líkja því við kynþáttafor-
dóma.
ction. í fyrsta lagi er reynt
að beita öðrum rannsóknar-
aðferðum en dýratilraunum ef
hægt er. í öðru lagi er reynt
að valda dýrunum sem minnst-
um sársauka. í þriðja lagi eru
allar aðstæður staðlaðar til að
hægt sé að komast af með sem
fæst dýr.
Dýr frá Keldum eru notuð til
rannsókna í Háskólanum og til
kennslu þar og í menntaskólum.
Dýrin eru aldrei notuð nema í
eina tilraun. Séu þau ekki aflífuð
við tilraunina er það gert á Keld-
um og þar eru hræin alltaf
brennd.
Ný dýraverndunarlög
í vor voru sett ný lög um dýra-
vernd meðal annars með ákvæð-
um um tilraunir á dýrum. Þau
eru almennt orðuð og litlar breyt-
ingar hafa orðið frá fyrri lögum
en í framhaldi af lagasetningunni
á að setja nýja reglugerð sem
kveður nánar á um dýratilraun-
ir. Þriggja manna tilraunadýra-
nefnd, skipuð Brynjólfi Sand-
holt yfírdýralækni, Dagmar Völu
Hjörleifsdóttur dýralækni og Jón
Kalmanssyni frá Siðfræðistofnun
Háskólans, tók nýlega til starfa
og á að skila tillögum að nýrri
reglugerð 1. nóvember.
I tengslum við starf nefndarinn-
ar voru tveir nemendur við Há-
skóla íslands styrktir af Nýsköp-
unarsjóði til að kanna
reglugerðir og viðhorf
til dýratilrauna í öðrum
löndum. Sigfús Gissur-
læknanemi hefur