Morgunblaðið - 10.11.1995, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.11.1995, Qupperneq 8
8 B FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FERÐALÖG iTiuiguiiuiauiu/ ujctiiu uiimasuu FERÐAMENN við Geysi. Ein ástæðan fyrir því að umferð er minni en ella utan hefðbundinna ferða- mannaleiða á íslandi er að útlendingar dvelja oft það stutt hér á landi að það gefst ekki tími til annars en að skoðá nokkrar þekktar náttúruperlur á suðvesturhorni landsins. Það þarf fleiri f eröamenn utan hef öbundinna leiöa Hvemig er hægt að auka straum ferðamanna til svæða sem standa utan hefðbundinna ferðamannaleiða á íslandi? Þessari spumingu verður reynt að svara á ráðstefnu um fram- tíð ferðaþjónustu á jaðarsvæðum, sem haldin verður á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit dagana 18. og 19. nóvember nk. Að ráðstefnunni standa Atvinnuþróunarfélag Þin- geyinga og ferðamálafélögin á starfssvæði þess. Guðlaug Gísladóttir, einn for- svarsmanna ráðstefnunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að mark- miðið með ráðstefnunni væri að fá þá aðila sem störfuðu í ferðaþjón- ustu til að taka á sameiginlegum vandamálum og finna raunhæfar leiðir til að efla ferðaþjónustu og auka ferðamannastraum til jaðar- svæðanna. „Jaðarsvæði em í þessu tilfelli skilgreind sem ferðasvæði utan hefðbundinna ferðamannaleiða," sagði Guðlaug. „Vandi ferðaþjón- ustu á þessum svæðum er mikill. Á meðan fjöldi ferðamanna til íslands eykst stöðugt skilar sú aukning sér ekki nema að litlum hluta til jaðar- svæðanna. Ein ástæðan er sú að útlendingar dvelja oft það stutt hér á landi að það gefst ekki tími til annars er að skoða örfáar þekktar náttúmperlur á suðvesturhomi landsins. Önnur ástæða er sú að markaðssetning á sérstöðu svæð- anna hefur verið mjög takmörkuð. Ferðamenn kannast því ekki við staðina og leitast þar af leiðandi ekki við að komast þangað. Þá em samgöngur oft á tíðum mjög tak- markaðar, bæði tengingar við svæð- in og innan þeirra. Aðrir þættir eins og menntun, tungumálakunnátta og gæði þjón- ustu geta einnig haft áhrif á að svæðið er ekki aðlaðandi til heim- sókna.“ MiklAálagá höfuAborgarsvæðinu Guðlaug segir að smærri hags- munaaðilar hafi sjaldnast bolmagn til mikil þróunarstarfs, en með því að ná þessum aðilum saman og vinna marksvisst að lausn þeirra vandamála sem fyrir liggi, sé hægt að efla ferðaþjónustuna. „Það er staðreynd að yfir háannatímann er mikið álag á ferðaþjónustu á höfuð- borgarsvæðinu og þar í kring og til dæmis hefur verið erfitt að fá þar gistingu. Með eflingu ferðaþjónustu á jaðarsvæðum er því verið 'að tryggja hag allrar ferðaþjónustu á íslandi. Þetta hefst þó ekki nema með hjálp stærri hagsmunaaðila, ferðaskrifstofa, flugfélaga og ann- arra. Það er ætlunin að kortleggja hvernig jaðarsvæðin geta orðið eft- irsóttari og seljanlegri." Á ráðstefnunni mun Halldór Blöndal, samgönguráðherra, flytja ávarp og Katrín Eymundsdóttir, bæjarfulltrúi á Húsavík og eigandi gistihússins Kötukot, mun fjalla um vanda ferðaþjónustu á jaðarsvæð- um. Jón Halldór Hannesson sem rekur ferðaþjónustu að Hjarðarbóli, mun Qalla um uppbyggingu smærri rekstrareininga í ferðaþjónustu og framtíðarsýn. Úlfar Antonsson, yf- innaður innanlandsdeildar Úrvals- Útsýnar talar um sjónarhom ferða- skrifstofa og Magnús Oddsson, ferðamálastjóri verður með erindi um lengingu ferðamannatímans. Þá flallar Margrét Jóhannsdóttir, ráðu- nautur Bændasamtakanna í ferða- þjónustu, um það hvort græn ferða- þjónusta sé framtíðarlausn og Smári Sigurðsson, lektor við Háskólann á Akureyri, íjallar um nauðsyn stefnumótunar í ferðaþjónustu. ■ 2323 UM HELGINA Ferðafélag íslands Föstudagskvöldið 10. nóvember verður Tunglvaka Ferðafélagsins og Alisnægtaklúbbsins. Farið verður frá Mörkinni 6 kl. 20.00, en húsið opnar hálftíma áður og boð- ið uppá kaffí og með- læti. Haldið verður á dulmagnaðan stað þar sem uppákoma verður tengd vættatrú. Sunnudaginn 12. nóv- ember kl. 13.00 verður gengið um Kjalamesfjörur. Um er að ræða þægilega göngu með fjöruborðinu sem tekur um tvær og hálfa klukkustund. Á sama tíma er létt gönguferð sem tekur svipaðan tíma inn Blikdal. Það er forvitnilegur dalur með fallegu árgljúfri þar sem Blikdalsá fellur fram. Útlvlst Á sunnudag verður farinn fjórði áfangi raðgöngunnar Forn frægðarsetur. Að þessu sinni verður farið um nágrenni Mosfells í Gríms- nesi. Séra Rúnar Egilsson mun stikla á stóru um sögu stað- arins. Einnig verður Grímsnesið skoðað og gömul alfaraleið gengin frá Mosfelli. Mæting í ferðina er við BSÍ kl. 10.30. ■ Morgunblaðið/Jón Svavarsson íshestar og hestafótbolti ÞAÐ var töluverður fjöldi út- lendinga sem sat að snæðingi í félagsheimili Reiðhallar Kópa- vogs síðastliðið föstudagkvöld. Um var að ræða ráðstefnugesti á vegum Ráðstefna og funda hf., en málsverðurinn á föstu- dagskvöldið var á vegum íshesta hf. sem jafnframt bauð upp á hestasýningu. Hópurinn taldi um tvö hundruð manns; Svía, Norðmenn, Dani, Færeyinga, Englendinga, einn frá Litháen og loks íslendinga sem voru rúmlega áttatíu talsins. Einar Bollason, hjá Ishestum segir að þetta hafi verið fyrsti stóri hópurinn sem fyrirtækið tekur á móti á þennan hátt frá því að þessi nýjung í starfsem- inni hafi verið kynnt á ferða- málaráðstefnu Vestur Norður- landa í september síðastliðn- um.„íslenski hesturinn sýndi þarna listir sínar af alkunnri snilld og síðan var boðið upp á einstaka sjón, nefnilega hesta- fótbolta.“ I SKÓVERSLUN Lækjargötu 6a ■ Slmi 551 4711 HVERNIG VAR FLUGIÐ? Með Boeing 747 til Bahama ÞAÐ ríkti sérstök stemmning í Flug- stöð Leifs Eiríkssonar hinn 12. októ- ber síðastliðinn þegar 487 farþegar voru kallaðir um borð í Boeing 747 100 breiðþotu Atlanta-flugfélagsins. Fæstir höfðu ferðast með slíkri vél áður og biðu menn ferðarinnar með eftirvæntingu. Ég er ekki frá því að aðeins lengra bil sé á milli sæta í Boeing 747 en í öðrum íslenskum millilandavélum. Það skiptir einnig máli, ekki síst fyr- ir hávaxna, að í 747 er hærra til lofts og gangamir eru tveir en ekki einn þannig að mun auðveldara er að ferðast um vélina. Sögulegt flug Áður en lagt var af stað fluttu þeir Helgi Jóhannsson, forstjóri Sam- vinnuferða-Landsýnar, og Amgrím- ur Jóhannsson stutt ávörp. Fram kom að flugið væri sögulegt þar sem það væri fyrsta flug Boeing 747 vél- ar í eigu íslensks flugfélags. Síðan var farið í loftið og flogið til Nassau á Bahamaeyjum án milli- lendingar. Flugið tók rúmlega sjö tíma og því lengra en flestir Islend- ingar eiga að venjast. Áhafnarmeð- limir stóðu sig vel við að stytta far- þegum biðina og meðal annars voru sýndar tvær kvikmyndir og bomar fram tvær máltíðir. Morgunverður var borinn fram stuttu eftir flugtak; þijár tegundir af áleggi ásamt rúnnstykki, smjöri, marmelaði og smurosti. Þetta var látið duga í bili en þegar ferðin var liðlega hálfnuð var framreiddur þrí- réttaður, gómsætur hádegisverður. Rækjukokkteill og brauð í forrétt, innbakaðar lambalundir með sperg- ilkáli, parísarkartöflum og piparsósu í aðalrétt og eftirrétturinn var ostakaka. Maturinn var borinn fram af keflvíska matreiðslumeistaranum Axel Jónssyni, sem klæddist kokka- búningi af þessu tiléfni. Vélln skoðuA hátt og lágt Ég heyrði reyndar suma farþega kvarta yfir því að þjónustan hefði mátt ganga hraðar fyrir sig á köflum en auðvitað má alltaf búast við slíku í fullri vél. Ég sat hjá einu eldhúsinu og það fór því ekki fram hjá mér að þær fímmtán flugfreyjur, sem voru í ferðinni, voru á þönum alian tímann. Auk þess að bera fram tvær máltíðir sáu þær um sölu á. drykkjum og tollftjálsum vamingi svo eitthvað sé nefnt. Það gerði þeim líka erfítt fyrir að margir farþéganna höfðu aldrei ferðast með ,júmbóþotu“ áður og notuðu því tækifærið til.að skoða sig vandlega um og svala eðlilegri, íslenskri forvitni. Þetta ráp létti flug- freyjunum ekki störfín en þær tóku því öllu með jafnaðargeði. Ég var reyndar einn þeirra sem rápuðu, enda í fyrsta sinn um borð í 747. Ég hafði mestan áhuga á að líta upp í „kryppu" eða á aðra hæð- ina. Hafði ég heyrt að í mörgum júmbóþotum væri þar bar að finna, þar sem hægt væri að slaka á og teygja úr sér. Engan fann ég þar barinn en í „kryppunni" var aftur á móti flugstjómarklefi og nokkurra sætaraða farþegarými. Á leiðinni suður á bóginn lenti vélin í töluverðum mótvindi og nokk- urri ókyrrð. Þrátt fyrir það urðu far- þegarnir lítt sem ekkert varir við hristing, hinum flughræddu til hug- arléttis. í heild var ferðin þægileg og varð ég ekki var við óþolinmæði nema hjá stöku reykingamanni, enda hefur reykingabann tekið gildi í öllu íslensku farþegaflugi. Kjartan Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.