Morgunblaðið - 14.11.1995, Síða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Árangur karlalandsliðsins í knattspyrnu
undir stjórn Ásgeirs Elíassonar 1991-95
Mörk
7:6
Fjöldi leikja Unnið Jafnt Tap
Heimsmeistarakeppni 8 3 2 3
Evrópukeppni 10 2 2 6 6:15
Æfingalandsleikir 17 7 4 6 18:18
Samtals 35 12 8 15 31:39
41)9% árangur
45,8% árangur
26,6% árangur
■ DAMON Hill frá Bretlandi
sigraði í ástralska Formula 1 kapp-
akstrinum í Adelaide á sunnudag-
inn. Þetta var 13. sigur hans í Form-
ula 1 kappakstri og sá fjórði á þessu
ári. Michael Schumacher frá
Þýskalandi, sem hafði þegar
tryggt sér heimsmeistaratitilinn,
varð að hætta keppni eftir árekstur.
■ JANSHER Khan frá Pakistan
varð heimsmeistari í skvassi í sjö-
unda sinn er hann sigraði á World
Open mótinu, sem að þessu sinni
fór fram á Kýpur. Hann fékk
verðuga keppni að þessu sinni;
mætti Del Harris frá Bretlandi í
úrslitum og sigraði 15-10 17-14
16-17 15-8.
■ JANSHER, sem kom einmitt
hingað til lands og lék sýningarleiki
strax eftir að hann varð heims-
meistari 1992, sló um helgina met
landa síns, Jahangirs Khan, sem
varð sex sinnum heimsmeistari, en
hann er nú hættur keppni.
■ BASILE Boli, varnarmaður hjá
Mónakó í frönsku deildinni, var
dæmdur í tveggja leikja bann um
helgina fyrir brot sem dómara yfir-
sást en sást greinilega á mynd-
bandi. Þetta er í annað sinn sem
Boli fær bann eftir að atvik hafa
verið skoðuð á myndbandi.
■ DIEGO Maradona sagði um
helgina að hann hefði ekki lengur
kraft til að leika með argentíska
landsliðinu. „Landsliðið þarfnast
nýrra manna. Eg er á niðurleið og
bæti ekki landsliðið en vil aðeins
hugsa um að leika með Boca.“
■ MARADONA, sem er 35 ára, á
90 landsleiki að baki og hefur gert
33 mörk í þeim. Hann hefur áður
verið með ámóta yfirlýsingar en
ekki staðið við þær þegar á hefur
reynt.
■ PAVEL Bure, sóknarmaður
Vaneouver Canucks í NHL-deild-
inni í íshokkí, leikur ekki meira með
á tímabilinu vegna meiðsla.
■ BURE hefur verið markakóngur
Vancouver undanfarin þijú ár.
Hann gerði 60 mörk tímabilið 1992
til 1993 og var búist við miklu af
honum í vetur en brotið var á hon-
um aftan frá fyrir helgi með þeim
afleiðingum að krossbönd í hné
gáfu sig.
■ GERMAN Silva frá Mexíkó
varði titilinn í New York-maraþoni
karla en hann hjóp á tveimur stund-
um og 11 mínútum í keppninni í
fyrradag.
■ TEGLA Loroupe frá Kenýa
varð einnig meistari í kvennaflokki
annað árið í röð en hún hljóp á
2:28.06 stundum.
■ SIG UR VEGARARNIR fengu
20.000 dollara (um 126 þús. kr.) í
verðlaun og bíl að auki. Hlaupið fór
fram í sex stiga hita og hefur ekki
verið svo kalt í 26 ára sögu hlaups-
ins.
■ THOMAS Enqvist frá Svíþjóð
sigraði á Opna Stokkhólmsmótinu
í tennis um helgina og var þetta
fimmti sigur hans á árinu. Hann
vann Frakkann Arnaud Boetsch
í úrslitum 7:5 og 6:4. Hann hlaut
112 þúsund dollara í sigurlaun og
sagði að þetta hafi verið mikilvæg-
asti sigurinn á ferlinum.
■ ENQVIST er fjórði Svíinn til
að verða meistari á þessu móti en
hinir eru Björn Borg, Mats Wil-
ander og Stefan Edberg, sem all-
ir eiga það sameiginlegt að hafa
náð efsta sæti heimslistans á sínum
tíma.
METNAÐUR
að er hátindur flokka-
íþróttamanna að vera val-
inn í landslið, standa í röð undir
þjóðsöng, vera valinn til að halda
merki þjóðarinnar hátt á lofti.
Enginn sem er kallaður til getur
leyft sér það að leggja ekki allan
sinn kraft í það verk
sem hann er valinn
til að vinna — hafa
ekki metnað til að
standa sig sem best.
Það er enginn að
segja að ; lándsliðs-
menn okkar, sem
léku undir merkjum íslands í
Búdapest, hafi ekki ætlað að
gefa allt sitt til að standa sig
sem best gegn Ungveijum, en
það var dapurt að sjá áhugaleys-
ið hjá leikmönnum. Hvers vegna
það vár, á að vera áhyggjuefni
Knattspyrnusambands Islands.
Menn ræddu um hvað leikur-
inn hafi verið þýðingarlítill fyrir
báðar þjóðir. Umgjörðin í kring-
um leikinn í Ungveijalandi var
fyrir neðan allar hellur — áhug-
inn þar í landi var nær enginn,
aðeins rúmlega tvö þúsund
áhorfendur komu til að sjá hann,
en þess má geta að hátt í átján
þúsund áhorfendur mættu til að
sjá leik ungmennaliðanna.
Það er~ildrei hægt að segja
að landsleikur sé þýði ngarlítill —
landsleikur er leikur þar sem
menn leika fyrir hönd íslands
og þeir verða að gefa allt sem
þeir eiga 1 iandsleiki. Leikmenn
sem ekki gera það, eiga ekki
heimtingu á landsliðssæti. Fjöldi
annarra knattspyrnumanna er
tiibúinn í slaginn.
Þýðing leiksins i Búdapest var
mikil — með sigri hefði landslið-
ið náð bestum árangri sem lið
hefur náð á einu ári; leikið sjö
leiki, unnið þijá, gert þijú jafn-
tefli, tapað aðeins einum ieik,
sem er 64% ársárangur. Með
tapinu fyrir rétt þokkalegu ung-
versku liði, er ársárangur liðsins
ágætur, eða 50%
Það að leikmenn voru að
kveðja þjálfara, sem hefur gert
mikið fyrir íslenska knatt-
spymu, kallaði á að leikmenn
hefðu átt að standa sig. Einnig
það að þeir voru að leika fyrir
framan þjálfara, sem hefur
fylgst með liðinu í tveimur síð-
ustu leikjum þess og er nú búinn
að taka við landsliðsþjálfara-
starfinu.
íþróttamenn verða að hafa
metnað til að standa sig, þegar
leikið er fyrir hönd lslands.
Menn eru byijaðir að hafa
áhyg0ur af áhugaleysinu 1
Búdapest. Birkir Kristinsson,
markvörður landsliðsins, sagði
m.a. þetta í viðtaii við Morgun-
blaðið eftir ieikinn: „Það er orð-
ið áhyggjuefni, ef menn leggja
sig ekki alla fram í landsleikjum.
Menn verða að fara að huga að
því á næstunni. Þegar nýr
landsliðsþjálfari tekur við verður
farið að huga að æfingaleikjum
fyrir næsta stórverkefni, sem
er undankeppni heimsmeistara-
keppninnar en ef leikmenn
leggja sig ekki meira fram í
landsleikjum en raun ber vitni,
þá sé ég ekki neinn tilgang í
að fá mikið af æfíngaleikjum.“
Það er rétt hjá Birki — það
er ekki til neins að fá aukin
verkefni fyrir landsliðið, ef menn
eru ekki með metnað til að leika
þá með sæmd.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
Menn verða að hafa
metnað þegar leikið
er fyrir hönd íslands
Hvernig líkar bandarísku körfuboltastúlkunni BETSY HARRIS vistin hérá landi?
Kann mjög vel
við mig héma
ELISABETH Harris, eða Betsy eins og hún er alltaf kölluð,
er ekki nema 23 ára gömul en er engu að síður að spila sem
atvinnumaður í körfuknattleik á íslandi. Betsy leikur með ís-
landsmeisturum Breiðabliks og hefur vakið mikla athygli fyrir
snerpu og frábæra hittni og er af mörgum talin sú besta sem
hingað til lands hefur komið. Hún gerði 44 stig um helgina
gegn Grindvíkingum, en með liði þeirra leikur Penny Peppas,
sem var hjá Blikum i'fyrra.
^Jetsy er fædd í Jacksonville í
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson
Flórída í Bandaríkjunum 2.
apríl 1972 og byijaði snemma í
körfuknattleik og
hefur gengið ágæt-
lega í þeirri íþrótt.
Hún komst meðal
annars í fjögurra
liða úrslit með skóla sínum, Univers-
ity of Alabama, áður en hún gerð-
ist atvinnumaður í íþróttinni. í fyrra
lék hún á Spáni síðari hluta keppnis-
tímabilsins en ákvað að slá til og
koma til íslands þegar henni bauðst
það.
„Ég var að bíða eftir að fá tilboð
frá öðrum löndum en þegar umboðs-
maður minn hafði samband og
spurði hvort ég væri til í að fara
til íslands varð það ofaná, ég gat
ekki beðið lengur eftir tilboðum frá
öðrum löndum."
Vissir þú eitthvað um land og
þjóð?
„Áður en ég kom hafði mér bor-
ist tilboð frá íslandi og ég og um-
boðsmaður minn höfðum aflað okk-
ur upplýsinga um ísland þannig að
maður vissi hvar það var á hnettin-
um, en lítið meira. Vinir mínir
spurðu hvort það væri ekki allt í
lagi með mig. „ísland!" sögðu þeir
og vissu ekkert. Eftir að ég talaði
við „Siggi“ [Sigurð Hjörleifsson
þjálfara 1. deildar liðs Breiðabliks]
vissi ég ýmislegt um land og þjóð.
Annars hafði ég ekki miklar áhyggj-
ur af þessu, heldur vildi ég koma
og gera það sem til var ætlast af
mér.“
Hvemig hefur þér líkað vistin?
„Mjög vel. Mér líður mjög vel hér
og fólk er ótrúlega þægilegt þannig
að ég kann vel við mig héma. Ég
spilaði á Spáni í fyrra og þar leið
mér ekki vel og því er ég ánægð
með að vera héma. Hér er gott að
vera, ég kann vel við stelpumar í
liðinu og ég er ánægð. Það er mjög
mikilvægt ætli maður sér að ná
Morgunblaðið/Kristinn
BETSY Harris hefur leikið mjög vel með Breiðabliki í vetur
og gerði um helglna 44 stlg gegn Grindvíklngum.
árangri í íþrótt sinni.“
En hvers vegna valdir þú
körfuknattleik á sfnum tíma?
„Þegar ég var í bamaskóla fannst
mér gott að geta farið út á körfu-
boltavöll að leika mér með bolta
þegar ég viidi vera ein. Þú ferð
ekki einn í svo margar íþróttir, en
það er hægt í körfubolta. Þetta
hjálpar líka þannig að menn lenda
ekki í einhveiju óæskilegu á meðan
þeir eru í íþróttum."
Hefur þú prófað aðrar íþróttir?
„Já, ég var talsvert í tennis og
fleiru en ég ákvað mjög snemma
að körfuknattleikur væri mín íþrótt,
ég var bara í hinu til að hafa gam-
an af. En það var eiginlega ljóst frá
upphafi að ég færi í körfuna."
Hvaða stöðu spilar þú?
„Venjulega leik ég sem skotbak-
vörður en héma er ég leikstjóm-
andi.“
Færðu þá ekki færri tækifæri til
að skjóta en áður?
„Nei, nei. Sjáðu til, þegar þú ert
leikstjómandi þá ertu miklu meira
með boltann heldur en þegar þú
leikur sem skotbakvörður. Ætli ég
skjóti bara ekki meira héma en ég
gerði sem skotbakvörður!"
Þú ert að þjálfa þijá flokka hjá
Breiðabliki, hvernig kanntu við það?
„Það er alveg frábært. Ég er með
tvo stúlknaflokka og einn stráka-
flokk og karin mjög vel við það.
Strákamir em ekkert erfiðari en
stelpumar og þeir eru indælir."
Getur þú lýst þér sem leikmanni?
„Ég held mér sé óhætt að segja
að ég sé mjög metnaðargjöm og
ég hef mikið keppnisskap. Ætli það
segi ekki allt sem segja þarf.“