Morgunblaðið - 14.11.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.11.1995, Blaðsíða 8
faémt KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA Aðstæður afar lélegar ÞAÐ var hreint ótrúlegt að landsleikur í Evrópu- keppni landsliða hefði farið fram á Vasas-leik- vanginum í Búdapest, þar sem aðstæður voru vægast sagt lélegar. Umgjörðin var lítil, svo og áhugi Ungveija á leiknum, en aftur á móti var umgjörðin í kringum leik ungmennaliðanna glæsileg, þar sem 17.540 áhorfendur mættu, en ekki nema rúmlega tvö þúsund á Vasas-vellin- um. Aðstæður og umgjörð voru niðurdrepandi. Aðstæður fyrir leikmenn til að fara í bað eftir leikinn var daprar — fjórir sturtustútar. Lands- liðsmenn íslands óskuðu eftir því eftir leikinn, að haldið væri beint á hótelið, sem gist var á, þannig að þeir gætu farið í almennilegar sturt- ur. Hópurinn fór á undan Ásgeiri Elíassyni, sem varð eftir til að sitja fyrir svörum á fundi með fréttamönnum. Einar Þór til Waregem EINAR Þór Daníelsson, landsliðsmaður úr KR, kvaddi landsliðsstrákana i Amster- dam á sunnudaginn. Hann hélt til Belgíu, þar sem hann verður í vikutíma hjá 1. deild- arliðinu Waregem. Guðni fékk lánaða skó GUÐNI Bergsson, fyrirliði landsliðsins, varð að leika landsleikinn fykóm sem hann fékklánaða hjá ungmennalið- inu. Ástæðan fyrir því var að taska Guðna kom ekki í tæka tíð frá London, þar sem hún var eftir af því að miðinn sem sagði hvert taskan ætti að fara, rifnaði af. Guðni gleymdi vegabréfinu ÞEGAR tuttugu mín. voru í landsleik Ungverjalands og íslands, kom upp smávægilegt vandamál - dómarar leiksins vildu fá vegabréf leikmanna. Guðni Bergsson hafði gleymt vegabréfi sínu á hótelinu, þannig að dómarinn sagði að hann gæti ekki hafið leikinn fyrr en vegabréfið væri komið á staðinn. Snorri Finnlaugs- son, framkvæmdastjóri KSÍ, fór í málið og ræddi við eftir- Utsmann leiksins, sem sagði að menn þyrftu ekki að fram- vísa vegabréfi fyrir leiki með a-landsliði, eins og þarf að gera í yngri liðunum, tíl að hægt sé að sjá aldur leik- manna. Eggert til Kosice EGGERT Magnússon, for- maður KSÍ, fór frá Búdapest til Kosice í Slóvakíu, þar sem hann verður eftirlitsmaður á landsleik Slóvakíu og Króatíu i Evrópukeppni landsliða á morgun. Eggert fór frá Búda- pest til Vínar, þar sem Ivan Sochor, fyrrum þjálfari KR, tók á móti honum og ók Egg- erti til Kosice. jggHHSSHIflBlsMSHæil Reuler GUÐNI Bergsson, fyrirlIAi landsliðsins, í varnarhlutverki gegn Istven Vincze. Lrtil skemmtun ÞAÐ VAR ekki rishár leikur sem landsliðið í knattspyrnu sýndi á Vasas-leikvellinum í Búdapest, þar sem það mátti þola tap gegn Ungverjum, 0:1. Leikmenn liðsins, sem ætluðu sérað kveðja Ásgeir Elíasson á skemmtilegan hátt, sýndu lítið sem hægt var að skemmta sér yfir — leikurinn snerist upp í það að verða einn leiðinlegasti og lélegasti landsleikur í knattspyrnusögu íslands. Það vantaði alla grimmd í leik > íslenska liðsins, leikmenn virt- ust áhugalausir og þeir áttu erfítt með að halda knetti, eðá leika honum skammlaust á milli sín — spymtu hon- um yfirleitt til mót- heija. Ungveijar kunnu vel að meta þetta, en þeir náðu ekki að koma höggi á íslendinga fyrr en á 55. mín., er fyrirliðinn Béla Illés skor- Sigmundur Ó. Steinarsspn skrífar aði eftir mistök í vörn. Hann var á auðum sjó fyrir framan markið — og náði að senda knöttinn framhjá Birki Kristinssyni. „Vörnin við nær- stöngina brást þarna. Ég var ekki. langt frá því að veija skotið, en því miður tókst það ekki,“ sagði Birkir. íslendingar fengu tvö góð tæki- færi til að skora í leiknum — í fyrri hálfleik átti Arnór Guðjohnsen skot, sem rétt fór framhjá stöng. Seinna færið kom í seinni hálfleik, þegar Guðni Bergsson átti skalla að marki, knötturinn hafnaði á stöng. Amar Grétarsson tók aukaspymu úti á vinstri kanti, sendi knöttinn inn í vítateig Ungveija. Eyjólfur Sverrisson stökk upp og skallaði að marki, en Guðni bætti við — skallaði knöttinn áfram, heppnin var ekki með honum. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um leikinn. Bestu leikmenn liðsins vom Birkir Kristinsson, sem varði eitt sinn meistaralega — náði að spyrna knettinum á marklínu á síðustu stundu, knötturinn skrúfað- ist upp og fór aftur fyrir endamörk, Guðni Bergsson, Kristján Jónsson og Ólafur Adolfsson. Náðum ekki að kveðja Ás- geir á við- eigandi hátt Þetta var lengt frá því að vera góður leikur og við emm vonsviknir með leikinn og útkom- una. Við náðum ekki að kveðja Ásgeir á viðeigandi hátt. Ungveij- ar em ekki með neitt sérstakt lið — á venjulegum degi eigum við að ná einu stigi gegn svona and- stæðingum. Eins og ég segi, ef Ungveijar voru ekki sérstakir, vorum við ennþá síðri, því miður,“ sagði Guðni Bergsson, fyrirliði landsliðsins. , „Náðum okkur ekki á strik“ „Við náðum okkur aldrei á strik og mér fannst liggja í loftinu að við myndum fá á okkur mark. Við létum þá leika of mikið eins og við ætluðum ekki að láta þá leika — Ungveijar leika mikið upp hægri kantinn, en við ætluðum frekar að fá þá upp vinstri kant- inn. Ungveijum gekk of vel að leika upp hægri kantinn. Þó að það sé kannski ekki aðalatriðið, við náðum aldrei að halda knettin- um í fyrri hálfleik, þegar við áttum möguleika á hröðum upphlaupum — við náðum aldrei að nýta okkur það, töpuðum knettinum mikið miðsvæðis, þar sem sendingar voru ekki nægilega góðar. Það er vandamál sem við höfum alltaf haft og verðum að lifa við. Mér fannst við eiga aldrei möguleika, en Ungveijar voru þó ekki að skapa sér mörg góð færi í leikn- um, þannig að við náðum að halda þeim þolanlega í skeijum, en það var ekki nóg — við fengum á okk- ur mark,“ sagði Ásgeir. „Varð fyrir vonbrigðum“ „Ég varð fyrir vonbrigðum, þar sem ég átti von á því að leikmenn- irnir myndu taka hressilega á Ungveijum í kveðjuleik Ásgeirs. Mér hefði fundist við hæfi að leik- menn mundu taka þannig á leikn- um að þeir væru að kveðja hann með sóma, því að hann átti það svo sannarlega skilið. Leikurinn var vonbrigði, því að mér fannst ungverska liðið ekkert sérstakt — það var lélegra en það ungverska lið sem við unnum á Laugardals- vellinum í júní,“ sagði Eggert Magnússon, formaður Knatt- spyrnusambands íslands. Vantaði baráttu og metnað Eg er aldrei ánægður með að tapa. Það vantaði alla baráttu og metnað — liðsheildin var ekki að sýna baráttu og vilja til að leggja Ungveija að velli. Ég hafði það á tilfinningunni að leikmenn væru að klára leikinn af skyldurækni," sagði Birkir Kristinsson, markvörður. „Það er orðið áhyggjuefni, ef menn leggja sig ekki alla fram í landsleikj- um. Menn verða að fara að huga að því á næstunni. Þegar nýr landsliðs- þjálfari tekur við verður farið að huga að æfingaleikjum fyrir næsta stórverkefni, sem er undankeppni heimsmeistarakeppninnar en ef leik- menn leggja sig ekki meira fram í landsleikjum en raun ber vitni, þá sé ég ekki neinn tilgang í að fá mik- ið af æfíngaleikjum,“ sagði Birkir. „Ég legg mig ávallt hundrað og tíu prósent fram, þegar ég leik með landsliði. Það er fylgst vel með liðinu heima og leiknum var sjónvarpað beint til Islands. í leiknum í Búda- pest bættust tveir þættir við, sem mér fannst að hefðu átt að fá menn til að leggja sig ennþá meira fram — það var verið að kveðja Ásgeir Elías- son og nýr þjálfari, Logi Ólafsson, er að taka við, en hann var á leikn- um. Menn áttu að mæta ákveðnir til leiks og leika til sigurs fyrir Ásgeir og sýna honum þá virðingu sem hann á skilið eftir fjögur góð ár — og einn- ig að standa sig fyrir nýjum þjálf- ara. Menn vilja væntanlega halda áfram að leika með landsliðinu. Logi hefur fylgst með undirbúningi liðsins fyrir tvo síðustu leiki — gegn Tyrkj- um heima og Ungveijum í Búda- pest. Ég hélt að það myndi virka hvetjandi fyrir leikmenn og þeir myndu leggja sig meira fram til að sýna að þeir væru tilbúnir til að vera í hópnum áfram. Ég gat ekki séð það í leiknum gegn Ungveijum. Ef menn hafa farið til leiks með því hugarfari að leikurinn skipti engu máli, er það ekki rétt hugarfar. Allir leikur skipta máli og leikurinn gegn Ungveijum skipti máli fyrir okkur — hvar við lentum í riðlinum. Ég sé ekki annað en það verði fyrsta hlut- verk Loga að huga að þessu máli — að menn sýni metnað og vilja til að leika af hundrað prósent styrk fyrir hönd íslands,“ sagði Birkir, sem var ekki ánægður með Vasas-leikvöllinn, sem leikurinn fór fram á í Búdapest. „Völlurinn var mjög lélegur, það var búið að bæta sandi í eyður sem voru á vellinum. Þá voru vítateigarnir slæmir — meira um mold en gras. Mörkin voru gömlu, góðu ferkönt- uðu trémörkin. Ég hélt að það væri ekki leyfilegt að vera með þannig mörk. Maður fer að spá í hvert skallaboltinn frá Guðna hefði farið, ef marksúlurnar hefðu verið rúnnað- ar — hefði ekki knötturinn farið í stöngina og inn? Maður er kominn aftur í fornöld, þegar leikið er með svona mörkum. Eg hélt að það væru ákveðnar reglur hjá alþjóða knatt- spyrnusambandinu, um mörk — hvernig stangir og þverslár eiga að vera. Þessi leikvangur er ekki boð- legur fyrir landsleik í Evrópu- keppni." ENGLAND: 1 1 1 X 1 2 X 2 X X ITALIA: 121 1 X X 1X2 1X11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.