Morgunblaðið - 14.11.1995, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR14. NÓVEMBER 1995 C 3
ÍÞRÓTTIR
SKYLMINGAR
SÖLVI Tryggvason (t.v), sem er aðeíns 16 ára gamall, slgraði
Ingólf Björgvlnsson (t.h.) í úrslitum f Kendo.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SKIÐI / HEIMSBIKARINN
Svisslending
ar byrja vel
Áttu fjóra af fimm efstu á fyrsta
heimsbikarmótinu í Frakkiandi
GOLF
KNATTSPYRNA
Ravanelli
þakkaði
traustið
Fabrizio Ravanelli, miðheiji Juv-
entus, fékk að vita síðdegis á
föstudag að hann hefði verið tekinn
fram yfir Pier Luigi Casiraghi hjá
Lazio og yrði í byijunarliði Italíu í
Evrópuleiknum gegn Úkraínu daginn
eftir. Hann þakkaði Arrigo Sacchi
landsliðsþjálfara traustið og gerði tvö
mörk í 3:1 sigri, en nú nægir Ítalíu
jafntefli gegn Litháen á morgun til
að komast í úrslitakeppnina.
Gestimir náðu óvænt forystu en
Ravanelli jafnaði um miðjan fyrri
hálfleik og bætti öðru marki við fljót-
lega eftir hlé. Paolo Maldini innsigl-
aði síðan sigurinn með glæsilegu
marki á 54. mínútu.
Þegar kunngert var að Ravanelli
yrði í byijunarliðinu sagðist hann
ætla að sýna að hann væri traustsins
verður og hann stóð við það en mið-
heijinn hefur gert fjögur mörk í fimm
landsleikjum. 54.000 áhorfendur
tóku mexíkóska byigju á pöllunum
þegar Ravanelli jafnaði og Sacchi
dansaði af ánægju. „Ég held að það
hafi verið ágætt hjá okkur að sigra
nánast óþekkt en gott lið,“ sagði
Sacchi. „Þetta var ekki auðveldur
sigur.“
Ravanelli sagði að Ítalía ætti ekki
að eiga í erfiðleikum með Litháen á
morgun og honum væri sama þó
Casiraghi spilaði. „Ef Gigi leikur
verður hann hressari en ég og hann
getur jafnvel staðið sig betur en ég.
Aðalatriðið er að við erum lið án,
sundurljmdis og öfundar."
Dusseldorf
taplaust
heima
Dusseldorf vann Gladbach 3:2 um
helgina og hefur ekki tapað
leik á heimavelli í þýsku deildinni á
tímabilinu. Andre Winkhold gerði tvö
mörk gegn fyrmm samheijum sínum
í Gladbach og tryggði Dusseldorf
annan sigurinn á tímabiRhu með
glæsilegu marki stundarfjórðungi
fyrir leikslok.
„Við áttum skilið að sigra og þátt-
ur stuðningsmannanna undir lokin
hafði mikið að segja,“ sagði Alek-
sandar Ristic, þjálfari heimamanna.
Þetta var fyrsta tap Gladbach í síð-
ustu níu leikjum en með sigri hefði
liðið skotist upp að hlið Bayern og
Dortmund, sem eru á toppnum með
28 stig að loknum 13 leikjum. „Við
vissum að það kæmi að því að við
töpuðum en þetta tap var óþarfi,"
sagði Bernd Krauss, þjálfari
Gladbach.
Bayern náði aðeins markalausu
jafntefli gegn Hansa Rostock í slök-
um leik sl. föstudagskvöld. Bayem
átti aðeins fimm skot að marki en
Rostock, sem hefur ekki tapað í síð-
ustu átta leikjum, átti 18 markskot.
Bayern spilaði méð fimm í framlín-
unni en alit kom fyrir ekki og leik-
menn heimaiiðsins sögðust ekki hafa
leikið gegn eins slöku liði í 2. deild
í fyrra.
Oliver Kahn, markvörður Bayern,
sagði að 4:1 tapið í Frankfurt og 5:3
tapið gegn Stuttgart hefðu haft nið-
urdrepandi áhrif á liðið. „Þessi töp
voru enn á sálinni á mönnum og því
var ljóst að leikurinn yrði ekki góð-
ur.“ Varnarmaðurinn Markus Babbel
bætti við að sá sem væri með bolt-
ann hveiju sinni fengi enga hjálp frá
samheijunum. „Það spilar hver fyrir
sig.“ Rudi Völler gerði tvö mörk í
4:1 sigri Bayer Leverkusen gegn
Karlsruhe á útivelli og er Leverkusen
í fjórða sæti með 19 stig. Þetta var
fyrsti leikur Leverkusen eftir að
Bernd Schuster var látinn fara frá
félaginu.
SVISSLENDINGAR byrjuðu vel
á fyrsta heimsbikarmóti vetrar-
ins sem fram fór íTignes í
Frakklandi á sunnudaginn. Þeir
áttu fjóra af f imm fyrstu í stór-
svigi karla og var Michael von
Griinigen sigurvegari. Hann
var fjórum hundruðustu úr sek-
úndu á undan Lasse Kjus frá
Noregi.
Grúnigen, sem er 26 ára, var
með besta tímann í fyrri um-
ferð og var þá nærri sekúndu á
undan landa sínum, Kaelin, og
Norðmanninum Kjus sem voru í
öðru og þriðja sæti. Hann gat þyí
leyft sér að keyra af öryggi í seinni
umferð. Þetta var mikilvægur sigur
fyrir von Grúnigen því hann var
meiddur á öxl mestan hluta síðasta
vetrar.
„Þetta var mikilvægur sigur fyrir
mig eftir meiðslin síðasta vetur. Ég
fór í uppskurð síðasta vor og gat
því æft vel í sumar. Fyrri ferðin
rátt fyrir að íslensku stúlkunum
tækist ekki að vinna sett í
Evrópukeppni kvennalandsliða í
^^^1 tennis, sem fram í
Stefán Tennishöllinni um
Stefánsson helgina, unnu þær
skrifar margar lotur og
stóðu oft upp í hár-
inu að andstæðingum sínum. Sigur
var oft í seilingarfjarlægð og hægt
er að skrifa mörg töp beint á reikn-
ing reynsluleysi?. „Það tekur á
taugarnar að vera sterk allan leik-
inn í erfiðum leik,“ ságði Stefanía
Stefánsdóttir. Ég þyrfti að spila
hjá mér er líklega sú besta á ferlin-
um - það gekk allt upp,“ sagði sig-
urvegarinn.
Lasse Kjus, sem hefur aðeins
einu sinni sigrað í heimsbikarmóti
og það í tvíkeppni, var vonsvikinn
með annað sætið. „Sigur er það
eina sem skiptir máli fyrir mig. Ég
veit að ég á möguleika á að vinna
heimsbikarinn því ég er jafnvígur
á allar alpagreinarnar fjórar. Ég
hef æft sérstaklega vel í sumar,"
sagði Kjus.Aðstæður til keppni voru
ekki eins og best verður á kosið
því töluverður vindur var er keppn-
in fór fram og gerði það mörgum
erfitt fyrir, sértaklega í efri hluta
brautarinnar. Stórsvigi kvenna,
sem átti að fara fram á sama staða
á laugardag, var frestað vegna of
mikils vinds.
Alberto Tomba og Austurríkis-
maðurinn Gúnther Mader voru ekki
með því þeir fóru til Bandaríkjanna
í síðustu viku til að búa sig undir
mótin í Vail um næstu helgi.
miklu oftar á mótum til að læra
að ná tökum á spilinu í erfiðum
leikjum."
Á laugardeginum spilaði ísland við
Danmörk og byrjaði Stefanía gegn
Söndru Olsen, sem er næstbest í
heimalandinu. Stefanía barðist af
miklum móð en danska stúlkan gaf
ekkert eftir og sigraði 6:1- og 6:0.
Hrafnhildur Hannesdóttir spilaði
síðan við Karin Ptaszek, sem er
besti tennisleikari Danmerkur og
númer 343 á heimslistanum. Hrafn-
hildur lét það ekki trufla sig, var
mjög ákveðin og tók áhættu, komst
Sá yngsti
sigraði
ÍSLANDSMÓTIÐ í Kendo og
Iaido, japönskum skylmingum,
var haldið um síðustu helgi.
Keppt var í einum opnum flokki.
Sölvi Tryggvason sigraði í
Kendo en Embla Ýr Bárudóttir
í Iaido.
Iaido sem hefur verið kallað
list japanska sverðsins er stund-
að eingöngu í formi Kata þar
sem áhersla er lögð á kraftmikl-
ar óg fágaðar hreyfingar svo og
rétta líkamsstöðu, öndun og ein-
beitingu. Keppni í Kendo er um
margt ólík þar sem tveir skylm-
ingamenn berjast um sigur eftir
fastmótuðum reglum með bam-
bussverð í hönd íklæddir öflug-
um hlífðarbúning sem kallast
Bogu. Japanskar skylmingar
hafa verið stundaðar hér á landi
frá 1984 og er íslenska Kendo-
sambandið aðili að Evrópska
Kendósambandinu, EKF og Al-
þjóða Kendosambandinu, IKF.
Ebla Ýr sigraði Elsu Guð-
mundsdóttur í úrslitum í Iaido,
Guðjón Baldursson og Flosi Þor-
geirsson skiptu með sér þriðja
og fjórða sætinu. í Kendo sigr-
aði Sölvi nokkuð óvænt í úrslita-
bardaga við Ingólf Björgvinsson.
Sölvi er aðeins 16 ára gamall.
Björn Hákonarson og Olafur
Guðmundsson deildu með sér
þriðja sætinu.
í forskot í fyrstu lotunum en tapaði
fyrra settinu 6:0. í síðara settinu
vann hún tvær lotur og náði að
auki þrívegis forskoti en tapaði 6:2.
í fyrra setti tvíliðaleiksins byijuðu
Islendingarnir.með látum og unnu
þrjár lotur en það tók á taugarnar
og þær töpuðu 6:3 og í síðara sett-
inu 6:0.
Lúxemborg vann írland 4:6, 6:4,
6:4 og 6:3, 6:0 í einliðaleiknum og
6:2 og 6:1 í tvíliðaleiknum.
Mestu möguleikár á sigri voru
gegn írum á sunnudeginum. Stef-
anía lék við Phillipu Palmer og náði
Couples og
Love vörðu
- fjörða árið í röð
BANDARÍSKA „draumaliðið“ í
golfi, Fred Couples og Davis
Love III, varð heimsmeistari f
tvímenningi ífjórða sinn í röð
á sunnudaginn og jafnaði þar
með met Bandaríkjamannanna
Arnolds Palmers og Jacks
Nicklaus. Keppnin fór fram í
Shenzhen í Kína.
Bandaríkjamennimir léku á 543
höggum og voru 33 höggum
undir pari vallarins og voru með
14 högga forsystu á Ástralaná,
Robert Allenby og Brett Ogle, sem
urðu í öðru sæti. Þetta var í þriðja
sinn sem þeir hafa forystu frá fyrsta
degi keppninnar. Couples og Love
fengu 200 þúsund dollara fyrir sig-
urinn og síðan fékk Love 100 þús-
und dollara til viðbótar fyrir að
vera efstur einstaklinga. Hann lék
á 267 höggum, eða 21 undir pari
eins og Japaninn Hisayuki Sasaki,
en Love vann í bráðabana á fímmtu
holu og hlaut því efsta sætið.
Bandaríkjamennirnir höfðu tíu
högga forskot fyrir síðasta daginn
og sigurinn var aldrei í hættu því
Love lék á fimm höggum undir
pari, eða 67 og Couples á 69 högg-
um iokadaginn. „Markmiðið hjá
mér var að vinna einstaklings-
keppnina því það var það eina sem
ég hafði ekki náði í þessari keppni.
Fred sigraði einstaklingskeppnina í
fyrra svo nú höfum við báðir náð
því takmarki," sagði Love. „Mig
langaði til að leika vel í þessu móti,
sérstaklega vegna þess að Fred
hafði áhyggjur af bakinu á sér. Við
byrjuðum vel og vorum allan tímann
með forystu svo það var ekki mikil
pressa á okkur síðasta daginn."
KORFUBOLTI
Blikastúlkur
taplausar
Breiðablik er eina liðið í 1. deild
kvenna í körfuknattleik sem
hefur ekki tapað leik, en sex umferð-
um er lokið í deildinni. Blikar sigruðu
Grindavík 78:65 um helgina og fór
Betsy Harris á kostum í liði Blika,
gerði 44 stig, tók 8 fráköst og „stal“
boltanum fimm sinnum af mótherjum
sínum. Betsy sýndi mikið öryggi á
vítalínunni og skoraði í öllum 18 víta-
skotunum sem hún fékk. Elísa Vil-
bergsdóttir átti einnig góðan leik,
gerði 7 stig og tók 15 fráköst. Hjá
Grindvíkingum var Penny Peppas
atkvæðamest, en hún gerði 26 stig
og tók 8 fráköst.
■ Úrslit/Staða C6
með mikilli baráttu 5:4 í lotum en
þá var sem allur vindur væri úr
henni og sú írska sigraði fjórar
næstu. í síðari settinu náði Stefan-
ía 4:1 í lotum en aftur glutraði hún
niður leiknum og sú írska vann 5
lotur í röð. Hrafnhildur mætti of-
jarli sínum, Ginu Niland, sem gerði
engin mistök og sigraði bæði settin
6:0. I tvíliðaleiknum sigruðu þær
írsku örugglega 6:1 og 6:2.
í úrslitaleiknum áttu Danir alls
kostar við Lúxemborg og unnu 6:4,
6:3 og 6:3, 6:2 í einliðaleiknum og
2:6, 6:3, 6:3 í tvíliðaleiknum.
TENNIS / EVROPUKEPPNI KVENNALANDSLIÐA
Á reikning reynsluleysis