Morgunblaðið - 14.11.1995, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 14.11.1995, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ ' MORGUNBLAÐIÐ . ÞRIÐJUDAGUR14. NÓVEMBER1995 C 5 ÍÞRÓTTIR HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPN! FELAGSLIÐA Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson ERLIIMGUR Kristjánsson, fyrirliðí KA-manna, í skotfærl í leiknum gegn slóvakíska liðinu VSZ frá Koslce í KA-heimilinu á laugardag. Betur má ef duga skal Valsmenn fara með tvö mörk í veganesti til Portúgals Morgunblaðið/Bjami IIMGI Rafn Jónsson, Valsmaður, sækir að vörn ABC Braga. Ingi kom inn á eftir að Dagur Sigurðsson fékk þriðju brottvísunina í seinni hálfieik og var því meinuð frekari þátttaka í leiknum. Jón Kristjánsson, þjálfari Vals Eigum meira inni JÓN Kristjánsson, þjálfari og leikmaður Vals, var ekki nægi- lega ánægður með tveggja marka sigur. „Þessi munur er kannski aðeins of lítill. Við hefðum átt að geta náð meiri mun því við vorum að klúðra nokkrum sóknum í lokin. Þetta verður erfitt í Portúgal," sagði þjálfarinn. Jón sagði að portúgalska liðið hafi reynt að róa Ieikinn. „Við keyrðum mikið hraðaupphlaupin í fyrri hálfleik en þeir náðu leiknum niður og pössuðu sig á að missa leikinn ekki út úr höndunum og tapa stórt. Við komum til með að reyna að hægja á leiknum úti því þeir verða þá að breyta sinni leikað- ferð. Við eigum meira inni, en ég er samt ekki ósáttur hvernig við spiluðum þennan leik. Línumaður þeirra var okkur erfiður og það er Ijóst að hann á ekki að komast upp með að skora átta mörk og fiska annað eins af vítum. Við þurfum að leggja áherslu á að laga vörnina fyrir síðari leikinn," sagði Jón. Vona að þetta dugi „Það er ágætt að fara með tvö mörk í síðari leikinn en það hefði mátt vera meira,“ sagði Dagur Sigurðsson, fyrirliði Vais. „Við spiluðum ekki okkar besta leik og ég er hálf vonsvikinn yfir því. En ég vona að þetta dugi okkur til að kom- ast áfram. Við erum með sterkt lið og handbol- talega séð finnst mér við vera með betra Iið en þeir. Við eigum möguieika og við ætlum áfram. Þeir eru skynsamir og leika agað. Við þurfum að vinna heimavinnuna vel áður en við förum í síðari leikinn, en þetta er hægt.“ VALSMENN sigruðu ABC Braga, 25:23, ífyrri leik liðanna í Evrópukeppni meistaraliða f 16-liða úrslitum að Hlíðarenda á laugardaginn. Það gæti reynst Valsmönnum þrautin þyngri að komast áfram því veganestið til Portúgals er með allra minnsta móti, eða tvö mörk. Valsmenn hafa þó sýnt það í gegnum árin að þeir geta leikið vel á útivelli og þvf er of snemmt að afskrifa þá á þess- ari stundu. Valsmenn byijuðu leikinn með miklum látum og komust í 5:1 eftir 12 mínútna leik og voru fjögur markanna gerð úr hraðaupphlaupum. Gestimir náðu að róa leikinn niður og með öguðum leik jöfnuðu þeir og komust yfir 7:8 þegar skammt var til loka fyrri hálfleiks. Valgarð Thoroddsen tók þá til sinna ráða og gerði fjögur glæsileg mörk á lokakaflanum og staðan í hálfleik 13:11. ValurB. Jonatansson skrifar Þjálfari Braga: Eigum að vinna þetta upp ALEXANDER Donner, sem hefur verið þjálfari Braga í fjögur ár, var óánægður með leik liðs síns en sagði að með eðlilegum leik ætti það að vinna muninn upp á heimavelli. „Við lékum ekki mjög vel og gáfum Valsmönnum færi á allt of mörg- um gagnsóknum sem við verðum að stöðva í seinni leiknum,“ sagði hann við Morgunblaðið. Gert er ráð fyrir að fullt verði í Braga á laugardag- inn kemur, 4.000 manns, og sagði Donner að heimavöllurinn gæti haft mikið að segja. „Svo framarlega sem við spilum eðlilegan leik en ef við spilun eins og hérna er útlitið ekki gott.“ Portúgalarnir gerðu fyrstu tvö mörkin í síðari hálfleik og jöfnuðu, 13:13. Jafnt var síðan á flestum tölum upp í 18:18 um miðjan hálf- leikinn. Jón Kristjánsson, sem hafði ekki gert mark, hrökk þá í gang og gerði fjögur mörk á skömmum tíma. íslandsmeistararnir náðu að halda þetta út og vinna með tveggja marka mun, þó svo að þeir hafi aðeins gert tvö mörk úr síðustu sjö sóknum sínum. Valsmenn geta mun betur en þeir sýndu í þessum leik. Það var aðeins fyrsta stundarfjórðunginn í leiknum sem þeir spiluðu vel, síðan var allt of mikið um fum og fát. Valgarð átti stjörnuleik, gerði 8' mörk úr 9 tilraunum. Eins komst Davíð Ólafsson vel frá sínu. Sigfús lék vel í fyrri hálfleik, en komst lítt áleiðis í þeim síðari. Landsliðsmenn- irnir, Jón, Ólafur og Dagur, eiga mikið inni og þá sérstaklega Dag- ur, seni lét yfirleitt allt fara í taug- arnar á sér og fékk síðan að gjalda þess með rauðu spjaldi undir lokin. Þessir þrír gerðu aðeins eitt mark til samans í fyrri hálfleik. Guð- mundur Hrafnkelsson var ekki líkur sjálfum sér í markinu. Vörnin var heldur ekki nægilega góð og lét línumanninn Galambas komast upp með allt of mikið. Hann gerði 8 mörk og það á ekki að geta gerst í fiatri 6-0-vörn. Pórtúgalska liðið er nokkuð gott og skipað sterkum leikmönnum í öllum stöðum. Það lék skynsamlega og stjórnaði leiknum þegar líða tók á. Línumaðurinn Galambas var besti maður liðsins og greinilegt að það þarf að gæta hans betur í síð- ari leiknum. Eins er skyttan Res- ende (nr. 7) góður og Rússinn Bol- otskih (nr. 14) á líklega meira inni. Helsti veikleiki liðsins eru horna- mennirnir, sem gerðu ekkert mark úr horni. Full tæpur KA-sig- ur gegn Kosice KA-menn eiga allgóða mögu- leika á að komast í 3. umferð í Evrópukeppni bikarhafa, 8- liða úrslit, eftir 33:28 sigur gegn Kosice frá Slóvakíu ífyrri leik liðanna á Akureyri sl. laug- ardag. Munurinn hefði þó mátt vera meiri og á tímabili stefndi íburst. Vopnin snerust í höndum KA-manna íseinni hálfleik og Slóvakarnir söxuðu á forskotið, allt niður í 2 mörk undir lokin. Þrjú mörk Patreks á síðustu 3 mínútunum vega þó eflaust þungt en það á eft- ir að koma í Ijós í seinni leikn- um hvort forskotið dugir KA. Fyrri hálfleikur var afskaplega fjörugur, svo ekki sé meira sagt, enda skorað mark á mínútu og staðan í leikhléi Stefán Þór 19:12 fyrir KA. Sæmundsson Liðið hefur vart skrifarfrá byrjað eins • kröft- Akuœyri uglega - langan tíma og KA var komið í 5:1 eftir 6 mínútna leik. Áhorfendur öskruðu, allt gekk upp og gestirnir frá Slóvakíu virtust ráðvilltir. Þeir tóku þó við sér með landsliðsskyttuna Peter Jano í far- arbroddi. Það hjálpaði liði Kosice líka mikið að Patrekur Jóhannes- son var rekinn tvisvar út af með tveggja mínútna millibili áður en hálfleikurinn var hálfnaður. Kosice minnkaði muninn og Pat- rekur var lítið notaður í vörninni eftir þetta. Seinni brottvísun hans var æði vafasöm. Það voru hornamennirnir Björgvin Björgvinsson og Jóhann G. Jóhannsson sem fóru á kostum hjá KA í fyrri hálfleik og einnig var línumaðurinn Leó Örn Þor- leifsson drjúgur. Þremenningarnir skoruðu samtals 12 mörk í hálf- leiknum og Patrekur var líka seig- ur. Julian Duranona skoraði á hinn bógirm aðeins eitt mark. En sjö marka forysta í leikhléi gaf vonir um stórsigur. í seinni hálfleik gripu Slóvak- arnir til þess ráðs að klippa horna- mennina nánast út og þessi varn- araðferð gekk upp því þremenn- ingarnir fyrrnefndu náðu þá að- eins að skora 2 mörk. Patrekur og Duranona voru í aðalhlutverki en gerðu þó mörg mistök og sókn- arleikur KA var alls ekki burðugur í hálfleiknum. Leikmenn voru að mestu kyrrir í sínum stöðum og lítið leyst upp eða bryddað upp á leikkerfum. Snaggaralegir Sló- vakar gengu á lagið og skoruðu alls 16 mörk gegn 14 mörkum KA í hálfleiknum og voru næstum búnir að eyða forskotinu því þegar um þrjár og hálf mínúta lifði af leiknum var staðan 30:28 og höfðu leikmenn Kosice þá skorað 8 mörk gegn 3 mörkum frá Duranona á niu mínútna kafla. Patrekur bjargaði þó andliti heimamanna í lokin með þremur mörkum. Lið Kosice er ekki í hópi þeirra bestu í heimi en margir leikmenn þess þó mjög snöggir og sterkir, s.s. Peter Jano, Ján Kolesár og Gabriel Schmiedt. Þá kom tveggja metra sláni, örvhenta stórskyttan Petar Vozar, inn á í seinni hálf- leik og virtist eiga auðvelt með að skora. Annars er hraðinn aðals- merki liðsins og KA-menn náðu ekki að halda þessum hraða niðri eða flagga sinni landsfrægu ,vörn að ráði. Þar sýndu Alfreð og læri- sveinar hans þó ágæt tilþrif á köflum en með Patrek og Duran- ona utan vallar vantar nokkra steina í múrinn. Guðmundur Arnar varði oft prýðilega. Um þátt horna- og línu- mannanna í fyrri hálfleik hefur áður verið fjallað en stórskytturn- ar þurftu að bera leik KA uppi í seinni hálfleik og háði það bæði Patreki og Duranona að þeir voru slappir eftir veikindi og gerðu mörg mistök. Góðu hliðarnar voru þó líka til staðar og skemmtileg mörkin hans Patta, t.d. þau þrjú fyrstu þegar boltinn fór í stöng og inn. Verði allir leikmenn KA sæmilega heilir í seinni leiknum úti ætti liðið að geta komist lengra í keppninni. Engin uppgjof hjá liðunum „ÞETTA var ekki nógu mikill munur en ég vona að hann dugi. Með betri vörn og færri mistökum í sókninni ættum við að geta haldið þeim niðri úti. Þetta var hálfgert klúður hjá okkur í seinni hálfleik. Við hættum að spila og einhver örvænting greip um sig. Með eðlUegum leik og dómgæslu eigum við að komast áfram og við stefnum ótrauðir í 8-liða úrslitin,“ sagði Patrekur Jóhannesson eftir leikinn. Hann var örþreyttur og sagðist varla hafa haft þrek í allan leikinn eftir veikindi. Alfreð Gíslason, þjálfari KA, var ekkert allt of hress með leik sinna manna og sagði að með slíkum leik í Slóvakíu myndi liðið ekki komast áfram. Stefnan væri að sjálfsögðu sú að gera betur. Leikmenn Kosice voru húðskammaðir af þjálfaranum Miro- slav Mino þótt þeir hefðu á vissan hátt staðið sig vel í því að halda forskoti KA í skefjum. „Mér fannst við spila n\jög iUa í fyrri hálfleik en mun betur í þeim seinni. Ekkert annað en sig- ur kemur til greina í leiknum heima og ég er sannfærður um að við komumst áfram í keppninni,“ sagði hinn eitraði Peter Jano og bar höfuðið hátt þrátt fyrir skammirnar. JUDO / ISLANDSMOT I SVEITAKEPPNI Tvöfalt hjáÁr- manni Armenningar urðu tvöfaldir ís- landsmeistarar í sveitakeppni Júdósambandsins sem fram fór í íþróttahúsinu í Austurbergi um helgina. Armann vann í karlaflokki, hlaut 192 stig, A-lið KA varð í öðru sæti með 127 stig, B-lið Ármanns í þriðja með 64 og B;liða KA rak lestina með 10 stig. í flokki karla 21 árs og yngri hlaut Ármann 110 stig, A-sveit KA varð í öðru sæti með 80 stig, B-sveit KA í þriðja með 70 stig og B-sveit Ármanns rak lestina með 30 stig. Á mótinu voru tækniverðlaun JSÍ veitt fyrir árið 1994. Vernharð Þor- leifsson, KA, hlaut þau í karla- flokki, Vignir G. Stefánsson, Ár- manni, í flokki U-21 og Bjarni Skúlason í flokki 15-17 ára. Morgunblaðið/Bjami Eiriksson HALLDÓR Guðbjörnsson, gamla kempan sem var einn besti júdómaður tandsins fyrir nokkrum árum, er byrjaður aftur ð fullu og var í sigursveit Ármanns um helgina. 4 C ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 1995 IÞROTTIR KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN Keflvíkingar rót- burstuðu IR-inga ÍR-INGAR höfðu ekki erindi sem erfiði þegar þeir mættu heimamönnum í Keflavík i leik sem fyrirfram var búist við að yrði spennandi. En það reynd- ist öðru nær og Keflvikingar léku feikna vel og rótburstuðu ÍR-inga 117:85 eftir að staðan i hálfleik hafði verið 52:38. Það var rétt á upphafsmínútunum sem jafnræði var með liðunum en eftir það stungu Keflvíkingar af. ■■■■■■ Það var fyrst og Bjöm fremst frábær vam- Blöndal arleikur Keflvíkinga skrifarfrá sem gerði útslagið og Keflavík elns þeim ag halda helsta stigaskorara ÍR-inga, Herbert Amarsyni, nær algjöriega niðri. ÍR-ingar mega þó eiga það, að þeir börðust allt til loka en þeir hittu einfaldlega aigera ofjarla sína að þessu sinni. „Við vorum gjörsam- lega yfirspilaðir,11 var það eina sem John Rhodes þjálfari og leikmaður ÍR-inga vildi láta hafa eftir sér um frammistöðu sinna manna. „Ég held að þetta sé besti ieikur okkar á tímabilinu og er afar ánægð- ur hvemig til tókst. ÍR-ingar eru sterkir og það verður að segjast eins og er að ég var hálf smeykur fyrir leikinn. Við lögðum megináherslu & góða vöm og hafa góðar gætur á þeim John Rhodes og Herbert Arnar- syni. Þetta gekk upp og þar með náðum við í ákaflega þýðingamikil stig,“ sagði Jón Kr. Gíslason þjálfari og leikmaður Keflvíkinga. • Allir liðsmenn Keflvíkingá komu við sögu í leiknum og þeir gátu leyft sér að taka byijunarliðið útaf þegar 6 mínútur vora til leiksloka. En það virtist litlu máli skipta því ungu pilt- amir sem þá komu inná gáfu ekkert eftir. Bestu menn vora þó tvímæla- laust Albert Óskarsson, Lenear Burns og Davíð Grissom. Besti mað- ur ÍR var John Rhodes - aðrir náðu aldrei að sýna sitt besta. Valsmenn komnir á blað Við emm kátir með sigurinn, það hlaut að koma að þessu,“ sagði Torfi Magnússon, þjálfari Vals, eftir að hans mönnum jvar tókst loks að sigra í Benediktsson sínum fyrsta leik í skrifar úrvalsdeildinni er Þór frá Akureyri kom í heimsókn að Hlíðarenda á sunnu- dagskvöldið. Lokatölur voru 82:80 og var svo sannarlega kátt-á meðal þeirra fáu Valsmann a sem mættu á heimavöll sinn að þessu sinni. Ronald Bayless gaf félögum sínum í Val tóninn þegar hann tróð knettin- um í körfuna á upphafs sekúndunum og það virkaði vel á þá. Þeir tóku fmmkvæðið í leiknum sem þeir héldu fram að hálfleik. Norðanmenn náðu sér ekki á strik í fyrri hlutanum og söknuðu greinilega Freds Williams sem var í leikbanni. Vörnin var stöð og sóknarleikurinn gekk illa og Krist- inn Friðriksson hitti illa. Valsmenn leiddu með tíu stigum í hléi, 46:36. En Kristinn Friðriksson kom sjóð- heitur til ieiks í síðari hálfleik og skoraði átján fyrstu stig Þórs í síð- ari hálfleik og kom félögum sínum þar með inn í leikinn að nýju. Þórsar- ar jöfnuðu fljótlega á þessum kafla og komust í fyrsta sinn yfir, 59:60. Eftir það var leikurinn í jámum og liðin skiptust á um forystuna. Þórsar- ar náðu forystu 72:77 þegar fimm mínútur voru eftir, en Valsmenn sóttu í sig veðrið á Iokakaflanum og munaði þar mestu að þeim tókst að loka Kristin Friðriksson af og var þar að verki Ronald Bayless, en hann fór hamförum í vörn jafn sem sókn. Eftir nokkurn darraðadans á lo- kakaflanum tókst Valsmönnum að knýja fram sanngjarnan sigur. Meistarabragur á UMFN Njarðvíkingar sigruðu lið Tinda- stóls örugglega 82:69 á Sauð- árkróki. Gestimir léku eins og sönn- um íslandsmeistur- Frá Birni um sæm>r — ef frá Björnssyni ' eru taldar allra síð- á Sauðárkróki ustu mínúturnar þegar sigurinn var í höfn — og verðskulduðu sigurinn, sem aldrei var í hættu. Leikurinn var mjög hraður frá upphafi til enda. Torrey John gerði fyrstu stigin en Rondey Robinson svaraði strax með tveimur fallegum körfum og gaf Njarðvíkingum tón- inn. Heimamenn héldu í við gestina og komust yfir á tímabili, en Njarð- víkingar, með Robinson sem lang besta mann, gáfu engin grið og skor- uðu grimmt. Torrey barðist vel og hélt heimamönnum inni í leiknum. Páll Kristinsson — komungur leik- maður í liði Njarðvíkinga — kom inn á um miðjan hálfleikinn og átti mjög góðan leik. Hann leikur inni í teign- um, er stór, fimasterkur og öruggur og skoraði grimmt. Þar bætist Njarð- víkingum gríðarlegur liðsauki. Ómar Sigmarsson fékk fjórðu villu sína seinni part fyrri hálfleiks og það munaði nokkm fyrir Tindastólsmenn en þeir áttu sæmilegan sprett í lok fyrri hálfleiks og náðu að minnka muninn þannig að forskot Njarðvík- inga var tíu stig í hálfleik. Rondey hóf seinni hálfleikinn með því að gera fjögur fyrstu stigin og fljótlega varð munurinn allt of mikill fyrir heimamenn og ljóst að sigurinn yrði aldrei í hættu. Ómar fékk svo 5. villu sína fljót- lega í seinni hálfieik og í framhaldinu brottrekstrarvíti, þannig að hann verður varla með í næsta ieik. Njarðvíkingar létu boltann ganga hratt og mjög vel og náðu mest 27 stiga forskoti, en heimamenn náðu reyndar að minnka það niður í 13 stig í lokin. Robinson var bestur í liði meistar- anna en Páll, Jóhannes og Teitur voru einnig góðir. Torrey John var bestur í liði heimamanna en Hinrik og Láms Dagur áttu ágæta spretti. Bow sá um Skagamenn Jonathan Bow fór á kostum gegn Skagamönnum á sunnudaginn, þegar þeir mættu KR-ingum í fjömg- um leik á Seltjamar- nesi. Eftir jafnan en frekar slakan fyrri hálfleik fóru KR-ing- ar á flug og unnu 115:88, þar af gerði Bow 46 stig áður en hann hvíldi í lokin til að leyfa ungu drengjunum að spreyta sig. Vesturbæingarnir vora lengi í gang og þegar þeir höfðu sig af stað svömðu Skagamenn með ijórum þriggja stiga körfum og Milton Bell tróð tvisvar. Hann og Haraidur Leifs- son tóku líka góða syrpu rétt fyrir hlé svo að ÍA var 44:48 yfir í leikhléi. Efir hlé fóru KR-ingar sér hægar eri vönduðu sig þess meira svo að vörnin small saman og síðan sóknin í kjöifarið. Bow tók við sér svo um munaði og Ingvar Ormarsson smellti niður flórum þriggja stiga körfum á stuttum tíma. Skagamenn komust ekki inn í leikinn og undir lokin gáf- ust þeir upp og KR setti ungu dreng- ina af bekknum inn á. „Fyrri hálfleikur var hörmulegur en eftir hlé sló KR-hjariað og liðið sýndi hvað það getur ef hugarfarið er í lagi,“ sagði Benedikt Guðmunds- son, þjálfari KR. Sem fyrr segir var Bow í miklum ham og kraftur hans dreif liðið líka áfram. Hann nýtti 8 af 11 skotum innan teigs, 8 af 10 utan, öll 3 þriggja stiga skotin og 5 af 6 vítaskotum en tók 7 fráköst. Óskar Kristjánsson átti líka góðan Stefán Stefánsson skrifar leik, gaf meðal annars 13 stoðsend- ingar og Ingvar Ormarsson var dijúgur — m.a. fóru 5 af 7 þriggja stiga skotum ofaní. Skagamenn áttu ekkert svar þegar KR fór á flug en gáfust ekki upp fyrr en í lokin. Milton Bell gerði 31 stig, tpk 16 fráköst og gaf 5 stoð- sendingar, fyrir utan margar glæsi- legar troðslur og tilþrif, sem glöddu alla áhorfendur. Bjami Magnússon, Jón Þór Þórðarson og Haraldur Leifs- son áttu góða kafla. Leikglaöir Gríndvíkingar Grindvíkingar höfðu leikgleðina í fyrirrúmi þegar þeir lögðu Borgnesinga að velli í Grindavík ■■■■■■ 103:81. Gestirnir Frímann byijuðu vel og virtist Ólafsson mótspyrna þeirra slá skrifar frá heimamenn út af laginu til að byija með. Leikurinn jafnaðist og munur- inn varð ekki mikili fyrr en rétt fyr- ir háifleik þegar Grindvíkingar náðu 11 stiga forskoti. Helgi Jónas byijaði með þriggja stiga körfu í seinni hálfleik og það var aðeins forsmekkurinn að því sem hann átti eftir að sýna. Hann fór á kostum og gerði 15 stig á fyrstu 5 mínútum hálfleiksins, þar af vora 4 þriggja stiga körfur. Hann meiddist síðan á hendi eftir að hafa lent í samstuði við einn Borgnesinga og fór útaf. Þáð kom ekki að sök því mun- inn áttu gestirnir aldrei möguleika á að vinna upp. „Mér fannst við spila ágætlega í fyrri hálfleik en síðan vorum við yfir- spilaðir á fyrstu 5 mínútum seinni hálfleiks og vöknuðum við þann vonda draum að vera búnir að tapa leiknum,“ sagði Tómas Holton þjálf- ari Skallagríms. Hann skipti sjálfum sér útaf eftir þessa syrpu Grindvík- inga og kom ekki meira við sögu. Bragi Magnússon spilaði best Borg- nesinga en aðrir vom nokkuð frá sínu besta. Þegar skyttur Grindvíkinga em í ham stendur fátt fyrir liðinu. Þáttur Helga er áður talinn en auk hans lék Hjörtur mjög vel og Marel setti 4 þriggja stiga körfur niður. Ekki má samt gleyma góðum varnarleik og léikgleði Inga Karls Ingólfssonar sem nánast kom Tómasi út úr leiknum og dreif aðra með. Þá lék ungur leik- maður, Páll Axel Vilbergsson, skín- andi vel eftir að hann kom inná. Blikar stóðu í Haukum Haukar sigmðu Breiðablik 103:80 á heimavelli á sunnudagskvöld. Þrátt fyrir að munurinn væri 23 stig í lokin stóðu gestirnir töluvert lengi í heimamönnum, sem þó höfðu ætíð yfir- höndina. Haukamenn byijuðu leikinn af krafti, og voru fljótlega komnir með rúmlega tíu stiga mun. Sóknarieikur- inn gekk vel og vamarleikurinn var traustur, en er á leið hálfleikinn sýndu gestimir klæmar og minnkuðu muninn,_ úr mest 15 stigum niður í fjögur. I hálfleik var staðan 57:51, Haukum í vil. Síðari hálfleikur var í járnum lengi vei, gestimir neituðu að gefast upp en komust þó aldrei nær heimamönn- um en svo að fjögur stig voru á milli að minnsta kosti. Haukarnir náðu síðan góðum kafla um miðjan hálfleikinn og þá játuðu Blikar sig sigraða. Hjá heimamönnum voru Jason Williford og Sigfús Gizurarson traustir í vörn og sókn. Williford gerði 34 stig og Sigfús 33. Halldór Kristmannsson var bestur Blika, gerði 28 stig og var lengi vel óstöðv- andi í sókninni. Stefán Eiríksson skrifar ItifcMSlðMÍMtftsMNN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.