Morgunblaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995 D 3
GETRAUIMIR
ÍÞRÓTTIR
Boston á
eftir breskum
leikmönnum
NÝJA bandaríska deildin í knattspyrnu
hefst í apríl á næsta ári og eru forsvars-
menn liðanna á eftir leikmönnum víða um
heim. Boston hefur beint augum sinum til
Bretlands að undanförnu og er John
Aldridge nýjasta nafnið á óskalistanum en
áður hefur félagið m.a. haft samband við
Paul McGrath og Packie Bonner.
Vilja þjóðar-
leikvanginn
í London
ÁKVEÐIÐ hefur verið að endurbyggja þjóð-
arleikvang í Englandi og stendur valið á
milli endurgerðs Wembley-vallar og nýs-
mannvirkis utan London. Samtök atvinnu-
knattspyrnumanna í Englandi hafa látið
málið til sín taka og var mikill meirihluti
fylgjandi því að Wembley yrði áfram þjóðar-
leikvangur Englands. „ Allir leikmenn heims
eiga sér þá ósk að leika á Wembley, ekki
síst vegna hefðarinnar og sögunnar,“ sagði
Peter Beardsley, leikmaður Newcastle.
Nær uppselt
á leiki
Englands
ÚRSLITAKEPPNIN í Evrópumóti landsliða
verður í Englandi í júní á næsta ári og er
hennar beðið með mikilli eftirvæntingu. í
fyrsta sinn leika 16 lið til úrslita og sem
fyrr, þegar um stórmót er að ræða, eru
heimamenn með miklar væntingar varðandi
frammistöðu landsliðs Englands. Keppnin
hefst 8. júní og hefur miðasala gengið von-
um framar en þegar er búið að selja 86%
miða á leiki Englands sem verða á Wembley.
ENGLAND
staðan
14 7 0 0 18-2 Newcastle 4 2 1 13-7 35
13 6 1 0 17-5 Man. Utd. 3 1 2 10-8 29
14 4 2 1 9-4 Aston V. 4 1 2 10-6 27
13 4 2 0 10-4 Arsenal 3 1 3 7-4 24
13 5 0 2 10-7 Leeds 2 3 1 9-7 24
13 4 2 0 14-6 Notth For. 2 4 1 9-14 24
13 5 1 1 17-4 Liverpool 2 1 3 9-8 23
13 4 2 0 8-2 Middlesbro 2 3 2 4-5 23
13 3 1 3 9-9 Tottenham 3 3 0 12-8 22
14 5 1 1 20-5 Blackburn 0 1 6 2-12 17
13 1 2 3 7-12 West Ham 3 2 2 7-4 16
13 2 3 1 7-6 Chelsea 2 1 4 4-9 16
13 2 1 3 7-9 Everton 2 2 3 8-8 15
13 1 2 4 4-9 Sheff. Wed 2 2 2 6-5 13
14 2 2 3 8-9 Southamptn 1 1 5 6-16 12
13 1 2 4 7-14 QPR 2 0 4 4-6 11
13 2 2 3 9-11 Wimbledon 1 0 5 7-18 11
13 2 2 3 6-9 Bolton 0 0 6 6-16 8
13 1 2 3 5-9 Coventry 0 3 4 6-16 8
13 1 2 3 2-5 Man. City 0 1 6 2-17 6
l.deild
17 4 3 2 10-8 Millwall 5 3 0 11-6 33
17 3 2 4 13-14 Leicester 6 2 0 15-7 31
17 4 4 0 14-6 Birmingham 4 2 3 13-10 30
17 4 4 1 12-7 Sunderland 3 4 1 8-7 29
16 4 3 1 18-9 Tranmere 3 4 1 9-5 28
17 5 3 1 11-6 Norwich 2 3 3 13-13 27
17 5 4 0 11-5 Grimsbý 2 2 4 9-13 27
17 4 3 1 15-9 Oldham 2 4 3 10-10 25
17 5 1 2 12-7 WBA 2 2 5 10-15 24
17 4 4 1 12-6 Derby 2 2 4 10-17 24
17 3 4 1 11-8 Charlton 2 4 3 8-8 23
17 5 1 2 15-10 Huddersfld 1 4 4 6-13 23
17 4 3 1 12-12 Barnsley 2 2 5 11-18 23
17 2 4 2 10-6 Stoke 3 3 3 17-18 22
17 4 1 3 16-13 Ipswich 1 4 4 12-14 20
17 4 3 2 10-9 Southend 1 2 5 7-14 20
17 8 2 4 13-15 Reading 1 5 2 7-8 19
17 3 3 3 11-11 Wolves 1 3 4 8-12 Í8
16 1 3 3 7-10 C. Palace 3 3 3 10-11 18
17 3 1 4 13-14 Sheff. Utd 2 1 6 11-17 17
17 2 4 2 11-9 Watford 1 3 5 10-16 16
17 2 4 3 14-14 Portsmouth 1 2 5 10-17 15
17 1 3 5 8-13 Luton 2 2 4 3-10 14
17 0 3 6 8-16 Port Vale 2 4 2 9-8 13
Rioch vill fá Thatcher
í vömina hjá Arsenal
BRUCE Rioch, yfirþjálfari Arsenal, hefur mikinn áhuga
á að fá vamarmanninn Ben Thatcher hjá Millwall og er
talið að hann sé tilbúinn að greiða 1,6 millj. punda fyrir
strákinn sem er 19 ára. Ef til kaupanna kemur liggur
fyrir að Thatcher er ætlað að koma í staðinn fyrir Nigel
Winterburn sem verður 32 ára í desember og hefur leik-
ið með Arsenai síðan 1987.
PAUL Gascoigne segist vera hættur að borða skyndi-
mat en leyfi sér ef til vili nokkrar karameilur.
Paul Gascoigne
vandar fæðuvalið
HINN skrautlegi knatt-
spyrnumaður Paul Gasco-
igne, sem nú leikur með
Glasgow Rangers, hefur
sagt skilið við ruslfæði og
bjór og er þetta liður í því
að ná fyrra formi á knatt-
spyrnuvellinum. í nýlegu
viðtali við heilsutímarit
segist hann ekki hafa
bragðað bjór í marga
mánuði. „Eg hef ekki
smakkað bjór í marga
mánuði og ef ég drekk
eitthvað áfengt á annað
borð fæ ég mér léttvíns-
glas eða kampavín,“ sagði
Gascoigne í viðtalinu.
Kappinn sagði að þeir
dagar væru liðnir að hann
fengi sér fisk og franskar
og dökkan Newcastle bjór.
„Mér líkar miklu betur að
fá mér bara léttvínsglas
með kínverska eða ítalska
matnum,“ sagði hann.
„Það er liðin tíð að ég lifi
á ruslarafæði og í rauninni
leyfi ég mér ekkert orðið,
nema ef til vill nokkrar
karamellur,“ sagði Gassi
sem var frægur fyrir að
borða mikið súkkulaði um
tíma. I dag kemur hann
fyrir aganefnd skoska
knattspyrnusambandins
vegna hasars í leik með
Rangers. „Ég þoli ekki að
tapa, Jivorki leik né ná-
vígi,“ sagði hann.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Bulls með
sinnbesta
árangur
Michael Jordan sá til þess að-
faranótt miðvikudagsins að
Chicago Bulls næði sínum besta
árangri í upphafí tímabils, en liðið
sigraði Dallas Mavericks 108:102 í
framlengdum leik. Jordan gerði 36
stig og þar af sex í framlenging-
unni. Þar með hefur Bulls sigrað í
átta leikjum og tapað einum en
átti áður best 7-1 árið 1992-93, en
það ár varð Chicago meistari. Ekki
nóg með að Jordan léki vel og
tryggði sigurinn í framlengingu,
hann varði einnig skot frá Jim Jack-
son í lok venjulegs leiktíma þannig
að framlengja varð.
Jason Kidd náði þeim frábæra
árangri að fá sína fimmtu þrennu
þegar hann gerði 25 stig, tók 15
fráköst og átti 11 stoðsendingar
auk þess sem hann náði boltanum
sex sinnum af leikmönnum Bulls.
Kidd er að leika sitt annað tímabil
og Jordan var hrifinn af stráknum.
„Hann er góður leikmaður og án
efa einn albesti skotbakvörður
deildarinnar,“ sagði Jordan. Scottie
Pippen gerði 26 stig fyrir Bulls og
Jamal Mashburn 21 fyrir Dallas.
Damon Stoudamire virðist ekki
enn ná því alveg að hann er nýliði
í deildinni, alla vega á hann hvern
stórleikinn af öðrum og nú lögðu
nýliðarnir í Toronto lið SuperSonics
að velli, 102:97, og var þetta þriðji
sigur Raptors í röð. Stoudamire
gerði 20 stig, tók 12 fráköst og
átti 11 stoðsendingar. Oliver Miller
var stigahæstur heimamanna með
23 stig en Gary Payton gerði 24
fyrir gestina.
Denver Nuggets hefur ekki
gengið vel í vetur en vann þó annan
sigur sinn í fyrrinótt er liðið vann
Atlanta 107:99. Nýliðinn Antonio
McDyess gerði 22 stig fyrir Denver
og tók' að auki 10 fráköst og vara-
maðurinn Jalen Rose gerði 12 stig
og tók 6 fráköst auk þess sem hann
átti fimm stoðsendingar.
James Robinson setti niður
þriggja stiga skot um leið og flauta
tímavarðar gall í Los Angeles en
þar var Portland í heimsókn. Þar
með tryggði hann gestunum
109:108 sigur. Rod Strickland gerði
28 stig fyrir Portland en Cedric
Ceballos 38 fyrir Lakers og þar á
bæ tók Vlade Divac 16 fráköst og
Nick Van Exel átti 15 stoðsendingar.
JORDAN léki vel og tryggði Chicago sigur í framlengingu.
HJOLREIÐAR
Landssamtök
hjölreiðamanna
Hjólreiðamenn koma saman í annars vegar sem samgönguað-
kvöld til að stofna Lands- ferð og hins vegar sem íþrótta-
samtök íslenskra hjólreiðamanna. grein. Samtökin verða félagar í
Stofnfundurinn verður kl. 20 í samtökunum íþróttir fyrir alla og
húsakynnum íþróttasambands ís- styðja þannig við bakið á heilsu-
lands í Laugardal. Hin nýju sam- eflingu almennings.
tök verða samtök fyrir öll hjól- Á stofnfundinum munu fyrir-
reiðafélög og klúbba í landinu, en lesarar kynna stöðu hjólreiða-
þess má geta til gamans að 15 manna á íslandi, fjallað verður
þús. hjól eru flutt til landsins á um „hjólreiðar á norðlægum slóð-
ári hveiju. Tvö félög, Hjólreiðafé- um“ - til þess að fjalla um þann
lag Reykjavíkur og Islenski fjalla- þátt er kominn til landsins fram-
hjólaklúbburinn verða fyrstu að- kvæmdastjóri danska hjólreiða-
ildarfélögin að samtökunum, en sambandsins, Thomas Krag. Þeir
félagsmenn þeirra eru um 500. hjólreiðamenn út á landi, sem
Hjólreiðafélög víða um land hafa komast ekki á fundinn, en vilja
sýnt hinum nýju samtökum mik- vera með sem stofnendur, geta
inn áhuga. hringt á skrifstofu Íþrótta fyrir
Samtökin munu beita sér fyrir alla og látið skrá sig.
því að efla hjólreiðar á íslandi,