Morgunblaðið - 23.11.1995, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1995 D 7
BÖRN OG UNGLINGAR
Lyftingar
Gísli setti
þrjú íslands-
met unglinga
GÍSLI Kristjánsson lyftingamað-
ur úr IR setti þrjú Islandsmet
unglinga á opnu móti í ólympísk-
um lyftingum hjá ÍR í Júdó-Gym
fyrir skömmu. Hann lyfti 125
kg í snörun, jafnhattaði 165 kg
og lyfti því 285 kg samanlagt. I
öðru sæti var Stefán R. Jónsson,
FH, lyfti 187,5 kg samanlagt og
þriðji Jón Bjarni Bragson,
USAH, með 150 kg í saman-
lögðu.
Gísli sem er enn í unglinga-
flokki verður þátttakandi á
Norðurlandamóti fullorðinna í
ólympískum lyftingum sem fram
fer i byrjun desember.
Fimmtán
með í byrj-
endaflokki
FIMMTÍU ungmenni tóku þátt í
borðtennismóti í salarkynnum
Borðtennisdeildar KR í gamla
Hampiðjuhúsinu nýlega, þar af
voru fimmtán í byijendaflokki.
Keppt var í fjórum flokkum,
flokki byrjenda, 1. flokki karla
og kvenna og 2. flokki karla.
í byijendaflokki var æsispenn-
andi keppni þar sem fimmtán
einstaklingar af báðum kyiyum
tóku þátt. Svo fór að Arnar
Agnarsson og Kjartan Hákonar-
son áttust við í úrslitum þar sem
ekkert var gefið eftir og ágætis
borðtennis var leikið. Arnar
hafði sigur í tveimur lotum,
21:17 og 21:18. Kjartanvarþó
ánægður þrátt fyrir tapið, enda
hefur hann æft mun skemur en
Arnar, eða frá síðustu áramót-
um. „Þetta var jafn og skemmti-
legur hörkuleikur hjá okkur
Arnari og ég var svolítið stress-
aður, sérstaklega í byrjun, en
ég er ánægður þrátt fyrir að ég
tapaði, því það er ekki langt síð-
an ég byrjaði í borðtennis," sagði
Kjartan að leik loknum.
í fyrsta flokki karla sigraði
Tómas Aðalsteinsson, Víkingi,
Arna Ehman úr Stjörnunni í
tveimur lotum en tapaði einni,
og í þriðja til fjórða sæti höfn-
uðu Ivar Hólm Hróðmarsson,
KR, og Kristinn Bjarnason, Vík-
ingi. Asa Þ. Þórðardóttir, KR,
hafði síðan betur í jöfnum leik
gegn Kristínu Hjálmarsdóttur,
einnig úr KR, í úrslitum í 1.
flokki kvenna. Kristín vann
fyrstu lotuna 21:16, en Ásatvær
síðari 21:19 og 21:17.
ANTOIU Bjarnason gefur hér einu barni á námskeiðinu holl
ráð áður en stokkið er af paillnum niður á dýnuna.
Morgunblaðið/ívar
FJÓRIR þeir hlutskörpustu í byrjendaflokki, f.w.: Kjartan Há-
konarson, er varð annar, þá sigurvegarinn Arnar Agnarsson
og loks Ólafur Jónsson og Magnús Kristinn Ásgeirsson, en
þeir hrepptu þriðja til fjórða sætið.
Morgunblaðið/ívar
GLAÐBEITTUR hópur glimuiðkenda hjá Fjölni, efri röð f.v.: Gunnar Pálsson, Brynjar Þór Ólafs-
son, Ómar Lindal Magnússon, Jón Kristófer Woll, Leon Már Hafsteinsson, Helgi Pétur Hannes-
son og Eggert Örn helgason. Fremri röð f.v.: Erlendur Óli Guðmundsson, Ásthildur Teitsdótt-
ir, Hafsteinn Másson, Níls Lindal Magnússon, Hinrik Harðarson.
ÆT
Islenska glíman virðist
vera í stöðugri sókn
„ÉG ER sannfærður um að það er hægt að ná til hóps barna
með því að kynna íslensku glfmuna fyir þeim. Glímusambandið
hefur undanfarin ár heimsótt grunnskóla víðsvegar um landið
og verið með glímukynningar og fengið mjög góðar undirtektir,
einkum hjá þeim yngri. Það er kveikjan að því að ég tók þeirri
áskorun að vera með glímuæfingar hjá Fjölni tvisvar í viku. Ég
er nokkuð ánægður því hér koma að jafnaði tuttugu krakkar á
hverja æfingu,“ sagði Rögnvaldur Ólafsson, fyrrum formaður
Glfmusambandsins, í samtali við Morgunblaðið.
Ivar
Benediktsson
skrífar
Undanfarin ár hefur orðið vart
vaxandi áhuga á íslenskri
glímu víðsvegar um land og að sögn
Rögnvaldar hafa
Strandamenn ög
Skagfirðingar verið
mjög að sækja í sig
veðrið eftir að
íþróttin hafi legið þar í láginni í
nokkur ár og það sama á við um
Reyðfirðinga. Einnig hefur verið
umtalsverður áhugi í Grafarvogi og
tvö undangengin vor hafa þar verið
grunnskólamót í glímu og þátttak-
endur verið um eitt hundrað í hvort
skipti. Þá átti Fjölnir í Grafarvog
tvo keppendur i glímu á Unglinga-
landsmóti UMFÍ í sumar sem leið.
„Það sem ég geri hér er að fara
í gegnum ýmsar grunnæfíngar og
láta þau takast léttilega á. Svona
verður að byija þar til betur kemur
í ljós hveijir hafa brennandi áhuga
og hveijir ekki. Þegar út í það er
komið er farið út í mun skipulagðari
æfíngar. En til að byija með er nauð-
synlegt að hafa nokkum leik með í
æfíngunum," sagði Röngvaldur.
„Eg byijaði að æfa glímu í fyrra
og mér þykir gaman, ég er líka í
Tae Kwon Do. En ég er ekki með
núna vegna þess að ég handleggs-
brotnaði nýlega og hef þurft að
sleppa átta síðustu æfíngum, en ég
losna við gipsið fljótlega og þá byija
ég aftur. Eg keppti á grunnskóla-
mótinu í vor og gekk vel,“ sagði
Gunnar Pálsson, 11 ára gamall, sem
fylgdist grannt með æfíngunni sem
Morgunblaðið heimsótti.
„Mér þykir mjög gaman, en ég
ér nýbyijuð og hef ekkert keppt
ennþá. Það hefur verið önnur stelpa
að æfa hér en hún mætti ekki í
dag. Ég ætla að halda áfram að
æfa þótt það sé svolítið erfitt að
glíma við strákana," sagði Ásthild-
ur Teitsdóttir, 10 ára, en hún var
eina stúlkan á æfingunni og gaf
strákunum ekkert eftir.
„Ég var búinn að æfa júdó í
nokkur ár en hætti því fyrra. Þetta
er í fyrsta skipti sem ég mæti á
glímuæfingu og mér finnst gaman
og stefni að því að halda áfram.
Svo æfi ég einnig íshokkí hjá
Skautafélagi Reykjavíkur," sagði
Leon Már Hafsteinsson, 12 ára, en
þrátt fyrir að vera á sinni fyrstu
æfingu, áttu þeir sem lengra voru
komnir erfitt með að fella hann.
„Það er af og frá að íslenska
glíman sé að detta upp fyrir. Það
hefur verið vaxandi áhugi undan-
farin ár þrátt fyrir stöðugt aukið
framboð á íþróttum fyrir börn,“
sagði Rögnvaldur Ólafsson þjálfari.
ÚRSLIT
Handknattleikur
Um síðustu helgi var 2. umferð leikin í 2.
og 4. flokki karla og kvenna viðsvegar um
land og urðu úrslit sem hér segir:
4.flokkur karla
1. deild - 2. umferð:
KR-ÍR 14:12
Fram - FH 18:18
Valur-KR 22:12
ÍR-Fram 23:20
FH-Valur 15:16
KR - Fram 14.14
ÍR-FH 20:18
Fram - Valur 20:17
FH-KR 10:10
Valur - ÍR 15:20
Lokastaðan
ÍR.. 6 stig
Valur
Fram v 4 stig
KR 4 stig
FH 2 stig
2. deild - A-lið:
Fylkir - Grótta 12:22
Haukar - Þór Þorl 24:24
ÍBV - Fylkir 16:22
Grótta - Haukar 21:18
ÞórÞorl.-ÍBV 25:12
IBV - Grótta 15:21
Fylkir - Haukar 18:15
Grótta - Þór Þorl 22:19
Haukar - ÍBV 16:18
ÞórÞorl. - Fylkir 26:16
Lokastaðan:
Grótta
Þór Þorl 5 stig
Fylkir 4 stig
ÍBV
Haukar
2. deild — B-lið:
Fjölnir - Keflavík 14:35
Víkingur - Breiðablik.. 14:22
Stjaman - Fjölnir 35:17
Breiðablik - Keflavík... 17:15
Stjaman - Breiðablik.. 25:18
Keflavík - Víkingur 21:17
Breiðablik - Fjölnir 30:9
Víkingur - Stjarnan.... 13:22
Fjölnir - Víkingur 14:29
Keflavík - Stjarnan 16:16
Lokastaðan:
Stjarnan 7 stig
Breiðablik 6 stig
Keflavík
Víkingur
Fjölnir
4. flokkur kvenna - Norðurriðill
KA-Þór 20:9
Þór-Völsungur 9:15
KA - Völsungur 14:13
2. flokkur karla
1. deild:
Haukar- Valur. 12:12
Haukar-ÍBV 16:25
Haukar - KR 27:18
Haukar- ÍR 24:19
Valur - ÍBV 13:16
Valur-KR 23:16
Valur-ÍR ...22:22
ÍBV-KR 23:17
ÍBV-ÍR 19:19
KR-ÍR 28:24
Lokastaðan:
ÍBV 7 stig
Haukar
Valur
ÍR
KR 2 stig
2. deild — A-riðill
21:16
KA - Fjölnir 20:15
KA-HK 24:12
KA-Þór 19:14
Stjaman - Fjölnir 18:15
Stjaman - HK 23:15
Stjaman - Þór 24:6
Fjölnir - HK 21:19
Fjölnir-Þór 17:16
HK-Þór 18:10
Lokastaðan:
KA
Stjaman
Fjölnir
HK
Þór Ak
2. deild — B-riðill:
Víkingur - Fylkir 34:13
17:17
FH - Víkingur B 21:12
Fvlkir- Fram 17:16
FH - Víkingur 20:17
Víkingur B - Breiðabiik.
Fram - FH 14:16
Breiðablik - Fylkir 18:21
Víkingur - Víkingur B .... 23:19
FH - breiðablik 21:16
Víkingur - Fram
Víkingur B - Fylkir 23:9
Breiðablik - Víkingur 17:24
Fylkir - FH .“ 14:23
23:14
Lokastaðan:
FH 10 stig
Víkingur 8 stig
Fylkir
Fram 3 stig
Breiðablik
2. flokkur kvenna
2. deild:
Haukar - Selfoss 13:13
Haukar-Stjarnan 15:16
Selfoss - Stjarnan 10.22
■Lokastaðan var sú að Stjaman hlaut 4
stig en Haukar og Selfoss 1 stig hvort.