Morgunblaðið - 23.11.1995, Síða 8

Morgunblaðið - 23.11.1995, Síða 8
lllllllllliilli(IHfc IÞRffniR KNATTSPYRNA Áhorfendur á Bemabeu hylltu leikmenn Ajax Reuter KIKI Musampa, mlðvallarlelkmaður hjá AJax, sækir að Frans- isco Buyo, markverði Real Madrid. Sá spænski hafði nóg að gera í viðureign llðanna í Madrid í gærkvöldl. AJAX á titil að verja í Meistara- deildinni og það ætti ekki að reynast erfitt haldi það áfram að leika eins og gegn Real Madrid í gærkvöldi. Hollenska liðið fór hreinlega á kostum og 2:0 sigur var alltof lítill miðað við yfirburðina enda kunnu áhorfendur á Bernabeu, heimavelli Real, vel að meta snilli gestanna - stóðu upp að leikslokum og hylltu þá. Ajax tryggði sér sigur i riðlinum og sæti í átta liða úrslitum en framtíð Real í keppninni ræðst í síð- ustu umferð sem verður 6. des- ember. Þegar í byrjun var ljóst hvert stefndi. Hinir ungu en öruggu leik- menn Ajax vissu hvað þeir voru að gera og fljótlega höfðu þeir gert tvö mörk en fengu þau ekki skráð. í fyrra skiptið var dæmd hindrun sem erfítt var að sjá og í seinna atvikinu tók Finninn Jari Litmanen, sem er 24 ára, aukaspyrnu og skaut beint í vinkilinn og inn en krafturinn var mikill og boltinn skaust út aftur og ekkert dæmt. Skömmu síðar kom skot í slá. Með öðrum orðum voru yfirburðirnir miklir en réttlætinu var ekki fullnægt fyrr en eftir hlé. Litmanen braut ísinn um miðjan seinni hálfleik, fékk sendingu frá hægri inn fyrir vörn Real frá Níger- íumanninum Finidi George og skor- aði með viðstöðuiausu og öruggu skoti. Patrick Kluivert, sem er 19 ára, innsiglaði sigurinn 10 mínútum síðar, skoraði með skalla eftir send- ingu frá Marc Overmars. Ferencvaros eygir von Ferencvaros eygir von um að fylgja Ajax upp úr D-riðli eftir 3:3 jafntefli við Grasshopper. Ferencvaros vann 3:0 í viðureign liðanna á útivelli og útlitið var bjart í stöðunni 2:1 í hálfleik en hinn 19 ára miðjumaður, Krisztian Lisztes, kom heimamönnum yfir með glæsi- legu marki um miðjan seinni hálf- leik. En gleðin var skammvinn, rétt eins og þegar Nestor Subiat jafnaði 1:1 tveimur mínútum eftir að miðju- maðurinn Florian Albert hafði skor- að fyrir heimamenn á 20. mínútu. Alexandre Comisetti skoraði með skalla og jafnaði 2:2 á 48. mínútu og ekki leið á löngu þar til miðheij- inn Ali Ibrahim frá Ghana hafði gert þriðja mark Grasshopper. Útlit var fyrir fyrsta sigur svissneska liðs- ins í riðlinum og efldist sóknarleikur þess frekar en hitt. Massimo Lomb- ardo fékk kjörið tækifæri til að inn- sigla sigurinn fímm mínútum fyrir leikslok en skaut yfír. Heimamenn sneru vörn í sókn, Berndt Haas braut á Elek Nyilas og sá síðarnefndi fékk dæmda vítaspyrnu, sem hann skor- aði úr. Spartak með fullt hús Spartak átti ekki í erfiðleikum með að vinna Blackburn 3:0 og er eina liðið í Meistaradeildinni sem hefur ekki tapað stigi, er með 15 stig eftir fimm leiki. Hins vegar var þetta fjórða tap Blackburn og stærsti ósigurinn en helsta vandamál liðsins hafði ekkert með úrslitin að gera heldur framkomu leikmanna. Colin Hendry braut illa á mótheija og var vikið af velli stundarfjórðungi fyrir leikslok en brottvikningin féll í skuggann fyrir slagsmálum sam- heijanna og ensku landsliðsmann- anna Graeme Le Saux og David Batty í byijun leiks. Rifrildi samheijanna var sem punkturinn yfír i-ið varðandi það sem gengið hefur Blackburn í mót í Evrópukeppninni í haust en mörk Spartak undirstrikuðu velgengni rússneska liðsins sem hafði tryggt sér sæti í átta liða úrslitum áður en flautað var til leiks. Mikið meiri kraftur var í heima- mönnum. Dmitri Alenitchev gerði glæsilegt mark um miðjan fyrri hálf- leik og Yuri Nikiforov og Ramiz Mamedov fylgdu því eftir í byrjun seinni hálfleiks. Leikið var 110 gráðu frosti og mátti halda að leikmenn Blackburn hefðu frosið þegar kom að sóknarleiknum en þeir áttu aðeins sex skot að marki. Hendry verður í banni þegar Blackburn mætir Rosenborg en Ser- gei Yuran hjá Spartak fékk að sjá gula spjaldið eins og í síðasta leik og tekur út bann í leik Spartak gegn Legia Varsjá. „I sannleika sagt er ég mjög hissa,“ sagði Hendry um brottvikninguna. „Náunginn kom þvert yfír teiginn og var ákveðinn í hvað hann ætlaði að gera.“ En hann hrósaði heimamönnum. „Spartak sýndi að liðið er lang best í riðlinum." Stórsigur hjá Rosenborg Rosenborg á möguleika á að fara í átta liða úrslit með Spartak úr B-riðli eftir 4:0 sigur gegn Legia Varsjá í Þrándheimi. Norðmennirnir sóttu stíft og virtust fara í gegnum vörn gestanna að vild en markvörð- urinn Maciej Szczesny kom í veg fyrir að mörkin yrðu fleiri. „Eg er orðlaus,“ sagði Nils Arne Eggen, þjálfari Rosenborg. „Ég tek ofan fyrir liðinu sem hefur ekki sótt betur." Roar Strand gerði fyrsta markið á 17. mínútu eftir að hafa leikið á tvo mótheija. Harald Bratt- bakk bætti öðru við eftir að hafa snúið mótherja af sér á síðustu mín- útu fyrri hálfleiks. Jahn Ivar Jakobs- en gerði þriðja markið með skalla um miðjan seinni hálfleik og vara- maðurinn Vegard Heggem átti síð- asta orðið þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu undir lokin. Fyrsta Evrópumark Gazza Paul Gascoigne gerði fyrsta mark sitt í Evrópukeppni en það nægði Rangers ekki til að eiga von um að komast áfram upp úr C-riðli. Adrian Ilie jafnaði fyrir Steaua Búkarest snemma í seinni hálfleik og fleiri urðu mörkin ekki. Þar með lá fyrir að liðin sætu eftir því Dortmund vann Juventus 2:1 í sama riðli. Gascoigne skoraði eftir liðlega hálftíma leik og heimamenn fengu nokkur tækifæri til að bæta við áður en gestirnir jöfnuðu, Brian Laudrup lagði upp markið fyrir Gazza sem hljóp óáreittur langan veg áður en hann lét vaða af 12 metra færi. Sögulegt tap Juve Dortmund vann Juventus 2:1 og tryggði sér sæti í átta liða úrslitum en Juve hafði ekki tapað stigi og var þegar öruggt með sigur í riðlin- um. Fyrir bragðið stillti Marcello Lippi, þjálfari, upp hálfgerðu varaliði og það mátti sætta sig við fyrsta tap félagsins í Evrópuleik á heimavelli í 26 ár. Michael Zorc gerði fyrra mark gestanna á 29. mínútu með föstu skoti og Lars Ricken bætti öðru við um miðjan seinni hálfleik. Hann fékk boltann frá mótheijanum og varnar- manninum Massimo Carrera, lék á markvörðinn Angelo Peruzzi og skoraði af öryggi. Alessandro Del Piero, sem kom inná sem varamað- ur, minnkaði muninn rétt áður en flautað var til leiksloka og hefur þá skorað í öllum fimm Evrópuleikjum Juve að þessu sinni. „Borussia lék mjög vel,“ sagði varnarmaðurinn Jurgen Kohler hjá Dortmund, „og heppnin var með okkur.“ Lippi sagði að menn sínir hefðu gert margt vel en mistökin hefðu samt verið of mörg. „Ég varð að láta nokkra leikmenn mína hvíla sig og tók ekki áhættu með aðra en svona er þetta.“ Fögnuður í Aþenu Grísku meistararnir Panathinai- kos áttu nokkuð auðvelt með 2:0 sigur á Álaborg í A-riðli og eru komnir í 8-Iiða úrslit keppninnar. Danir komust næst því að skora í síðari hálfleik er Jans Jessen átti skot í stöng. Þeir misstu síðan Jan Petersen útaf undir lokin er hann fékk aðra áminnigu sína í leiknum. „Þetta er stór dagur fyrir gríska knattspyrnu,“ sagði Argentínumað- urinn Juan Ramon Rocha sem er þjálfari Panathinaikos. „Við eigum nú aðeins einn leik eftir, gegn Nant- es í Frakklandi og við munum reyna að halda efsta sætinu í riðlinum." í hinum leiknum í A-riðli náði Nantes jafntefli 2:2 gegn Porto í Portúgal og gerði þar með nánst út um vonir portúgalska liðsins á að komast áfram. „Nú snýst þetta dæmi um það hvort við náum að vinna Álaborg í Danmörku og að Nantes tapi gegn Panathinaikos," sagði Bobby Robson, þjálfari Porto. Reynald Pedros gerði bæði mörk franska liðsins og það fyrra á þriðju mínútu með langskoti sem fór yfir Vitor Baias, markvörð Porto. Átta mínútum síðar jafnaði Serbinn Ljub- imko Drulovic eftir sendingu frá Brasilíumanninum Emerson Costa. Eftir það réð Porto lögum og lofum á vellinum en það var Nantes sem náði forystunni þvert á gang leiksins er Pedros braust í gegnum vörn heimamanna og skoraði. Jose Carlos jafnaði á 56. mínútu en besta færi . Porto í leiknum kom þó á 75. mín- útu er Domingos Oliveira misnotaði vítaspyrnu. ■ Staðan / D4 Reuter TIM Sherwood, fyrirllöl Blackburn, skammar Le Saux eftir að hann barði Davld Batty, samherja þeirra í enska liðinu. Le Saux sló sam- herja! GRAEME Le Saux, bakvörður Blackburn og enska landsliðs- ins, var í sviðsljósinu í gær- kvöldi en ef að líkum lætur á framkoma hans í Moskvu eftir að koma honum í koll. Snemma leiks ætlaði hann að ná boltan- um en David Batty, samheiji hans fór af stað í sama til- gangi og lentu þeir saman. Einhver orðaskipti áttu sér stað og allt í einu sló Le Saux Batty í hálsinn en fyrirliðinn Tim Sherwood gekk á milli og kom í veg fyrir hugsanlegt annað högg frá varnarmannin- um. Ray Harford, yfirþjálfari Blackburn, sagði að ef að- gerða yrði þörf yrði tekið á málinu hjá félaginu en hann sagðist ekki þurfa að sjá atvik- ið aftur á myndbandi. Le Saux átti síðan sök á öllum þremur mörkum Spartak og var tekinn af velli skömmu eftir þriðja markið. Harford sagði að ástæðan hefði verið sú að hann hefði kvartað yfir eymslum í hendi. Oleg Romantsev, þjálfari Spartak, sagðist hafa verið undrandi á uppákomunni. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég sé menn gera út um leik á vellinum með slagsmálum. Ég hafði vissar áhyggjur fyrir ieikinn en eftir síagsmálin var ég viss um að auðvelt yrði að sigra svo ósamstiga lið. Fyrir leikinn sagði ég víð menn mína að þeir væru að fara að spila við 11 menn sem væru tilbúnir að beijast hver fyrir annan í 90 minútur en ég átti ekki von á að þeir berðust hver við ann- an.“ Héðinn ekki tilbúinn „HÉÐINN er ekki alveg tilbúinn og það hefði verið ósanngjarnt gagnvart honum að setja hann inn á í þessum leik eins og hann þróaðist,“ sagði Guðmundur Karlsson, þjálfari FH, en Héðinn Gilsson er nú orðinn löglegur með FH-liðinu í handknattleik og var í fyrsta skipti á leik- skýrslu í gærkvöldi gegn Aftur- eldingu. „Hann vantar meiri styrk aukið sjálfstraust og leik- form áður en hann nær sínum fyrri styrk. Héðinn hefur gengið í gegnum alvarleg meiðsli og það tekur sinn tíma að komast af stað að nýju,“ bætti Guðmundur við. VIKINGALOTTÓ: 18 21 24 26 44 46 + 12 35 45

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.