Morgunblaðið - 29.11.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.11.1995, Blaðsíða 8
8 E MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ - AUGLYSING 4 Hógværðin dugar ekki lengur - œtlum að vera áberandi og auglýsa málstað okkar, segir Guðmundur Magnússon, formaður ferlinefndar Sjálfsbjargar lUær 80 manns hafa sótt aðlögunarnámskeiðin Lilja Þorgeirsdóttir: Fólk þarf að takast á við nýtt líf og spyrja ýmissa spuminga Alþjóðadagur fatlaðra verður haldinn hátiðlegur 3. desember nk. Hingað til hafa verið tveir alþjóðadagar fatlaðra á hverju ári. Annar hefur verið í mars og hafa Alþjóðasamtök fatlaðra staðið að honum. Sameinuðu þjóðirnar hafa hinsvegar verið ^ með 3. desember sem alþjóðadag fatlaðra. En nú hefur verið ákveðið að hætta að halda upp á dag fatlaðra í mars og einbeita sér þess í stað að 3. desember. Ferlinefnd Sjálfsbjargar hefur öðru hverju veitt viðurkenningar fyrir gott að- gengi, en þó ekki reglulega. Það hefur hingað til farið þannig fram, að nefndin hefur sjálf tilnefnt hús til að veita viðurkenningu. Guðmundur Magnússon er formaður ferlinefndar Sjálfsbjargar: „í sumar ákváðum ^ við að auglýsa, þannig að stofnanir og fyrirtæki gætu óskað eftir úttekt og fengið viðurkenningu ef þau stæðust allar kröfur," segir hann. „Það var auglýst í dagblöðum, en aðeins fimm aðilar óskuðu eftir úttekt. Nú er verið að taka þá út, en þegar er ljóst að a.m.k. einn aðili stenst ekki kröfur og fær ekki viðurkenningu.“ Samkeppni um leikþátt í vor sem leið var líka ákveðið að efna til leikritasamkeppni um ferlimál og skyldu verðlaun fyrir besta leikþáttinn afhent 3. desember. Þeir sem skrifuðu undir auglýs- » inguna voru Sjálfsbjörg, Halaleikhópurinn, leikhópurinn Júlía á Akureyri og Samband islenskra sveitarfélaga. „Okkur hreyfihömluðum hefur þótt sem við höfum lent svolítið úti á kanti á undan- förnum árum í umræðunni í þjóðfélaginu og áherslum stjórnvalda,“ segir Guðmundur. „Það er ýmislegt sem hefur valdið því, m.a. það að aðrir hópar voru skemmra á veg komnir. En fyrir bragðið fannst okkur við vera svolítið afskiptir. Við vildum því reyna að ,,markaðssetja“ okkur núna almennilega.“ Hátíð í Háskólabíói í Reykjavík verður dagur fatlaðra haldinn hátíðlegur í Háskólabíói 3. desember. Meðal skemmtikrafta sem koma fram eru Bubbi Morthens, Laddi og KK. Byrjað er að æfa verðlaunaleikritið, sem heitir „Fjötur um fót.“ Persónur eru þijár; maður i hjólastól, sem Guðmundur Magnússon leikur, heimilishjálp, sem Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikur og kerfiskarl, sem Gunnlaugur Helgason leikur. Hávar Sigurjónsson leikstýrir og Hlin Gunnarsdóttir sér um leikmynd. Höfundur eða höfundar koma í ljós 3. desember, þegar verðlaun fyrir leikþáttinn verða veitt. Sjö leikþættir bárust i samkeppnina og höfðu allir nokkuð til síns ágætis, að sögn Guðmundar. Leikfélag Akureyrar lætur ekki sitt eftir liggja til stuðnings Sjálfsbjörg á þess- um degi, því að leikarar úr LA leiklesa leikþáttinn sem fær önnur verðlaun. Það gera þeir á sérstakri hátíðarsamkomu á Akureyri og vonir standa til að unnt verði að veita einu eða tveimur fyrirtækjum þar í bæ viðurkenn- ingar fyrir gott aðgengi við þetta tækifæri. Ferlimálin eru Guðmundi auðvitað hugstæð. Hann segir að í skipulags- og bygg- ingalög vanti úttektarskyldu. Lögin sjálf, sem eru frá 1978, séu í sjálfu sér ágæt og í þeim efnum stöndum við framar en mörg lönd í Evrópu. Hinsvegar stöndum við þeim langt að baki hvað varðar framkvæmd, þ.e. að fara eftir lögunum. „Það er ennþá verið að byggja hús sem eru gjörsamlega óaðgengileg,“ segir Guðmundur. „Ég kom nýlega í nýtt félagsheimili á Suðurlandi, þar sem reyndar eru skáar utanhúss, allbrattir að vísu, en allar dyr innanhúss eru 65 sm breiðar. Það er víða verið að gera allvel, en ekki gengið alla leið. Það verður bara svo hallærislegt" Að sögn Guðmundar er fyrirhugað að veita Reykjavíkurborg viðurkenningu í Háskólabíói 3. des. fyrir átak í ferlimálum í sumar, sem hefur skilað góðum árangri. Enga óþarfa hógværð „Við ætlum að vera áberandi 3. desember og auglýsa Sjálfsbjörg í leiðinni,“ segir Guðmundur. „Nei, enga óþarfa hógværð! Hún hefur ekki skilað nógu miklu. Við verðum að sýna „kurteislega" frekju. Það veitir ekki af að vera ákveðin núna, því að það er vegið að fötluðum á öllum sviðum. Lífeyrismál og bílakaupamál vega þar þungt, enda eru þau stórmál fyrir fatlað fólk. Alls hafa 78 manns sótt aðlögunar- námskeið Sjálfsbjargar frá upphafi, i þau fimm skipti sem námskeiðin hafa verið haldin. Fyrsta námskeiðið var haldið árið 1990. í ár var námskeiðið haldið í fyrsta sinn í Sjálfsbjargarhúsinu í Reykjavík, en fyrri námskeið voru í Reykjadal í Mosfellsbæ. Aðlögunarnámskeiðin eru sniðin að finnskri fyrirmynd og hafa gefið mjög góða raun, að sögn Lilju Þorgeirsdóttur, félags- málafulltrúa Sjálfsbjargar, sem hefur haft umsjón með þessum námskeiðum frá upphafi. Námskeiðið er hluti af félagslegri endurhæfingu. Markmiðið er að styðja hinn fatlaða og fjölskyldu hans við breyttar aðstæður. Á námskeiðinu er fjallað um félagslegar afleiðingar fötlunar. Fluttir eru stuttir fyrir- lestrar um tilfinningaleg viðbrögð við fötlun og viðbrögð vina og vandamanna. Trygginga- mál eru tekin fyrir, svo og réttindi fatlaðra varðandi ýmsa þjónustu og starfsemi, sem tengist fötluðum. Þá er starfsemi Sjálfsbjargar og íþróttasambands fatlaðra kynnt. Unnið er í litlum hópum á aðlögunar- námskeiðinu. Þar eru rædd ýmis mál sem snerta daglegt líf fatlaðs fólks, bæði mál sem öllum eru sameiginleg og svo sérstök vanda- mál þátttakenda. Aðlögunarnámskeiðin eru einkum miðuð við fólk eldra en 16 ára, sem hefur fatlast af einhverjum orsökum. Þau eru fyrir fólk sem hefur lent í slysi eða fatlast vegna sjúkdóms, en einnig fyrir þá sem hafa verið fatlaðir frá fæðingu, en eru að huga að því að flytja að heiman. 15 til 20 manns geta sótt hvert námskeið. „Það hefur verið skortur á félagslegri endurhæfingu," segir Lilja Þorgeirsdóttir. „Fólk kemur heim eftir líkamlega endur- hæfingu, með varanlega fötlun. Þá þarf það virkilega að takast á við nýtt líf og spyrja sig ýmissa spurninga: Þarf það að skipta um vinnu, skipta um húsnæði o.s.frv.? Á nám- skeiðinu getur það fengið upplýsingar á einum stað um réttindamál sín, þjónustu og starfsemi sem tengist fötluðum. Sálfræðingur heldur erindi um tilfinningaleg viðbrögð við fötlun og hver og einn segir frá sinni reynslu. Þetta hefur gefið mjög góða raun, - við höfum fundið að fólk hefur haft mikið gagn af námskeiðinu.“ Lilja segir að margir þátttakendur á námskeiðunum hafi orðið mun virkari en þeir voru áður, - farið í Starfþjálfun fatlaðra, fengið ibúð á vegum Öryrkjabandalagsins eða Sjálfsbjargar, farið í Halaleikhópinn o. s. frv. Þannig ýti aðlögunarnámskeiðið við fólki. „En fólk er ekki tilbúið mjög stuttu eftir slys að fara á svona námskeið," segir hún. „Það er í fyrsta lagi eftir eitt ár, og yfir- leitt þurfa að líða tvö, þrjú eða jafnvel fjögur ár.“ Námskeiðin hafa verið haldin um helgar og fyrstu fjögur námskeiðin voru haldin í Reykjadal, þar sem Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra rekur sumardvalarheimili fyrir böm. Síðasta námskeiðið var haldið í Sjálfs- bjargarhúsinu, Hátúni 12, dagana 20. og 21. maí 1 vor. FJÖLSKYLDUSAMKOMA í Háskólabíói á alþjóðadegi fatlaðra sunnudaginn 3. desember 1995 kl. 14. Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, gengst fyrir samkomu þennan dag og leggur þar sérstaka áherslu á ferlimál. Viðurkenningar fyrir gott aðgengi hreyfihamlaðra verða veittar nokkrum fyrirtækjum sem eru til fyrirmyndar hvað þetta snertir. Frumfluttur verður leikþátturinn „Fjötur um fót," sem vann til 1. verðlauna í samkeppni Sjálfsbjargar sem haldin var í haust. Fulltrúi Reykjavíkurborgar fær viðurkenningu frá Sjálfsbjörg í Reykjavík fyrir mikið átak til að gera borgina auðveldari yfirferðar hreyfihömluðum, hjólreiðamönnum og fólki með barnavagna. Bubbi Morthens, KK og Laddi skemmta milli atrida SJÁLFSBJÖRG • 29. nóvember 1995 • Umsjón: HELST/ Einar Örn Stefánsson • Umbrot: Hugverkasmiðja / Helgi Sig. • Ljósmyndir: Róbert Ágústsson o.fl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.