Morgunblaðið - 13.12.1995, Page 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 199S
BLAD
Fimmtungs söiuaukning
hjá Iceland Seafood Ltd.
Stefnir í eitt besta
söluár fyrirtækisins
STARFSEMI Iceland Seafood Ltd.,
dótturfyrirtækis ÍS í Bretlandi, hef-
ur gengið nrjög vel í ár, en það er
einnig með söluskrifstofur í Frakk-
landi og Þýzkalandi. Salan á mar-
kassvæði fyrirtækisins í Evrópu hefur aukizt um 19% milli ára talið í sterl-
ingspundum. Mestu munar um aukningu í sölu á sérvörum svo sem neytend-
aumbúðum, 30% aukningu í rækjusölu, aukna síldarsölu og sölu á lýsingi
frá Namibíu. Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir
að allt bendi til þess að þetta verði eitt bezta söluár fyrirtækisins, enda fari
salan líklega langleiðina í 70 milljónir punda, um 7 milljarða króna.
Nú liggja fyrir upplýsingar um sölu
fyrstu 11 mánuði þessa árs, en þá
hefur alls verið selt fyrir 65,5 milljón-
ir punda, 6,6 milljarða króna. Á sama
tíma í fyrra nam heildarsalan 55,1
milljón punda, um 5,5 milljörðum
króna. Mest er söluaukningin á Bret-
landseyjum, 22%, 10% í Frakklandi
og tengdum markaðssvæðum og sala
skrifstofunnar í Þýzkalandi hefur auk-
izt um 5%.
Afkoma fyrirtækisins er einnig
betri en á sama tíma í fyrra. Eftir
fyrstu 10 mánuði ársins var rekstrar-
afgangur fyrir skatta um 16 milljónir
króna, en var um 14 milljónir á sama
tíma í fyrra. Þá hefur starfsfólki við
markaðsstörf verið fjölgað og er það
ein ástæðan fyrir því að þessi árangur
hefur náðst á árinu.
Sérvaran er nú um 26% sölunnar
Höskuldur Ásgeirsson segir horfur
fyrir næsta ár nokkuð góðar, en þær
velti þó á ýmsum þáttum. Þar megi
nefna sölu á fiski frá UTRF á Kamt-
sjatka og markaðssetningu á sérvöru,
en hún skipi nú æ stærri sess í sölu
fyrirtækisins. „Sérvaran er nú um 26%
sölunnar en var um 20% 1993. Von-
andi heldur sá þáttur starfseminnar
að aukast, en lítill þorskkvóti og erfið-
leikar í botnfiskvinnslu á íslandi, geta
dregið úrþeim möguleikum, sem fyr-
ir hendi virðast vera. Verð á frystum
þorsk- og ýsuflökum á mörkuðunum
hefur varla hækkað í nokkur ár og
er ljóst að iðnaðurinn þarf á hækkun
að halda. Hins vegar er það spurning
hvort markaðurinn þolir slíka hækk-
un.
Vantar síld upp í samninga
Síldarsalan hefur gengið afar vel á
þessu ári og vonandi verður svo einn-
ig á því næsta. Þrátt fyrir að frysting-
in verði nú meiri en nokkru sinni fyrr,
vantar okkur enn síld upp í samn-
inga. Mest af síldinni fer til Þýzka-
lands, Póllands, Bretlands og Frakk-
lands,“ segir Höskuldur Ásgeirsson.
Rannsóknir
3 Loðnan mikilvæg
fæða fyrir
þorskinn
Aflabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
Wlarkaðsmál
3 Lltilla breytinga
að vænta
á fiskafla
í N-Atlantshafi
Vidtal
7 Reginn Grímsson
bátasmiður
ÞORSKINUM LANDAÐ
Morgunblaðið/Birgir Þórbjamaron
Fréttir Markaðir
Gífurleg
þorskgengd
við Vestfirði
• GÍFURLEG þorskgengd
er nú fyrir Vestfjörðum og
eru togararnir að fá upp í
tvö tonn á mínútu í trollið
og toga þeir bara í 10 til 15
mínútur til að taka ekki of
mikið í einu. Margir eru í
vandræðum með þorskkvóta
og verða því að sætta sig
við að láta þessa miklu
möguleika eiga sig. „Ég hef
aldrei séð annað eins,“ segir
Björn Valur Gíslason, skip-
stjóri á Sólbergi./2
Deilt um
vörumerki
• SÍF vinnur nú að þvi með
lögfræðingum sínum að
hnekkja skráningu ákveðins
vörumerkis, sem spænski
innflytjandinn Armengol,
hefur fengið einkaleyfi á.
Armengol er keppinautur
Copesco SÍFI sölu og dreif-
ingu á saltfiski í Katalóníu.
Vörumerki sem Armengol
hefur skráð er svokallað
hornmerki OTM, sem er
framleiðslumerki Þórsbergs
hf. á Tálknafirði./2
Beiti gengur
vel með trollið
• BEITIR NK landaði 1100
tonnum aðfaranótt mánu-
dags hjá Síldarvinnslunni hf
Neskaupstað. Að sögn Sig-
urjóns Valdimarssonar skip-
stjóra ganga veiðar með
troll þokkalega, en eins og
áður hefur komið fram í
Morgunblaðinu er Beitir eitt
íslenskra loðnuskipa með
flottroll við veiðarnar./4
Fiskverð
hefur hækkað
• ÚRSKURÐARNEFND
sjómanna og útgerðar-
manna hefur borist 13 mál
til umfjöllunar, en hlutverk
nefndarinnar er að ná sátt-
um í deilum um fiskverð í
föstum viðskiptum. Helgi
Laxdal, fyrsti formaður
nefndarinnar, telur að
þarna hafi náðst velheppnuð
aðferð við ákvörðun fisk-
verðs og til að draga úr
þátttöku sjómanna í kvóta-
viðskiptum. Helgi bendir á
að verð á þorski og rækju
hafi til dæmis hækkað veru-
lega vegna úrskurða nefnd-
arinnar og friður hafi skap-
ast um þessi mál./8
Stöðugleiki
við Noreg
• STÖÐUGLEIKI ríkir í
botnfiskveiðum Norðmanna
um þessar mundir. Þorskafli
var 340.000 tonn í fyrra, sá
sama í ár og reiknað er með
að sama magn veiðist á
næsta ári. Ysuafli er einnig
stöðugur í um 65.000 tonn-
um, en ufsaveiði hefur auk-
izt nokkuð og er nú um
200.000 tonn. Afli af karfa
fer einnig vaxandi og er
áætlað að af honum veiðist
20.000 tonn á næsta ári, en
í fyrra varð karfaaflinn um
14.000 tonn. Þorskstofninn
í Barentshafi stendur vel,
en lítið er um loðnu og síld
á þeim slóðum enn sem kom-
ið er.
., s Veiðar
Norðmanna
Þorskur
tonn
Ufsi
200
Karfi
1994
1995
1996
Rússar veiða
meira af þorski
þús. Veiðar Rússa |
tonn
350
50 - JWimnni i .......
Ufsi og Karfi
0 . - .
1994 1995 1996
• FISKAFLI Rússa er einn-
ig nokkuð stöðugur, einkum
þorsk- og ýsuafli. Á þessu
ári er reiknað með að þorsk-
afli þeirra verði um 330.000
tonn og búizt er við svipuð-
um afla á næsta ári. Þetta
er nokkur aukning frá árinu
1994, þegar 316.000 tonn
af þorski veiddust. Ýsuafl-
inn er í kringum 50.000
tonnin þessi árin. 1994 var
hann 52.000 tonn, aflinn í
ár er áætlaður 50.000 tonn
og búizt er við 55.000 tonna
afla á næsta ári./S