Morgunblaðið - 14.12.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
Morgunblaðið/Kristinn
fH* rjpsifilafefö
1995
FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER
BLAD
HANDKNATTLEIKUR
Brasilíumenn sigur-
stranglegastir í HM
BRASILÍUMENN eru taldir sigurstranglegastir í
heimsmeistarakeppninni í Frakklandi 1998 hjá
veðbönkum i London. Líkurnar á þvi eru 5-1, en
síðan kemur landslið Þýskalands 7-1, Frakklands
8-1 og Ítalíu og Spánar 10-1.
l’Equipespáir um
sigurvegara í Evrópu
FRANSKA blaðið l’Equipe spáði í gær hvaða níu
þjóðir verði sigurvegari í riðlunum níu i undan-
keppni HM í Evrópu og tryggi sér þar með rétt
til að leika í HM i Frakklandi 1998. Blaðið spáir
því að Rúménia verði sigurvegari í 8. riðli, sem
Islendingar leika í, en önnur lið eru: Króatía, ítal-
ía, Sviss, Svíþjóð, Rússland, Tékkland, Holland og
Þýskaland. Blaðið spáir því að eftirtalin lönd berj-
ist um fimm sæti sem eftir eru: Danmörk, Eng-
land, Noregur, Skotland, Búlgaría, Spánn, Belgia,
írland og Portúgal.Þá spáir blaðið því að Argent-
ína, Uruguay og Kólumbía komist frá S-Ameríku,
ásamt Bolivíu, Chile eða Paraguay, en fjögur lið
koma þaðan auk heimsmeistara Brasilíu.
Mörg verkefni hand-
knattleiksdómara
ÍSLENSKIR handknattleiksdómarar hafa nóg að
gera á næstunni. Þeir Rögnvald Erlingsson og
Stefán Arnaldsson dæma í dag leik Noregs og
Rúmeniu í 8-liða úrslitum á HM kvenna i Austur-
ríki, en þeir félagar þykja hafa staðið sig nýög vel
á mótinu. í janúar munu þeir félagar dæma leik
Winterthur og Barcelona í Erópukeppni meistara-
liða en leikurinn verður i Sviss.
Guðjón L. Sigurðsson og Hákon Siguijónsson
dæma einnig í Evrópukeppninni í janúar, en þeir
munu dæma leik Glesnburg frá Þýskalandi og
ASKI Ankara frá Tyrklandi í EHF-keppninni.
Tveir íslenskir eftirlitsdómarar hafa einnig
fengið verkefni í janúar. Gunnar Gunnarsson fylg-
ist með leik Bidasoa frá Spáni og ABC Braga»frá
Portúgal og Kjartan Steinbach verður eftirlits-
dómari á leik Bækkenlaget og Valencia í Evrópu-
keppni kvenna.
Eyjólfur í bann
EYJÓLFUR Bragason, þjálfari 1. deildarliðs ÍRí
handknattleik, hefur verið handknattleiksliðs ÍR,
var úrskurðaður í eins leiks bann á fundi stjórnar
aganefndar HSÍ á þriðjudag. Hann tekur út leik-
bannið 7. janúar er ÍR mætir Gróttu á Seltjarnar-
nesi. Eyjólflu• fær bannið fyrir að hafa fengið að
sjá rauða spjaldið í leik ÍR og Hauka á dögunum,
þar sem hann var með mótraæli við dómara ieiks-
ins.
Tvö úr 2.
deild í átta
liða úrslit
KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA
Hollendingar tryggðu sér sæti í EM í Englandi á Anfield Road
Átta Ajax-leikmenn
léku gegn írum
TVÖ lið úr 2. deild, Fram og
Breiðablik, eru komin í átta
liða úrslit bikarkeppni karla í
handknattleik og lið Völsungs
frá Húsavík er einnig komið í
8-liða úrslit en Húsvíkingar
senda aðeins lið til keppni B-
liða. KA, Valur, Selfoss og Vík-
ingur eru þau Iið úr 1. deild-
inni sem komin eru áfram í
keppninni en eitt sæti er enn
óskipað en b-lið Víkings mætir
ÍBV á laugardaginn.
Leikur Vals og FH var
hörkuspennandi og réðust úr-
slit ekki fyrr en á síðustu mín-
útu. Á myndinni hér fyrir ofan
reynir Valsmaðurinn Ólafur
Stefánsson að koma knettinum
inn á Sigfús Sigurðsson á lín-
unni, en vörn FH-inga var
sterk fyrir og lokaði öllum leið-
um að markinu.
Hollendingar tefldu fram átta
leikmönnum frá Evrópumeist-
araliði Ajax í byijunarliði sínu gegn
írum á Anfield Road í gærkvöldi,
þegar þeir lögðu íra að velli og
tryggðu sér þar með síðasta sætið í
Evrópukeppni landsliða, sem fer
fram í Englandi næsta sumar. Það
var táningurinn hjá Ajax Patrick
Kluivert, sem er nýorðinn 19 ára,
sem skoraði bæði mörk Hollands, á
30. og 88. mín. Leikmennirnir frá
Ajax sem léku voru markvörðurinn
Edwin van der Sar, vamarmennimir
Michael Reiziger, Danny Blind,
Winston Bogarde og Ro'nald de Boer,
miðvallarleikmennimir Edgar Davids
og Patrick Kluiveit, ásamt sóknar-
leikmanninum Marc Overmars. Tveir
fyrmm leikmenn Ajax, Clarence See-
dorf, miðvallarspilari, sem var seldur
til Sampdoría fyrir þetta keppnis-
tímabil og Dennis Bergkamp, Ars-
enal, léku einnig — ásamt Glen Held-
er, Arsenal, sem lék með Sparta
Rotterdam í Hollandi. Aron Vinter,
einnig fyrrnm leikmaður Arsenal,
kom inná sem varamaður.
Yfirburðir hins unga liðs Hollands
vora miklir og átti liðið hæglega að
vinna stærri sigur — Bergkamp átti
skot í stöpg og Davieds skalla í slá,
og áttu Irar, sem léku með fímm
leikmenn yfir 30 ára, í miklum erfíð-
leikum.
írar léku sinn síðasta leik undir
stjóm Jack Charlton, sem hefur
stjórnað þeim í 93 leikjum, íjórtán
tapleikjum.
Dartny Blind, fyrirliði Hollands,
var bókaður og mun hann missa af
fyrsta leiknum í, Englandi næsta
sumar, þar sem eftirfarin sextán lið
mæta til leiks: England, Portúgal,
Spánn, Frakkland, Sviss, Þýska-
land, Tékkland, Ítalía, Króatía,
Rúmenía, Tyrkland, Búlgaría, Rúss-
land, Skotland, Danmörk og Hol-
land.
Leikið verður í fjórum riðlum í
Englandi og komast efstu tvö liðin
úr hveijum riðli í 8-liða úrslit.
ÓLYMPÍULEIKAR: 151 MILUARDUR FYRIR SJÓNVARPSRÉTT / C8