Morgunblaðið - 14.12.1995, Blaðsíða 6
6 C FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BÖRINI OG UNGLINGAR
Ljúflingamót TBR í badminton
Sjö böm töpuðu
ekki leik í mótinu
UÚFLINGAMÓTTBR íbad-
minton fór fram í húsnæði
félagsins um síðustu helgi.
Alls tóku um fjörutíu börn tíu
ára og yngri þátt í mótinu frá
fimm félögum, TBR, Víkingi,
KR, UMFA og frá Flúðum í
Hrunamannahreppi. Hver
keppandi fékk að leika þrjá
* leiki hið minnsta.
Sö krakkar komust í gegnum
alla fjóra leiki sína án þess
að tapa og fengu þeir veglegar
töskur utan um spaða sín að laun-
■■■■ um. Þau voru: Ás-
ívar dís Hjálmsdóttir,
Benediktsson Daníel Reynisson,
skrífar Elvar Haraldsson,
Halldóra Elín Jóhannsdóttir, Helgi
Jóhannsson, Hlynur Snorrason og
Siguijón Jóhannsson.
„Ég vann alla fjóra leiki mína
og það var ekki mjög erfitt,“ sagði
Helgi Jóhannsson, að keppni lok-
inni, en hann æfír hjá KR. „Þetta
'er annar veturinn sem ég æfí
badminton hjá KR. Mér fínnst
mjög gaman og æfí enga aðra
íþrótt, einn kunningi minn er líka
að æfa. Það er nokkuð stór hópur
sem æfír hjá félaginu og áhuginn
er mikill. Ég ætla að halda áfram
að æfa og verða betri,“ sagði þessi
tíu ára snáði, glaður með niður-
stöðu dagsins.
Ásdís Hjálmsdóttir var annar
keppandi sem komst taplaus í
• gegnum keppnina. hún sagðist
vera tíu ára og æfa hjá Víkingi
undir stjóm Helga Magnússonar
og vera í Breiðagerðisskóla. „Það
var bara fyrsti leikurinn sem var
erfíður, þá sigraði ég ellefu fímm
og ellefu níu. Hinir leikimir vom
léttari. Ég hef æft badminton í
tvö ár og fínnst mjög gaman. Með
mér æfa þrjár bekkjarsystur mín-
ar,“ sagði Ásdís. Hún hvað nokk-
uð stóran hóp æfa hjá Víkingi og
þeim væri skipt niður eftir getu.
Ásdís er í stelpuhópnum, „en ég
stefni að því að komast í blandaða
hópinn, þar em þeir sem em
betri.“
Ertu að æfa fleirí íþróttagrein-
ar?
„Nei, ég var í handbolta og svo
var ég líka að læra á blokkflautu,
en er núna bara í badminton og
ætla að einbeita mér að því,“ sagði
þessi ákveðna unga badminton-
telpa úr Víkingi, Ásdís Hjálms-
dóttir.
Skemmtilegt mót
Ingólfur Magnússon og Sigmar
Ingi Kristinsson frá TBR tóku
einnig þátt í mótinu, en þeim gekk
ekki eins vel og Helga og Ásdísi,
enda enginn smiður í fyrsta sinn.
En þeir vom ekki að láta það
spilla gleði sinni er Morgunblaðið
hitt þá að máli. „Þetta er búið að
vera mjög skemmtilegt," sögðu
þeir einum rómi. „Ég vann ekki
leik,“ sagði Ingólfur, „en ég æfí
bara einu sinni í viku núna. Mig
langar til að æfa tvisvar i viku
eftir áramót.“
„Mér gekk betur, ég vann tvo
leiki og tapaði tveimur. Ég er stað-
ráðinn í að halda áfram að æfa,“
sagði Sigmar. Hann sagðist hafa
Morgunblaðið/ívar
Taplaus
F.v.: Sigurjón Jóhannsson,
Hlynur Snorrason, Elvar
Haraldsson, Danlel Reynls-
son, Helgl Jóhannsson, Ás-
dís Hjálmsdóttir og Halidóra
Elín Jóhannsdóttlr.
verið í körfubolta en væri hættur
núna og Ingólfur var einnig hætt-
ur að æfa fótbolta sem hann hafði
stundað. Báðir sögðust þeir ætla
að æfa af krafti badminton hjá
TBR undir stjórn Áma Þórs Hall-
grímssonar og Jóhanns Kjartans-
sonar. „Ég veit ekki hvort við
verðum einhvem tímann íslands-
meistarar, en við ætlum að gera
okkar besta,“ sagði Sigmar.
INGÓLFUR Magnússon og Slgmar Ingi Kristinsson.
Vaxandi áhugi á íshokkí
meðal yngri kynslóðarínnar
Talsverður áhugi er á íshokkí
hér á landi meðal yngri kyn-
slóðarinnar. í Reykjavík era starf-
andi tvö félög, Skautafélag
Reykjavíkur og Bjöminn, og á
Akureyri er eitt félag. Er Morgun-
blaðið leit inn á æfíngu í vikunni
var hópur drengja að koma af
æfíngu hjá Biminum.
Friðbjöm Orri Ketilsson er tólf
ára og hefur æft í eitt ár og sagði
hann að talsverð eftirvænting ríkti
fyrir íslandsmótið sem hæfíst eft-
ir áramót. „Ég leik sem „senter"
og fínnst þetta mjög gaman.
Ástæðan fyrir því að ég fór að
æfa íshokkí er sú að mér þótti
,betta hröð og spennandi íþrótt og
ég hef ekki orðið fyrir vonbrigðum
síðan ég byijaði, þetta er mjög
skemmtilegt,“ sagði Friðbjöm.
Kristján Þór Zoéga, 11 ára,
sagðist vera nýbyijaður að æfa
með Birninum. „Vinurinn er æfa
og mig langaði til að prófa og hef
ekki orðið fyrir vonbrigðum, mér
fínnst mjög gaman,“ sagði hann.
Einnig var að fara á æfingu
bandarískur drengur, Karl Gof-
orth Wagnir, 11 ára, verður tólf
ára í lok ársins. Hann sagðist
■ hafa æft hér á landi í tæp tvö ár
allt síðan hann kom hingað til
lands með foreldmm sínum, en
faðir hans vinnur hjá bandaríska
sendiráðinu í Reykjavík. „Ég byij-
aði ekki að æfa fyrr en ég kom
hingað ti! lands. Móðir mín er
finnsk og það var bróðir hennar
sem kynnti mér íshokkí og hvatti
\ t ÍJ |- fy' fU! i í
t W'*'*%'**$'
ililc—,i
mig til að prófa. En ég flyt af
landi brott í vor og ég veit ekki
hvert verður framhaldið hjá mér
í íþróttinni, en ég hef eignast
marga góða vini í henni hér á
landi.“
Morgunblaðið/ívar
Íshokkímenn framtíðarinnar
HLUTI af hópi íshokkídrengjanna hjá Birninum rétt fyrir
æfinguna í fyrrakvöld á skautasvellinu í Laugardal, f.v.:
Karl Goforth Wagnir, Þórður Daníel Þóröarson, Friðbjörn
Orri Ketilsson, Davíð Þórisson, Kristján Þór Zoega og Geir
Fannar Zoega.
Landsliðið
til Israels
ÍSLENSKA ungmennalandsliðið
í knattspyrnu skipað leikmönn-
um 17 ára og yngri fer til ísra-
els 27. desember til þátttöku í
alþjóðlegu móti þar. Valinn hefur
verið 27 manna hópur en eftir
æfingu á sunnudaginn kemur
verður hópurinn skorinn niður í
16 menn sem fer utan. 27 manna
hópurinn er þannig skipaður:
Eggert Stefánsson, Fram, Freyr
Karlsson, Fram, Haukur Hauks-
son, Fram, Davíð Stefánsson,
Fram, Arnar Ingi Pjetursson,
KR, Bjöm Jakobsson, KR, Björg-
vin Vilhjálmsson, KR, Edilon
Hreinsson, KR, Egill Skúli Þór-
ólfsson, KR, Grímur Garðarsson,
Val, Araar Hrafn Jóhannsson,
Víkingi, Hreinn Sigurðsson, Vík-
ingi, Konráð Konráðsson, ÍR,
Araaldur Schram, Gróttu, Ás-
mundur Jónsson, Keflavík,
Haukur Ingi Guðnason, Keflavík,
Kristján Jóhannsson, Keflavík,
Bjarni Guðjóusson, í A, Sigurður
Þorvarðarson, Selfossi, Guðjón
Skúli Jónsson, Selfossi, M jalti
Jónsson, ÍBV, Þorleifur Arnason,
KA, Þórir Sigmundsson, KA,
Oðinn Árnason, Þór Ak., Ás-
mundur Gíslason, Völsungi, Dag-
ur Dagbjartsson, Völsungi, Stef-
án Gíslason, Austra. Þjálfari liðs-
ins er Guðni Kjartansson.
Alls leikur íslenska liðið fimm
leiki í mótinu. Fyrsti leikurinn
verður 28. desember gegn Kýp-
ur, daginn eftir verður leikið
gegn Belgíu og á gamlársdag
verða mótherjarnir Grikkir. Á
nýju ári hefst mótið 2. janúar og
þá verða Ungverjar mótherjar
Islendinga og síðasti leikurinn
verður 4. janúar gegn heima-
mönnum.