Morgunblaðið - 14.12.1995, Side 8
mmi
OLYMPIULEIKAR
Alþjóða ólympíunefndin fær mikla peninga fyrir Ólympíuleikana 2004 til 2008
INIBC greiðir 151 milljarð
fyrir sjónvarpsréttinn
Frjálsíþróttakona ársins 1995
Reuter
FRJÁLSÍÞRÓTTIR skipa veglegan sess á Ólympíuleikum og sérstaklega eru spretthlauparar í
sviösljósinu. Bandaríska hlaupadrottningin Gwen Torrence varð tvöfaldur ólympíumeistari í
Barcelona 1992 og stefnir hátt á leikunum í Atlanta, helmaborg sinni, næsta sumar en hún
náöi langþráöu takmarki í heimsmeistarakeppninni í Gautaborg í sumar sem leiö þegar hún
kom fyrst í mark í 100 metra hlaupi. Hún var einnig í sigursveitinnl í 4x100 m hlaupi og um
helgina sæmdi Alþjóða frjálsíþróttasambandiö hana nafnbótinni Frjálsíþróttakona ársins 1995.
Bandaríska sjónvarpsstöðin
NBC hefur tryggt sér einka-
rétt á sjónvarpssendingum í
Bandaríkjunum frá Ólympíuleik-
unum 2004 og 2008 og Vetrarleik-
unum 2006 og greiðir Alþjóða
Ólympíunefndinni, IOC, 2,3 millj-
' arða dollara (Um 151 milljarð kr.)
fyrir réttinn.
Dick Pound, formaður samn-
inganefndar IÓC sem hefur með
sjónvarpsmál að gera, sagði að
þessi langtímasamningur skapaði
IOC fjárhagslegan stöðugleika sem
kæmi allri ólympíufjölskyldunni til
góða. Öll skipulagning IOC fram
í tímann yrði árangursríkari og
samningurinn skapaði borgum,
sem sæktust eftir að halda
f Ólympíuleika, öryggi að því leyti
að þær vissu hvað kæmi frá IÖC
vegna þessa málaflokks til að
mæta áætluðum kostnaði vegna
mótshaldsins.
Fram kom að NBC greiðir 793
milljónir dollara fyrir Ólympíuleik-
ana 2004, 613 milljónir dollara
fyrir Vetrarleikana 2006 og 894
milljónir dollara fyrir leikana 2008.
í samningnum er einnig ákvæði
um að sjónvarpsstöðin og IOC
skipti hagnaði til helminga og er
þar tekið tillit til sölu auglýsinga
og framleiðslukostnaðar.
Robert Wright, forseti NBC,
sagði að sjónvarpsstöðin hefði tek-
,-ið mikilvæga ákvörðun með þess-
um samningi því hún legði grunn-
inn að því að NBC yrði helsta
frétta- og íþróttastöð fram á næstu
öld.
NBC hafði áður samið um einka-
rétt á sjónvarpssendingum í
Bandaríkjunum frá Ólympíuleik-
unum í Atlanta næsta sumar, í
Sydney í Ástralíu 2000 og frá
Vetrarleikunum í Salt Lake City
2002, en CBS keypti réttinn frá
Vetrarleikunum í Nagano í Japan
1998. Talsmenn IOC sögðu að
aðeins hefði verið rætt við NBC
og ákvörðun tekin í ljósi frábærrar
þjónustu sjónvarpsstöðvarinnar,
reynslu ög faglegra vinnubragða.
Þá hefði framlag hennar til þessa
og velvilji í garð ólympíuhreyfing-
arinnar haft áhrif. „Við berum
mikið traust til NBC og vildum
ekki halda uppboð,“ sagði Pound.
Dick Ebersol, íþróttastjóri NBC,
sagði að samningaviðræður hefðu
byijað í Lausanne í Sviss skömmu
eftir að samningar vegna Salt Lake
City og Sydney höfðu verið undir-
ritaðir í september. Fram kom að
sjónvarpsstöðin hefði ekkert með
val væntanlegra ólympíuborga að
gera og yrði það alfarið í höndum
IOC sem fyrr. „Væntanleg stað-
setning er málinu óviðkomandi og
virðing NBC fyrir ólympíuhreyf-
ingunni er mikill heiður fyrir okk-
ur,“ sagði Michele Verdier, upplýs-
ingafulltrúi IOC.
■ GUÐJÓN B. Þorvarðarson,
knattspyrnumaður úr IR, sem hafði
ákveðið að skipta yfir Val, skrifaði
undir leikmannasamning við ÍR á
mánudaginn og leikur því áfram
með liðinu næsta sumar. Guðjón
var markahæsti leikmaður liðsins í
2. deildinni sl. sumar, gerði 10
mörk.
■ ATLI Sigþórsson sem leikið
hefur með úrvalsdeildarliði Breiða-
bliks í körfuknattleik tilkynnti í
gær félagsskipti til 1. deildarliðs
Þórs í Þorlákshöfn. Verður hann
löglegur með Þór í fyrsta leiknum
eftir áramót þann 6. janúar gegn
Hetti frá Egilsstöðum í Þorláks-
höfn.
■ DÚSSELDORF tapaði enn ein-
um leiknum í þýsku 1. deildinni í
handknattleik um helgina, gegn
Grosswalstadt, 23:24. Liðið hefur
tapað öllum tíu leikjum sínum í
deildinni í vetur. Gummersbach
sigraði Essen 21:20. Július Jónas-
son lék ekki með vegna meiðsla,
en hann verður tilbúinn í slaginn
eftir áramót.
■ VASSILY Koudinov, landsliðs-
maður Rússa í handknattleik sem
leikur með franska liðinu Ivry, leik-
ur að öllum líkindum í Þýskalandi
næsta vetur. Massenheim og Ess-
en vilja bæði fá hann til sín fyrir
næsta vetur og hefur hann tekið
vel í það. Gummersbach vildi fá
Koudinov fyrir þetta tímabil, en
hann afþakkaði þá vegna meiðsla.
■ REAL Madrid hefur fengið
miðvallarspilarann Dejan
Petkovic, landsliðsmann Serbíu,
lánaðan frá Rauðu Stjörnunni í
Belgrad. Petkovic er kallaður
„Rambo“ vegna hvað hann er lík-
amlega sterkur. Hann verður í láni
út þetta keppnistímabil og síðan
hefur Real Madrid forkaupsrétt á
honum.
■ CARLOS Busquets, markvörð-
ur Barcelona, verður frá keppni í
tvo mánuði, eftir að hann meiddist
á hné á æfingu. Busquets er þrett-
ándi leikmaður Barcelona sem hef-
ur meiðst í byijun keppnistímabils.
■ QPR hefur lánað þýska liðinu
Frankfurt ástralska landsliðs-
manninn Ned Zelic, sem hefur
ekki verið ánægður í London síðan
QPR keypti hann frá Dortmund á
1,25 millj. punda sl. sumar.
■ HOLLENSKA liðið Feyenoord
seldi í gær útheijan Regi Blinker,
fyrrum landsliðsmann Hollands, til
Luzern í Sviss. Blinker er 26
ára, hefur skorað 52 mörk í 255
leikjum fyrir Holland. Hann var
seldur á rúmlega 80 millj. ísl. kr.
KNATTSPYRNA
Porca skrifaði
undiráns
samning
við Val
SALIH Heimir Porca, sem hef-
ur leikið með KR-ingum síðustu
tvö keppnistímabil, skrifaði í
gær undir eins árs samning við
Val. Hann var með samning við
KR fram til 1997, en það varð
samkomulag um að slíta þeim
samningi. Porea, sem er þrítug-
*. ur, hefur áður leikið með Sel-
fyssingum, Val og Fylki. „Ég
hlakka til að leika með yals-
mönnum næsta sumar. Ég
þekki vel til í herbúðum þeirra
og veit því að hverju ég geng,“
sagði Porca.
KORFUKNATTLEIKUR
Sigurðurlngimundarsson hefurvalið landsliðshóp kvenna
Fyrsti leikur hér í sjö ár
Sigurður Ingimundarson,
landsliðsþjálfari kvenna í
körfuknattleik, hefur valið
landsliðshópinn fyrir landsleikina
gegn Eistlandi sem fara fram
milli jóla og nýárs. Þetta verða
að nokkru leyti tímamótaleikir
því kvennalandsleikir hafa ekki
farið fram hér á landi í sjö ár.
Kvennalandsliðið lék fjóra lands-
leikir hér á landi í apríl 1988 og
eru það einu kvennalandsleikirnir
sem fram hafa farið hér, en
landsleikirnir eru alls orðnir 42
talsins. Sigurður verður þó varla
öfundsverður af verkefninu því
eistneska landsliðið er sterkt og
það íslenska frekar slakt þannig
að búast má við miklum mun.
Leiknir verða þrír leikir og hefj-
ast þeir allir kl. 18. Fyrsti leikur-
inn verður í Keflavík miðvikudag-
inn 27. desember, síðan verður
leikið í Seljaskóla föstudaginn 29.
desember og þann 30. verður
leikið á Akranesi. Karlalið þjóð-
anna leika sömu daga og á sama
stað þannig að hinir nýráðnu
landsliðsþjálfarar, Keflvíkingarn-
ir Sigurður og Jón Kr. Gíslason
fá sína fyrstu landsleiki á heima-
velli.
í landsliðshópi Sigurðar eru
19 stúlkur og tíu þeirra hafa
ekki leikið A-landsleik áður. I
hópnum eru eftirtaldir leikmenn
og er landsleikjafjöldi í sviga:
Anna María Sveinsdóttir (33),
Björg Hafsteinsdóttir (26), Erla
Reynisdóttir (0) og Erla Þor-
steinsdóttir (0), allar úr Keflavík.
Inga Dóra Magnúsdóttir(3),
Hanna Kjartansdóttir (16), Elísa
Vilbergsdóttir (3) og Birna Val-
garðsdóttir (0) úr Breiðabliki,
Helga Þorvaldsdóttir (6), Guð-
björg Norðfjörð (20) og Kristín
Jónsdóttir (0) úr KR, Linda Stef-
ánsdóttir (24) og Anna Dís Svein-
björnsdóttir (11) úr ÍR, Kristjana
Magnúsdóttir (0), Alda Jónsdótt-
ir (0) og Signý Hermannsdóttir
(0) úr Val, Pálína Gunnarsdóttir
(0), UMFN, Júlía Jörgensen (0),
UMFG og Kristín Magnúsdótt-
ir(0), Tindastóli.
VIKINGALOTTO: 3 9 15 19 41 43 + 21 25 34