Morgunblaðið - 23.12.1995, Page 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANWA
1995
iM0r;ptiitM&S>fö
■ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER BLAÐ
Overmars frá
í langan tíma
MARC Overmars, hollenski knattspyrnumaður-
inn frábæri iyá Evrópumeisturum Ajax, er
meiddur og leikur ekki meira með félagi sínu
í vetur og missir jafnframt af úrslitakeppni
Evrópumóts landsliða með Hollendingum í Eng-
landi næsta sumar.
Overmars, sem er 22 ára og einn besti leik-
maður álfunnar, meiddist í vinstra hné í leik
gegn De Graafschap Doetinchem á miðvikudag-
inn og þegar hnéð var skoðað reyndust meiðsl-
in mun verra en talið var í fyrstu — liðband
hafði rifnað.
Tomba og
Wiberg sigruðu
ÍTALSKI „kóngurinn“ Alberto Tomba sigraði
á heimsbikarmóti í svigi i Kranjska Gora í SIóv-
eníu í gær og í Veysonnas í Sviss fagnaði sænska
stúlkan Pernilla Wiberg sigri, einnig í svigi.
Þetta voru síðustu heimsbikarmótin á þessu ári.
Tomba hefur nú sigrað á 46 heimsbikarmót-
' um á ferlinum. f fyrradag hætti hann keppni
í stórsvigi eftir að fresta þurfti keppni vegna
þoku; 12 hðfðu þegar rennt sér þegar gera
varð hlé og mótshaldarar ákváðu að byrja upp
á nýtt. Það vildi ítalinn ekki og hvarf á braut.
Hann liótaði að mæta ekki i svigið í gær en lét
sig hafa það og sigraði með glæsibrag. Skíðaði
glæsilega í fyrri ferð og hafði góða forystu
eftir hana. Hann var ekkert að fara varlega í
seinni ferðinni frekar en fyrri daginn, renndi
sér frábærlega sem fyrr og af miklum krafti,
og jók forskotið til muna. Tomba er nú kominn
í annað sæti yfir sigursælustu keppendur I
heimsbikarkeppninni — fór upp fyrir Marc Gir-
ardelli frá Luxembourg með sigrinum í gær,
en Svíinn Ingemar Stenmark trónir átoppnum
sem fyrr, sigraði í alls 86 mótum á sínum tíma.
Heimamaðurinn Jure Kosir, sem býr aðeins
10 km frá Kranjska Gora, varð í örðu sæti,
1,21 sek. á eftir Tomba. ítalinn fékk samanlagð-
an tíma 1.36,84 og þriðji varð Frakkinn Sebast-
ien Amiez á 1.38,43.
Hin sænska Pernilla Wiberg var í þrettánda
sæti eftir fyrr ferð kvenfólksins í Sviss en geysi-
góð frammistaða í seinni ferðinni gerði það að
verkum að hún sigraði. Þetta var áttundi sigur
Wibergs á heimsbikarmóti í svigi á ferlinum.
Hún fór samtals á 1.14,42 mín., Urska Hrovat
frá Slóveniu varð önnur á 1.14,72 og þriðja
önnur sænsk stúlka, Kristina Andersson, aðeins
0,01 sek. á eftir Hrovat. Andersson var fyrst
eftir fyrri ferðina.
KNATTSPYRNA
Úrskurður Evrópudómstólsins í Bosman-málinu farinn að hafa áhrif
Beðið með félagaskipti
þar til samningur er úti
Gleði-
leg jól!
GOTT gengi danska kvennalands-
liðsins í handbolta, „stálstúlkn-
anna“, í nýafstaðinni heimsmeist-
arakeppni gladdi dönsku þjóðar-
sálina á aðventunni. Danska liðið
er meðal þeirra allra bestu í heim-
inum og keppninni því gerð góð
skil í dönskum fjölmiðlum. Danir
i útlöndum gátu fylgst með í gegn-
um Alnetið, en sérstakur starfs-
maður var á keppninni til að koma
fréttum og annarri umfjöllun um
liðið inn á netið. Þá fylgdi stór
stuðningsmannahópur liðinu.
Almennt vorkenndu Danir
stúlkunum sínum að þurfa að hir-
ast fjarri heimahögum svo
skömmu fyrir jól, enda fáir sem
leggja jafn mikið upp úr því að
hafa það huggulegt á aðventunni.
Leikmönnum barst því jólaskraut
af ýmsu tagi til Austurríkis þar
sem keppnin var haldin, og Rikke
Solberg og Conny Hamann fengu
jólapakkadagatal frá vinum að
heiman.
■ Dönsku/ C3
skurður Evrópudómstólsins í
máli belgíska knattspymu-
mannsins Jean-Marc Bosmans, sem
kveðinn var upp í liðinni viku, er
þegar farinn að hafa áhrif í Þýska-
landi.
Dómstóliinn úrskurðaði að ekki
sé hægt að krefjast félagaskipta-
gjalds fyrir ósamningsbundinn leik-
mann innan aðildarlanda Evrópu-
sambandsins. Þjóðveijinn Harald
Cemy, fyrrum leikmaður Bayern
Munchen, sem leikur með Tirol í
Austurríki, ætlaði að fara sem Iáns-
maður til 1860 Miinchen eftir ára-
mót en þýska félagið hafði síðan í
hyggju að kaupa hann þegar samn-
ingur hans við austurríska félagið
rennur út í vor. Til stóð að undir-
rita samninga þess efnis um helgina
en hætt var við það vegna fyrr-
nefnds úrskurðar.
Þýska félagið hafði samþykkt að
greiða 250.000 mörk (um 11,3 millj.
kr.) í leigu fyrir Cerny og kaupa
hann síðan fyrir 1,4 millj. mörk (um
63,7 millj. kr.) í júlí á næsta ári en
úrskurðurinn þýðir að 1860
Munchen þarf ekki að greiða krónu
fyrir kappann eftir að samningur
hans í Austurríki er úti og er félag-
ið að hugsa um að bíða þangað til.
Forsvarsmenn Tirol gera sér
grein fyrir stöðunni og vilja því fá
greidda hærri leigu fyrir leikmann-
inn meðan hann er samningsbund-
inn en talsmenn þýska félagsins
velta því nú fyrir sér hvort það sé
þess virði að borga leigu fyrir mann
í nokkra mánuði þegar þeir vita að
þeir fá hann fyrir ekki neitt næsta
sumar.
Cerny hefur þegar sagt húsnæði
sínu í Innsbruck lausu en eins og
staðan er liggur honum ekki á að
fínna húsnæði í Þýskalandi. „Ég
geri ráð fyrir að ég verði að vera
í Tirol til loka tímabilsins," sagði
Cerny sem er 23 ára.
Enn sem komið er hefur úrskurð-
urinn aðeins áhrif á félagaskipti
ósamningsbundinna leikmanna inn-
an landa Evrópusambandsins en
þýskir lögfræðingar halda að innan
skamms verði ekki um neitt félaga-
skiptagjald að ræða skipti leikmaður
úr einu þýsku félagi í annað. Þeir
gera ráð fyrir að fljótlega fari ein-
hver þýskur leikmaður með mál sitt
fyrir dómstóla og vinni eins og Bos-
man, sem geri það að verkum að
félög sem hafa þrifist fyrst og fremst
vegna sölu á leikmönnum komi til
með að eiga erfitt uppdráttar.
KNATTSPYRNA: GEORGE WEAH ÆTLAR AÐ HÆTTA Á TOPPNUM / C4