Morgunblaðið - 23.12.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 23.12.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANWA 1995 iM0r;ptiitM&S>fö ■ LAUGARDAGUR 23. DESEMBER BLAÐ Overmars frá í langan tíma MARC Overmars, hollenski knattspyrnumaður- inn frábæri iyá Evrópumeisturum Ajax, er meiddur og leikur ekki meira með félagi sínu í vetur og missir jafnframt af úrslitakeppni Evrópumóts landsliða með Hollendingum í Eng- landi næsta sumar. Overmars, sem er 22 ára og einn besti leik- maður álfunnar, meiddist í vinstra hné í leik gegn De Graafschap Doetinchem á miðvikudag- inn og þegar hnéð var skoðað reyndust meiðsl- in mun verra en talið var í fyrstu — liðband hafði rifnað. Tomba og Wiberg sigruðu ÍTALSKI „kóngurinn“ Alberto Tomba sigraði á heimsbikarmóti í svigi i Kranjska Gora í SIóv- eníu í gær og í Veysonnas í Sviss fagnaði sænska stúlkan Pernilla Wiberg sigri, einnig í svigi. Þetta voru síðustu heimsbikarmótin á þessu ári. Tomba hefur nú sigrað á 46 heimsbikarmót- ' um á ferlinum. f fyrradag hætti hann keppni í stórsvigi eftir að fresta þurfti keppni vegna þoku; 12 hðfðu þegar rennt sér þegar gera varð hlé og mótshaldarar ákváðu að byrja upp á nýtt. Það vildi ítalinn ekki og hvarf á braut. Hann liótaði að mæta ekki i svigið í gær en lét sig hafa það og sigraði með glæsibrag. Skíðaði glæsilega í fyrri ferð og hafði góða forystu eftir hana. Hann var ekkert að fara varlega í seinni ferðinni frekar en fyrri daginn, renndi sér frábærlega sem fyrr og af miklum krafti, og jók forskotið til muna. Tomba er nú kominn í annað sæti yfir sigursælustu keppendur I heimsbikarkeppninni — fór upp fyrir Marc Gir- ardelli frá Luxembourg með sigrinum í gær, en Svíinn Ingemar Stenmark trónir átoppnum sem fyrr, sigraði í alls 86 mótum á sínum tíma. Heimamaðurinn Jure Kosir, sem býr aðeins 10 km frá Kranjska Gora, varð í örðu sæti, 1,21 sek. á eftir Tomba. ítalinn fékk samanlagð- an tíma 1.36,84 og þriðji varð Frakkinn Sebast- ien Amiez á 1.38,43. Hin sænska Pernilla Wiberg var í þrettánda sæti eftir fyrr ferð kvenfólksins í Sviss en geysi- góð frammistaða í seinni ferðinni gerði það að verkum að hún sigraði. Þetta var áttundi sigur Wibergs á heimsbikarmóti í svigi á ferlinum. Hún fór samtals á 1.14,42 mín., Urska Hrovat frá Slóveniu varð önnur á 1.14,72 og þriðja önnur sænsk stúlka, Kristina Andersson, aðeins 0,01 sek. á eftir Hrovat. Andersson var fyrst eftir fyrri ferðina. KNATTSPYRNA Úrskurður Evrópudómstólsins í Bosman-málinu farinn að hafa áhrif Beðið með félagaskipti þar til samningur er úti Gleði- leg jól! GOTT gengi danska kvennalands- liðsins í handbolta, „stálstúlkn- anna“, í nýafstaðinni heimsmeist- arakeppni gladdi dönsku þjóðar- sálina á aðventunni. Danska liðið er meðal þeirra allra bestu í heim- inum og keppninni því gerð góð skil í dönskum fjölmiðlum. Danir i útlöndum gátu fylgst með í gegn- um Alnetið, en sérstakur starfs- maður var á keppninni til að koma fréttum og annarri umfjöllun um liðið inn á netið. Þá fylgdi stór stuðningsmannahópur liðinu. Almennt vorkenndu Danir stúlkunum sínum að þurfa að hir- ast fjarri heimahögum svo skömmu fyrir jól, enda fáir sem leggja jafn mikið upp úr því að hafa það huggulegt á aðventunni. Leikmönnum barst því jólaskraut af ýmsu tagi til Austurríkis þar sem keppnin var haldin, og Rikke Solberg og Conny Hamann fengu jólapakkadagatal frá vinum að heiman. ■ Dönsku/ C3 skurður Evrópudómstólsins í máli belgíska knattspymu- mannsins Jean-Marc Bosmans, sem kveðinn var upp í liðinni viku, er þegar farinn að hafa áhrif í Þýska- landi. Dómstóliinn úrskurðaði að ekki sé hægt að krefjast félagaskipta- gjalds fyrir ósamningsbundinn leik- mann innan aðildarlanda Evrópu- sambandsins. Þjóðveijinn Harald Cemy, fyrrum leikmaður Bayern Munchen, sem leikur með Tirol í Austurríki, ætlaði að fara sem Iáns- maður til 1860 Miinchen eftir ára- mót en þýska félagið hafði síðan í hyggju að kaupa hann þegar samn- ingur hans við austurríska félagið rennur út í vor. Til stóð að undir- rita samninga þess efnis um helgina en hætt var við það vegna fyrr- nefnds úrskurðar. Þýska félagið hafði samþykkt að greiða 250.000 mörk (um 11,3 millj. kr.) í leigu fyrir Cerny og kaupa hann síðan fyrir 1,4 millj. mörk (um 63,7 millj. kr.) í júlí á næsta ári en úrskurðurinn þýðir að 1860 Munchen þarf ekki að greiða krónu fyrir kappann eftir að samningur hans í Austurríki er úti og er félag- ið að hugsa um að bíða þangað til. Forsvarsmenn Tirol gera sér grein fyrir stöðunni og vilja því fá greidda hærri leigu fyrir leikmann- inn meðan hann er samningsbund- inn en talsmenn þýska félagsins velta því nú fyrir sér hvort það sé þess virði að borga leigu fyrir mann í nokkra mánuði þegar þeir vita að þeir fá hann fyrir ekki neitt næsta sumar. Cerny hefur þegar sagt húsnæði sínu í Innsbruck lausu en eins og staðan er liggur honum ekki á að fínna húsnæði í Þýskalandi. „Ég geri ráð fyrir að ég verði að vera í Tirol til loka tímabilsins," sagði Cerny sem er 23 ára. Enn sem komið er hefur úrskurð- urinn aðeins áhrif á félagaskipti ósamningsbundinna leikmanna inn- an landa Evrópusambandsins en þýskir lögfræðingar halda að innan skamms verði ekki um neitt félaga- skiptagjald að ræða skipti leikmaður úr einu þýsku félagi í annað. Þeir gera ráð fyrir að fljótlega fari ein- hver þýskur leikmaður með mál sitt fyrir dómstóla og vinni eins og Bos- man, sem geri það að verkum að félög sem hafa þrifist fyrst og fremst vegna sölu á leikmönnum komi til með að eiga erfitt uppdráttar. KNATTSPYRNA: GEORGE WEAH ÆTLAR AÐ HÆTTA Á TOPPNUM / C4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.