Morgunblaðið - 03.01.1996, Page 7

Morgunblaðið - 03.01.1996, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 B 7 FRÉTTIR Skipsbjalla af- hent sjóminja- safni Grimsby B.JALLAN af breska skipinu Barry Castle var afhent John Colebrook, borgarstjóra Grimsby, af Jóni Páli Halldórssyni, stjórnarformanni IFPL, dótturfyrirtækis SH í Grimsby, fyrir skömmu. Skipið fórst út af ströndum íslands árið 1955 með þeim afleiðingum að fjórir lét- ust en tólf var bjargað. Um leið og bjöllunni var skilað var þeirra minnst sem létust. Bresk- ir fjölmiðlar sýndu málinu nokkurn áhuga og auk frásagna í blöðum voru birt viðtöl við forráðamenn IFPL á sjónvarpsstöðvunum BBC og ITV. Sögu bjöllunnar má rekja allt aftur til ársins 1955 þegar Barry Castle lagði úr höfn frá Grimsby og hélt til veiða við norðurströnd íslands. Skipið lenti fljótlega í slæmu veðri og í einni hryðjunni gaf lestarlúga sig og búnaður tap- aðist. Þá var tekin sú ákvörðun að sigla til íslands til viðgerða. Dráttarlínan slitnaði Aðfaranótt 1. nóvember, tíu dög- um eftir að skipið lagði af stað frá Englandi, óskaði skipstjórinn, Walt- er Oxer, eftir aðstoð nærliggjandi skipa. Sjór hafði flætt inn og vélar- rúmið var að fyllast. Breska herskip- ið Princess Elizabeth var fyrst á vettvang, dráttarlínu var komið um borð í Barry Castle, en vegna af- takaveðurs slitnaði hún. Það tók þijá tíma að koma línu um borð í Barry Castle á nýjan leik, en að því búnu var stefnan tekin í JÓN Olgeirsson, ræðismaður íslands, Agnar Friðriksson, forstjóri IFPL, Jón Ingvarsson, stjórnarfor- maður SH og í stjórn IFPL, Richard Doughty, Russell Hollowood, Jón Páll Halldórsson, stiórnarfor- maður IFPL og í stjórn SH var á ísafirði. Vart höfðu skipin hafið för sína er brotsjór reið yfir. Skipveijar á Barry Castle hentu sér í sjóinn í björgunarvestum en skipið sökk á sjö mínútum. Tíu skipveijum var bjargað um borð í fiskiskipið ' framkvæmdastjóri Norðurtanga hf. eiginkona borgarsljórans í Grimsby. Vivian og Stafnes bjargaði tveimur mönnum. Fjórir skipveijar fundust aldrei. Árið 1991 var fískiskipið Páll Helgi á veiðum út af ísafirði og fékk skipsbjölluna af Barry Castle Alec Bovil og frú Colebrook, í netin. Skipsbjallan var gerð upp og nýlega keypti stjóm IFPL í Grimsby bjölluna og afhenti hana sjóminjasafninu í Grimsby, en það er eitt stærsta safn sinnar tegundar í Bretlandi. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson VEISLUGESTIR fá sér af fiskréttahlaðborðinu í Kinn en að borð- haldi loknu var lagið tekið við undirleik á harmoniku og gítar. Fiskréttahlaðborð í vinnslusalnum ^^■■■■■^^^^■■■■■■■^^* EIGENDUR fiskverkun- Lf { arinnar Kinnar í Vest- Kmn ni. 1 i^um mannaeyjum buðu starfs- kvnnir framleiðsluna fólki °g viðskiptavinum tn matarveislu í húsnæði fyr- irtækisins milli jóla og nýárs. Tilefnið var að gera sér glaðan dag og kynna um leið matseld úr því hráefni sem unnið er í fyrirtækinu. Ástvaldur Valtýsson og fjölskylda hans eiga og reka Kinn, en í fyrir- tækinu fer fram ýmiskonar fiskverk- un. Mest er unnið í saltfisk en einn- ig vinna þeir hráefnið á ýmsan máta. Grímur Gíslason matreiðslumaður er einn af fjölskyldumeðlimunum sem eiga Kinn og sá hann um mat- reiðsluna í veislunni. Gestum var boðið upp á hlaðborð með ýmsum nýstárlegum fiskréttum. Meðal þess sem boðið var upp á var reyktur ufsi með piparrótar- sósu, djúpsteiktar blálöngubollur með beikoni og ostafyllingu, djúp- steikt saltfiskroð, kryddleginn smáufsi með rækjum, pönnusteikt- ur kinnfiskur með ijómasósu, djúp- steiktur saltfiskur með rifsbeija- hlaupi, saltfiskpizza og beikonvafin keila í tempúradeigi. Veislan var haldin í vinnslusal fyrirtækisins þar sem raðað hafði verið upp borðum og stólum við hlið fiskvinnsluvélanna og drykkjar- föngin sem borin voru fram voru kæld í ís í fiskikari. Matur var snæddur við harmonikku- og gítar- undirleik og að borðhaldi loknu var lagið tekið svo undir tók í fisk- vinnslusalnum. Ótakmarkaðir möguleikar Grímur Gíslason matreiðslu- maður sagði í samtali við Morgun- blaðið að þeir hefðu með þessu viljað sýna brot af því sem hægt væri að vinna úr framleiðslu þeirra. Hann sagði aðspurður að ekki væri á döfinni hjá þeim að svo stöddu að fara út í fullvinnslu og framleiðslu fiskrétta í neytenda- pakkningum en vonandi kæmi sá tími að þeir gætu lagt út á þá braut, því möguleikarnir væru nánast ótakmarkaðir og hægt væri að gera veislumat úr því hrá- efni sem fram undir þetta hefði vart verið talið ætt hérlendis. Tæknival o g Nýja skoðun- arstofan í samstarfi SAMNINGI fagnað. Róbert Hlöðversson hjá Nýju skoðunarstofunni og Rúnar Sigurðsson hjá Tæknivali standa hér fremst en á milli þeirra eru nafnarnir Bjarni Hákonarson og Bjarni Þorvarðarson. NÝJA skoðunarstofan hf. og Tæknival hf. hafa tekið upp sam- starf í þjónustu sinni við fram- leiðslufyrirtæki í sjávarútvegi og nær það til hugbúnaðarþjónustu, ráðgjafar og námskeiðshalds. Sam- starfið miðar að því að hvetja fram- leiðendur sjávarafurða til að koma upp fullkomnu innra eftirliti með framleiðslunni, byggðu á HACCP gæðakerfmu, að sögn Bjarna Þor- varðarsonar deildarstjóra hugbún- aðardeildar Tæknivals. Við gildistöku EES-samningsins skuldbundu íslendingar sig til að tryggja að framleiðendur sjávaraf- urða hérlendis fullnægðu kröfum ESB um framleiðslu og meðferð sjávarafurða. í tilskipun ESB um þetta segir meðal annars að fram- leiðendur séu ábyrgir fyrir því að komaá innra eftirliti með framleiðsl- unni, byggðu á HACCP-gæðaeftir- litskerfinu, til að tryggja neytendum öruggar og heilnæmar afurðir. Skoðunarstofur, sem hafa starfs- leyfi frá Fiskistofu annast reglu- bundið eftirlit með því að vinnslu- leyfishafi fullnægi kröfum ESB- reglna. Komist eftirlitsaðili að því að vinnsluleyfishafi fullnægi ekki þessum kröfum getur hann átt það á hættu að missa leyfið og þar með réttindin til að flytja framleiðslu sína á EES-markað. Tæknival hf. hefur að undan- förnu unnið að þróun hugbúnaðar sem er ætlað að halda utan um gæðahandbók og skráningar sam- kvæmt ströngustu kröfum HACCP- áhættugreiningar. Bjarni Þorvarð- arson, hjá Tæknivali, segir að fram- leiðendur sjávarafurða geti hvort heldur sem er notað þetta kerfí sem sjálfstæða einingu eða sem hluta af sjávarútvegskerfinu Hafdísi II frá Tæknivali. Samkvæmt samstarfssamningn- um mun Nýja skoðunarstofan veita faglegar ráðleggingar við uppsetn- ingu kerfisins, til dæmis við áhættugreiningu, staðsetningu mikilvægra eftirlitsstaða og gerð gæðahandbókar. Á undanförnum árum hefur Nýja skoðunarstofan haldið námskeið um uppsetningu HACCP-kerfa í fiskvinnslufyrir- tækjum og að sögn Bjarna mun Tæknival hér eftir taka þátt í nám- skeiðshaldinu og kynna gæðaeftir- litskerfi Hafdísar II. Vélstjóri á frystitogara Vélstjóra vantar á frystitogarann Sindra (aðalvél 2000 kW), sem gerður er út frá Vestmannaeyjum. Upplýsingar í síma 481 3400. Melurhf., Hafnargötu 2, 900 Vestmannaeyjum. KVtiftTABANKINN Vantar þorsk til leigu og sölu Sími 565 6412, fax 565 6372, Jón Karlsson. Eigendur plastbáta Viljum kaupa nokkra plast-fiskibáta án afla- heimilda. Upplýsingar á skrifstofu okkar í síma 551 4160 frá kl. 8-17 alla virka daga. B.P. skip hf., Borgartúni 18, Reykjavík, sfmi 551 4169, fax551 4180.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.