Morgunblaðið - 03.01.1996, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ - AUGLÝSING
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 E 5
„Ég tek þessu eins og vinnu. Ég
skipulegg daginn fyrirfram og
einbeiti mér að því sem ég þarf að
gera - þannig verður dagurinn
ekki eins langur,“ segir
Kristbjörn Guðmundsson húsa-
smiður. Kristbjörn er með gigt og
er í strangri meðferð á Reykja-
lundi.
Hugsað ágætlega um
mann
Kristbjöm starfaði sem húsasmiður á
Selfossi þar til um mitt ár 1994, þegar
hann fékk miklar bólgur. „Eg man varla
lengur hvernig það var
að vera laus við bólgna
liði og stirðleika en þetta
gengur upp og niður.
Bólgunum er haldið
niðri með lyfjagjöf, en
lyfjunum fylgja margs
konar aukaverkanir og
eins geta komið upp
ofnæmi gagnvart þeim.
Ég veit ekki til þess að
það hafi fleiri en ég í
fjölskyldunni fengið gigt
á unga aldri. Það má
segja að ég sé svarti sauðurinn í
fjölskyldunni hvað þetta varðar!“
Fjölskylda og flestir vinir og kunningjar
Kristbjöms búa í nágrenni Selfoss og
hann reynir að fara austur nema þegar
það koma slæmir dagar, eða þegar það
er illfært. „Annars er hugsað ágætlega
um mann hérna. Ég er á einkastofu
núna og það má kannski segja að
vistin hérna sé nokkurs konar sam-
bland af vinnu og heimavist.“
nauðsyn legt að breyta til.
er það forsenda fyrir því að menn geti
séð fyrir sér og verið virkir í atvinnu-
lífinu. Þess vegna lít ég svo á að það
sé hluti af endurhæfingunni að menn-
ta sig og takast á við nýja hluti,“ segir
Kristbjöm.
Menntun - hluti af
endurhæfingunni
Kristbjöm segir að það sé ómögulegt
að segja nokkuð til um bata og hann
langar til að fá menntun í annað starf
en húsasmíðina. „Ef menn hafa verið
í störfum sem krefjast líkamlegra
átaka og lenda í veikindum þá er
Tek þessu
eins og vinnu
Eg hresstist mikið
á Reykjalundi
- segir Hjördís Alfreðsdóttir
„Ég kom inn á Reykjalund í
haust til að vinna upp þrek og
þol eftir hjartaaðgerð, en það
er búið að blása hjartað tvisv-
ar vegna kransæðastíflu.
Dvöiin þar gerði mér alveg
gríðarlega gott og ég fann
mjög mikinn mun á mér,“
segir Hjördís Alfreðsdóttir
leigubílsstjóri. „Ég segi fyrir
mig að mér fannst eins og ég
væri hluti af einni stórri fjöl-
skyldu. Það var alveg sama við
hvern maður talaði, það voru
allir vingjarnlegir og hjálp-
samir - meira að segja matur-
inn var góður!“
Þetta eru náttúrulega
þrælapískarar!
„Þegar ég kom fyrst var ég
skoðuð og því næst sett í
þolpróf. Niðurstöðurnar úr þeim
prófunum voru síðan notaðar til
að búa til þjálfunardagskrá sem
hentaði mér. Ég fór í margs
konar æfingar, göngur og
vatnsleikfimi. Þetta virtist allt
vera létt í fyrstu en var mesta
púl - enda eru þetta náttúrulega
þrælapískarar! En það var alltaf
einhver með mér í öllum æfing-
unum þannig að ég var aldrei
hrædd um að ofreyna mig og
æfingarnar gerðu mér mjög gott.
f endurhæfingunni var allt tekið
fyrir, daglegar venjur, mataræði
og annað. Ég lærði æfingar sem
ég nota á hverjum degi og mér
var leiðbeint með mataræði sem
hentar mér - ég var meira að
segja látin elda sjálf!“
Tilbúin til að takast á
við ný verkefni
„Ég er mun hressari í dag en
fyrir dvölina á Reykjalundi og
ef ég fæ gangráð verð ég von-
andi enn hressari. Kannski verð
ég bara 29 ára aftur!
Ég er leigubílstjóri, ein af um 30
konum í því fagi.
Leigubílaakstur er e.t.v. ekki
góð vinna fyrir hjartasjúklinga,
starfið getur verið stressandi og
það er þreytandi að sitja lengi í
bílnurn. Ég er því að hugsa um
að skipta um starfsvettvang. Það
er alltaf spennandi að prófa eitt-
hvað nýtt og í dag finnst mér ég
vera tilbúin til að takast á við ný
verkefni.“
Það erengin
neyð að vera hér
- segir Sœbjörn Jónsson, sem bíður eftir nýju lunga
Það gafst lítill tími til að velta fyrir sér jólagjöfum og þess háttar
hjá Sæbirni Jónssyni, því hann fór til Gautaborgar í desember,
þar sem athuga átti hvort hægt væri að setja í hann nýtt lunga.
Vonast til að fá nýtt lunga
í Gautaborg fór Sæbjörn í hjarta-
þræðingu og margs konar mæl-
ingar til að hægt væri að meta
hvernig gerð og stærð af lunga
passaði honum og hvort líklegt
væri að hann þyldi það álag sem
fylgir lugnaskiptiaðgerð. Sæbjörn
hefur dvalið á Reykjalundi að
undanförnu til að safna kröftum.
„í dag hef ég innan við 20% af
útöndunargetu. Ég er fínn á meðan
ég sit og horfi á sjónvarp með
fjarstýringu í hendi en er heldur
þreklítill þegar ég stend upp. Ef ég fæ eitt nýtt lunga þá gæti ég
fengið allt að 70% af eðlilegri útöndunargetu. Það væri alveg
frábært,“segir Sæbjörn.
Arfgengur sjúkdómur
Sæbjörn hefur arfgengan sjúkdóm sem hefur gert það að verkum að
hann hefur mjög skerta öndunargetu. „Ég hefði fengið þetta hvort
sem ég reykti eða ekki, en reykingar og starf mitt sem múrari bættu
ekki úr skák. Þetta byrjaði sem lungnabólga en síðan fylgdu slæmar
sýkingar í kjölfarið. Ég varð að hætta í múrverkinu fyrir allmörgum
árum og var sundlaugarvörður um tíma eftir það á Akureyri.
Ef aðgerðin gengur vel vonast ég til að geta farið að vinna aftur.“
Hér er heimilislegt
„Það þarf sterk bein til að þola þau umskipti sem fylgja því að fá nýtt
lunga. Aðgerðin og lyfjagjöfm sem fylgir í kjölfarið valda miklum
líkamlegum og sálarlegum átökum og því er nauðsynlegt að vera vel
undirbúinn,“ segir Sæbjörn. „Það er alveg dásamlegt að vera hérna á
Reykjalundi. Hér er heimilislegt og engan veginn eins og á
sjúkrahúsi. Ég bý í litlu húsi á lóðinni með tveimur öðrum sjúkling-
um og á systur sem starfar hérna. Það er engin neyð að vera hér.“
Svaraðu spurningunum hér að neðan
og sendu svörin fyrir 6. febrúar til:
Happdrættis SÍ6S, Suðurgötu 10, 101 Rvk.
I. Hæsti vinniagur SÍBS í
janúar er:
2. Hve hátt hlutfall þeirra
sem þurfa á endur-
hæfingu að haida eru 20
ára eða yngri?
3. Hve margii' nutu
endurhæfingar á Reykja-
iundi á sfðasta ári?
í verðlaun er giæsileg
Canon myndbandsupp-
tökuvél að verðmæti
99.900 krónur. Vélin
var valin fjölskylduvét
ársins 1995, fékk 10 af
10 mögulegum.
.Nafn:
Heimili: