Morgunblaðið - 05.01.1996, Side 6
6 B FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BÖRN OG UIMGLINGAR
Ungmennalandsliðið í handknattleik í 3. sæti í Þýskalandi
Hefur verið boðin
Ivar
Benediktsson
skrifar
„BÆÐI ég og strákarnir eru
ánægðir með árangur ferðar-
innar. Við lékum sex leiki og
sigruðum ífjórum þeirra og
náðum þriðja sæti á mótinu
eftir æsispennandi úrslitaleik
við Sviss," sagði Heimir Rík-
harðsson, þjálfari 17 ára lands-
liðsins í handknattleik, nýkom-
inn heim með lið sitt frá sterku
móti í Þýslakandi. „Þrátt fyrir
að sumir leikmanna íslenska
liðsins væru allt að tveimur
árum yngri en andstæðingarnir
báru þeir enga virðingu fyrir
þeim."
Strákamir léku af miklum krafti
allt mótið og leikgleði hópsins
var svo mikil að tekið var sérstak-
lega eftir því af
umsjónarmönnum
mótsins. Þeir fögn-
uðu hverju marki og
náðu þannig upp
góðri stemmningu í húsinu sem
keppt var í, enda náðum að vinna
áhorfendur á okkar band,“ bætti
Heimir við.
Leiknir voru tveir æfingaleikir
áður en mótið hófst. Fyrri leikurinn
var gegn Saarlandi, úrvalsliði frá
héraðinu sem leikið var í. Auðveldur
sigur vannst í þeim leik, 26:20.
Sama var upp á teningnum í viður-
eigninni gegn Sviss. Islenska liðið
náði strax forystu og leiddi með
þremur mörkum í leikhléi 13:10. í
síðari hálfleik jókst munurinn enn
á milli liðanna og mestur var hann
sex mörk, 20:14 og lokatölur 24:19.
Létt gegn Austurríkismönnum
og Pólverjum
„Austurríkismenn voru fyrstu
andstæðingar okkar og hófu strák-
arnir þátttöku sína í mótinu af mikl-
um krafti, skoruðu fjögur fyrstu
mörk leiksins og héldu þeim mun
til hálfleiks en þá var staðan tólf
mörk gegn átta. í síðari hálfleik
juku þeir enn forskot sitt og sigr-
uðu að lokum með tíu marka mun,
tuttugu og þijú þrettán,“ sagði
Heimir. „Það sama var upp á ten-
ingnum gegn Pólveijum í næsta
leik. Strákarnir náðu strax öruggri
forystu sem bætt var við smátt og
smátt allt til leiksloka. Lokatölur
þær sömu og gegn Austurríki."
Erfitt gegn Dönum
Úrslitaleikur riðilsins var gegn
Dönum en þeir sigruðu í mótinu í
fyrra og voru staðráðnir í að endur-
taka leikinn að þessu sinni. „Það
var komin mikil þreyta í leikmenn-
ina enda var þetta þriðji leikurinn
á einum degi, þrír orðnir meiddir
og tveir komnir með flensu.“ Þrátt
fyrir það náði íslenska liðið að leiða
í hálfleik 11:8. Danir bitu frá sér
liða úrslitum og það varbýsna erfið-
ur leikur því við þurftum bæði að
etja kappi við leikmenn þýska liðs-
ins og heimadómara," sagði Heimir
og var óánægður með tap, 20:24
gegn Þjóðverjum. „Við héldum í við
þá framan af en þegar staðan var
jöfn, sjö gegn sjö, þá var dæmt
hvert sóknarbrotið á okkur á fætur
öðru og við misstum þá fimm mörk-
um framúr okkur.“ Staðan í hálf-
leik 8:13. „Það sama gerðist þegar
MIKIL gleöl var í búnlngsklefa íslenska liösins að loknum lelknum gegn Svlss. F.v.: Helgi
Jónsson, Sigurgelr Höskuldsson, Hörður Flókl Ólafsson, Sverrir Þórðarson, Bjarki Hvannberg
og Danfel Ragnarsson.
strax í upphafi síðari hálfleiks og
um hann miðjan jöfnuðu þeir og
komust yfir í framhaldinu. „Strák-
arnir náðu því miður ekki að sýna
sitt rétta andlit í þessum leik, hvorki
í vörn né sókn og markvarslan var
slök, aðeiris átta skot voru varin,“
sagði Heimir.
Heimadómgæsla Þjóðverja
„Tapið gegn Dönum þýddi að við
lékum gegn Þjóðveijum í fjögurra
okkur hafði tekist að minnka for-
skot Þjóðveija niður í eitt mark um
miðjan síðari hálfleik, sautján -
átján. Þá hrökk allt í sama farið
og við réðum ekki við neitt og urð-
um að leikslokum að bíta í það
súra epli að játa okkur sigraða."
Æsispenna gegn Sviss
Það féll því skaut íslendinga og
Svisslendinga að leika um þriðja
sætið og bronsið í mótinu en Danir
og Þjóðveijar léku um gullið. í þeim
leik sigruðu Danir með fjögurra
marka mun, 24:20. Sigur þeirra í
mótinu var sanngjarn og þeir voru
eina liðið sem ekki tapaði leik.
Heimir kvað leikmenn Sviss hafa
bætt sig jafnt og þétt allt mótið og
meðal annars sigrað Þjóðveija í
riðlakeppninni. „Leikurinn var
bráðskemmtilegur og vel leikinn
fyrir fullu húsi af áhorfendum, átta
hundruðum manns. Fyrri hálfleik-
VILHELM Slgurðsson, Heim-
ir Ríkharðsson, þjálfarl og
Einar Jónsson með verð-
launagripinn fyrir 3. sætið.
urinn var í járnum og við höfðum
forystu með einu í hálfleik, tólf
mörkum gegn ellefu. í síðari hálf-
leik voru íslensku strákarnir skref-
inu á undan og leiddu allt þar til á
lokasekúndunum að Svisslendingar
jöfnuðu 7 tuttugu og tvö, tuttugu
og tvö. Á lokaandartökum leiksins
var brotið á Kristjáni Geir Þor-
steinssyni og vítakast dæmt. Úr því
skoraði fyririiðinn, Halldór Sigfús-
son, af öryggi. „Halldór hafði
meiðst fyrr í keppninni en varð að
láta að sér kveða að nýju í leiknum
gegn Sviss því Ragnar Óskarsson
sem leyst hafði hann af hólmi
meiddist snemma leiks. „Ég tel
þátttöku í svona móti vera nauðsyn-
lega og veita leikmönnum framtíð-
arinnar mikilvæga reynslu. Því mun
ég hiklaust mæla með því við HSÍ
að senda lið árlega til keppni í þessu
móti enda hefur sérstaklega verið
óskað eftir því af mótshöldurum,“
sagði Heimir Ríkharðsson og lét
þess jafnframt getið að íslensku
leikmennirnir hefðu verið sjálfum
sér og landi til sóma utan vallar
jafnt sem innan allan tímann.
þátttaka að ári
Ragnar skoraði
flest mörk
RAGNAJR Óskarsson úr ÍR
skoraði flest mörk íslensku
piltanna I leikjunum sjö sem
liðið lék í Þýskalandsferðinni,
38 talsins, þar af lék hann lít-
ið með í síðasta leiknum gegn
Sviss vegna meiðsla. Athyglis-
vert er að allir leikmenn liðs-
ins skoruðu mörk i leikjum
liðsins og að sögn Heimis Rík-
s harðssonar þjálfara sýnir það
öðru fremur mikla breidd sem
í liðnu er og ávallt komi mað-
ur í manns stað. Sigurgeir
Höskuldsson, markvörður úr
Val, lék lengst af í marki ís-
lenska liðsins og stóð sig vel
ef undan er skilin fyrsti leikur-
inn, æfingaleikur gegn Sar-
landi, héraðinu sem keppt var
í, en þá náðu engin markvarð-
anna þriggja sér á strik. En
síðan hrökk Sigurgeir í form
og varði vel það sem eftir var.
Markaskorun skiptist þannig:
Ragnar Óskarsson, ÍR.........38
Hjalti Gylfason, Víkingi.....19
Vilhelm Sigurðsson, Fram.....15
Kristján G. Þorsteinsson, KR ....14
Einar Jónsson, Fram..........13
Bjarki Hvannberg, Fram.......11
Helgi H. Jónsson, Stjömunni ....11
Daníel Ragnarsson, Val.......10
Guðjón V. Sigurðsson, Gróttu ..'...8
SverrirÞórðarson, FH..........7
Halldór Sigfússon, KA........:6
Jónas Hvannberg, Val..........6
Amar Bjarnason, Haukum........3
Varin skot:
Sigurgeir Höskuldsson, Val...81
Hörður Flóki Ólafsson, KA....18
Gísli Guðmundsson, Selfossi..13
Þess skal getið að Gísli veiktist
á meðan á mótinu stóð og gat því
aðeins verið með í tveimur leikj-
um.
Islenska bronsliðið
ÍSLENSKA llðið sem tók þátt í mótinu, efri röð f.v.: Guðmundur Árni Sigfússon, aðst.þjálfari,
Helmlr Ríkharðsson, þjálfari, Halldór Slgfússon, Arnar Bjarnason, Jónas Hvannberg, Bjarkl
Hvannberg, Guðjón V. Sigurðsson, Helgi H. Jónsson, Daníel Ragnarsson, Hjaltl Gylfason. Fremri
röð f.v.: Einar Jónsson, Kristján G. Þorsteinsson, Sverrir Þórðarson, Sfgurgefr Höskuldsson,
Ragnar Óskarsson, Hörður Flóki Olafsson, Vilhelm Sigurðsson.