Morgunblaðið - 10.01.1996, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 10. JANÚAR 1996 C 5
Spánar- og Portúgalsmarkaður skilaði SH um 5% af útflutningsveltu í fyrra
Vaxandi markaður með
fjölbreytta möguleika
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna mun opna söluskrifstofu á Spáni í vor og
hefur Hjörleifur Ásgeirsson sjávarútvegsfræðingur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri hennar. Kjartan Magnússon ræddi við hann um markaðinn
á Spáni og í Portúgal og hugsanlega landvinninga.
Morgunblaðið/Kristinn.
HJÖRLEIFUR Ásgeirsson er 33 ára. Hann lauk stúdentsprófi
frá MS og stundaði nám í sjávarútvegsfræðum I Tromsö 1986-
1991. Hann hefur starfað á söluskrifstofu SH í París frá því á
árinu 1992 og hefur annast sölu til Spánar og Portúgals. Eigin-
kona Hjörleifs, Maria Purificacion Luque Jimenez, er spænsk
og eiga þau tvö börn.
Spánar- og Portúgalsmarkaður-
inn er stór og fer vaxandi. íbúar
Spánar og Portúgals eru samtals
fimmtíu milljónir og er mikil fisk-
neysla í þessum löndum. Fiskneysla
á Spáni er um 40 kíló á mann á
hverju ári en til samanburðar má
geta þess að í Frakklandi er hún
um 26 kíló á mann. Hjörleifur seg-
ir að líklegt sé að spænsk-portúg-
alski markaðurinn eigi eftir að vaxa
enn á næstu árum, bæði vegna
aukinnar fiskneyslu og einnig
vegna minni afla spænska fiskveiði-
flotans, sem er hinn stærsti meðal
ESB-ríkja.
Heildaraflinn hafi oft numið allt
að milljón tonnum en hann fari nú
minnkandi vegna þess að Spánveij-
ar séu nú smám saman að tapa
aðgangi að fengsælum fiskimiðum,
sem þeir hafa stundað í ríkum
mæli, t.d. við Afríku og Kanada.
Talið er að heildarfiskneysla
Spánveija nálgist nú 1,6 milljónir
tonna árlega og er innflutningur
um helmingur hennar. í magni vega
þyngst lýsingur, smokkfískur, tún-
fiskur auk uppsjávarfiska eins og
makríls og sardínu.
Sölumiðstöðin hóf að sinna Spán-
ar- og Portúgalsmarkaðnum að ein-
hveiju marki árið 1990, fyrst með
sölu á heilfrystum humri en síðan
hafa ýmsar tegundir bæst við eins
og rækja, þorskur, karfi og ýmsar
flatfisktegundir. Nú selur SH ár-
lega um þijú þúsund tonn af fiskaf-
urðum til Spánar og Portúgals eða
tæp 3% af heildarframleiðslu fyrir-
tækisins. Heildarverðmætið nemur
hins vegar um 5% af útflutnings-
veltu SH að sögn Hjörleifs.
„Markmiðið með stofnun sér-
stakrar skrifstofu þar syðra er að
ná enn meiri árangri á þessum
markaði, þ.e.y.s. meiri sölu og
hærra verði. Ákvörðunin byggist á
þeirri reynslu fyrirtækisins að best
sé að hafa söluskrifstofur sem næst
mörkuðunum enda skipta persónu-
leg samskipti miklu máli nú sem
fyrr þótt fjarskiptatæknin hafi aldr-
ei verið fullkomnari."
Aukið jafnvægi á markaðnum
Ekki er laust við að Spánarmark-
aðurinn hafi haft orð á sér fyrir
óstöðugleika meðal íslenskra fiskút-
flytjenda og eru til sögur um mikið
tap þeirra vegna varasamra kaup-
enda. Hjörleifur segir að þessi
óstöðugleiki hafi einkennt hluta
markaðarins en hann sé nú sem
betur fer að komast í jafnvægi.
„Þetta hefur ekki verið vandamál
hjá okkur og ég á ekki von á að
það verði það enda höfum við lagt
á það ríka áherslu að skipta við
traust fyrirtæki, sem hafa getið sér
góðan orðstír. Markaðurinn hefur
verið í mikilli þróun á síðustu árum,
fyrirtækin eru nú færri en stærri
en áður og þar með traustari.
Kaupmáttur hefur vaxið mikið
meðal Spánveija og Portúgala á
síðastliðnum árum og nú eru tíu
ár liðin siðan þeir fengu inngöngu
í Evrópubandalagið. „SH hefur
ávallt lagt áherslu á fyrgta flokks
vöru og það þýðir auðvitað að hún
er seld til landa þar sem kaupmátt-
ur er mikill. Spánveijar og Portúg-
alar eru fyrst núna að ná þeirri
stöðu og því teljum við að tími sé
kominn til að sinna þessum mark-
aði betur. Spánveijar eru með
mestu neytendum og innflytjendum
fiskafurða og í Madrid er annar
stærsti fiskmarkaður í heimi.“
Ýmsir möguleikar fyrir hendi
Hjörleifur segir að megináhersla
verði áfram lögð á frystar fiskafurð-
ir en hann telur að fyrir hendi séu
ýmsir spennandi möguleikar á
markaðnum fyrir íslenska fiskút-
flytjendur. „Spánveijar eru nýj-
ungagjarnir og markaðurinn er
mjög ijölbreytilegur. Hann er ekki
eins þróaður eða hefðbundinn og
franski markaðurinn og býður því
ýmsa möguleika. Erlendar fiskaf-
urðir mæta lítilli tortryggni á Spáni
enda eru þær hinum spænsku
fremri í gæðum í flestum tilvikum."
Áhersla á ungu kynslóðina
Töluverður munur er á markaðn-
um eftir svæðum. Kaupmáttur er
til dæmis meiri á Spáni en í Portúg-
al og þar gætir einnig meiri fjöl-
breytni. Þá hefur þorskurinn sterk-
ari stöðu á Norður-Spáni en flat-
fiskur og hrogn verða vinsælli eftir
því sem sunnar dregur. Nokkur
munur er einnig á vestur- og aust-
urhlutanum og milli sveita og
borga.
Hjörleifur segir að megináhersla
verði lögð á að ná til ungu kynslóð-
arinnar en hún vill helst fá matinn
tilbúinn. „Það er ágæt þróun fyrir
okkur því það þýðir að við þurfum
að leggja meiri vinnu í vöruna. Virð-
isaukinn helst því vonandi í auknum
mæli hjá framleiðendunum heima.“
Sölumiðstöðin hefur markað þá
stefnu í sölu sinni erlendis að kom-
ast eins langt inn á markaðinn og
hægt er, þ.e.a.s. að minnka sölu til
iðnaðarnotkunar en auka sölu af-
urða í neytendapakkningum til
heildsala og smásöluverslana. „Ég
tel að þetta hafi heppnast vel á
Spáni enda stöndum við sterkt að
vígi þar á veitingahúsamarkaðnum,
þar sem mestar gæðakröfur eru
gerðar en þar fæst jafnframt besta
verðið.
Spánarskrifstofan mun einnig
leggja áherslu á að ná betri fót-
festu í smásöluversluninni en þar
skipta verslanakeðjur miklu máli.
Nær neytandanum verður ekki
komist og viðtökur spænskra versl-
ana hingað til lofa góðu.
Vannýttar tegundir
Hjörleifur segir að Spánarskrif-
stofan muni sem fyrr leggja mesta
áherslu á að veita alhliða þjónustu
með frystan fisk. „Við vonumst til
að auka sölu á frystum og ferskum
fiski frá íslandi og nýjum afurðum
frá samstarfsfyrirtækjum SH víða
um heim. Til dæmis mun Spánar-
skrifstofan sjá um afurðasöluna
fyrir dótturfyrirtæki Þormóðs
ramma og Granda, Pesquera Siglo,
í Mexíkó, sem sinnir smokkfisk-
vinnslu og rækjuveiðum.
Söluskrifstofa SH í París hefur
orð á sér fyrir að hvetja fiskfram-
leiðendur til að nýta tegundir, sem
hafa verið lítt eða ekki nýttar, t.d.
keilu, langhala, tindabikkju og
búra. Að sögn Hjörleifs mun Spán-
arskrifstofan vinna í sama anda.
„Það er markaður fyrir margar
þessar tegundir á Spáni, sérstak-
lega í flatfíski."
Frekari landvinningar
við Miðjarðarhaf?
Eins og fyrr segir eru Spánn og.
Portúgal markaðssvæði skrifstof-
unnar. Þessi lönd eiga það sameig-
inlegt með öðrum Miðjarðarhafs-
löndum að þar búa miklar fisk-
neysluþjóðir og lífskjör fara batn-
andi. Með opnun Spánarskrifstof-
unnar liggur því beint við að spyija
hvort fyrirhugað sé að herða mark-
aðssóknina í löndum eins og Ítalíu
og Grikklandi með því að opna þar
skrifstofur eða fela Spánarskrif-
stofunni umsjón þeirra.
Hjörleifur segir að staðsetning
söluskrifstofa og skipting markaðs-
svæða á milli þeirra sé alfarið
ákvörðun stjórnar SH. „Það er þó
ljóst að Sölumiðstöðin mun fylgjast
grannt með þróun markaða í þess-
um löndum og vera opin fyrir sölu-
tækifærum. Dótturfyrirtæki SH í
Hamborg hefur annast sölumálin á
Ítalíu og í Grikklandi hefur verið
þjónað beint frá íslandi. Við seljum
nú þegar rúmlega þúsund tonn af
sjófrystum karfa til Grikklands. Þá
hefur töluvert af humri, karfa,
rækju, þorski og flatfiski verið selt
til Ítalíu. Öðru hveiju tekst að selja
fyrir ágætis verð í Tyrklandi, Kýpur
og ísrael. Ýmis fleiri lönd fyrir botni
Miðjarðarhafs eru framtíðarmark-
aðir en öll Norður-Afríka er enn sem
komið er óskrifað blað.“
GOTT Á LÍNUIMA
• SIGURÐUR Pétursson á
Sædísinni SH hefur gert það
gott að undanfömu. Hér er
hann við löndun í Ólafsvík en
að undanförnu hefur hann
Morgunblaðið/Alfons
róið á línu og tvílandað yfir
daginn. Aflinn hefur komist í
um 200 kíló á bala en þegar
þessi mynd var tekin var aflinn
um 1.400 kg. á átta bala.
Aukið samstarf vélsljóra
HELGI Laxdal var endurkjörinn
formaður Vélstjórafélags íslands og
Ásgeir Guðnason varaformaður á
aðalfundi félagsins sem haldinn var
29. desember sl.
Á fundinum var farið yfir starfsemi
liðins árs, að frátöldum kjaramálum,
en þeim höfðu verið gerð skil á sér-
stökum fundum með viðkomandi
hagsmunahópum dagana 27. og 28.
desember sl.
Nokkuð var þó ijallað um lífeyris-
mál og þá afstöðu ráðamanna Lífeyr-
issjóðs sjómanna að hafna því að
Vélstjórafélag íslands eigi áfram
stjómaraðild að sjóðnum eftir að fé-
lagið sagði skilið við Farmanna- og
fiskimannasamband íslands 1. ágúst
1991. í gagnrýni á þessa ákvörðun
kom meðal annars fram að félags-
menn í Vélstjórafélaginu og Far-
manna- og fiskimannasambandinu
væm ámóta margir.
Aðalfundurinn samþykkti að félag-
ið gengi til samstarfs við Vélstjórafé-
lag ísafjarðar um sameiginlegan
rekstur Styrktar- og sjúkrasjóðs og
orlofsheimilasjóða félaganna.
Einnig að Vélstjórafélag íslands
veiti Vélstjórafélagi ísafjarðar þá fé-
lagslegu þjónustu sem Alþýðusam-
band Vestfjarða hefur annast á und-
angengnum árum, sem felst m.a. í
almennu skrifstofuhaldi, gerð kjara-
samninga ásamt margþættri aðstoð
við félagsmenn.