Morgunblaðið - 11.01.1996, Page 2
2 B FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Evrópsk
hátækni-
bréf lækka
í verði
Helsinki. Reuter.
EVRÓPSK hátæknibréf lækk-
uðu í verði á miðvikudag vegna
neikvæðra frétta um afkomu
helzta farsímaframleiðanda
heims, Motorola, sem staðfestir
það sem haft hefur verið á orði
að undanförnu: „þegar farsíma-
framleiðandi hnerrar fær öll
greinin kvef.“
Að sögn Motorola verður
hagnaður fyrirtækisins á fjórða
ársfjórðungi minni en búizt hef-
ur verið við og ástæðan er sögð
veik staða á bandarískum far-
símamarkaði. Hlutabréf í Moto-
rola lækkuðu um 15% í verði
eftir lokun á þriðjudag.
Sérfræðingar í London töldu
viðbrögðin við frétt Motorola
bera vott um of mikla svartsýni
og kváðust enn vongóðir um hag
nokkurra hátæknifyrirtækja.
Fjárfestar virðast hins vegar
ekki mjög kunnugir „hátækni-
geiranum", sem á sér ekki langa
sögu, og hátæknibréf lækkuðu
allnokkuð í verði allt frá London
til Helsinki.
Mest lækkun varð hjá aðal-
keppinautum Motorola, Erics-
son og Nokia, en lækkunin náði
einnig til fyrirtækja, sem eru
ekki eins nátengd þessum geira.
Þau fyrirtæki sem harðast urðu
úti voru Vodafone í Bretlandi,
Philips, Nokia, Austria Mikro
Systeme International, ogþýzka
hugbúnaðarfyrirtrækið SAP
AG.
Fyrri sprengja
Fyrir örfáum vikum olli Nok-
ia miklu uppnámi þegar frá því
var skýrt að hagnaður á fjórða
ársfjórðungi yrði minni en á
sama tíma 1994.
Sérfræðingur Lehman Brot-
hers bendir á að umsvif Moto-
rola nái til ljósleiðara, tölva og
gervihnatta auk farsíma og að
heildarafkoman sé ekki ennþá
Ijós. Reyndar kvaðst hann mæla
með kaupum á bréfum í Erics-
son og Nokia og þau náðu sér
nokkuð á strik þegar á daginn
leið eftir um 12% lækkun um
morguninn.
LM Ericsson AB minnti á að
hagnaður þess fyrirtækis á
fjórða ársflórðungi yrði meiri
en á sama tíma 1994. Þessi yfir-
lýsing bætti nokkuð stöðu Erics-
sons og styrkti einnig Nokia.
Yfirlýsing Nokia um 34.5 millj-
óna dollara pöntun frá Singa-
pore hafði ekkert að segja.
Sérfræðingar segjast' hafa
leiðrétt fyrri spár um afkomu
Nokia, en segja að jafnvel erfið-
leikar Nokia á bandarískum far-
símamarkaði virðist ekki rétt-
læta lækkunina nú.
IBM fær flest
einkaleyfi
vestra
Armonk, New.York. Reuter.
IBM kveðst hafa fengið 1383
bandarísk einkaleyfi 1995, fleiri
en nokkurt annað fyrirtæki
þriðja árið í röð.
Einkaleyfin voru 27% fleiri en
nokkurt annað fyrirtæki fékk á
síðasta ári að sögn IBM, sem
vitnar í rannsóknarfyrirtækið
IFI/Plenum Data Corp.
IBM fékk einnig flest leyfi
1994 (1298) og 1993 (1087).
Þá hafði bandarískt fyrirtæki
ekki fengið flest einkaleyfi síðan
1985.
Þau 9 fyrirtæki sem komust
næst IBM 1995 voru Canon KK,
sem fékk 1088 einkaleyfí; Moto-
rola, 1012; NEC, 1005; Mitsu-
bishi Denki Ltd., 971; Toshiba,
970; Hitachi Ltd., 909; Matsus-
hita, 852; Eastman Kodak, 772;
og General Electric Co., 757.
Skattrannsóknastjóri segir að virðisaukaskattssvikum hafí fjölgað
Upplýst skattsvik 500-1.000
milljónir króna sl. ár
Dæmi um keðju
fyrirtækja
sem stunda
innskattssvik
INNSKATTSSVIKUM fer fjölgandi
og þar er um hærri upphæðir að
ræða en áður. Nokkur nýleg dæmi
eru um að tvö eða fleiri fyrirtæki
skipuleggi slík svik í sameiningu.
Þetta kom fram í máli Skúla Egg-
erts Þórðarsonar, skattrannsókna-
stjóra, á fundi Verslunarráðs ís-
lands í gær um neðanjarðarhag-
kerfið og viðbrögð við því.
Skúli nefndi dæmi um keðju fyr-
irtækja sem seldu sömu vörur
margoft sín á milli. Vörurnar voru
innskattaðar hjá hveiju fyrirtæki
fyrir sig en útskatti ekki skilað.
„Það er í hæsta máta alvarlegt
þegar einstaklingar og fyrirtæki eru
farin að nota tekjuöflunarkerfi rík-
issjóðs sjálfum sér til tekjuöflunar.
Svo virðist sem slík
innskattssvik séu stað-
bundin þar sem þeirra
hefur enn ekki orðið
vart utan suðvest-
urhornsins,“ sagði
Skúli.
Á fundinum kom
fram gagnrýni á vinnu-
brögð skattyfirvalda og
var m.a. sagt að þau
fáist aðallega við minni
háttar mál. Skúli vísaði
þeirri gagnrýni á bug
og nefndi að á síðustu
árum hefði komið upp
hvert stórmálið á fætur
öðru þar sem úrskurð-
aðar gjaldahækkanir
væru tugir og í einstaka tilvikum
hundruð milljóna. Hjá embætti
skattrannsóknastjóra væru yfir
90% mála með meira en milljón í
gjaldahækkun. í langflestum mál-
um næmi hækkunin a.m.k. nokkr-
um milljónum. Skúli segir að
þyngsti dómur, sem hafi fallið í
skattsvikamáli, hafi verið í svoköll-
uðu Vatnsberamáli en
þar námu skattsvikin
38 milljónum króna.
Refsing hins ákærða-
var tveggja og hálfs
árs óskilorðsbundið
fangelsi og nam sektin
20 milljónum.
Skúli nefndi nokkur
tilvik, sem hann sagði
að væru dæmigerð fyr-
ir þau mál sem emb-
ætti hans fengi til
umfjöllunar. í matsölu-
stað einum var öll sala
vantalin og tvöfalt
sölureikningakerfi við
lýði. Gjaldahækkun
þar nam 25 milljónum.
Annað dæmi var af lausasölu í
heimahúsum en þar voru engar
tekjur taldar fram. í því tilviki var
13 milljóna gjaldahækkun úrskurð-
uð. Þriðja dæmið var af iðnaðar-
manni, sem stundaði nótulaus við-
skipti og rak tvöfalt sölureikninga-
kerfi. Þar nam gjaldahækkun 14
milljónum en auk þess var hann
dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi
og til að greiða fjögurra milljóna
króna sekt. Fjórða dæmið var um
bókaútgáfu, þar sem ekkert bók-
hald var fært. Þar var gjaldahækk-
un rúmlega tuttugu milljónir.
Fimmta dæmið var af bygginga-
verktaka, sem færði ekki bókhaid
og skaut undan söluhagnaði. Þar
nam gjaldahækkunin ellefu milljón-
um króna. Einnig nefndi Skúli al-
gengt dæmi um bílaviðgerðarmann
í bílskúr, sem gaf ekki upp neinar
tekjur. Þar nam gjaldahækkunin
einni milljón króna.
Skúli sagði að upplýst skattsvik
hjá hans embætti hefðu á síðasta
ári alls numið 500-1.000 milljónum
króna. Aðspurður vildi hann þó
ekki gefa upp nákvæmari tölu og
nefndi hann þá skýringu að aðalat-
riðið væri ekki að hámarka þá tölu
heldur að stöðva sjálf skattsvikin
og tryggja þeim, sem til rannsóknar
eru hveiju sinni, sanngjarna með-
ferð.
■ Sjá umfjölluti í Torgi/B8.
Skúli Eggert
Þórðarson
Breytingar á siglingakerfi Eimskips
Landsbyggðarhafnir með
beinan aðgang að Evrópu
EIMSKIP mun hefja beinar sigl-
ingar frá ísafirði, Akureyri og
Eskifirði til erlendra hafna síðar
í þessum mánuði þegar fyrri hluti
nýs siglingakerfis félagsins kemur
til framkvæmda. Nýja kerfið miðar
að því að auka þjónustu við við-
skiptavini Eimskips og efla sam-
keppnisstöðu félagsins með auk-
inni flutningsgetu, meiri tíðni og
styttri flutningstíma. í tengslum
við þessar breytingar opnar Eim-
skip þjónustumiðstöð á Austur-
landi, segir í frétt frá Eimskip.
Siglingar hefjast samkvæmt
hinu nýja kerfi þriðjudaginn 23.
janúar þegar Reykjafoss hefur við-
komu á Isafírði. Skipið verður á
Akureyri miðvikudaginn 24. jan-
úar og daginn eftir á Eskifirði.
Þaðan verður siglt til Færeyja,
Immingham og Rotterdam. Að
mati Eimskips opnar þessi sigl-
ingaleið nýja möguleika til útflutn-
ings af landsbyggðinni. Þessar
breytingar hafa í för með sér að
flutningstími varanna styttist úr
7-13 dögum í 4-7 daga. Er stefnt
að því að bjóða viðskiptavinum
félagsins birgðahalds- og vöru-
dreifingarþjónustu á þessum við-
komuhöfnum í framtíðinni. Þjón-
usta við innflytjendur eykst einnig
og geta þeir flutt vörur sínar beint
frá Bretlandi og meginlandi Evr-
ópu til viðkomustaða á lands-
byggðinni án umskipunar í
Reykjavík.
í tengslum við nýju strandleið-
ina opnar Eimskip þjónustumið-
stöð á Austurlandi í mars. Karl
Gunnarsson, sem verið hefur af-
greiðslustjóri Eimskips í Vest-
mannaeyjum, verður þjónustu-
stjóri félagsins á Austurlandi með
aðsetur á Eskifirði. Hann mun
veita viðskiptavinum Eimskips á
svæðinu sömu þjónustu og þeir
hafa hingað til sótt til Reykjavík-
ur.
Reykjafoss og systurskipið
Skógafoss munu annast vikulegar
siglingar á strandleiðinni. Múla-
foss mun áfram annast vikulegar
strandsiglingar en viðkomudagar
breytast til samræmis við hina
nýju leið.
Siglingar annarra skipa Eim-
skips verða óbreyttar fram á mitt
árið þegar seinni hluti hins nýja
siglingarkerfis tekur gildi. Brúar-
foss og Laxfoss sjá áfram um
flutninga til Immingham, Rotterd-
am og Hamborgar og Bakkafoss
og Dettifoss sigla til Færeyja og
Norðurlandanna.
Gjaldeyrisstaðan rýrnaði
um tæpa 5 milljarða ífyrra
GJALDEYRISFORÐI Seðlabanka
íslands jókst um 0,1 milljarð króna
í desember, en þar sem erlendar
skammtímaskuldir bankans jukust
um 2,6 milljarða króna rýrnaði
gjaldeyrisstaða hans um 2,5 millj-
arða króna í mánuðinum. Á síð-
ustu tveimur mánuðum ársins
rýrnaði gjaldeyrisforðinn um 1,6
milljarða króna og gjaldeyrisstaða
bankans um 4,9 milljarða króna,
að því er segir í frétt frá bankan-
um.
Gjaldeyrisforði bankans rýrnaði
um 0,1 milljarð króna á árinu 1995.
Á sama tíma jukust erlendar skuld-
ir bankans um 1,1 milljarð króna
og því rýrnaði gjaldeyrisstaða
bankans nettó um 1,2 milljarða
króna. Gjaldeyrisforðinn nam í árs-
iok um 20,2 milljörðum króna.
Erlendar skuldir Seðlabankans til
skamms tíma námu alls 6,7 millj-
örðum króna í lok desember 1995.
Heildareign Seðlabankans á
markaðsskráðum verðbréfum
ríkissjóðs jókst í desember um 0,9
milljarða króna og er þá miðað við
markaðsverð í upphafi og í lok
mánaðarins. Spariskírteinaeign
jókst um rúmlega 0,9 milljarða
króna og ríkisbréfaeign um 0,8
'milljarða króna, en á móti lækkaði
ríkisvíxlaeign um 0,8 milljarða
króna. Á árinu 1995 lækkaði heild-
areign Seðlabankans á markaðs-
skráðum verðbréfum um tæpa 3,8
milljarða króna.
Kröfur Seðlabankans á innláns-
stofnanir jukust í desember um
rúma 2,2 milljarða króna en lækk-
uðu lítillega á árinu í heild. Kröfur
bankans á ríkissjóð og ríkis-
stofnanir nettó hækkuðu um tæp-
an milljarð króna í desember en
voru í árslok tæpum 5 milljörðum
króna lægri en í ársbyijun.
Einkabókhald
Landsbankans
Nýtt
bókhalds-
forrit fyrir
heimili
LANDSBANKINN er nú að hefja
sölu á nýju bókhaldsforriti sem
fengið hefur nafnið Einkabókhald.
Þessum búnaði er ætlað að auð-
velda einstaklingum að skipuleggja
fjármál heimila og húsfélaga.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum er einkabókhaldið
í nútímalegu grafísku umhverfi og
einfalt í notkun. Valmyndir eru
skýrar og músin notuð við alla
vinnslu nema innslátt á tölum.
Bókhaldið getur tekið 27 tekjuliði,
99 útgjaldaliði og 25 lán með í
útreikninga. Hægt er að hafa eina
færslubók fyrir mismunandi út-
gjaldaliði og marga einstaklinga.
Þannig geta t.d. hjón haft sameig-
inlegt bókhald fyrir heimilið en auk
þess fært aðskildar bækur fyrir
hvern fjölskyldumeðlim eða húsfé-
lagið.
Þá er í annan stað hægt að
reikna út greiðslubyrði lána, sjá
greiðslustöðu fram í tímann, meta
áhrif Ij'árfestinga og tekjubreytinga
á greiðslustöðuna og reikna út
ávinning af mismunandi innlánum.
Einkabókhaldið inniheldur
skipulagsbók þar sem hægt er að
skrá persónulegar upplýsingar o.fl.
Bókhaldið kostar almennt 1.000
kr. en er ókeypis fyrir þá sem hafa
tengst Einkabankanum gegnum
alnetið.
Kassagerðin
kaupirlBM
KASSAGERÐ Reykjavíkur hefur
undirritað samning við Nýherja hf.
um kaup á nýjum IBM AS/400
Power PC tölvubúnaði, að því er
stendur í fréttatilkynningu frá Ný-
heija. Með þessum kaupum er
Kassagerðin að endurnýja eldri
tölvubúnað.
Nýja vélin er búin RISC ör-
gjörva, 192 MB í minni auk 8GB
diskarýmis.