Morgunblaðið - 11.01.1996, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 11. JANÚAR 1996 B 3
VIÐSKIPTI
Tímastjórnun mikilvæg
í starfi og einkalífi
TÍMINN er sú auðlind, sem mörgum gengur illa að
nýta, jafnt í starfi sem einkalífi. Islenska hugmyndasam-
steypan hf. hefur nú gefið út vasabrotsbókina 30 áhri-
farík ráð, sem bæta tímastjómun og margfalda árangur
eftir Thomas Möller, hagverkfræðing. Tómas er fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs OLÍS en hefur um árabil
leiðbeint á námskeiðum hjá Stjómunarfélagi íslands. Þar
kennir hann meðal annars tímastjómun, stefnumótun,
gerð viðskiptaáætlana, markaðsmál og flutningatækni.
TÓMAS Möller, höfundur bókarinnar 30
áhrifarík ráð, sem bæta tímastjórnun og
margfalda árangur.
Thomas skiptir stjórnun-
arnámskeiðum sínum í
þrjá hluta; stjórntæki,
stjórnunarstíl og skipulagn-
ingu. Hann segir að nemendur
sínir sýni yfirleitt mestan áhuga
þegar hann komi að skipulagn-
ingunni og þá sérstaklega tíma-
stjórnunarkennslunni. „Það er
vegna þess að menn vita af því
sjálfir eða gera sér grein fyrir
því á námskeiðinu að mestu
möguleikar þeirra til að auka
afköstin liggja í betri skipulagn-
ingu. Þetta á við um alla stjórn-
endur en er ekki endilega sérís-
lenskt fyrirbæri. Bókin inni-
heldur þekkingu úr 80-100
stjórnunarbókum, sem ég hef
lesið eða af ráðstefnum og fund-
um, sem ég hef setið. í bókinni
er að finna þau ráð, sem ég tel
að hafi reynst best. Mér sjálfum
hefur ekki tekist að fara eftir
þeim öllum en ég reyni stöðugt
að bæta mig.“
Stjórnendur í tímahraki
Thomas telur að íslenskir
stjórnendur standi ekki illa að vígi
í samanburði við erlenda og að
svipuð vandamál hijái stjórnendur
víða um heim. „Samkvæmt al-
þjóðlegum' könnunum hafí flestir
stjórnendur meiri áhyggjur af
tímaleysi en peningaleysi og að
95% þeirra vinni
innan um pappírs-
hauga. „Þá er
meðalstjórnandinn
alltaf að bæta á
sig verkefnum.
Hann er alltaf í
áríðandi verkefn-
um en ekki endi-
lega mikilvægum. Það er því afar
mikilvægt að stjórnendur nái tök-
um á tímanum."
Thomas segir að til að byija
með sé mikilvægt að menn geri
sér grein fyrir því hve tíminn sé
þeim mikilvægur. „Tíminn er
dýrmætasta auðlind hvers ein-
staklings en jafnframt sú sem
við förum oft verst með. Tímann
er ekki hægt að geyma til síðari
nota eða gefa hann öðrum. Þá
er tíminn lýðræðislegasta eign
okkar. Allir fá úthlutað 24 tímum
á sólarhring, hvorki meira né
minna. Flestir vinna átta klukku-
tíma á dag, sofa aðra átta og þá
eru átta til afgangs fyrir einkalíf-
ið. Ef einn klukku-
tími fer til spillis á
dag eða nýtist illa,
fara 12,5% af
vinnudeginum for-
görðum. Þessi tími
samsvarar rúmlega
fimm vinnuvikum
árlega. Með sama
hætti má segja að
fimm mínútna þar-
flaust samtal hafi eyðilagt rúm-
lega eitt prósent af deginum.“
Skortur á markmiðssetningu
Thomas segir að allt of margir
reyni lítt eða ekki að ná stjórn á
lífi sínu og starfi heldur bregðist
einungis við því sem að höndum
ber hverju sinni. „Það er mikill
misskilningur að þannig eigi það
að vera. Einstaklingar eiga í lífi
sínu og starfi að setja sér raunhæf
markmið, sem þeir keppa síðan
að á ákveðnum tíma. Best er að
festa þau á blað og einnig hvern-
ig þau eigi að nást. Maður getur
til dæmis spurt sjálfan sig eftir-
taldra spurninga. Hvað verð ég
að fást við í vinnunni eftir eitt
ár eða fimm og á hvaða launum?
Hvaða menntun þarf ég að bæta
við mig, hvenær og hvernig?
Hvernig ætla ég að vera til heil-
sunnar eftir fimm ár og hvernig
næ ég því markmiði best? Hvern-
ig ætla ég að veija frístundum
minum á næstu
árum, til hvaða
landa ætla ég að
ferðast? o.s.frv.
Með þessum hætti
getur hver maður
lært sjálfsaga og
þjálfað sig til að
koma markmiðum
sínum í framkvæmd. Markmiðin
drífa okkur áfram en markmið
án tímamarka er aðeins draumur.
Draumur með tímamörk er hins
vegar markmið."
Markmiðin í framkvæmd
Thomas segir að sem betur fer
hafi orðið mikil vakning meðal ís-
lenskra stjórnenda á undanförnum
árum að þessu leyti enda sé nú
mun betur en áður unnið að
stefnumótun og markmiðssetn-
ingu innan íslenskra fyrirtækja.
„Þessi hugsun á þó ekkert síður
erindi til annarra starfsmanna,
jafnt í starfi sem einkalífi. Eftir
því sem fólk hefur meiri tök á tíma
sínum hefur það betri tök á lífi
sínu og er þar af leiðandi betri
starfsmenn.“
Miklu máli skiptir að koma
markmiðunum í framkvæmd eftir
að þau hafa verið sett og segir
Thomas að það reynist ýmsum
erfítt. „Fyrir þá sem þurfa að koma
reglu á líf sitt eða starf er mark-
miðssetningin fyrsta skrefíð. Síðan
þarf _að forgangsraða verkefnun-
um. í bókinni er að finna ýmsar
ráðleggingar um það hvemig best
sé að haga verki og losna við
ýmsa tímaþjófa, sem tefja fyrir og
geta jafnvel spillt því Til dæmis
gefst oft vel að búta stór verkefni
niður í lítið. Þá er oft auðveldara
að koma sér að verki.“
Bókin kom út í desember og
að sögn Thomasar hefur sala
hennar gengið mjög vel. „Bókin
er skrifuð af stjórnanda en á er-
indi til almennings enda hljóta
allir að stefna að því að ná betri
stjórn á lífi sínu. Sum fyrirtæki
hafa keypt hana fyrir stjórnendur
sína en önnur hafa gefið hana
öllum starfsmönnum sínum.“
Tíu boðorð tímastjórnunar
1. Settu þér skýr, skrifleg mark-
mið.
2. Búðu til skriflega áætlun um
hvernig markmiðunum skal náð.
3. Gerðu verkefnalista fyrir dag-
inn, vikuna og mánuðinn.
4. Forgangsraðaðu öllum verkefn-
um.
5. Sinntu alltaf mikilvægasta
verkefninu fyrst og ljúktu því.
6. Frestaðu ekki mikilvægum
verkefnum. Segðu við sjálfan þig:
„Gerðu það strax.“
7. Reyndu að vinna óslitið.
Klukkustund nýtist betur en sex
10 mínútna skorpur.
8. Settu tímamarkmið á öll mark-
mið, verkefni, fundi og áætlanir.
9. Framseldu verkefni til sam-
starfsmanna eða aðila „utan húss.“
10. Stefndu ávallt að jafnvægi
milli starfs og einkalífs.
Meiri áhyggj-
ur af tíma-
skorti en
peningaleysi
Yfirmaður kauphallar
Lundúna rekinn
Allar rekstrarvörur
á mðgnudu
innkaupsverði
- fyrir einstaklinga, félög og fyrirtæki. Allt að
50% sparnaður á innkaupum í magni.
Hewlett-Packard dufthylki (toner)
Allar gerðir HP dufhylkja
(toner) í geislaprentara með
20% afslætti og uppítaka
á notuðum
hylkjum á kr. O W W
fyrir verslanir
Kassarúllur
Kassarúllur 70 mm á kr.
Faxpappír
30 metra faxpappír kr.
50 metrar á kr. 250,-
Ljósritunarpappír
A4 hvítur Ijósritunar- m m
pappír, 500 blöð, kr.
67
195
Mýs og
Mottur
Hin vandaða mús
Mouse-Man frá
Logitech (blá eða
svört) á aðeins kr.
4.900
Músamottur (rauðar
eða bláar) á aðeins kr.
95
URVAL GEISLA- BLEK- OG NALAPRENTARA
Hewlett
Packard
glærur
50 blaða kassi af
Hewlett-Packard
glærum fyrir
bleksprautu-
prentara á
einstöku tilboði
aðeins kr.
5.690
fyrir skrifstofur
Hewlett-Packard
blekhylki
• Svart HP blekhylki í alla HP DeskJet
prentaralínuna
á aðeins kr.
2Æ90
• Litablekhylki í alla HP DeskJet
prentaralínuna
á aðeins kr.
fyrir tölvunotendur
3.150
Tökum notuð HP blekhylki uppí ný á
TOLVU- OG PRENTARABORÐ I URVALI
Afritunarstöðvar
og segulbönd
800 MB Colorado innb. afritunar-
stöð á kr.
23.900
< 90 metra segul-
990
< segulband,
1.190
ado segulband, I
2.990
DC 2190 SONY 90 metra segul-
band, 2-4 GB
á aöeins kr.
DC 2120 SONY segulband,
120 MB,
á aðeins kr.
800 MB Colorado segulband,
á aðeins kr.
Disklingar
BULK Quality 3.5" 1.44 MB
disklingar, 10 stk ( pakka,
á aðeins kr. 380
fyrir iðnaðinn
Oryggislæsingar
og keðjur
Mikið úrval öryggisbúnaðar fyrir
fis- og borðtölvur. Driflæsingar,
keðjur, skjávernd og margt fleira.
Verð frá kr.
Avery límmiðar
Mikið úrval Avery límmiða
fyrir geisla- og bleksprautu-
prentara með 20% afslætti.
1.690
fyrir sjávarútveginn
London. Rcutor.
YFIRMAÐUR kauphállarinnar í
London (LSE), Michael Lawrence,
hefur verið rekinn, þar sem hann
nýtur ekki lengur trausts. Málið
hefur komið af stað deilum um
framtíð kauphallarinnar og vakið
uppnám í fjármálahverfi Lundúna.
John Kemp-Welch, formaður
stjórnar kauphallarinnar sagði á
blaðamannafundi að Lawrence
hefði „ekki tekizt að ávinna sér
traust markaðsfyrirtækja, smárra
sem stórra, og að samskipti hans
við kauphallarstjórnina hefðu ver-
ið óviðunandi í nokkra mánuði.“
Lawrence hefur verið aðalfram-
kvæmdastjóri LSE síðan í feþrúar
1994.
Lawrence er rekinn á erfiðum
tíma í sögu kauphallarinnar, því
að í ágúst verður tekið upp nýtt
markaðskerfi. Hann hefur þó ekki
verið gagnrýndur fyrir stefnu þá
sem hefur verið fylgt heldur fram-
kvæmd hennar.
„Þótt brotthvarf Lawrence sýni
að stjórnin hefur glatað trausti
sínu á honum felur það ekki í sér
nokkra breytingu á stefnu kaup-
hallarinnar,“ sagði John Kemp-
Welch í tilkynningu.
Lawrence er annar yfirmaður
LSE sem er neyddur til að láta af
starfi á skömmum tíma. Peter
Rawlins varð að hætta í marz 1993
þegar dýrt TAURUS kerfi LSE
brást. Fyrirrennara Rawlins var
vikið frá 1989.
Innkaupadagar Tæknivals standa aðeins til janúarloka. Öll verð eru
staðgreiðsluverð með VSK. Áskilinn er réttur til verðbreytinga.
Opið alla laugardag
ffrá 10-00 til 16-00
Hátækni til framfara
Tæknival
Skeifunni 17 • Sími 568-1665 • Fax 568-0664