Morgunblaðið - 13.01.1996, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 D 7
Afmælishátíð í
Starfsemi Brunnsins
Borgarleikhúsinu
LEIKFÉLAG Reykjavíkur átti 99 ára
afmæli síðastliðinn fimmtudag en þá
voru jafnframt liðin tíu ár frá því
Davíð Oddsson þáverandi borg-
arstjóri lagði hornstein að Borgar-
leikhúsinu. Var þessara tímamóta
minnst með samkomu í forsal Borg-
arleikhússins þennan dag og var
undirbúningur aldarafmælishátíðar
kynntur við sama tækifæri. Meðal
viðstaddra voru Kjartan Ragnarsson
leikstjóri, Guðrún Ágústsdóttir for-
seti borgarstjórnar, Viðar Eggerts-
son verðandi leikhússtjóri LR og Sig-
urður Hróarsson núverandi leikhús-
stjóri leikfélagsins.
BRUNNURINN sem síðastiiðið
haust flutti inn í nýtt húsnæði í
Hólmgarði 34 hefur tekið á móti
rúmlega fimm hundruð nemendum
á síðustu önn. Nemendur voru á
öllum aldri frá 2-70 ára.
Starfsemi Brunnsins byggist á
lengri og skemmri námskeiðum í
listsköpun af ýmsu tagi. í haust
voru nýjungar Brunnsins meðal
annars námskeið í tónlistaruppeldi
fyrir 2-3 ára börn og foreldra,
leirnámskeið fyrir fullorðna, að-
staða fyrir þá sem unnið hafa með
leir en vantar aðstöðu fyrir áfram-
haldandi sjálfstæða vinnu, nám-
skeið með blönduðu formi í tónlist
og myndlist fyrir 4-5 ára börn,
ásamt öllu því sem áður hefur ver-
ið boðið upp á í starfsemi Brunns-
ins.
Þessa dagana er verið að innrita
á námskeið Brunnsins á vorönn.
Starfsemin hefst á ný 20. janúar.
DAGSKRÁ um Don Juan verður í Listaklúbbnum á mánudagskvöld.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
DON Juan verður tekinn til um-
fjöllunar í Listaklúbbi Leikhús-
kjallarans næstkomandi mánu-
dagskvöld kl. 20.30. Fjallað verð-
ur um uppsetningu litháiska leik-
stjórans Rimasar Tuminas á leik-
riti Moliére og hún skoðuð frá
ólikum sjónarhólum. Nokkrir af
aðstandendum sýningarinnar
munu sitja fyrir svörum um ýmis-
Iegt er varðar sýninguna og
vinnslu hennar.
Elísabet Jökulsdóttir, Guð-
mundur Andri Thorsson, Edda
Heiðrún Backman, Arnór Benón-
ýsson og Sijja Aðalsteinsdóttir,
munu flytja stutt erindi. Jóhann
Dagskrá
um Don
Juan
Sigurðarson og Sigurður Sigur-
jónsson flytja kafla úr verkinu
og gestum gefst kostur á að virða
fyrir sér búninga Vytautasar
Narbutas og iyóta tónlistar
Faustasar Lotenas bæði úr Máv-
inum og Don Juan.
Umsjón með dagskránni hefur
Ásdís Þórhallsdóttir, en hún hef-
ur unnið sem aðstoðarleikstjóri
Rimasar í báðum þessum sýning-
um.
I kynningu segir: „Listafólk
talar oft um hversu mikið skorti
á faglega umfjöllun um starf
þess. Með dagskránni á mánu-
dagskvöldið er reynt að koma til
móts við þessar óskir. Hér verður
aðaláherslan á hina umdeildu
sýningu Þjóðleikhússins á Don
Juan og fjallað um hana jafnt
af leikum sem lærðum."
Vorönn
Söngsmiðj-
unnar
SÖNGSMIÐJAN hefur vorönn sína
15. janúar næstkomandi. Kennd er
raddbeiting, öndun o.fl. sem við-
kemur söngkennslu, tónfræði/tón-
heyrn, leikrænni tjáningu og ýmis-
legt fleira.
í kynningu segir: „Áhersla er
lögð á að vinna með uppbyggjandi
og skemmtilegt söngefni. Börnin
munu læra og syngja ýmsa leikhús-
tónlist s.s. úr Dýrunum í Hálsa-
skógi, Ronju ræningjadóttur, Kardi-
mommubænum o.fl. Unglingar
munu vinna að þemaverkefni á
móti eiturlyfjum.“
-----»■♦ ♦
Deleríum
Búbónis í
Mosfellsbæ
LEIKFÉLAG Mosfellssveitar í Mos-
fellsbæ frumsýndi á dögunum leik-
ritið Deleríum Búbónis eftir þá
bræður Jónas og Jón Múla Árna-:
syni.
Leikrit þetta var fyrst sýnt hjá
Leikfélagi Reykjavíkur á árunum
1958—60, alls 160 sinnum.
Á frumsýningu voru þrír af leik-
urunum sem léku í uppfærslunni í
Iðnó viðstaddir og einnig báðir höf-
undar verksins.
Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð
og verður leikritið sýnt um helgar.
Morgunblaðið/Sverrir
FRÁ jólagöngu Brunnsins í Öskjuhlíð.
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Olivier Debré, Komar og Melamid
og Ingólfur Arnarson til 18. febr.
og Kjarvalssýning fram á vor.
Listasafn íslands
Ný aðföng III til 25. febr.
Gallerí Sævars Karls
Guðrún Einarsdóttir sýnir.
Hafnarborg
Kaffe Fassett sýnir til 19. febr.
Gallerí Geysir
Steinn sýnir til 28. jan.
Gallerí Fold
Ólafur Már Guðmundsson sýnir
til 28. jan.
Gallerí Stöðlakot
Nína Gautadóttir sýnir til 21. jan.
Gallerí Greip
Samsýning 20 myndlistarmanna
til 28. jan.
Gallerí Ingólfsstræti 8
Ingólfur Amarsson sýnir til 4.
febr.
Gallerí Úmbra
Sýning á nótnahandritum Áskels
Mássonar til 31. jan.
Nýlistasafnið
Ásta Ólafsd., Guðmundur Thor-
oddsen og Jón Sigurpálsson sýna
til 28. jan. Gestur í setustofu er
Nina Ivanova.
Gallerí Birgir
Gunnar M. Andrésson sýnir til 15.
jan.
Listasafn Sigutjóns Ólafssonar
Sýning á völdum andlitsmyndum
eftir Sigurjón Ólafsson stendur í
allan vetur.
Listhús 39
Fríða S. Kristinsdóttir sýnir til 22.
jan.
Listasafn Kópavogs
Ingiberg Magnússon sýnir til 21.
jan.
Mokka
Komar og Melamid sýna Eftirsótt-
asta málverk bandarísku þjóðar-
innar til 11. febr.
Ráðhús Reykjavíkur
Örn Þorsteinsson sýnir högg-
myndir til 21. jan.
Myndás
Sýning á 18 bestu ijósmyndum
úr íslandskeppni Agfa og Mynd-
áss. Út janúar.
TONLIST
Sunnudagur 14. janúar
Harmonikutónleikar í Ráðhúsinu
kl. 15; Stórsveit Harmonikufélags
Reykjavíkur og Léttsveit Harmon-
ikufélags Reykjavíkur.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Þrek og tár lau. 20. jan., sun., lau.
Kardemommubærinn sun. 14. jan.,
lau.
Don Juan lau. 14. jan., fim.
Glerbrot fös. 19. jan.
Kirkjugarðsklúbburinn lau. 14. jan.,
sun., fim., fós.
Leigjandinn frums. lau. 14. jan., fim.,
fós.
Borgarlcikliúsið
íslenska mafian lau 13. jan., sun., fim.
Lína Langsokkur sun. 14. jan.
BarPar fós. 19. jan., lau.
Hvað dreymdi þig, Valentína? lau.
13. jan., lau.
Við borgum ekki, við borgum ekki
fós. 19. jan.
Leikfélag Akureyrar
Sporvagninn Gimd lau. 13. jan., fós.,
lau.
Islenska óperan
Madama Butterfly ios. 19. jan.
Hans og Gréta frums. lau. 13. jan.,
lau.
Lundúna-leikhópurinn
Margrét mikla lau. 13. jan.
Hafnarfjíirðarleikliúsið
Hermóður og Háðvör fós. 19. jan.,
lau.
Loftkastalinn
Rocky Horror fós. 19. jan.
KVIKMYNDIR
MÍR
„Tónskáldið Glinka“ sun. 14. jan.
kl. 16.
LISTAKLUBBUR
Leikhúskjallarinn
Dagskrá um Don Juan og sýningu
Þjóðleikhússins mánudagskvöld
15. jan. kl. 20.30.
Upplýsingar um listviðburði sem
óskað er eftir að birtar verði í
þessum dálki verða að hafa borist
bréflcga fyrir kl. 16 á miðviku-
dögum merktar: Morgunblaðið,
Menning/listir, Kringlunni 1, 103
Rvík. Myndsendir: 91-5691181.
Kaupmannahöfn - menningarhöfuðborg Evrópu árið!996
Kaupmannahöfn. Morgunbladid.
Menningarárið
hafið af krafti
MENNINGARHÖFUÐBORGIN
evrópska í ár, Kaupmannahöfn,
opnaði á fimmtudagskvöld form-
lega dagskrá ársins. Var það gert
með kvöldverðarboði fyrir 1.400
manns. Um helgina eru svo ýmsir
dagskrárliðir fyrir 200 erlenda
gesti, sem hingað er boðið í tilefni
opnunarinnar. Eftir hatrammar
deilur undanfarin ár er ekki annað
að sjá en að borgarbúar séu farnir
að trúa á framkvæmdina og taki
henni vel.
Veislan með dansi á eftir var
haldin í ráðhúsinu við samnefnt
torg í hjarta borgarinnar. Aðeins
tvisvar í sögu ráðhússins hefur
jafn fjölmennt boð verið haldið þar
og í fyrsta skipti var það í tilefni
af vígslu hússins 1905. Margrét
Þórhildur Danadrottning og Hinrik
prins mættu og aðrir fyrirmenn,
en auk þess var boðið fjölda lista-
manna og fjölmiðlafólks. Matseðill-
inn var settur saman af færustu
kokkum landsins og eldað úr vist-
vænu dönsku hráefni. Undir borð-
um skemmtu kunnir listamenn eins
9g djassleikarinn Niels Henning
Órsted-Pedersen og fleiri.
Það hefur ekki svo lítið gengið
á við undirbúning ársins. í fyrstu
mættu skipuleggjendum ekkert
nema efasemda- og tortryggnis-
raddir, en þær hafa nú að mestu
þagnað. Síðasta gusan gengur þó
yfir þessa dagana, því í tilefni árs-
ins var Ráðhústorgið gert upp.
Hluti af því verki var að byggja
svart hús, þar sem upplýsinga-
skrifstofa menningarársins verður.
Síðan á að nota húsið sem upplýs-
ingamiðstöð fyrir ferðamenn. Hús-
ið hefur verið stórlega gagnrýnt
fyrir að vera alltof stórt og klossað
og borgarfulltrúar, sem studdu
bygginguna, segjast hafa verið
blekktir til að trúa að húsið yrði
mun fyrirferðarminna.
Dagskrá ársins er fjarska fjöl-
breytt og fjárstuðningur atvinnu-
lífsins hefur farið fram úr björt-
ustu vonum. Að sögn Trevor Davi-
es framkvæmdastjóra menningar-
ársins hefur leiðarljósið í skipu-
lagningunni verið að árið yrði
menningarlífínu lyftistöng á næstu
árum. Ekki ætti að tjalda aðeins
til eins árs.