Morgunblaðið - 16.01.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 C 3
KNATTSPYRNA
Fátt virðist geta
stödvað Newcastle
ÞAÐ virðist fátt geta komið í veg fyrir að Newcastle fagni sínum
fyrsta meistaratitli í Englandi síðan 1927 — liðið hefur nú níu
stiga forskot á Manchester United og einn leik til góða. Eftir
sigur Newcastle á Coventry, 1:0, á sunnudaginn er liðið efst hjá
veðbönkum í London — fór úr 1 -3 í 1 -5, síðan kemur Liverpool
5-1, Manchester United 6-1 og Tottenham er í fjórða sæti 33-1.
„Ég sagði fyrir leikinn að Newcastle myndi vinna meistaratitil-
inn. Staðan er óbreytt — liðið getur nú aðeins tapað titlinum,"
sagði Ron Atkinson, knattspyrnustjóri Coventry.
Miðvallarleikmaðurinn Steve
Watson skoraði eina mark
leiksins, eftir mistök hjá vamar-
manninum John Salako, sem náði
ekki að koma frá fyrirgjöf Davids
Ginola. Watson náði knettinum og
sendi fram hjá Steve Ogrizovic,
markverði. Meistaraheppnin var
með Newcastle, sem mátti hrósa
happi að ná þremur stigum á High-
field Road, þar sem liðið vann sinn
fyrsta sigur á útivelli í þijá mán-
uði. Leikmenn Newcastle léku illa,
en þrátt fyrir það fögnuðu þeir
sigri.
Manchester United varð að
sætta sig við jafntefli, 0:0, gegn
Aston Villa á Old Trafford á laug-
ardaginn og Liverpool gerði jafn-
tefli, 1:1, gegn Sheffield Wed.
Meistarar Blackbum unnu sinn
fyrsta leik á útivelli, þegar þeir
lögðu QPR að velli, 0:1, í London.
Shearer skoraði markið — þetta
var fyrsti sigur Blackburn á úti-
velli síðan í apríl í fyrra, þegar
liðið vann einnig QPR.
Leikmenn Bolton, sem höfðu
ekki unnið í ellefu leikjum í röð,
fögnuðu sigri gegn Wimbledon,
1:0. John McGinlay skoraði mark-
ið úr vítaspyrnu á 44. mín.
Wimbledon lék með tíu leikmenn
allan seinni hálfleikinn, þar sem
Robbie Earle var rekinn af lei-
kvelli rétt fyrir leikhlé.
Arsenal vann góðan sigur úti
gegn Middlesbrough, 2:3. Það var
Hollendingurinn Glenn Helder sem
skoraði sigurmarkið á 62. mín. —
hans fyrsta mark fyrir Arsenal í
36 leikjum. Paul Merson skoraði
fyrsta mark Arsenal á sjöundu
mín., en síðan svöraðu heimamenn
með mörkum frá Brasilíumannin-
um Juninho og Phil Stamp. David
Platt jafnaði fyrir Arsenal, 2:2,
tveimur mín. áður en Helder skor-
aði sigurmarkið. Middlesbrough
endaði leikinn með tíu leikmenn
inná, þar sem varamaðurinn Alan
Moore var rekinn af leikvelli á síð-
ustu mín. leiksins.
Mark Hughes hjá Chelsea fékk
að sjá rauða spjaldið í leik, 1:1,
gegn Everton. Hann var rekinn
af leikvelli fyrir grófan leik í seinni
hálfleik. John Spencer skoraði
mark Chelsea á 20. mín., en David
Unsworth skoraði mark Everton
úr vítaspyrnu sextán mín. seinna,
sem var dæmd á Rúmenann Dan
Petrescu, sem felldi Anders Limp-
ar.
Áhorfendur á Elland Road fögn-
uðu gamla dýrlingnum Lee Chap-
man geysilega, þegar hann mætti
til að leika með liðinu gegn West
Ham — er í láni frá Ipswich. Chap-
man átti stóran þátt í meistarat-
itli Leeds 1992. Chapman átti
þátt í fyrra markinu sem Tomas
Brolin skoraði á 25. mín. Aðeins
mín. síðar var hann rekinn af lei-
kvelli fyrir að gefa Svisslendingn-
um og fyrram félaga sínum hjá
West Ham, Mark Reiper, olnboga-
skot. Leikmenn Leeds létu þetta
ekki á sig fá, Brolin skoraði aftur
á 63. mín. og tryggði Leeds sigur,
2:0.
Leeds var að leiks sinn sjöunda
leik á 21 degi — liðið hefur aðeins
tapað einum. Leeds og Manchester
City hafa bæði hug að næla sér í
Uli Borawak frá Werder Bremen.
Tottenham
og Wimble-
don í Evr-
ópubann
TOTTENHAM og Winibledon
hafa verið sett í eins árs bann
fráþátttöku í Evrópukeppni.
Ástæðan fyrir banninu er að
liðin tefldu fram táningalið-
um og leikmönnum frá öðrum
liðum í Inter-Toto keppninni
sl. sumar og léku heimaleiki
sína í Bríghton. Knattspyrnu-
samband Evrópu, UEFA, tel-
ur að liðin hafi þar með litiisv-
irt keppnina.
Forráðamenn Tottenham
eru ekki ánægðir með þessa
ákvörðun, þar sem liðin hlupu
í skarðið til að bjarga enska
knattspyrnusambandinu og
tóku þátt í Inter-Toto keppn-
inni. Lítiil áhugi er fyrir
keppninni hjá enskum liðum,
þar sem keppnin stendur yfír
um hásumar, þegar enskir
knattspyrnumenn eru i sum-
arfríi eða að byija að und-
irbóa sig fyrir næsta keppnis-
timabil. Tottenham hefur ósk-
að eftir þvi við enska knatt-
spymusambandið að þessum
úrskurði verði áfrýjað.
Fyrsta tap Ajax
í 613 daga
EVRÓPUMEISTARAR Ajax máttu þoia sitt fyrsta
tap í 53 deildarleikjum í Hollandi, eða frá því í
maí 1994, þegar það sótti Willem II Tilburg heim,
1:0. Þetta var annað tap Ajax í röð, þar sem liðið
tapaði vináttuleik gegn Maccabi Haifa í ísrael,
2:1, á fimmtudaginn var. Patrick Kluivert og Jari
Litmanen fengu góð tækifæri til að skora fyrir
Ajax í byrjun leiksins, en þeim brást bogalistin.
Van der Vegt skoraði mark Wiliem II og var
heppnin með honum — hann skaut að marki af
átján metra færi, knötturinn fór í varaarmanninn
Frank de Boer, breytti um stefnu og fór framhjá
Edwin van de Sar, markverði. Eftir markið voru
Nordin Wooter og Litmanen teknir útaf og Níger-
íumennirnir Finidi George og Nwankwo Kanu
settir inná, en allt kom fyrir ekki.
Ajax hafði ekki tapað leik í móti í 613 daga.
Þess má geta að þetta var í fyrsta skipti sem tán-
ingarnir Patrick Kluivert, Michael Reiziger og
Winson Boogard hafa mátt þola tap með Ajax í
keppni, en liðið hafði leikið 75 leiki í röð í mótum
án þess að tapa. Louis van Gaal, þjálfari Ajax,
sagðist ekki hafa áhyggjur — það kemur alltaf
að því að lið tapi.
Hér á myndinni til hliðar sjást þrír leikmenn
Willem II fagna sigrinum yfir Ajax.
Milan saknaði Weah
Liðið varð að sætta sig við markalaust jafntefli í Cremonese
Compostela
erfitt heim
að sækja
COMPOSTELA skaust upp í annað
sætið á Spáni, þegar liðið lagði
Espanyol að velli, 2:1. Compostela,
sem leikur nú sitt annað keppnis-
tímabil í 1. deild, er sjö stigum á
eftir Atletico Madrid — liðið hefur
ekki tapað á heimavelli, unnið tiu
leiki og gert eitt jafntefli. „Það
er ekkert lið sem getur fagnað
sigri hér,“ sagði Jose Antonio
Camacho, þjálfari Espanyol.
Leikmenn Real Madrid eiga ekki
sjö dagana sæla, því að 70.000
áhorfendur bauluðu á þá eftir jafn-
teflisleik, 2:2, gegn Zaragoza Sant-
iago Bernabeu. Real bjargaði sér
frá tapi með því að skora tvö
mörk undir lok leiksins.
Argentínumaðurinn Diego Sim-
eone tryggði Atletico Madrid jafn-
tefli, 1:1, með marki tveimur min.
fyrir leikslok, 1:1, gegn Albacete.
að var greinilegt að leikmenn
AC Milan söknuðu George
Weah, þegar þeir urðu að sætta sig
við jafntefli, 0:0, í Cremonese. Weah
er í Suður-Afríku, þar sem hann
leikur með Líberíu í Áfríkumeistara-
keppninni. Dejan Savicevic, Roberto
Baggio og Marco Simone náðu ekki
að btjóta sterka vörn Cremonese á
bak aftur og þá varði markvörðurinn
Luigi Turci mjög vel í marki heima-
manna. ítalska blaðið Gazzetta Dello
Sport sagði í fyrirsögn eftir leikinn:
„Farið til Suður-Afríku og náð í
hann“ — átti blaðið við að AC Milan
ætti að ná í Weah.
Fiorentina notaði tækifærið og
minnkaði muninn um eitt stig, með
því að leggja Piacenza að velli 2:1.
Anselmo Robbiati, og Francesco
Baiano skoruðu mörk Fiorentina, en
leikmenn liðsins hafa skorað mark
eða mörk í síðustu 30 heimaleikjum
liðsins, eða í öllum heimaleikjum sín-
um í 21 mánuð.
Parma vann stórsigur, 4:0, á
Cagliari — fyrsti sigur liðsins í fjór-
um leikjum. Roberto Mussi skoraði
fyrsta mark Parma og síðan bætti
liðið þremur mörkum við í seinni
hálfleik og missti einnig varnar-
manninn Luigi Apolloni af leikvelli,
eftir að hann hafði séð sitt annað
gula spjald.
Meistarar Juventus máttu sætta
sig við jafntefli, 1:1, heima gegn
Bari. Fabrizio Ravanelli jafnaði úr
vítaspyrnu, eftir að Igor Protti skor-
aði fyrir gestina á níundu mín.
Marco Branca skoraði tvö mörk
fyrir Inter Mílanó gegn sínum gömlu
félögum hjá Roma, 2:0. Þetta var
móralskur sigur fyrir Inter, eftir að
liðið hafði tapað þremur af síðustu
fjóram leikjum sínum. Alessandro
Iannuzzi, sem tók stöðu Giuseppe
Signori, sem var í leikbanni, bjarg-
aði Lazíó frá tapi — er hann skoraði
jöfnunarmarkið, 1:1, beint úr auka-
spyrnu á síðustu sek. gegn Torínó
á Ólympíuleikvanginum í Róm, en
aðeins tíu mín. áður hafði Ruggiero
Rizzitelli skorað mark Torínó.
■ Úrslit / C6
■ Staðan / C6
Porto
heldur
sínu striki
LEIKMENN Porto halda
sínu striki í Portúgal, þar
sem þeir hafa ekki tapað
leik í vetur. Þeir fögnuðu
sigri, 2:0, yfir Sporting, sem
er í öðru sæti, með tveimur
mörkum frá Domingos Oli-
veira. Porto hefur náð átta
stiga forskoti á Sporting og
stefnir á að veija meistara-
titil sinn. „Þetta var frábær
sigur, ég er mjög ánægður,"
sagði Bobby Robson, fyrr-
um landsliðseinvaldur Eng-
lands, sem þjálfar Porto.
„Staða okkar er orðin mjög
góð, en það er löng leið
framundan."