Morgunblaðið - 17.01.1996, Page 1

Morgunblaðið - 17.01.1996, Page 1
 SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIÐJA MORGUNBLA ÐSINS MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1996 BLAD Fréttaskýring 3 Um20%ails sjávarfangs á íslandsmiðum fara um fiskmarkaðina Afiabrögð 4 Aflayfirlit og staðsetning fiskiskipanna Viðtal 5 Hjónin Ólafur og Helga I Eldhamri Markaðsmál 0 Söluskrifstofa SH í Þýskalandi velti rúmum milljarði í fyrra HJÓNIN í ELDHAMRI • FORSTJÓRARNIR í Eld- hamri, hjónin Ólafur Arnberg Þórðarson og Helga Þórarins- dóttir hafa rekið saltfiskverk- unina Eldhamar frá árinu 1990 og gera út samnefndan bát. Þau segja verkunina botnlausa vinnu, en þrátt fyrir hátt verð á kvóta var reksturinn taplaus á síðasta ári. Botnlaus vinna frá/B5 Góðar horfur eru á sölu loðnu ínn á Japansmarkað „MARKAÐURINN fyrir heil- nokkur markaður fyrir loðnu í Hong Kong og Tævan. Sala á frystri loðnu í gekk vel í Japan í fyrra, fieyzla hefur aukizt og útlitið er gott. Því sýnist mér að framleiðendur okkar heima geti fullnýtt afkastagetuna við loðnufrystingu á komandi vertíð,“ segir Jón Magnús Kristjánsson, forstöðumaður Söluskrif- stofu SH í Japan. Engir samningar um sölu á loðnu eða loðnuhrognum til Japans hafa gerðir enn sem komið er vegna komandi vertíðar. Sala loðnuhrogna verður líklega dræm frysta loðnu í Japan er í jafn- vægi, en innflutningur þangað hefur verið 18.000 til 19.000 tonn undanfarin tvö ár. Að auki er Jón Magnús segir, að tekizt hafi að auka neyzluna töluvert í kjölfar lækk- unar á framleiðslukostnaði við þurrkun loðnunnar og með nýjum ódýrari pakkningum. „Islenzka loðnan hefur fest sig í sessi á markaðnum í Japan og verði loðnan af eðlilegri stærð í vetur, 50 til 60 stykki í kílói, ætti að vera hægt að selja það, sem framleið- endur okkar geta unnið á vertíðinni," segir Jón Magnús. Mikil aukning loðnufrystingar Loðnufrysting fyrir Japansmarkað hefur aukizt verulega frá árinu 1989 er hún var á bilinu 2.000 til 4.000 tonn. í fyrra voru um 18.000 tonn fryst inn á þennan markað. Aukningin hér stafar meðal annars af því að loðna er hvergi veidd annars staðar en hér við land. Loðnuveiðar eru bannaðar í Barentshafi og kröfur um lágmarks- stærð við Kanada hafa einnig komið í veg fyrir veiðar þar. Eru Islendingar því einir um hituna. Kanadamenn voru áður alls ráðandi á japanska markaðn- um, einkum vegna þess að loðnan frá þeim var stærri en sú, sem hér veiðist. Mikiar blrgðlr af hrognum í Japan Horfur eru ekki eins góðar í sölu á frystum loðnuhrognum. Síðastliðin tvö ár hafa um 11.000 tonn af hrognum farið utan, en neyzlan er um 4.000 tonn á ári. Jón Magnús segir, að fyrir vikið verði loðnuhrognabirgðir í Japan um 3.000 tonn í vor og talið sé að töluverðar birgðir séu hér á landi. Jap- anir séu að jafnaði með um 2.000 tonna birgðir af hrognum og þvi verði þörf þeirra í ár að hámarki 3.000 tonn. Jón Magnús segir ennfremur að möguleikar séu einnig í sölu á hrognum úr ýmsum botnfisktegundum inn á markaðinn þarna eystra. Fréttir Mikið fryst í Eyjum • VINNSLUSTÖÐIN í Eyj- um hefur fryst rúmlega 4.000 tonn á síldarvertíðinni sem nú fer að Ijúka. Er þetta mesta magn af síld sem Vinnslustöðin hefur fryst á síldarvertíð og að sögn for- svarsmanna Vinnslustöðvar- innar er þarna trúlega um íslandsmet að ræða. Á yfir- standandi síldarvertíð er búið að frysta um fjórðungi meira en á vertíðinni í fyrra en frysting síldar hefur auk- ist mikið siðustu árin og ekki eru mörg ár siðan þótti mikið að ná að frysta 500 tonn á vertíðinni í Vinnslu- stöðinni./2 Fiskiker vestur um haf • SAMNINGUR hefur verið gerður milli Mótunar Ltd., Kanada og Borgarplasts hf. um sölu á allt að 3.000 smá- bátakerum til nota í Mótun- arbáta í Kanada, Karabíska hafinu, Afríku og víðar. Kerin afgreiðast á árunum 1996 og 1997. Verðmæti samningsins er um 30 millj. kr. Fyrsta sendingin fer í 3ju viku./2 Landvinnslan endurskoðuð • ÚTGERÐARFÉLAG Ak- ureyringa hefur samið við danska ráðgjafarfyrirtækið MATCON um að yfirfara alla þætti i landvinnslu fé- lagsins og skila tillögum um með hvaða hætti megi auka hagkvæmni hennar. Jafn- framt hefur hátæknifyrir- tækinu Marel hf. verið falið að skila hliðstæðum tillög- um, sem taki mið af þeim tæknilegu lausnum sem það hefur upp á að bjóða./6 Saltað í 40.000 tunnur • BÚIÐ er að salta i 40 þús- und tunnur og frysta 1.100 tonn af flökum hjá Síldar- vinnslunni hf. í Neskaupstað á yfirstandandi síldarvertíð. Þórshamar og Börkur hafa landað um 14 þúsund tonn- um í Neskaupstað og eru enn að. „Menn hafa verið að fleygja því að það sé heimsmet að salta í yfir 40 þúsund tunnur, en ég sel það ekki dýrara en ég keypti það,“ segir Svanbjörn Stef- ánsson, framleiðslustjóri Sildarvinnslunnar hf./8 Markaðir 46% minna af þorski utan • ÚTFLUTNINGUR á óunnum þorski á fiskmark- aðina í Bretlandi heldur áfram að falla milli ára og verð hefur jafnframt lækk- að. í fyrra fóru 1.726 tonn af óunnum þorski héðan á þessa markaði, en 3.196 árið 1994. Samdrátturinn milli ára er 46%. Athygli vekur að jafnframt hefur verðið lækkað um 7% í islenzkum krónum talið og var það 131 króna að meðaltali í fyrra. Eftirspurnin ytra hefur far- ið minnkandi og ræður þar nokkru vaxandi framboð af flökum og heilfrystum fiski úr Barentshafi, sem þykir hentugri til framhalds- vinnslu en ferskur fiskur. Obreytt verð innan lands Þorskur seldur á mörkuðum í innanlands • SALA þorsks á innlendum mörkuðunum hefur einnig dregizt saman milli ára. I fyrra fóru 33.093 tonn um markaðina hér heima, en 36.644 árið 1994 og er sam- drátturinn um 10%. Verð hefur hins vegar staðið í stað í 96 krónum. Skýringin á samdrættinum hér heima er fyrst og fremst vegna minni kvóta, en fyrir vikið fer lítið sem ekkert á mark- aðina frá útgerðum, sem eru jafnframt með eigin vinnsIu./6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.