Morgunblaðið - 18.01.1996, Blaðsíða 1
JltmguitÞIiiMfe
1996
FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR
BLAD
C
Morgunblaðið/Kristinn
Duranona kann að fagna...
KA-MENN sigruðu Hauka 28:24 í 1. delldinni í gærkvöldi og eru nú með tveggja stiga forskot á Valsmenn,
sem eru í öðru sæti. Julian Duranona, markahæsti leikmaður 1. deildar, kann að fagna mörkum sínum og
gerði það tólf sinnum í gær. Hér fá félagarnir á varamannabekknum smjörþefinn af lelkgleði Kúbumannsins.
■ Leikirnir í gærkvöldi / C4
Eiður Smári
í fyrsta sinn
í aðalliði PSV
EIÐUR Smári Guðjohnsen,
sem er 17 ára, lék í fyrsta
sinn með aöalliði PSV Eind-
hoven þegar liðið vann NAC
Breda 4:1 í hollensku deild-
inni I fyrrakvöld. Leikurinn
fór fram á heimavelli PSV
að viðstöddum tæplega
24.000 manns og kom Eiður
Smári inn á þegar 10 mínútur
voru til leiksloka. „Það er
gaman að geta tekið þátt í
þessu en þetta er rosalegur
hraði og svaka stökk frá því
sem áður var,“ sagði hann
við Morgunblaðið. „Ég var á bekknum í tveimur
leikjum fyrii- áramót og svo núna en það eru
margir meiddir og það verður að hafa einhveija
á bekknum. Ég veit ekki hvort ég er tilbúinn í
þetta en ég spilaði aðeins í 10 mínútur og það
er of stuttur tími til að finna hvar maður stend-
ur.“ Hann lék á hægri kanti og var nálægt því
að skora. „Ég fékk boltann á eigin vallarhelm-
ingi, brunaði upp völlinn, lék á einn en missti
boltann of langt frá mér og hann gat komist
fyrir skotíð og bjargað í horn,“ sagði Eiður
Smári sem gerði samning tíl þriggja ára í nóvem-
ber 1994.
ÍBV kærir leikinn
gegn ÍR-ingum
VESTMANNAEYINGAR hafa kært ieikinn gegn
ÍR-ingum í 1. deildarkeppninni, sem ÍR-ingar
unnu í Seljaskóla 27:23 á sunnudaginn var. Eyja-
menn sendu inn kæru vegna þess að einn leik-
maður ÍR, sem var rekinn af leikvelli, kom inn
á fyrr en reglur segja til um - leikmaður sem
rekinn er af leikvelli á að vera utan vallar i
tvær mín. Dómstóll HSÍ hefur fengið gögn um
málið og hefur sjö daga tíl að þingfesta það.
Þess má geta að Rússar kærðu leik gegn Þjóð-
veijum í HM á íslandi út af svipuðu atviki -
leik sem Þjóðveijar unnu 20:17. Þegar Arno
Ehret, landsliðsþjálfari Þjóðveija, var útílokaður
frá leiknum og vísað upp í stúku, gleymdu dóm-
ararnir að láta einhvern þýskan leikmann útaf
eins og reglur gera ráð fyrir. Kæra Rússa var
ekki tekin tíl greina af aganefnd alþjóða hand-
knattleikssambandsins, IHF, og dómstóll sam-
bandsins komst að sömu niðurstöðu - að Þjóð-
veijar hefðu ekki hagnast á mistökunum.
KNATTSPYRNA
Knattspymusamband Evrópu
hunsar Evrópudómstólinn
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, áréttaði í gær að fjöldi
erlendra leikmanna í liðum í Evr-
ópukeppni yrði áfram takmarkaður
við þrjá hverju sinni. Evrópusam-
bandið hafði hótað að annaðhvort
yrði UEFA sektað eða dregið fyrir
dómstóla ef sambandið hunsaði úr-
skurð Evrópudómstólsins sem kveð-
ur m.a. á um ótakmarkaðan fjölda
leikmanna frá löndum innan Evr-
ópska efnahagssvæðisins í liði.
í yfirlýsingu UEFA kom fram
að lögfræðilegt álit UEFA og Al-
þjóða knattspyrnusambandsins,
FIFA, hefði staðfest skilning UEFA
á úrskurði Evrópudómstólsins í
Bosman-málinu - að lið í Evrópu-
keppni væri fulitrúi þjóðar sinnar
og því ætti að takmarka fjölda er-
lendra leikmanna í því hér eftir sem
hingað til. Evrópusambandið lítur
öðrum augum á málið og segir að
lið sé ekki fulltrúi viðkomandi þjóð-
ar.
Svonefnd 3+2 regla hefur gilt
hjá UEFA en í henni felst að lið
má tefla fram þremur erlendum
leikmönnum hveiju sinni og tveim-
ur til viðbótar sem hafa áunnið sér
sama rétt og innlendir leikmenn
vegna langrar veru hjá viðkomandi
liði eða í viðkomandi landi. Hins
vegar sagðl UEFA að þessi regla
ætti ekki við í landskeppni innan
Evrópska efnahagssyæðisins sem
tekur til alira 15 ríkja Evrópusam-
bandsins (Austurríkis, Svíþjóðar,
Finnlands, Belgíu, Danmerkur,
Frakklands, Spánar, Þýskalands,
Grikklands, Ítalíu, Lúxemborgar,
Hollands, Portúgals, Bretlands og
írlands) auk íslands, Liechtenstein
og Noregs. Þá áréttaði UEFA að
ekki er hægt að krefjast félaga-
skiptagjalds fyrir ósamningsbund-
inn leikmann sem skiptir um félag
innan Evrópska efnahagssvæðisins.
UEFA sagði ennfremur að í sam-
vinnu við opinber samtök leik-
manna yrði áfram reynt að finna
lausn á félagaskiptamálum sem all-
ir innan knattspyrnunnar gætu
sætt sig við og væri knattspyrn-
unni til framdráttar. Tekið var fram
að FIFA hefði lagt áherslu á að
félagaskipti á milli landa sem væru
til þess gerð að losna við félaga-
skiptagjald, félagaskipti til mála-
mynda, yrðu dæmd ógild.
í yfirlýsingu UEFA kom einnig
fram að haldið yrði áfram að vinna
málstað knattspyrnuhreyfingarinn-
ar fylgi innan Evrópusambandsins
sem hefði gert heiðursmannasam-
komulag við UEFA um 3+2 regluna
1991. „Hún hefur gengið vel und-
anfarin ár og engin vandamál hafa
komið upp,“ sagði talsmaður
UEFA. „Við sjáum ekki þörfina á
að breyta henni.“
Umræddri regiu var komið á til
að öll lið í Evrópu sætu við sama
borð í Evrópukeppni en hún gildir
ekki í öllum landsmótum álfunnar.
Enska úrvalsdeildin vill' fylgja úr-
skurði Evrópudómstólsins og ein-
stök, sterk félög á meginlandinu
vinna að því að 3+2 reglan verði
afnumin.
ARSENAL OG NEWCASTLE SLEGIN ÚT ÚR ENSKU BIKARKEPPNINNI/ C8