Morgunblaðið - 18.01.1996, Síða 2
2 C FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 1996
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Dixon hefur
ekki samúð
með Ginola
LEE Dixon, landsliðsbakvörður Arsenal, sem glímdi við franska
iandsliðsmanninn David Ginola í deildarbikarleik á Highbury,
með þeim afleiðingum að Frakkinn var rekinn af leikvelli, hef-
ur enga samúð með honum. Ginola verður settur í þriggja
leikja bann fyrir brottvísunina, en hann var rekinn af leikvelli
eftir að hann gaf Dixon olnbogaskot i andlitið.
Dixon, sem hafði gætur á Gin-
ola í leiknum — og sótti oft
hart að franska leikmanninum,
sagði: „Ginola er líklega einn af
snjöllustu sóknarleikmönnum sem
ég hef leikið gegn og það var
mitt verkefni að halda honum
niðri. Þegar ég fann að hann var
orðinn gramur í geði vissi ég að
ég var að vinna verk mitt mjög
vel. Ég vissi aftur á móti ekki
hvað gerðist þegar Ginola var rek-
inn af leikvelli — ég fann fyrir
verk í andlitinu og vankaðist um
tíma,“ sagði Dixon.
Dixon lá á vellinum í nær fimm
mínútur, eða þar til hann var bú-
inn að jafna sig. Knötturinn var
ekki nærri þegar Ginola gaf Dixon
olnbogaskotið. Ginola hafði áður í
leiknum fengið að sjá gula spjald-
ið fyrir leikaraskap — þegar hann
kastaði sér niður á völlinn, eins
og sundmaður, þegar hann íenti í
nágvígi við Nigel Winterburn, hinn
bakvörð Arsenal. Þannig leikara-
skap, sem leikmenn í Frakklandi
og Italíu nota gjarnan, til að reyna
að klekkja á andstæðingnum, þola
Englendingar ekki. Því hefur Eric
Cantona fengið að finna fyrir og
það á Ginola eftir að ganga í gegn-
um — áhorfendur koma til með
að baula á hann á hvaða velli sem
hann á eftir að leika á í vetur.
Kevin Keegan sagði að Ginola
tæki atvikið mjög nærri sér, en
skilaboðin sem Ginola fékk frá
leikmönnum Arsenal, eru: „Það
þýðir ekkert að vera að væla, vertu
fullorðinn — þú átt eftir að læra
mikið.“
Van Vossen til
Glasgow Rangers
GLASGOW Rangers hefur fengið hollenska landsliðsmanninn
Peter van Vossen, fyrrum leikmann Ajax, til liðs við sig I skipt-
um fyrir Rússann Oleg Salenko, sem fer til tyrkneska liðsins
Istanbulspor, sem Van Vossen lék með. Van Vossen er mjög
ánægður að vera kominn til Ibrox eftir sex mánaða martröð
í Istanbúl. „Það er mikill léttir fyrir mig að fara frá Tyrk-
landi, þar sem ég átti í erfiðleikum með að hafa samband við
aðra leikmenn og þar af leiðandi lék ég ekki vel. Nú fæ ég
tækifæri til að leika knattspyrnu eins og ég þekki best.“
Salenko, sem fer til Tyrlands, varð frægur þegar hann skor-
aði fimm mörk fyrir Rússland gegn Kamerún í HM í Banda-
ríkjunum. Hann var keyptur til Rangers fyrir 2,5 millj. punda
frá Valencia á Spáni sl. sumar. Hann skoraði átta mörk í átján
leikjum fyrir Rangers, en náði ekki að aðlaga sig liðinu eða
lífinu í Skotlandi.
DÓMARIIMN Gerald Ashby sýnir Ginola rauða
spjaldið, eftir atlögu hans að Dlxon.
Inter á hött-
unum eftir
markaskorara
Roy Hodgson, þjálfari Inter Mílanó, leitar nú logandi ljósi
að markaskorara. Massimo Moratti, forseti félagsins,
neitaði því ekki að Inter hafi áhuga fyrir að fá Ivan Zamor-
ano, landsliðsmann frá Chile, sem leikur með Real Madrid
á Spáni. Zamorano ætlar ekki að endurnýja samning sinn
við Real þegar hann rennur út í vor. Liðið hefur einnig
augastað á öðrum miðheijum, eins og enska landsliðsmann-
inum Alan Shearer hjá Blackburn og þá hefur nafn Brasilíu-
mannsins Ronaldo, sem leikur með Eindhoven, verið nefnt.
Hodgson vill fá leikmann fyrir Dennis Bergkamp, sem var
seldur til Arsenal. Einn sóknarmaður frá Brasilíu er nú í
herbúðum Inter, Caio og einnig sóknarleikmaðurinn Marco
Branca, sem kom til liðsins frá Roma fyrir skömmu.
Alan Shearer var ekki lengi að tjá sig, þegar hann heyrði
fréttirnar um áhuga Inter, með Jþví að segja að hann hafi
ekki áhuga að fara til liðsins. „Ég er að sjálfsögðu hreyk-
inn að lið eins og Inter Mílanó hafi áhuga á mér. Ég hef
skrifað undir þriggja ára samning við Blackburn — það
eina sem ég hugsa nú um er að leggja mitt af mörkum til
að liðið hafni ofarlega í deildarkeppninni," sagði Shearer.
Valencia á Spáni, Borussia Dortmund og Colo-Colo í
Chile hafa einnig áhuga að fá Ivan Zamorano.
11
Reuter
ITALIA
staðan
Italía - 1. deild
17 6 2 0 17-5 Milan 3 5 1 9-7 34
17 7 2 0 21-9 Fiorentina 3 1 4 9-10 33
17 6 2 1 16-6 Parma 2 5 1 11-10 31
17 6 2 1 17-6 Juventus 2 2 4 7-10 28
17 6 2 1 26-10 Lazio 1 3 4 5-9 26
17 2 4 2 9-8 Roma 4 3 2 11-7 25
17 6 2 1 15-9 Udinese 1 2 5 6-11 25
17 6 3 0 16-2 Inter 0 3 5 6-13 24
17 5 2 1 9-4 Vicenza 1 4 4 7-11 24
17 3 3 2 7-7 Napoli 2 5 2 10-10 23
17 4 4 1 14-8 Sampdoria 1 3 4 12-18 22
17 3 3 3 12-12 Atalanta 3 1 4 9-15 22
17 4 1 3 6-4 Cagliari 2 1 6 7-20 20
17 3 4 1 13-9 Torino 0 4 5 4-17 17
17 3 3 2 15-12 Bari 1 1 7 10-25 16
17 4 1 3 10-13 Piacenza 0 3 6 8-20 16
17 3 3 3 13-12 Padova 1 0 7 5-16 15
17 2 4 2 11-7 Cremonese 0 1 8 7-18 11
Ítalía - 2. deild
19 6 2 2 18-14 Pescara 3 2 4 8-11 31
19 7 2 1 17-5 Cesena 0 5 4 9-13 28
19 7 1 2 22-8 Genoa 1 3 5 9-19 28
19 4 5 0 10-6 Bologna 2 5 3 6-6 28
19 6 3 0 14-8 Palermo 0 7 3 1-7 28
19 5 3 1 16-9 Cosenza 1 6 3 7-11 27
19 4 5 1 11-5 Verona 3 1 5 7-11 27
19 5 4 0 10-2 Reggiana 2 2 6 8-17 27
18 6 0 3 15-10 Ancona 2 2 5 9-11 26
19 5 4 0 16-6 Perugia 1 4 5 7-14 26
19 2 5 2 6-8 Venezia 4 3 3 9-9 26
19 5 3 2 10-6 Salemitan 1 3 5 7-9 24
19 4 4 2 10-7 Brescia 2 1 6 15-15 23
19 5 2 3 14-11 Fid.Andria 0 6 3 7-10 23
18 4 5 1 13-7 Reggina 1 3 4 4-15 23
19 5 4 1 11-6 Foggia 0 3 6 4-14 22
18 3 4 1 9-7 Lucchese 1 5 4 4-11 21
19 1 6 2 4-5 Chievo 2 5 3 9-10 20
19 4 3 3 11-10 Avellino 1 2 6 8-16 20
18 2 5 1 9-6 Pistoiese 1 2 7 8-17 16
Glímdu við spámennína
3 Árangur á heimavelli
Laugardagur 20. jan. úrslit frá 1984
1 West Ham - Manchester Utd. 3 6 1 14:12
2 Liverpool - Leeds 5 2 1 13:1
3 Arsenal - Everton 6 2 2 14:6
4 Chelsea - Nottingh. Forrest 4 3 2 14:15
5 Newcastle - Bolton 2 1 0 6:3
6 Blackburn - Sheffield Wed. 5 2 1 13:7
7 Southampton - Middlesbrough 4 0 1 10:5
8 Wimbledon - Q.RR. 2 3 4 8:10
9 Manchester City - Coventry 6 2 2 15:8
10 Port Vale - Derby 2 0 0 2:0
11 Ipswich - Birmingham 6 0 2 20:7
12 Reading - Stoke 1 0 2 4:2
13 Wolves - Tranmere 2 J J 5:4
Slagur spámannanna:
Ásgeir - Logi 5:7
Hversu margir réttir síðast:
Hve oft sigurvegari (vikur):
Hvað marga rétta í heild;
Meðalskor eftir 11 vikur:
Ásgeir
' 9
85
UL
Logi
6
88
8,0
9
92
8,4
Þín
spá
Sunnudagur 21. jan.
1 Roma - Sampdoria
2 Torino - Fiorentina
3 Parma - Atalanta
4 Vicenza - Inter
5 Cremonese - Juventus
6 Cagliari - Udinese
7 Napoli - Bari
8 AC Milan - Padova
9 Genoa - Verona
10 Cosenza - Salernitana
11 Brescia - Pescara
12 Foggia - Perugia
13 Chievo - Lucchese
úrslit
Arangur á
heimavelli
frá 1988
3 2 2 6:4
3 2 0 6:2
2 2 0 3:1
0 0 0 0:0
0 2 2 4:7
0 1 1 2:3
4 0 0 8:0
1 0 0 1:0
1 0 1 1:1
0 1 0 0:0
2 0 0 4:1
0 0 0 0:0
1 0 0 4:1
Slagur spámannanna:
Ásgeir - Logi 8:2
Hversu margir réttir síðast:
Hve oft sigurvegari (vikur):
Hvað marga rétta í heild:
Meðalskor eftir 10 vikur:
Ásgeir
’ 7
4
83
8,3
Logi
74
7,4
10
9
93
9,3
Þín
spá