Morgunblaðið - 25.01.1996, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
FIMMTUDAGUR 25. JANÚAR 1996 D 3
Ferenc
Puskas
Æ
Utnefndur marka-
hrókur aldarinnar
ALÞJÓÐA samtök knattspyrnusöguritara og -tölfræðinga út-
nefndu Ungverjann Ferenc Puskas markahrók aidarinnar og verð-
launuðu hann sérstaklega þess vegna fyrir skömmu. „Ef þeir
vilja heiðra mig mega þeir það,“ sagði Puskas. „Ég lék knatt-
spyrnu til að skora en ekki til að fá verðlaun."
Puskas, sem er 68 ára, gerði 780 mörk í 823 leikjum á 23 ára
ferli á meðal þeirra bestu en hann hóf ferilinn með Honved í
Ungverjalandi og gerði garðinn frægan með Real Madrid á Spáni.
„Ég geri ráð fyrir að ég hafi alltaf verið næstur markinu," sagði
hann um markafjöldann.
inum Alfredo Di Stefano og mynd-
uðu þeir eitt þekktasta sóknarpar
sögunnar. Úrslitaleikurinn í Evr-
ópukeppni meistaraliða 1960, þegar
Real vann Eintracht Frankfurt 7:3,
er í minnum hafður sem einn besti
leikur félagsliðs og þar var fyrr-
nefnt par í aðalhlutverki. Puskas
lagði skóna á hilluna 1967 og í kjöl-
farið fylgdu þjálfarastörf víða um
heiminn, m.a. í Grikklandi, Banda-
ríkjunum, Saudi-Arabíu, Egypta-
landi og Paraguay.
„Þegar ég fór frá Ungveijalandi
hótaði ég að snúa aldrei til baka
en 1981 var verið að gera kvik-
mynd um „gullliðið“ og þar sem
aðeins vantaði mig féllst ég á að
koma.“ Hann var heiðursgestur á
leik Ungveijalands og Englands,
England vann 3:1 og tryggði sér
rétt til að leika í úrslitakeppni
Heimsmeistarakeppninnar 1982.
„Við vorum ekki lengur á efsta stalli
og það var undirstrikað í Heims-
meistarakeppninni 1986 þegar
gömlu óvinimir frá Sovétríkjunum
unnu okkur 6:1,“ sagði hann. Síðan
hefur Ungveijaland ekki komist í
úrslitakeppni EM eða HM og mátt
þola tap fyrir Slóveníu og íslandi á
liðnu ári og gegn íslandi í Búda-
pest 1992. „Leikmennimir em ekki
í nógu góðri æfingu,“ sagði Pusk-
as. „Eg varð var við það þegar ég
var beðinn um að sjá um þjálfun
landsliðsins í þijá mánuði. Þeir eru
búnir eftir 35 mínútur.“
Hann var beðinn um að nefna
eftirminnilegasta mark sitt. „Ég
man eftir þeim öllum. Ef boltinn
fer yfir línuna era þau öll eins.“
Aðdáenda-
klúbbur
Leedsá
Norðurlöndum
LEEDS-aðdáendur á íslandi
geta gengið í aðdáendaklúbb
félagsins á Norðurlöndum, en
2.500 meðlimir eru í klúbbn-
um — Leeds United Support-
ers Club ogScaadinavia —
sem hefur bækistöðvar í Nor-
egi. Klúbburinn getur út
timarit sex sinnum á ári, blað-
ið er á norsku, 60-70 bls. og
prentað í lit. Þá sér klúbbur-
inn að leigu á myndböndum
með leikjum og fleira efni
tengdu Leeds, veitir hjálp og
ráðleggingar fyrir þá sem
vilja heimsækja Leeds. Þeir
sem hafa áhuga fyrir að að
hafa samband við klúbbinn,
geta gert það með því að
hringa í sima 0047-69325010,
sem einnig er faxnúmer.
Puskas skaust fram á sjónarsvið-
ið á þeim tíma þegar goðsögn-
in um að England væri ósigrandi í
knattspymu var þögguð niður. Að
mati Ungveija og margra Englend-
inga gerði einn leikur útslagið, við-
ureign Englands og Ungveijalands
á Wembley í nóvember 1953. Gest-
imir tóku heimamenn í kennslu-
Morgvnblaðið/Sigmundur Ó. Steinarsson
FERENC Puskas, markahrókur aldarinnar, er hér með GuAmundl Péturssyni, fyrrum landsliðs-
markverAi úr KR og landsliAsnefndarmannl KSÍ.
Guðni og félagar gegn Leeds
BIKARBARÁTl’A verður í Eng-
landi um helgina, þegar 4. um-
ferð verður leikin. Guðni Bergs-
son og félagar hans l\já Bolton
taka á móti Leeds. Þorvaldur
örlygsson leikur með Oldham,
sem heimsækir Swindon, annars
mætast þessi lið: Shrewsbury -
Liverpool, Charlton - Brentford,
Ipswich - Walsall, Bolton - Le-
eds, QPR - Chelsea, Huddersfield
- Petersborough, Coventry -
Manchester City, Middlesbrough
- Wimbledon, Reading - Manc-
hester United, Nottingham For-
est - Oxford, Southampton -
Crew, Swindon - Oldham, Ever-
ton - Port Vale, West Ham -
Grimsby, Sheffield Utd. - Aston
Villa, Tottenham - Wolves.
stund, munurinn var fjögur mörk í
hléi og úrslit 6:3. Fyrsta tap Eng-
lands á heimavelli var staðreynd
og Puskas átti stóran þátt í niður-
lægingunni. Frægt er þegar Billy
Wright, fyrirliði Englands, ætlaði
að „tækla“ Ungveijann en sá síðar-
nefiidi sá við honum, dró boltann
til baka á réttu augnabliki og
Wright rann framhjá. Skömmu síð-
ar lyfti boltinn þaknetinu eftir
þrumuskot Puskas.
Þegar uppreisnin var í Ungveija-
landi 1956 fór Puskas til Vínar í
Austurríki sem pólitískur flótta-
maður og sýndu mörg félög honum
áhuga en Real Madrid bauð best.
Þar lék hann með Argentínumann-
^JU^IENGLAND
staðan
Úrvalsdelld 23 12 0 0 28-6 Newcastle 5 3 3 17-13 54
24 8 4 0 24-9 Man. Utd. 5 2 5 18-18 45
23 9 2 1 32-8 Liverpool 3 4 4 14-13 42
24 6 3 3 17-12 Tottenham 5 5 2 16-12 41
22 6 3 1 16-7 Aston V. 5 3 4 13-9 39
24 10 1 1 32-8 Blackbum 1 4 7 5-18 38
24 6 4 2 20-12 Arsenal 4 3 5 12-12 37
23 7 4 0 19-8 Notth For. 2 6 4 14-24 37
24 6 3 3 21-12 Everton 4 3 5 14-14 36
24 5 5 2 15-12 Chelsea 4 4 4 10-13 36
23 7 2 3 16-10 Leeds 3 3 5 14-22 35
24 7 2 3 20-12 Middlesbro 2 4 6 6-14 33
23 4 4 4 21-19 Sheff. Wed 2 4 5 12-17 26
24 3 4 5 17-20 Wimbledon 3 2 7 16-26 24
22 3 3 4 10-14 West Ham 3 2 7 12-19 23
23 4 4 3 11-10 Southamptn 1 4 7 11-23 23
23 3 4 5 16-19 Coventry 1 4 6 13-26 20
23 4 4 4 8-9 Man. City 1 1 9 5-24 20
24 3 3 6 12-19 QPR 2 0 10 6-17 18
24 3 3 6 9-16 Bolton 0 1 11 14-30 13
1. 27 deild 9 4 1 28-11 Derby 5 4 4 17-19 50
26 6 5 2 21-15 Charlton 6 4 3 18-13 45
28 8 3 3 25-15 Huddersfld 3 6 5 12-17 42
27 8 4'2 19-13 Southend 3 4 6 12-19 41
24 6 3 2 19-8 Sunderland 4 6 3 11-12 39
26 4 4 4 18-18 Leicester 6 5 3 22-18 39
27 5 5 3 16-10 Stoke 5 4 5 21-23 39
27 4 4 6 13-16 Millwall 6 5 2 16-17 39
28 5 5 4 16-14 Norwich 5 3 6 23-20 38
26 6 5 2 22-16 Birmingham 4 3 6 15-20 38
26 7 4 3 30-20 Ipswich 2 6 4 17-17 37
26 5 7 2 17-13 Grimsby 4 3 5 15-19 37
27 6 5 2 18-16 Bamsley 3 5 6 17-26 37
25 6 4 3 24-14 Tranmere 3 3 6 12-15 34
25 2 6 3 13-15 C. Palace 6 4 4 19-18 34
26 5 5 3 21-13 Oldham 2 6 5 13-16 32
28 6 4 4 26-19 Portsmouth 2 4 8 18-27 32
27 6 4 4 21-19 Reading 1 7 5 13-19 32
27 3 4 6 16-20. Port Vale 4 5 5 17-20 30
27 4 6 4 18-18 Wolves 2 5 6 16-21 29
25 3 5 4 15-13 Watford 2 5 6 13-19 25
25 3 4 6 18-21 Luton 3 3 6 5-16 25
26 5 2 6 15-16 WBA 2 2 9 14-29 25
26 3 4 6 16-20 Sheff. Utd 2 4 7 17-25 23
Mistök dómara
í sviðsljósinu
DÓMARAR í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu hafa þótt frekar spjaldaglaðir og
ákaf ir í brottvikningum en nokkrir leikmenn
hafa fengið uppreisn æru eftir að viðkom-
andi atvik hafa verið skoðuð á myndbandi.
Fyrir helgi tilkynnti Enska knattspyrnusam-
bandið að dómari hefði viðurkennt að rangt
hefði verið að sýna David Ginola gult spjald
gegn Arsenal fyrir 10 dögum og var það því
ekki skráð á Frakkann. Honum var vikið af
velli síðar i leiknum en sambandið sagði að
seinna brotið hefði verðskuldað rautt spjald
eitt og sér.
í september sem leið fengu Norðmaðurinn
Henning Berg hjá Blackburn og Vinnie Jones
hjá Wimbledon að líta spjöld sem síðar voru
þurrkuð út eftir að dómararnir höfðu viður-
kennt að hafa gert mistök. /
Mick Harford þjá Wimbledon var rekinn
af velli gegn QPR um helgina eftir að hafa
fengið gult spjald öðru sinni en dómarinn
lofaði knattspyrnustjóra Wimbledon að brott-
vikningin yrði ekki skráð sem slik ef sjá
mætti á myndbandi að um rangan dóm hefði
verið að ræða. Wimbledon er líka að reyna
að fá leiðréttingu á brottvikningu Robbie
Earles í leiknum gegn Bolton og vísar til
myndbands í því sambandi.
Bruce Rioch, knattspyrnustjóri Arsenal,
afhenti dómaranum myndband eftir að
Arsenal hafði tapað 2:1 fyrir Everton um
helgina og bað hann um að skoða sérstaklega
jöfnunarmark Everton. „Við viljum skýringu
á því hver vegna línuvörðurinn veifaði ekki
á rangstöðu og hvers vegna markið var dæmt
gilt,“ sagði Rioch en leikmenn hans vildu
meina að Duncan Ferguson og Daniel Am-
okachi hefðu verið rangstæðir og leikmenn
Arsenal því hætt þegar Graham Stuart óð í
gegn og skoraði. „Duncan Ferguson var nógu
nálægt til að taka í hönd Stuarts en Martin
[dómarinn Martin Bodenham] sagði að Fergu-
son hefði ekki verið á sama svæði og sá sem
skoraði. Ég.veit ekkert um svæði - það hef-
ur enginn sagt mér frá þeirri reglu,“ sagði
Rioch.
Knattspyrnustjórar Liverpool og Leeds
voru sammála um að brottvikning Gary Kel-
lys hjá Leeds hefði verið strangur dómur en
hún gerði vonir gestanna að engu á Anfield.
Liverpool var marki yfir en fékk dæmda víta-
spyrnu og eftirleikurinn gegn 10 mönnum
var auðveldur. „Reglurnar eru ósanngjarn-
ar,“ sagði Howard Wilkinson, stjóri Leeds.
„Kelly eyðilagði ekki marktækifæri við brot-
ið með því að bijóta á Jones. Hann gerði það
sem ég ætlast til af honum — að fara í bolt-
ann. Hann fór rangt að og því var vítaspyma
réttur dómur en það á ekki jafnframt að
þýða brottvikningu. Dómstólar segja að ekki
sé hægt að kæra tvisvar fyrir sama brotið.“
Roy Evans hjá Liverpool tók í sama streng.
„Hann reyndi að ná boltanum og því var
brottvikning einum of mikið.“