Morgunblaðið - 26.01.1996, Side 1
PARKETSLÍPUN
Sigurðar Ólafssonar
Við gerum gömlu
gólfin sem ný
Sími: 564 3500 - 852 5070
J akkaföt
nýjasta tískan
í grunnskólum
FATATÍSKA drengja í grunnskólum er
að breytast. „Skoppara“-tískan er á und-
anhaldi, en jakkaföt teljast nú það flott-
asta.
I Seljaskóla í Breiðholti og fleiri skólum
hefur borið á að strákar mæti í glæsileg-
um jakkafötum í skólann. Þeir eru vel til
hafðir, jafnvel í vesti og skyrtu með bindi,
einfaldlega vegna þess að þeim líður best
að vera vel klæddir herramenn.
Ingólfur Snorri Kristjánsson í Seljaskóla
kom til dæmis í jakkafötum í skóiann í gær.
„Mér finnst bara gaman að vera fínn,“ segir
hann. Sveinn Helgi Kjartansson var í jakkafötum
og rúllukragapeysu og Bjarni Þór Pétursson í
jakkafötum og skyrtu með afar stórum kraga.
Bjarni var áður mikill „skoppari“, en það er nafn
yfir þá sem ganga í sérstaklega víðum fötum.
Snyrtilegur klæðnaður
jafnt í skóla sem ó böllum
Piltarnir segja að á skólaböllum séu strákar
helst í jakkafötum, en nú séu þeir farnir að láta
sjá sig í þeim á virkum dögum, en samt ekki á
hveijum degi. Einn kemur til dæmis alltaf í jakka-
fötum á fimmtudögum.
Ingólfur, Sveinn og Bjarni, sem eru í 10. bekk,
telja að jakkafatatiskan núna sé undir áhrifum frá
bítlatimabilinu, en það er hárgreiðslan að minnsta
kosti; létt sídd í hárinu og beinklipptur toppur.
Tónlistin sem þeir hlýða á er rokk eins og með
hljómsveitunum Led Zeppelin og Doors, en einnig
danstónlist sem nefnist „hás“.
INGÓLFUR Snorri Krist-
jánsson, Sveinn Helgi Kjart-
ansson og Bjarni Þór Pét-
ursson, nemendur í Selja-
skóla í Breiðholtinu.
Það eru helst „skoppararnir" sem láta at-
hugasemdir falla um jakkafatatískuna og Bjarni
Þór segist einnig heyra þær í fótboltanum, en
hann er i landsliði 16 ára og yngri. ®
Sólin í Portúgal
og Mallorka
vinsælust
BÚIÐ er að bóka yfir tvö þúsund sæti í ferðir
á vegum Úrvals-Útsýnar, en ferðaskrifstofan
gaf út tvo nýja ferðabæklinga síðastliðinn
sunnudag. „Ég er búin að vera í ferðaþjón-
ustunni í um tuttugu ár og ég hef aldrei séð
aðrar eins viðtökur,“ segir Guðrún Sigurgeirs-
dóttir, framleiðslustjóri hjá Úrval-Útsýn.
Af sumarferðum til sóíarlanda eru Portúgal
og Mallorka vinsælustu áfangastaðirnir, að
sögn Guðrúnar. Dvöl í sumarhúsi í Hollandi
nýtur einnig töluverðra vinsælda, en þetta er
í fyrsta skipti sem Úrval-Útsýn býður upp á
slíkar ferðir.
Þá er farið að bóka í sérferðir ferðaskrifstof-
unnar og nú þegar er nánast uppselt í ferð til
Karíbahafsins sem verður ekki farin fyrr en í
október. Ítalía nýtur einnig vinsælda og er
búið að bóka þó nokkuð í ferð sem farin verð-
ur þangað í ágústmánuði. ■
VINKONUR
4
Nýstárlegir
siðir á bóndadegi
til fyrirmyndar og eftirbreytni
í DAG er fyrsti dagur þorra,
sem heimildir herma að hús-
freyjan hafi fyrr á öldum
tileinkað húsbóndanum. í
| Sögu daganna eftir Árna
f Björnsson, þjóðháttafræð-
J ing, segir að bóndadagsheit-
S ið hafí þó ekki verið þekkt
íyrr en í þjóðsögum Jóns
'O Arnasonar frá miðbiki 19.
aldar. Þar er minnst á hlaup
bónda kringum bæ sinn, en óvíst
hversu almennur sá siður var eða
hvaðan hann er upprunninn.
Um 1980 sáu blómasalar sér
leik á borði og hvöttu eiginkonur
til að gefa eiginmönnum sínum
blóm á bóndadaginn. í kjölfarið
auglýstu aðrir kaupmenn ýmsan
varning, sem gleðja mætti eigin-
menn með þennan tiltekna dag.
Konur eru sagðar hafa tekið vel
við sér og margar dekra nú við
karla sína á ýmsa lund.
Tllhlýðilegir slölr
á bóndadag
Þar sem Siguijón Kjartansson
og Jón Gnarr eru landsþekktir
fyrir að vera vel að sér um til-
hlýðilega hegðun, atferli og fram-
komu við öll tækifæri leitaði Dag-
legt líf til þeirra varðandi viðeig-
andi siði á bóndadaginn.
Þeir félagar segja að í fyrsta
lagi megi konan alls ekki gleyma
bóndadeginum, slíkt særi karlinn
djúpu sári. Hún eigi að gera hon-
um daginn eins eftirminnilegan
og framast sé kostur. Til dæmis
geti hún vakið hann með kræsi-
legum þorrabakka, ísköldum
brennivínssnafs
og leikið uppáhaldstón-
listina hans. Ef karlinn eigi sér
ekki uppáhaldstónlist, megi alltaf
setja Born in the USA með Bruce
Springsteen á fóninn.
Skjall og bööun
„Okkur finnst einnig einkar
aðlaðandi ef frúin klæðist eggj-
andi búningi og dansar í takt við
tónlistina. í stað blóma
ætti hún að skreyta hí-
býlin með bílaverkstæðis-
dagatölum, gefa honum
vindlakassa, verkfærasett eða
nýjan bíl. Hún á að slá honum
gullhamra allan daginn; segja
honum hversu vel hann sé vax-
inn, hversu greindur hann sé,
úrræðagóður, handlaginn og af-
bragð annarra karla í alla staði.
Auk þess á hún að tafsa mikið á
JÓN Gnarr
(t.v.) og Sig-
urjón Kjart-
ansson eru
landsþekktir
fyrir að vera
vel að sér um
tilhlýðilega
hegðun, atferli
og framkomu við
öll tækifæri - líka
á bóndadaginn.
því hversu heppin hún hafi verið
að ná í hann og umfram allt hlæja
óvenju dátt að öllum bröndurum
hans.“
Jón og Siguijón telja að körlum
standi yfirleitt á sama hvort eig-
inkonan baði þá um morguninn,
miðjan dag eða kvöldið, en þeir
ráðleggja þó fremur' slíka böðun
áður en haldið er á veitingahúsið,
sem konan á að vera búin að taka
á leigu fyrir kvöldið. Til þess að
kóróna bóndadaginn segja þeir
að svíta á fínu hóteli komi vel til
greina.
Kostnaðaráætlun
Með þessu móti segja þeir fé-
lagar að bóndadagurinn gæti ver-
ið afar ánægjulegur. Viðurgjörn-
ingurinn staðfesti ást konu á karli
sínum en umfram allt kæmi
glögglega í ljós hversu háttprúð
hún væri og vel að sér um tilhlýði-
lega hegðun, atferli og fram-
komu. Tiltækið þyrfti ekki að
kosta mikið, samkvæmt kostnað-
aráætlun þeirra aðeins 250-300
þúsund krónur.
Ef hinsvegar haft er í huga
hvað blómvöndur kostar er ekki
fráleitt að ætla að bóndadagurinn
verði með svipuðu sniði og und-
anfarin ár. ■