Morgunblaðið - 27.01.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1996 C 7
Galsafengin gleðin
og viðkvæm alvaran
líklega frægasti texti Þórarins,
Flytjendur voru Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir og Örn Árnason og fluttu þau
þessa gamantexta listilega vel.
Lögin úr Dimmalimm voru flutt
af Kolbeini Bjarnasyni og Gerrit
Schuil en Intermezzo II hefur notið
mikilla vinsælda og síðasta lagið,
Dans Dimmalimm, er hin ágætasta
tónsmíð og var vel flutt. Úr Ofvitan-
um voru fluttir þrír söngvar og þar
koma skýrlega fram sérstakir hæfi-
leikar Atla að gæða söngva sína
gamansemi og á því sviði er hann
algerlega í sérflokki meðal íslenskra
tónskálda. Úr Ofvitanum voru
sungin þijú lög, Eg er mikið mæðu-
grey, Seltjarnarnesið og Lokasöng-
ur leikverksins, sem eins og Atli
orðaði það í kynningunni er mikill
„eyrnaormur" er allir kunna, enda
sungu leikhúsgestir fullum hálsi
með þeim Ólafíu og Erni.
I Land míns föður, leikverki
Kjartans Ragnarssonar, fer Atli á
kostum í að semja söngva í ýmsum
stíltegundum og eru t.d. söngvarnir
Siglt á England, Pólití og pimparar
og Blessað stríðið frábær leikhús-
tónlist, sem var glæsilega flutt af
Ólafíu og Erni. Annan lit hafa svo
lögin úr Eg er gull og gersemi, leik-
gerð Sveins Einarssonar um Sölva
Helgason. Söngtextarnir eru sóttir
í ljóðasafn Davíðs Stefánssonar.
Við flutning þessara laga kom til
leiks óperusöngvarinn Kristinn Sig-
mundsson er flutti fjögur lög, Þér
förumenn jarðar, Spurðu mig ekki,
Ég hef farið um víða veröld og svo
perluna Snert hörpu mína himin-
borna dís. Kristinn söng þessi
ágætu söngverk mjög vel og fékk
alla leikhúsgesti með sér í síðasta
laginu, en þessi hugljúfi texti fjallar
í raun um draum listamannsins í
öllu fólki, að allt sé vígt lífinu, lifni
við með einhveijum hætti í höndum
þess. Þennan innileik hefur Atli
tónklætt, svo hann geti lifað með
fólki.
Eins og fyrr segir kann Atli öllum
GÍTARDÚETT Símonar og Michaels.
TÓNLIST
Ka f f i 1 ci khús i ð
LEIKHÚSTÓNLIST
Fluttir voru söngvar og hljóðfæra-
tónlist eftir Atla Heimi Sveinsson úr
ýmsum leikverkum. Flyjjendur voru
Kristinn Sigmundsson, Olafía Hrönn
Jónsdóttir, Om Amason, Gerrit
Schuil, Kolbeinn Bjamason, Richard
Kom og Pétur Grétarsson. Miðviku-
dagurinn 24. janúar, 1996.
ÞAÐ gildir sama um leikhúsið
og daglega atburði, að þegar tjaldið
er fallið, safnast það sem gerst
hefur til liðinna daga. Margt hefur
fólk þó með sér heim úr leikhúsinu,
sem það svo hefur um hönd sér til
gleði og gamans um langan tíma,
t.d söngvana, er margir lifa meðal
fólks sjálfstæðu lífi, óbundnir flytj-
endum og öllum leikhúsumbúnaði.
Upprifjun Kaffíleikhússins á ís-
lenskri leikhústónlist er gott fram-
tak en þar er fylgt þeirri reglu, að
valinn er einn höfundur og sl. mið-
vikudag voru flutt leikhúslög eftir
Atla Heimi Sveinsson. Tónleikarnir
hófust á lögum úr Bubba kóngi við
texta eftir Þórarin Eldjárn, Es lebe
der Bubbismús og Guðjón, sem er
Grámann
endursýndur
í Höfunda-
smiðju
HÖFUNDASMIÐJA Leikfélags
Reykjavíkur var opnuð í Borgarleik-
húsinu síðastliðinn laugardag, en þá
var leikinn einþáttungurinn Grámann
eftir Valgeir Skagfjörð.
í kynningu segir: „Hlaut þessi
nýjung hjá Leikfélagi Reykjavíkur
gífurlega góðar undirtektir og var
aðsóknin slík að fjöldi fólks þurfti frá
að hverfa.“
Ákveðið hefur verið að endurtaka
leikinn og verður Grámann sýndur
aftur á morgun, sunnudag, á Leyni-
bar Borgarleikhússins kl. 16.
Grámann gerist á bar í Reykjavík
nútímans og segir frá óvæntum end-
urfundum tveggja manna.
Höfundur er Valgeir Skagfjörð, en
hann er jafnframt leikstjóri. Leikarar
eru Ellert A. Ingimundarson, Jón
Hjartarson og Theódór Júlíusson.
Kristbergur „Á
næstu grösum“
NÚ stendur yfir myndlistarsýning á
veitingastaðnum „Á næstu grösum",
Laugavegi 20b. Þar eru til sýnis 11
málverk eftir Kristberg Ó. Péturs-
son. Kristbergur stundaði nám í MHÍ
og í Hollandi.
Hann hefur tekið þátt í samsýn-
ingum heima og erlendis og haldið
nokkrar einkasýningar.
Sýningu Ólafs
Más lýkur í
Gallerí Fold
SÝNINGU Ólafs Más Guðmundsson-
ar á akrýlmyndum lýkur í Gallerí
Fold við Rauðarárstíg á sunnudaginn.
Þá lýkur einnig kynningu á graf-
íkmyndum Sigrúnar Eldjárn í kynn-
ingarhorni gallerísins.
Gallerí Fold er opið daglega frá
kl. 10-18, nema sunnudaga frá kl.
14-17.
Höfundur
Hringadróttins-
sögu
MEÐ umsögn um
Hringadróttins-
sögu í föstudags-
blaði birtist mynd
af Sigurbirni
Sveinssyni rithöf-
undi í stað J. R.
R. Tolkien. Hér
birtist rétta mynd-
in um leið og beð-
ist er velvirðingar á mistökunum.
Gítartón-
leikar á
Ólafsvík
GÍTARTÓNLEIKAR verða
haldnir á morgun; sunnudag, í
Safnaðarheimili Ólafsvíkur-
kirkju kl. 17 á vegum Tónlistar-
skóla Snæfellsbæjar og Menn-
ingarsjóðs Snæfellsbæjar. Það
er gítardúettinn Icetone 42,
sem leikur verk frá ýmsum
tímabilum tónlistarsögunnar.
Dúettinn mynda gítarleikarinn
Símon H. ívarsson og Michael
Hillenstedt, en í nafni dúetts-
ins, „Icetone 42“, felst orða-
þraut sem lesa má úr á ýmsa
vegu.
A efnisskránni er að finna
verk m.a. eftir mexíkóska tón-
skáldið M. Ponce, Spánveijann
F. Sor, Frakkann C. Debussy, -
Gunnar Reyni Sveinsson og
syrpu af lögum frá Suður-
Ameríku.
Símon og Michael munu
kynna tónlistina á tónleikunum
og í lok þeirra verður fjölda-
söngur. Á tónleikunum koma
einnig fram nemendur tónlist-
arskólanna. Tónleikarnir verða
INGA Sólveig sýnir ljósmynd-
ir sem teknar eru á uppákom-
um klæðskiptinga á Spáni.
„Pilsa-
þytur“
INGA Sólveig opnar Ijósmynda-
sýningu á veitingastaðnum 22 í
dag, laugardag.
Myndirnar eru teknar á uppá-
komum klæðskiptinga á Spáni.
Sýningin stendur til 17. febrúar.
í formi kaffikonserts, þar sem
tónleikagestir geta keypt sér
kaffi í hléi og annast nemendur
tónlistarskólanna kaffisöluna
til styrktar Ölmu Ingólfsdóttur.
Símon H. ívarsson hefur síð-
astliðin 13 ár kennt á gítar við
Tónskóla Sigursveins D. Krist-
inssonar. Hann kennir auk þess
kennslufræði og kammertónlist
við sama skóla. Hann hefur
sérhæft sig í Flamencotónlist
og farið sérstakar námsferðir
til Spánar í þeim tilgangi.
Michael Hillenstedt fæddist
Nýjar bækur
Jörðin er
ótryggur staður
SJÁÐU, sjáðu mig. Það er eina
leiðin til að elska mig, nefnist ný
ljóðabók eftir Elísabetu Kristínu
Jökulsdóttur. Undirtitill er Sorgar-
ljóð. Bókin er tileinkuð Elísabetu
Engilráð ísleifsdóttur, ömmu
skáldkonunnar.
Fyrri bækur Elísabetar Kristín-
ar eru: Dans í lokuðu herbergi,
ljóð 1989; Eldhestur á ís, leikrit
1990; Rúm eru hættuleg, sögur
1991 og Galdrabók Ellu Stínu,
sögur 1993.
Nýja bókin er ljóðabálkur eða
eitt ljóð, að sögn skáldkonunnar.
Hún segir að ljóðin séu um þá
sorg að vera hér á jörðinni, ótrygg-
um stað að hennar mati, og ákveð-
in sátt við það. „Við að horfast í
augu við þessa sorg sprettur gleði
upp úr sorginni,“ segir hún.
Sjáðu, sjáðu mig. Það er eina
leiðin til að elska mig, er 48
blaðsíður, prentuð í Isafoldar-
prentsmiðju. Ljóstnynd á kápu er
eftir Jim Smart. Útgefandi er Viti
menn 1995. Bókin fæst í Bókabúð
Máls og menningar, Eymundsson
og hjá höfundi.
betur að semja gamansama tónlist
og lauk þessum tónleikum með al-
deilis kostulega vel gerðu lagi við
texta eftir séra Jón frá Bægisá, er
nefnist Tittlingsminning. I þessu
lagi, sem er einskonar „parodía" í
barokkstíl, nær Atli að útfæra kát-
legt efni textans, klæða hann í sér-
kennandi tónstrófur barokktónlist-
ar og ekki spillti það fýrir, að Krist-
inn Sigmundsson fór á kostum í
flutningi tónverksins og leikrænni
túlkun þessa frábæra gamantexta.
Þar með lauk þessu skemmtilega
tónlistarkvöldi Kaffíleikhússins og
þó gamansemin hafí verið í fyrir-
rúmi, var þarna einnig fengist við
alvöruna, eins og í lögunum við
kvæði Davíðs en það sem þó er
sérkennilegast, að baksvið þessa
kvölds er það orð sem fer af Atla
sem miklum nýjungamanni á sviði
tónsköpunar. Þarna birtast
skemmtilegar andstæður og fjöl-
þættir hæfileikar listamannsins
Atla Heimis, tveir heimar lista-
manns sem kann sitt fag, að fella
svo vel saman, að á smíðinni er
hvergi að fínna misfellur, hvort sem
ort er um galsafengna gleðina eða
viðkvæma alvöruna.
Jón Ásgeirsson
1958 í Hamborg. Hann sjálf-
menntaði sig í gítarleik áður
en hann hóf formlegt gítarnám
1985 við Tónlistarháskólann í
Hamborg hjá próf. Eicke
Funck. Því námi lauk hann
1989 og ári eftir lauk hann
MA-námi í tónvísindum við
Háskólann í Hamborg með
lokaprófsritgerð um Jón Leifs.
1991 flutti hanntil íslands
og hefur starfað síðan sem
kennari við Tónlistarskóla Ár-
nesinga, m.a. í tónfræði, hljóm-
fræði og gítar.
VERK eftir Þórdísi.
Heilabrot í List-
húsi 39
ÞORDIS Árnadóttir opnar sýn-
ingu í Listhúsi 39, Strandgötu 39
í Hafnarfirði í dag, laugardag.
Þórdís er fædd í Reykjavík
1960. Hún var í Myndlistaskóla
Reykjavíkur 1979-1982. Hún út-
skrifaðist úr Fósturskóla íslands
1986 og hélt utan til Danmerkur
í nám við Den Fynske Kunstaka-
demi og brautskráðist þaðan
1990.
Þetta er hennar fjórða einka-
sýning og hún hefur tekið þátt í
tveimur samsýningum.
Sýningin er opin virka daga frá
kl. 10-18, laugardaga kl. 12-18
og sunnudaga 14-18.
MENNING/LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Olivier Debré, Komar og Melamid og
Ingólfur Amarsson til 18. febr. og
Kjarvalssýning fram á vor.
Listasafn íslands
Ný aðföng III til 25. febr.
Norræna húsið
Grafíksýning í anddyrinu.
Gallerí Sævars Karls
Guðrún Einarsdóttir sýnir.
Gallerí Geysir
Steinn sýnir til 28. jan.
Gallerí Fold
Ólafur Már Guðmundsson sýnir til
28. jan.
Gallcrí Greip
Samsýning 20 myndlistarmanna til
28. jan.
Gallerí Ingólfsstræti 8
Ingólfur Arnarsson sýnir til 4. febr.
Gallerí Úmbra
Sýning á nótnahandritum Áskels
Mássonar til 31. jan.
Nýlistasafnið
Ásta Ólafsd., Guðmundur Thoroddsen
og Jón Sigurpálsson sýna til 28. jan.
Gestur í setustofu er Nina Ivanova.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Portrettsýning til 19. maí.
Gallerí Sólon Islandus
Birgir Andrésson sýnir.
Mokka
Komar og Melamid sýna Eftirsóttasta
málverk bandarísku þjóðarinnar til
11. febr.
Myndás
Sýning á 18 bestu ljósmyndum úr
' slandskeppni Agfa og Myndáss. Út
janúar.
Slunkaríki
Verk Romans Signer til 11. febr.
Listasetrið Akranesi
Sossa sýnir á árs afmæli Listaeturs
til 11. febrúar.
TONLIST
Sunnudagur 28. janúar
Orgeltónleikar í Hallgrímskirkju kl.
17; Hörður Áskelsson leikur fslenska
orgeltónlist. Gítardúettinn Icetone 4
2 í safnaðarheimili Ólafsvfkurkirkju
kl. 17.
Þriðjudagur 30. janúar
Tónleikaröð Leikfélags Reykjavíkur á
Stóra sviðinu kl. 20.30; JJ-Soul Band
og Vinir Dóra, BIús og blúsbræðingur.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Þrek og tár lau. 27. jan., mið., fös.,
lau.
Kardemommubærinn lau. 27. jan. sun.,
lau.
Don Juan sun. 28. jan., fim.
Glerbrot sun. 4. febr.
Kirkjugarðsklúbburinn sun. 28. jan., fim.
Leigjandinn sun. 28. jan., fim.
Ástarbréf sun. 28. jan.
Borgarleikhúsið
íslenska mafían lau 27. jan., lau.
Una Langsokkur sun. 28. jan.
BarPar lau. 27. jan., fim., fós. lau.
Konur skelfa frums. lau. 27. jan., sun.
Grámann sýn. sun. 28. jan.
Leikfclag Akureyrar ■>
Sporvagninn Gimd lau. 27. jan., fös., lau.
íslenska ópcran
Madama Butterfly sun. 28. jan., lau.
Hans og Gréta sun. 28. jan.
Hafnarfjarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör lau. 27. jan., fós.,
lau.
Loftkastalinn
Rocky Horror lau. 27. jan., fös.
KaiTiIeikhúsið
Sápa þrjú og hálft lau. 3. febr.
Kennslustundin lau. 27. jan., fös.
Lögin úr leikhúsinu þri. 30. jan.
Grískt kvöld fim. 1. febr., sun.
Miigulcikhúsið
Berrössuð á tánum, söngdagskrá fyiv-
2-6 ára lau. 27. jan.
Ævintýrabókin lau. 3. febr.
Leikfclag Hafnarfíarðar
„Hinn eini sanni seppi“ sun. 28. jan., fim. -
Halaleikliópurinn
Túskildingsóperan lau. 27. jan., sun.
Leikfélag Menntaskólans við Harnra-
hlíð
„Animal Farm“ í Tjamarbíói frums. lau.
27. jan.______________________
KVIKMYNDIR
MIR
„Fresturinn rennur út í dögun“ sun.
28. jan. kl. 16.
Norræna húsið
„Karlsvognen" sun. 28. jan. kl. 14.
LISTAKLÚBBUR
Leikhúskjallarinn
Saga leiklistar á íslandi mán. 29. jan.
kl. 20.30., seinni dagskrá.
Upplýsingar um listviðburði sem ósk-
að er eftir að birtar verði í þessum
dálki verða að hafa borist bréflega
fyrir kl. 16 á miðvikudögum merktar:
Morgunblaðið, Menning/listir, Kringl-
unni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 91-
5691181.