Morgunblaðið - 30.01.1996, Side 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 1996
MORGUNBIjAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikslandslið
karla á Lottó-Cup í Nore
31. janúar til 4. febrúar
1
Laugardaguf3. febrúar
J* ISLAND - Danmörk
Sunnudagur 4. febrúar
ÍSLAND - Júgóslavía
Lillehamme*'
Miðvikudagur 31. janúar
Noregur - ÍSLAND
r
^Stange
Föstudagur 2. febrúar
ÍSLAND - Rúmenía
Haugasund
Þátttökulið: Noregur - ÍSLAND - Júgóslavía - Rúmenía - Danmörk
UÐSSTYRKUR
Verður Julian Duranona orðinn hvalreki á fjörur landsliðsþjálf-
íslenskur landsliðsmaður í arans ef umræddur leikmaður
■ RÚNAR Sigtryggsson, lands-
liðsmaður í handknattleik, sem hef-
ur verið í Danmörku í vetur, er
kominn heim og gengið aftur til liðs
við Víkinga. Rúnar mun leika sinn
fyrsta leik með Víkingi gegn
Gróttu á miðvikudaginn.
■ GUÐRÍÐUR Guðjónsdóttir,
þjálfari og leikmaður með Fram,
gefur kost á sér í landsliðið, sem
leikur gegn Rússlandi tvo leiki í
Evrópukeppni landsliða um næstu
helgi.
■ SKAGAMENN létu allir klippa
sig fyrir bikarúrslitaleikinn í körfu-
knattleik gegn Haukum á sunnu-
daginn. Voru þeir allskrautlegir,
allt frá því að hafa látið rétt særa
af hárinu til þess að hafa látið
krúnuraka sig.
■ MILTON Bell var eini leikmaður
ÍA sem gladdi augað stöku sinnum,
sérstaklega í upphafi síðari hálfleiks
er hann varði skot frá Sigfúsi Giz-
urarsyni með miklum tilþrifum.
■ BAYERN Miinchen er byijað
leita að nýjum leikmönnum fyrir
næsta keppnistímabil. Liðið hefur
hug að fá Matthias Sammers,
landsliðsmann hjá Dortmund, sem
fengi það hlutverk að taka við stöðu
Lothar Matthaus. Þá hafa þeir
Thomas Hássler og sænski lands-
ítfffMR
FOLK
liðsmaðurinn Martin Dahlin verið
nefndir, en þeir hafa sýnt áhuga á
að fara til Bayern.
■ TOTTENHAM hefur augastað á
þýska landsliðsmanninum Ulf Ki-
ersten hjá Bayer Leverkusen.
■ ÞAÐ gengur illa hjá Kristjáni
Arasyni og lærisveinum hans hjá
Dormagen, sem eru í neðri hluta
1. deildarkeppninnar í handknattleik
í Þýskalandi, eftir tap gegn Magde-
burg, 17:22.
■ MAGDEBURG hefur tryggt sér
þýska landsliðsmanninn Stefan
Kretzschmar frá Gummersbach
fyrir næsta keppnistímabil. Þetta
hefur komið mjög á óvart, en hann
átti erfitt með að hafna mjög góðu
boði frá Magdeburg.
■ „EF Atletico Madrid leikur
áfram eins og liðið gerði gegn okk-
ur, stöðvar það enginn. Meistaratit-
illinn fer til liðsins," sagði Dragoslav
Stepanovic, þjálfari Bilbao, sem
tapaði stórt fyrir Atletico, 1:4, á
Spáni um helgina.
■ ENSKA blaðið The Daily Mirror
tók vel á móti Kólumbíumanninum
Asprille fyrir helgi, með því að birta
mynd af honum berum að ofan á
bakslðu, ásamt tveimur fyrrum vin-
konum hans. Blaðið sagði að hann
ætti yfir höfði sér fangelsisdóm, eft-
ir að byssa fannst í bifreið hans I
Kólumbíu. Gula pressan I Englandi
er söm við sig.
■ LEIKMENN Chicago gera ós-
part grín að leikmönnum New York
þessa dagana, en undanfarin ár hafa
liðin verið aðalkeppinautarnir á
austurströndinni í NBA-deildinni.
Chicago vann stórsigur, 99:79, á
New York í sl. viku, eftir að hafa
mest verið 30 stigum yfir. Michael
Jordan segir að New York-liðið sé
ekki það sama eftir að Pat Riley
hætti sem þjálfari liðsins. Dennis
Rodman tók dýpst í árinni og talaði
um New York raggeitur. „Leik-
mennirnir eru gungur, sem settu
höfuðið á milli fótanna þegar við
vorum að rúlla yfir þá.“
■ ÞORIR Hergeirsson, sem er
þjálfari norska kvennaliðsins Gjer-
pen í handknattleik, er komið með
líð sitt í úrslitaleik norsku bikar-
keppninnar. Liðið mætir Larvík.
handknattleik áður en langt um
líður? Það hlýtur að vera spuming
sem brennur á vörum handknatt-
leiksáhugamanna eftir að Kúbu-
maðurinn lýsti áhuga á því í við-
tali við Morgunblaðið á sunnudag-
inn.
Umræddur leikmað-
ur hefur sannarlega
slegið í gegn hér á
landi í vetur. Alfreð
Gíslason og félagar í
KA tóku taisverða
áhættu þegar þeir
ákváðu að slá til og semja við
hann. Duranona hafði ekki sést
á alþjóðavettvangi misserum
saman eftir að hann ákvað að
yfirgefa heimaland sitt. Hann var
meiddur er hann kom til KA-
manna sl. vor en Alfreð hafði trú
á honum, lét slag standa og
Kúbumaðurinn hefur nú ríkulega
endurgoldið traustið. Síðasta
dæmið er frábær frammistaða
hans í bikarleiknum gegn Selfyss-
ingum á laugardaginn, þar sem
segja má að hann hafi tekið leik-
inn í sínar hendur þegar mest á
reið og komið KA í úrslit nánast
upp á eigin spýtur.
Duranona er athyglisverður
leikmaður. Ummæli Þorbjöms
Jenssonar, landsliðsþjálfara, um
hann í blaðinu á sunnudag eru
eftirtektarverð: „Það sem mér
fmnst jákvæðast við Duranona
er að nákvæmlega ekkert fer í
taugarnar á honum. Hvort sem
dómgæslan er á móti honum eða
hann verður fyrir mótlæti frá
andstæðingunum er ekkert sem
raskar ró hans og ég held að
margir leikmenn mættu taka
hann sér til fyrirmyndar að þessu
leyti; hann notar alla sína orku í
leikinn, ekki í að karpa við and-
stæðingana eða dómarana." Þetta
eru orð að sönnu.
Augljóst er að það yrði mikill
yrði löglegur með liði hans. Stór-
skyttur era ekki margar í íslensk-
um handknattleik, og því hefur
það eflaust yljað mörgum unn-
endum íþróttarinnar um hjarta-
rætur að sjá til Kúbumannsins í
leiknum á Selfossi. Hann getur
stokkið upp langt fyrir utan
punktalínu og skorað — nokkuð
sem því miður er alltof sjaldséð
hérlendis um þessar mundir.
Embættismaður I stjómarráði
íslands segir í samtali við Morg-
unblaðið í dag að ákveðnar meg-
inreglur gildi þegar útlendingar
sæki um íslenskan ríkisborgara-
rétt, en ekki þurfí að fara eftir
þeim. „Þetta er matsatriði hjá
alþingismönnum hveiju sinni og
ekkert sem segir að þeir megi
ekki víkja frá þessari meginreglu
eins og þeir vilja,“ segir hann.
Það er alþekkt víða um lönd
að snjallir íþróttamenn skipti um
ríkisfang og auðvelt að nefna
mörg dæmi þar um. Einn besti
handknattleiksmaður heims, Tal-
ant Dujshebaev er frá Kírgístan
en fékk spænskan ríkisborgara-
rétt skömmu fyrir HM á íslandi
og lék með Spánveijum hérlendis.
Þá eru bandarískir körfuknatt-
leiksmenn í landsliðum nokkurra
Evrópuþjóða.
Er ekki sjálfsagt og eðlilegt
að Julian Duranona verði íslensk-
ur ríkisborgari og fái að spreyta
sig í landsliðsbúningnum áður en
langt um líður?
Skapti
Hallgrímsson
Er ekki sjátfsagt að
Duranona fái að spila
með landsliðinu?
GerirAkureyringurinn HEIÐARINGIÁGÚSTSSOIM gæfumuninn fyrirSR?
Geri vonandi
eitthvert gagn
HEIÐAR Ingi Ágústsson, leikmaður með íshokkfliði Skautafé-
lags Reykjavíkur, gerði þrennu gegn sínu gamla félagi, Skauta-
félagi Akureyrar, i'leik liðanna á íslandsmótinu um helgina. SR
vann leikinn 8:1 og hefur aldrei áður unnið SA með svo miklum
mun. Heiðar Ingi var markahæsti leikmaður íslandsmótsins í
fyrra - gerði 30 mörk og stefnir að því að endurtaka leikinn í
vetur þótt hann sé kominn í annað félag. Hann hefur þrívegis
verið kjörinn íshokkímaður ársins; árið 1992,1994 og 1995.
hefur ekki eitt einasta ár dottið
úr hjá mér.“
- Nú hefur þú unnið nokkra
íslandsmeistaratitla með SA, hefur
þú töiu á þeim?
„Ég er ekki alveg með töluna á
hreinu, en ætli þeir séu ekki orðn-
ir fímm eða sex Islandsmeistarat-
itlarnir."
- Þið sigruðuð Iið SA stórt um
helgina. Er stefnan að taka titilinn
a f gömiu félögunum frá Akureyri?
„Já, auðvitað er stefnan sett á
að vinna titilinn. Ég hafði lúmskt
gaman af þessum sigri um helg-
ina. Ég náði að strlða þeim og
skora þrennu en það var samt svo-
lltið sérstök tilfínning að skora hjá
gamla góða félaginu. Ætli þessi
lið leiki ekki til úrslita um titilinn
I rnars."
- Hvernig stóð á því að þú komst
suður og gekkst til iiðs við SR?
Morgunblaðið/Kristinn
HEIÐAR Ingi Ágústsson hefur verið bestl íshokkímaður
landsins síðustu árin. Hann gerði þrennu fyrír SR gegn SA
um helgina. Hér er hann vlð störf í verslunlnni 4 You í gær.
Heiðar Ingi, sem starfar I versl-
uninni 4 You I Reykjavík,
verður 28 ára 10. júní I sumar.
Hann er giftur
Signeu Viðarsdótt-
ur, fyrrum skíða-
konu frá Akureyri.
Þau eiga tvær dæt-
ur, Irisi Köra, 6 ára, og Sunnu
Rún, sem er fímm mánaða.
Heiðar Ingi segist hafa farið
fyrst á skauta þegar hann var sex
ára gamall: „En ég hef verið svona
átta ára þegar ég fór að æfa að
einhveiju gagni á tjörninni I inn-
bænum á Akureyri. Þetta þróaðist
síðan þannig að ég fór að fara inn
I hringinn og þar er ég enn.“
- Hvenær byrjaðir þú að æfa
fyrir alvöru?
„Ég byijaði að æfa fyrir alvöru
þegar ég var tíu ára gamall og
hef stundað íshokkí stíft síðan. Það
Eftir
ValB.
Jónatansson
„Atvinnumálin spiluðu þar stórt
hlutverk og svo er alltaf gaman
að breyta til. Ég fór frá Skautafé-
lagi Akureyrar I góðu.“
- Er mikill uppgangur í íshokkí
hér á landi um þessar mundir?
„Já, þetta er allt á uppleið. Það
er mikill áhugi, sérstaklega hjá
þeim yngstu. Við fáum fleiri áhorf-
endur en áður og eins hefur áhug-
inn aukist eftir að Stöð 3 fór að
sýna klukkutíma þátt á sunnudög-
um frá NHL-deildinni I Bandaríkj-
unum.“
- Hvað æfið þið oft í viku hjá
SR og hvernig er æfingaaðstaðan
í Laugardalnum?
„Við æfum þrisvar I viku, rúm-
lega klukkutíma I senn. Það er
mikið álag á svellinu og erfitt að
fá fleiri æfingatíma þó svo að við
vildum. Þetta er vandamál, sér-
staklega á sunnudögum því þá er
svellið notað mjög mikið yfír dag-
inn og er illa l’arið á kvöldin þegar
við æfum. Það er orðið tímabært
að byggja annað svell I Laugard-
alnum og þá svell fyrir æfíngar
og íshokkíleiki."
- Attu þér einhverja fyrirmynd
í íþróttinni?
„Já, ég hef lengi haldið upp á
Kanadamanninn Wayne Gretzky
og Rússann Sergi Feterov. Ég hef
fylgst með þeim I leikjum I NHL-
deildinni og reynt að læra af þeim.
Ég gef mér góðan tíma til að
skoða myndbönd með leikjum og
ég er viss um að það er hægt að
læra mikið af því að horfa á ís-
hokkí.“